Fréttablaðið - 31.01.2005, Blaðsíða 33
17MÁNUDAGUR 31. janúar 2005
Erum að hefja sölu á íbúðum í þessum glæsilegu húsum.
LYFTUHÚS 3 - 5 HÆÐIR • 2 - 4 HERBERGJA ÍBÚÐIR • 20 BÍLSKÚRAR
Fyrstu íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar í sumar!
LÆKJARGATA 26 - 32 HAFNARFIRÐI (Rafha reiturinn)
Sölu annast Húsakaup, fasteignasala,
Suðurlandsbraut 52,
Sími 530 1500, husakaup@husakaup.is
Byggt við
íþróttamiðstöð
Ný fjárhagsáætlun Vatns-
leysustrandarhrepps.
Fjárhagsáætlun Vatnsleysu-
strandarhrepps fyrir árið 2005 var
samþykkt á síðasta fundi hrepps-
nefndar. Á áætlun er að byggja við
Íþróttamiðstöðina. Í viðbygging-
unni verður ný félagsmiðstöð auk
þess sem búningaaðstaða verður
stækkuð og geymslurými aukið.
Aðrar fjárfestingar hreppsins
eru helst í gatna- og umhverfis-
málum en gert er ráð fyrir að
klára göngustíganetið í Vogum og
gangstéttir við byggðar götur. ■
Eldri hús eru oft ekki einangruð í sam-
ræmi við nútímakröfur.
Ekki í takt
við tímann
Kortlagning orkunotkunar.
Rannsóknastofnun byggingariðn-
aðarins og Orkustofnun hafa
skrifað undir samning um kort-
lagningu orkunotkunar og ein-
angrun bygginga. Sérlega verða
þær byggingar skoðaðar sem
þykja hafa óeðlilega hátt hlutfall
raforku til húshitunar.
Eldri hús eru oft ekki einangr-
uð í samræmi við nútímakröfur og
standast þar með ekki kröfur
byggingarreglugerðar. Gera þarf
íbúðareigendur meðvitaða um
heildarkostnað vegna húshitunar,
og upplýsa þá um hvernig megi á
einfaldan hátt meta hvort eðlilegt
eða nauðsynlegt sé að ráðast í
endurbætur svo spara megi orku.
Lagt er til að byggt verði á gögn-
um frá fyrra orkusparnaðarverk-
efni sem unnið var á árunum 1999-
2000. Niðurstöður verða birtar á
heimasíðu Verkkaupa. Verklok
eru áætluð í desember 2005. ■
Í ár verður lokið við hátt í þrjú þúsund
íbúðir.
Jafnvægi á
markaði?
Íbúðaframkvæmdir fimmt-
ungur fjármunamyndunar.
Í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjár-
málaráðuneytisins sem birt var á
vef ráðuneytisins á miðvikudag-
inn er því spáð að jafnvægi sé
væntanlegt á fasteignamarkaði.
Þess má þó vænta að fasteigna-
verð eigi eftir að hækka nokkuð
enn eða þar til framboð á nýju
húsnæði jafnast á við eftirspurn.
Íbúðaframkvæmdir eru rúmur
fimmtungur allrar fjármuna-
myndunar í landinu, að stóriðju-
framkvæmdum meðtöldum. Í ár
er því spáð að lokið verði við hátt
í 3.000 íbúðir sem er tólfhundruð
íbúðum meira en sem nemur ár-
legri framreiknaðri íbúðaþörf
landsmanna. ■