Fréttablaðið - 11.02.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
MEGASUKK Hljómsveitin Megasukk,
sem samanstendur af tónlistarmanninum
Megasi og dúettnum Súkkat, heldur tón-
leika á Grand Rokk klukkan 23 í kvöld.
DAGURINN Í DAG
11. febrúar 2005 – 40. tölublað – 5. árgangur
DEILT Á HALLDÓR Hart var deilt á for-
sætisráðherra á Alþingi í gær í kjölfar við-
tals við hann sem sýnt var á Stöð 2 kvöldið
áður. Sjá síðu 2
BROTHÆTT VOPNAHLÉ Vopnahlé
Ísraela og Palestínumanna er ótryggt eftir
að ísraelskir hermenn drápu tvo
Palestínumenn í gær. Sjá síðu 2
RÁÐHERRA VILL KONUR Iðnaðar-
og viðskiptaráðherra hefur sent stjórnend-
um 80-90 helstu fyrirtækja landsins bréf þar
sem hún hvetur þá til að beita sér fyrir því
að konur fái tækifæri í stjórn. Sjá síðu 4
MILLJARÐUR Í UPPGREIÐSLU Alls
námu uppgreiðslur lána hjá Byggðastofnun
tæpum 1.100 milljónum króna frá 1. septem-
ber 2004 fram til dagsins í dag. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 34
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 26
Sjónvarp 36
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
18-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
62%
38%
VEÐRIÐ Í DAG
ATVINNA „Byggingaverktakar fá
starfsmenn frá Austur-Evrópu án
þess að hafa til þess nokkur leyfi
og gefa ekki upp launin þeirra.
Þeim fjölgar ört sem starfa ólög-
lega,“ segir Guðmundur Gunnars-
son formaður Rafiðnaðarsam-
bands Íslands.
Finnbjörn Hermannsson, for-
maður Samiðnar, segir sambandið
vita af þessari þróun. Hann segir
vitað um tilfelli þar sem útlend-
ingar hafi gengið svo langt að
stofna fyrirtæki þar sem engar
tekjur eru gefnar upp. Hann seg-
ir erfitt að átta sig á umfangi
vandans en undanfarna þrjá mán-
uði hefur Samiðn haldið uppi
eftirliti í samstarfi við lögreglu
og Útlendingastofnun, þar sem
reynt er taka á þessu máli.
Byggingaverktaki, sem rætt
var við, segist þekkja nokkur
dæmi þess að útlendingar haldi
áfram að vinna hér á landi eftir að
atvinnuleyfi renna út og gefi tekj-
ur sínar ekki upp. Hann sagðist
hafa haft samband við Útlend-
ingastofnun sem hafi vísað á lög-
regluna, sem vísaði aftur á Út-
lendingastofnun. Hann sagði að
sér virðist vera fá úrræði til að
taka á þessu. Verktakinn tók
undir með Finnbirni að dæmi séu
um að menn án atvinnuleyfa
stofni sín eigin verktakafyrir-
tæki, til dæmis um parkett- eða
pípulagningar. Þeir undirbjóði
verktaka sem fara að settum regl-
um.
Guðmundur Gunnarsson segir
marga þá sem vinna svart vera
oftar en ekki af erlendu bergi
brotna og vinni þá gjarnan langt
undir lágmarkslaunum, fái ekki
yfirvinnu greidda, orlof eða veik-
indafrí. Guðmundur segir að
erfitt sé að segja hversu margir
stundi vinnu án atvinnuleyfis eða
á svörtu kaupi, en óstaðfestar töl-
ur bendi til að þeir séu allt að því
600 í byggingargeiranum á höfuð-
borgarsvæðinu einu saman.
- bs
LÖGREGLUMAÐUR Á VETTVANGI Framin voru tvö vopnuð rán með fimmtán mínútna millibili í gær. Ræninginn náðist seint í
gærkvöld. Hann hefur játað sekt sína.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan handtók í
gærkvöld mann sem grunaður
var um að hafa framið fimm vopn-
uð rán síðan á þriðjudag. Lögregla
veitti bíl mannsins athygli við
verslunarmiðstöð um níuleytið í
gærkvöld. Við eftirgrennslan
fundust byssa, öxi og gríma í bíln-
um ásamt fleiru.
Maðurinn, sem hefur nú játað,
lét síðast til skarar skríða í
gærdag þegar hann réðst inn í
tvær verslanir í Reykjavík með
fimmtán mínútna millibili. Hann
réðst inn í bókabúð við Hvera-
fold í Grafarvogi og í Leikbæ í
Mjódd.
Maðurinn lét líka til sín taka
fyrr í vikunni. Á mánudaginn
rændi hann söluturn í Grafarvogi
og á þriðjudaginn rændi hann
söluturn í Mjódd. Þar ógnaði ræn-
inginn starfsfólki með öxi og
komst undan með óverulegt fé
eins og í gær. Á miðvikudaginn
gerði hann misheppnaða tilraun
til að ræna söluturn við Lang-
holtsveg og var maðurinn þá
einnig vopnaður.
- gag/bs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Kynferðisbrotamál:
Karlmaður
sýknaður
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur sýknað
karlmann af ákæru fyrir kynferðis-
brot gegn stúlku á árunum 1990 til
1994 en þá var stúlkan 9 til 13 ára
gömul. Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði áður dæmt manninn í tveggja
ára fangelsi og til að greiða 800 þús-
und krónur í bætur.
Rannsókn málsins hófst ekki
fyrr en í apríl 2003 og telur Hæsti-
réttur málið því fyrnt. Þó að dómur-
inn hafi sýknað manninn á grund-
velli þess að málið væri fyrnt stað-
festi hann dóm héraðsdóms um
miskabætur. Hæstiréttur klofnaði í
málinu. Tveir dómarar af fimm
vildu staðfesta dóm héraðsdóms í
heild sinni. - th
Fimm vopnuð rán á fjórum dögum:
Búið að handtaka ræningjann
SÍÐA 26
● svalaði forvitni útlendinga
Valur Gunnarsson:
▲
SÍÐA 38
Ritstjóri
Grapevine
Anna Sigga:
▲
Í miðju blaðsins
Fólk grét yfir
lambahryggnum
● matur ● tilboð
LEN
DIR
Á F
ÓTU
NUM
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
11
. fe
br
– 1
7.
feb
r
tónlist fólk tíska dans krossgáta heilsa persónuleikapróf
+
Drekaganga
Bjartasta vonin
Heimilislausir
GUÐ
RÚN
S.
GÍS
LAD
ÓTT
IR
» Kö
ttur
úti
í mý
ri
Köttur úti í mýri
Guðrún S. Gísladóttir:
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
● heimilislausir í reykjavík
Fjölnismenn ætla
að fylla Höllina
▲
Bikarúrslitaleikur:
SLYDDUÉL EÐA ÉL Aðallega við
sunnan- og vestanvert landið en úrkomu-
lítið fyrir norðan og austan. Hiti við eða
yfir frostmarki. Sjá síðu 4
Sex hundruð
starfa ólöglega
Sífellt fleiri stunda svarta vinnu. Formaður Rafiðnaðarsambandsins
segir þetta áberandi í byggingargeiranum og telur að allt að 600 manns
starfi ólöglega í honum. Samiðn og Útlendingastofnun hefja samstarf.
Lygasaga frá Írak:
Fjölmiðlar
bitu á agnið
BANDARÍKIN, AP Fjölmiðlar í
Colorado í Bandaríkjunum sögðu
nýlega sorglega sögu af 24 ára
gamalli konu sem lýsti því á harm-
rænan hátt hvernig eiginmaður
hennar lést í átökum í Írak.
Konan sagði að eiginmaðurinn
hefði látist sem sönn hetja. Hann
hefði orðið fyrir skoti þegar hann
var hlífa ungum íröskum dreng
fyrir skothríð uppreisnarmanna.
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós að konan laug öllu saman.
Eiginmaðurinn gekk ekki um götur
Bagdad vopnaður riffli heldur er á
lífi og býr í látlausu úthverfi lítill-
ar borgar í Colorado. Svo gæti far-
ið að konan yrði ákærð fyrir lyga-
söguna. Hún hefur engar skýring-
ar gefið á uppátæki sínu. ■
Á VETTVANGI SPRENGJUÁRÁSAR
Fjórir létust í sprengjuárás í Tahrir í
Bagdad.
20 bílstjórar:
Skotnir í
hnakkann
ÍRAK, AP Lík tuttugu bílstjóra fund-
ust á vegi í Írak í gær. Hryðjuverka-
menn höfðu handsamað mennina,
bundið hendur þeirra fyrir aftan
bak og skotið þá.
Alls létust 43 í bardögum og árás-
um í gær. Þeirra á meðal voru sjö
íraskir lögreglumenn sem féllu í
tveggja klukkutíma löngum bar-
daga við vígamenn suður af Bagdad.
Írösk stjórnvöld hafa ákveðið að
loka landamærum landsins í fimm
daga seinna í mánuðinum. Með
þessu segjast stjórnvöld vilja auka
öryggi íbúanna. Landamærunum er
lokað meðan á helstu trúarhátíð
sjía-múslima stendur. Í fyrra lést
181 í árásum meðan á trúarhátíð-
inni stóð. ■
● þar sem þeir mæta njarðvík