Fréttablaðið - 20.02.2005, Side 20
Ferilskrá Vandaður frágangur á ferilskrá getur skipt miklu máli. Hún
skal ekki vera lengri en ein blaðsíða og mikilvægt er að hún sé vel
skipulögð og allar nauðsynlegar upplýsingar komi fram. Hægt er að hafa
samband við atvinnumiðlun til að fá leiðbeiningar um gerð ferilskráar. [ ]
Þægilegra að öskra
Bex en Rebekka
Rebekka Kristín Garðarsdótt-
ir flutti frá Kópaskeri til Hong
Kong fyrir tæpum þremur
árum. Í síðasta mánuði stofn-
aði hún eigið fyrirtæki og eftir
nokkra daga ætlar hún að
kaupa annað. Rebekka
skrapp til Íslands nýlega í
fjögurra daga heimsókn og
þrátt fyrir þétta dagskrá gaf
hún sér smástund til að segja
frá því hvað hún væri að
bralla.
Ég ákvað að stofna fyrirtækið
Bex. ltd. Það sér um viðburði
fyrir önnur fyrirtæki, ráðstefnur,
sýningar, galakvöld o.s.frv. Ég er
eini starfsmaðurinn og fyrsta
verkefnið er eins dags ráðstefna
og kynning á vörum og þjónustu
fyrir óléttar konur í Hong Kong
sem verður haldin 5. mars.
-Af hverju Bex?
Ég geng undir því nafni úti.
Spila nefnilega rugby og það þyk-
ir þægilegra að öskra Bex heldur
en Rebekka, að ég tali ekki um
Rebekka Kristín Garðarsdóttir!
-Er ekkert mál fyrir útlend-
inga að stofna fyrirtæki í Hong
Kong?
Nei, stjórnvöld gera út á það
að bjóða erlendum fjárfestum
inn í landið. Ég stofnaði mitt fyr-
irtæki á 15 mínútum. Maður út-
fyllir eitt blað, svo er athugað
hvort eitthvert annað fyrirtæki í
landinu heiti þetta sama og ef svo
er ekki þá er maður kominn með
stimpilinn og getur hafið starf-
semi daginn eftir. En það þarf
sérstakt atvinnuleyfi til að starfa
í landinu og það er gefið út á það
fyrirtæki sem maður er að vinna
hjá hverju sinni. Mér fannst það
ekki nógu traust. Þess vegna
ákvað ég að fá atvinnuleyfi í
gegnum sjálfa mig. Bex er bara
byrjunarskrefið því ég er líka að
kaupa annað fyrirtæki sem verð-
ur opnað formlega 7. mars. Það
er leikskóli í námskeiðaformi
fyrir tveggja til þriggja ára göm-
ul börn. Sjálf sé ég um markaðs-
málin en kennslan verður í hönd-
um leikskólakennara.
-Hvernig stóð á því að þú fórst
til Hong Kong?
Systir mín var komin út ári á
undan mér, hún rekur eigið ljós-
mæðrafyrirtæki sem sér um að
halda foreldranámskeið og sinna
heimaþjónustu.
Kannski má segja að ég hafi
elt hana en í námi mínu í við-
skiptafræði í HR lagði ég áherslu
á alþjóðlega stjórnun og mark-
aðsfræði og var því alltaf með út-
lönd í huga. Það er eitthvert
flökkueðli í okkur systkinunum.
Bróðir minn býr í Ástralíu og
hafði áður verið sjö ár í Svíþjóð
og litla systir mín er á leið til
Danmerkur.
-Hvernig er svo að búa þarna?
Það er auðvitað talsverður
munur að koma úr 150 manna bæ
í sjö milljóna samfélag, háhýsi og
mannmergð. Ég bý til dæmis á
21. hæð af 39 í húsinu.
-En þú hefur að minnsta kosti
nóg að gera.
Já, ég er með endalausar hug-
myndir og bara spurning um
hversu hratt maður vinnur sig í
gegnum þær.
Þar með var Rebekka rokin.
Varð að fá sér SS pylsu áður en
hún yfirgæfi landið.
gun@frettabladid.is
Þessar tölur eru samkvæmt út-
reikningum Vinnumálastofnunar
sem má nálgast á vefnum
vinnumalastofnun.is. Tölurnar
jafngilda því að 4.352 manns
hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum.
Þessar tölur jafngilda því að þrjú
prósent af áætlun Efnahagsskrif-
stofu fjármálaráðuneytis um
mannafla á vinnumarkaði hafi
verið atvinnulaus í janúar. Áætl-
aður mannafli á vinnumarkaði í
janúar síðastliðnum er 146.035
manns.
Atvinnulausum hefur fjölgað að-
eins milli mánaða en eins og
kemur fram á vef Alþýðusam-
bands Íslands, asi.is, er atvinnuleysi í raun minna um þessar mundir þegar búið
er að leiðrétta atvinnuleysistölur fyrir árstíðarbundnum sveiflum. Árstíðarleiðrétt
atvinnuleysi hefur ekki verið minna síðan í júlí 2002. ■
Atvinnuleysi hefur í raun og veru minnkað
milli mánaða og því færri sem sitja auðum
höndum.
Atvinnuleysi hefur minnkað
Í JANÚAR VORU SKRÁÐIR 91.369 ATVINNULEYSISDAGAR Á LANDINU ÖLLU.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Á vefnum atvinna.insi.is gefst
fyrirtækjum kostur á að ráða
iðnnema til starfa í lengri
eða styttri tíma. Enn fremur
býðst fyrirtækjum að auglýsa
eftir starfskrafti á vefsíðunni.
Á síðunni birtast smáauglýs-
ingar bæði frá iðnemum og
fyrirtækjum en auglýsingarn-
ar eru ritskoðaðar svo ekki
sé um platauglýsingar að
ræða. Auglýsingarnar haldast
inni á síðunni í mánuð. Á síð-
unni eru einnig öll eyðublöð
sem nemar og fyrirtæki þurfa.
Iðnnemar sækja um vinnu á netinu
IÐNNEMASAMBAND ÍSLANDS HEFUR STOFNAÐ RAFRÆNA ATVINNUMIÐLUN Á
VEFSÍÐUNNI ATVINNA.INSI.IS.
Nú þurfa iðnnemar vonandi ekki lengur að
rölta á milli fyrirtækja til að sækja um að
komast á samning.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Atvinnuleysi ungs fólks vekur ugg
ATVINNUÁSTAND BATNAÐI EKKI EINS MIKIÐ OG VONIR STÓÐU TIL Í HEIMIN-
UM ÁRIÐ 2004.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og greint er
frá henni á vef Verzlunarfélags Reykjavíkur, vr.is.
Atvinnuleysi dróst saman milli áranna 2003 og 2004, úr 6,3 prósentum í 6,1
prósent, þegar litið er til meðaltals í heiminum. Í Evrópu og Mið-Asíu stóð at-
vinnuleysi í stað. Fólki á atvinnuleysisskrá í heiminum hefur fækkað um hálfa
milljón manna en árið 2003 voru 185,2 milljónir manna atvinnulausar en í fyrra
184,7 milljónir manna.
Verra er hins vegar að atvinnu-
leysi meðal ungs fólks hefur
aukist verulega á síðasta ára-
tug. Nær helmingur allra at-
vinnulausra í heiminum árið
2003 var fólk á aldrinum 15 til
24 ára.
Fólk á aldrinum 15 til 24 ára var
helmingur allra atvinnulausra
árið 2003 í heiminum.
Hitt húsið hefur rekið Vinnumiðl-
un ungs fólks (VUF) frá árinu 1999.
Þar er tekið við umsóknum skóla-
fólks og hefur umfang starfsins
aukist til muna eftir að ákveðið var
að taka við umsóknum árið um
kring. Mun þetta vera í fyrsta sinn
sem Reykjavíkurborg rekur sér-
staka vinnumiðlun fyrir ungt fólk á
aldrinum 17-25 ára sem ekki er
bundin við sumarstörf.
Í Vinnumiðlun ungs fólks er
hægt að sækja um starf hjá flest-
um starfsstöðum Reykjavíkur-
borgar. Störfin eru eins ólík og þau
eru mörg, allt frá dýraeftirliti yfir
í að starfa hjá Reykjavíkurhöfn.
Einu skilyrðin fyrir því að sækja
um starf eru að hafa lögheimili í
Reykjavík og uppfylla aldursmörk-
in. Þá er einungis hægt að sækja
um rafrænt en þeir sem ekki hafa
aðgang að tölvum eru velkomnir í
Hitt húsið.
Að sögn Selmu Árnadóttur, for-
stöðumanns Vinnumiðlunarinnar,
hefur þó nokkuð borið á því að
yngsti hópurinn, sem er á sautj-
ánda ári, hafi ekki fundið störf,
sérstaklega eftir að sjálfræðisald-
urinn var hækkaður upp í 18 ár.
Með aukinni umfjöllun um þann
vanda er vonast til að atvinnurek-
endur taki við sér og sæki sérstak-
lega eftir kröftum þessa aldurs-
hóps.
Nú í vikunni var byrjað að taka
við umsóknum um sumarstarf hjá
Reykjavíkurborg. Skilafrestur er
til 30. apríl, en miðlunin er fyrir 17
til 25 ára. ■
Selma Árnadóttir er forstöðumaður
Vinnumiðlunar ungs fólks.
Vinna við dýraeftirlit og hafnir
Rebekka Garðarsdóttir stofnaði fyrirtæki í Hong Kong á fimmtán mínútum og kaupir
annað eftir nokkra daga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Breskum yfirmönn-
um ekki treystandi
YFIRMENNIRNIR ÞYKJA EKKI HAFA
HÆFILEIKA TIL SAMSKIPTA VIÐ
UNDIRMENN.
Þetta kemur
fram í könnun
sem fram-
kvæmd var af
rannsóknar-
hópnum
Watson Wyatt.
Úrtakið í
könnuninni
var fimmtán þúsund manns og kom
fram að 51 prósent starfsmanna vest-
an hafs treystu yfirmönnum sínum en
aðeins 31 prósent breskra starfs-
manna. Færri en einn af þremur Bret-
um fannst yfirmenn sínir sýna góða
samskiptahæfileika.
Talsmaður Watson Wyatt sagði í
tengslum við könnunina að breskir
yfirmenn þyrftu að vinna hörðum
höndum að því að ná trausti starfs-
manna sinna til að missa ekki starfs-
kraft og viðskiptavini.
David Brent í The Office
er gott dæmi um yfir-
mann sem starfsmenn
treysta ekki.
Markmiðið með starfinu er að hjálpa ungu fólki að fá vinnu
við hæfi.