Fréttablaðið - 20.02.2005, Síða 40

Fréttablaðið - 20.02.2005, Síða 40
10 RAÐAUGLÝSINGAR Stóreldhús og mötuneyti Sala á tækjum og tólum Notuð tæki og tól fyrir stóreldhús, bakarí og mötu- neyti verða til sýnis í eldhúsi Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, Fossvogi, milli kl. 14 og 17 þann 21. 22. og 23. febrúar 2005. Tilboðum skal skila á staðnum fyrir föstudaginn 24. febrúar kl. 15. Nánari upplýsingar veitir Pétur í síma 824 5861. Til leigu 191 fm á jarðhæð á besta stað í Hafnar- firði, við Bæjarhraun beint á móti Bónus og KFC. Góðar innkeyrsludyr bakatil með sér lagerrými Áberandi staðsetn- ing, mikið auglýsingagildi, góð aðkoma, næg bílastæði. Uppl. í síma 894 3755. Þjónustu- og rekstrarsvið Ráðhúsi Reykjvíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík Sími 563 2115 / 563 2116 • Bréfsími 563 2111 Netfang: utbod@reykjavik.is ÚTBOÐ F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar: Dúkalagnir í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000 í afgreiðslu Ráðhúss Reykjavíkur, Tjarnargötu 11. Opnun tilboða: 7. mars 2005 kl. 14:00, í Ráðhúsi Reykja- víkur. 10512 Endurmálun í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000 í afgreiðslu Ráðhúss Reykjavíkur, Tjarnargötu 11. Opnun tilboða: 8. mars 2005 kl. 10:00, í Ráðhúsi Reykja- víkur. 10513 Hvar ætlar þú að auglýsa? Á sunnudögum fylgja sérblöð bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sem fjalla um atvinnumál og eru atvinnuauglýsingar helsta efni þeirra. Bæði blöðin eru svokölluð innblöð, þ.e. þau eru í miðju aðalblaðanna þannig að lesendur þeirra rekast á atvinnublöðin og ákveða þá hvort þeir skoða þau eða ekki. En hverjir fá blöðin? Við leituðum svara í fjölmiðla- og neyslukönnunum Gallups. Fjölmiðlakannanir Gallups eru gerðar í samvinnu við alla stærstu miðla landsins, Samtök auglýsenda og Samtök íslenskra auglýsingastofa, og eru viðurkenndar af þeim sem eina rétta aðferðin til að bera saman fjölmiðlanotkun landsmanna. Kannanirnar eru kynntar á heimasíðu Gallups sem niðurstöður en ekki túlkun. Ertu að leita að góðum starfsmanni? Tvær spurningar: Hversu sennilegt er að fólk í atvinnuleit lesi ekki atvinnuauglýsingarnar í Fréttablaðinu (95% þeirra fá blaðið)? Er ekki kominn tími til að laga birtingar á atvinnuauglýsingum að nýjum veruleika á blaðamarkaði eins og öll stærstu fyrirtækin í landinu hafa gert með sínar venjubundnu auglýsingar? 1) 95% heimila í Reykjavík og í nágrenni fá Fréttablaðið heim til sín á morgnana, sem þýðir að 95% þeirra sem eru í atvinnuleit fá atvinnublað Fréttablaðsins heim til sín á sunnudögum. 2) 48% heimila á sama svæði eru með áskrift að Morgunblaðinu, sem þýðir að 52% þeirra sem eru á aldrinum 12-80 ára í atvinnuleit þurfa að fara út í búð og ná sér í Moggann ef þeir vilja skoða atvinnublaðið sem honum fylgir. 3) 72% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára búa á heimilum sem EKKI eru með áskrift að Morgunblaðinu, sem þýðir að 72% landsmanna á aldrinum 20-40 ára sem eru í atvinnuleit ára þurfa að fara út í búð ef þeir vilja skoða atvinnublað Morgunblaðsins á sunnudögum. 4) Ungt fólk er í langflestum tilfellum markhópur atvinnuauglýsinga og svona les það sunnudagsblöðin, samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallups í október síðastliðnum: 65% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára fletta ekki sunnudagsblaði Morgunblaðsins né heldur 72% kvenna undir 35 ára aldri, sem getur varla hljómað vel fyrir fyrirtæki í leit að góðum starfsmönnum. Átt þú barn eða ungling með geðraskanir? Hefur barnið þitt notið þjónustu á BUGL? – Er barnið þitt að fá úrræði á vegum Barnaverndarstofu? – Hefur þú áhuga á að hitta aðra foreldra í sömu stöðu? Okkur langar að hitta þig þriðjudaginn 22. febrúar kl. 20 í Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13. Þá munu Þorgerður Ragnarsdóttir og Hrefna Hannesdóttir kynna ráðgjafarþjónustu Sjónarhóls fyrir okkur. Spjall og kaffi á eftir. Hlökkum til að sjá þig BARNAGEÐ Félag foreldra og áhugafólks um geðraskanir barna og unglinga Sími 695-5200 Aðalfundarboð Stjórn Stíl boðar til aðalfundar fimmtudaginn 24. febrúar 2005, kl. 20:00. Fundarstaður: Skólabær, Suðurgötu 26, Reykjavík. Í Stíl eru þessi aðildarfélög: Félag dönskukennara, Félag enskukennara, Félag frönsku- kennara, Félag norsku- og sænskukennara, Félag spænskukennara, Félag þýskukennara og Ísbrú, félag fólks sem starfar að fræðslumálum útlendinga/tvítyngdra. Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar 2) Gjaldkeri leggur fram reikninga 3) Kosning endurskoðenda 4) Skýrslur aðildarfélaga 5) Skýrsla Málfríðar 6) Árgjald ákveðið 7) Önnur mál Að loknum aðalfundarstörfum mun Oddný Hafberg, verkefnisstjóri í menntamálaráðuneytinu, fjalla um gerð nýrrar námsskrár fyrir grunn- og framhaldsskóla. Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir fundinn og á meðan á fundi stendur. Mætum öll og tökum þátt í umræðum sem varða samtök okkar og verkefnin framundan.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.