Fréttablaðið - 20.02.2005, Side 4

Fréttablaðið - 20.02.2005, Side 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 61, 73 62,03 116,91 117,47 80,52 80,98 10,82 10,88 9,72 9,77 8,86 8,91 0,59 0,59 93,68 94,24 GENGI GJALDMIÐLA 18.02.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 110,70 -0,22% 4 20. febrúar 2005 SUNNUDAGUR Food and Fun: Heitur áhugi gesta HÁTÍÐ Lokakeppni Food and Fun hátíðarinnar var haldin í gær í Hafnarhúsinu í Reykjavík og sótti mikill mannfjöldi keppn- ina. Áberandi var brennandi áhugi gestanna á matseld og spurði fólk kokkana mikið og fylgdist grannt með allri sýni- kennslu. Talsmenn hátíðarinnar segja að hátíðin í ár hafi gengið framar vonum og hafi áhugi er- lendra blaðamanna verið mikill og líklegt er að gerð verði sér- stök heimildarmynd um hátíð- ina. Andrúmsloftið var afslapp- að og skemmtilegt og það virtist ganga vel upp að halda matar- hátíð í húsi listasafnsins sem áður var gamall fiskmarkaður. Þetta er fjórða árið í röð sem hátíðin er haldin og í ár var hún haldin í samstarfi við vetrarhá- tíð í Reykjavík. Áður en keppni hófst í gær var undirritaður samstarfssamningur Reykjavík- ur og Food and Fun hátíðarinnar til þriggja ára og nokkuð víst að hátíðin er komin til að vera. - keþ MARGOT WALLSTRÖM Margir bundu vonir við að Wallström tæki við af Göran Persson. Kosningar í Svíþjóð: Wallström fer ekki fram NORÐURLÖND Margot Wallström hef- ur tilkynnt að hún muni ekki bjóða sig fram í þingkosningunum í Sví- þjóð árið 2006, þar sem hún telur stöðu sína hjá Evrópusambandinu ekki bjóða upp á það, en hún er varaforseti framkvæmdastjórnar ESB. Wallström telur að það sé ekki við hæfi að hún blandi sér í stjórn- mál heima fyrir en sér ekkert at- hugavert við það að yfirmaður hennar, José Manuel Barroso, bjóði sig fram í heimalandi sínu Portúgal. Nafn Wallström hafði verið í um- ræðunni um hver gæti tekið við þegar Göran Persson hætti sem for- maður Jafnaðarmannaflokksins. NORÐURLÖND LÉST EFTIR BÍLBRUNA Maður á tvítugsaldri lést eftir að bíll sem hann var í sprakk og brann til kaldra kola í Vestfold í Noregi. Bíllinn var á bílastæði þegar skyndilega kviknaði í honum. Ekki er vitað um orsök brunans. EFTIRLIT MEÐ INNFLYTJENDUM Svíar hyggjast nú auka eftirlit með dönskum innflytjendum en mikið er um að Danir flytji heim- ilisfang sitt til Svíþjóðar en búi áfram í Danmörku. Margir Danar sækjast eftir búsetu í Svíþjóð til að geta meðal annars keypt ódýr- ari bíla. Atlantsolía: Stöð opnuð í Reykjavík SAMKEPPNI Steinunn Valdís Óskars- dóttir borgarstjóri opnar fyrstu bensínstöð Atlantsolíu í Reykjavík klukkan hálf þrjú í dag. Hugi Hreiðarsson, markaðs- stjóri Atlantsolíu, segir stefnt að því að opna fleiri stöðvar á höfuð- borgarsvæðinu fyrir árslok. Einnig sé horft til Hellu, Hvolsvallar, Sel- foss, Njarðvíkur og Ísafjarðar. Bensínstöðin sem opnar nú er við enda Bústaðavegar á mótum Reykjanesbrautar. Hún er sjálfsaf- greiðslustöð, en Hugi segir að fyrstu mánuðina leiðbeini starfs- maður Atlantsolíu nýjum viðskipta- vinum. - gag SÖKKTU ÞÉR Í HÁSKÓLANÁMIÐ 27. FEBRÚAR NÁMSKYNNING Í HÁSKÓLA ÍSLANDS www.hi.is MATARLYST Á LISTASAFNI Lokakeppni Food and Fun fór fram á Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L B ER G M AN N LÖGREGLUFRÉTTIR KEYRÐI ÚT Í TJÖRN Jeppi keyrði út af vegi í gær við Fagradal rétt austan við Vík í Mýrdal og lenti út í tjörn. Það hvellsprakk á jeppan- um, sem er breyttur og á stórum dekkjum, og það varð til þess að ökumaður ók út af vegi. Minnihátt- ar eymsli voru hjá ökumanni og farþega. Bíllinn er eitthvað skemmdur og var óökufær. HALD LAGT Á FÍKNIEFNI Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði í gær hald á kannabisefni í fórum eins far- þega frá Herjólfi og eins farþega sem kom með flugi. Í bæði skiptin var um lítið magn að ræða og talið að efnin hafi verið ætluð aðeins til einkaneyslu. ÁGÆT FÆRÐ Góð vetrarfærð er víðast um landið og útlit fyrir góða færð næstu daga miðað við veður- spár. Á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra er víða hálka eða hálkublettir en hálka er með minnsta móti í öðrum lands- hlutum. Ökumönnum sem eru á ferð snemma morguns eða seint að kveldi eru þó beðnir að fara var- lega þar sem hætta er á að ísing leynist á vegum. Fimmtíu létust í sprengjuárásum Uppreisnarmenn myrtu fólk við moskur og helgidóma þegar Ashoura-trúar- hátíðin náði hámarki. Þjóðaröryggisráðgjafi Íraka óttast ekki trúarlegt stríð. ÍRAK, AP Að minnsta kosti 50 manns létust í sprengjuárásum uppreisnarmanna í Írak í gær þegar Ashoura, trúarhátíð sjía- múslíma, náði hámarki. Meira en hundrað manns særðust í árásunum. Talið er að súnní- múslímar hafi skipulagt árásirn- ar og eru flestir hinna látnu sjía- múslímar. Í fyrradag létust 36 í árásum uppreisnarmanna. Þetta er annað árið í röð þar sem umfangsmiklar árásir eru gerðar á meðan Ashoura-trúar- hátíðin stendur yfir. Í fyrra lést 181. Flestar árásirnar í gær voru gerðar í hverfum sjía-múslíma í Bagdad en einnig voru árásir annars staðar í landinu. Sjía-múslímar unnu stórsigur í kosningunum í lok janúar og er óttast nú sé að myndast gjá milli þeirra og súnní-múslíma sem sniðgengu kosningarnar að miklu leyti. „Árásir hryðjuverkamanna, sem kalla sig múslíma, á moskur og helgidóma sjía-múslíma eru ekkert annað en tilraun til að koma af stað trúarlegu stríði,“ segir Mouwaffaq al-Rubaie, þjóðaröryggisráðgjafi Íraka. „Írakar munu ekki leyfa því að gerast.“ Al-Rubaie segir hryðjuverka- leiðtogann Abu Musab al- Zarqawi og fyrrverandi fulltrúa Baath-st jórnmálaf lokksins standa á bak við árásirnar. Hillary Clinton, öldungadeild- arþingmaður og eiginkona Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjafor- seta, kom til Bagdad í gær ásamt bandarískri sendinefnd. „Sú staðreynd að uppreisnar- menn skuli gera árásir meðan á trúarhátíð stendur yfir og fólk biður er fyrir mér merki um ör- væntingu,“ sagði Hillary Clint- on. „Uppreisnarmönnunum er að mistakast ætlunarverk sitt sem er að skapa ringulreið og borg- arastyrjöld.“ Ashoura-trúarhátíðin er hald- in til að minnast andláts Imam Hussein, barnabarns Múhameðs spámanns. Hussein var myrtur á sjöundu öld og er grafinn við gulli sleginn helgidóm í borginni Karbala. SKÁLMÖLD Á TRÚARHÁTÍÐ Bandarískir hermenn skoða lík uppreisnarmanns sem var myrtur í Mosul í gær. Skálmöld ríkti í landinu þegar ein helsta trúarhátíð sjía-múslíma stóð yfir.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.