Fréttablaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 52
24 20. febrúar 2005 SUNNUDAGUR
Við hrósum ...
Kristínu Guðmundsdóttur, leikmanni Stjörnunnar, fyrir að
hafa tekið af skarið á mikilvægum tímapunktum í Evrópu-
leiknum í Ásgarði í gær.
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
17 18 19 20 21 22 23
Sunnudagur
FEBRÚAR
Við skorum á ...
... Garðbæinga og annað handboltaáhugafólk að fjölmenna á seinni Evrópuleik
Stjörnunnar í dag. Stjarnan á góða möguleika á að komast áfram og góður stuðningur
getur riðið baggamuninn.
HANDBOLTI Stjarnan tók á móti
pólska liðinu MKS Vitaral Jelfa í
áskorendakeppni Evrópu í hand-
knattleik kvenna í gær. Leikurinn
var sá fyrri af tveimur en liðin
mætast að nýju í dag. Leiknum
lyktaði með jafntefli en jafnt var
á flestum tölum undir það síðasta.
Stjörnustúlkur byrjuðu leikinn
betur og komust í 4-0. Kristín
Guðmundsdóttir fór mikinn á
þessum tíma, skoraði 4 af fyrstu 5
mörkum liðsins og pólska liðið
komst ekki á blað fyrr en eftir 6
mínutna leik. Vörn Stjörnunnar
var mjög föst fyrir á þessum kafla
og liðið setti góða pressu á boltann
og fann þjálfari gestanna sig knú-
inn til að taka leikhlé eftir að rúm-
ar sjö mínútur voru liðnar af
leiknum.
Pólsku stelpurnar tóku við sér
eftir það og þá sérstaklega Agata
Wypych sem skoraði 8 mörk í
fyrri hálfleik og lék vörn Stjörn-
unnar oft á tíðum grátt. Vitaral
sigldi fram úr undir lok fyrri hálf-
leiks og staðan í leikhléi var 15-16,
gestunum í vil.
Gestirnir héldu uppteknum
hætti í seinni hálfleik, náðu fljót-
lega þriggja marka forskoti en
Stjarnan var þó alltaf að narta í
hælana á pólsku stelpunum.
Hekla Daðadóttir og Kristín
Guðmundsdóttir komust í gang í
seinni hálfleik, hörkuskyttur þar
á ferð. Þá var Jelena Jovanovic
öflug í markinu og þegar 10 mín-
útur voru eftir var staðan jöfn, 27-
27. Jafnt var á flestum tölum eftir
það en Vitaral komst einu marki
yfir þegar 37 sekúndur voru til
leiksloka. Þjálfari Stjörnunnar
tók þá leikhlé og Kristín freistaði
þess að jafna leikinn en skot henn-
ar var varið. Anna Blöndal náði að
stela boltanum og Elísabet Gunn-
arsdóttir fiskaði vítakast þegar 15
sekúndur voru eftir. Hekla Daða-
dóttir var öryggið uppmálað og
jafnaði leikinn, 30-30. Pólska liðið
komst lítt áleiðis á lokasekúndun-
um og jafntefli var staðreynd.
„Nú er bara hálfleikur af því að
við mætum liðinu aftur á morgun
[í dag],“ sagði Erlendur Ísfeld,
þjálfari Stjörnunnar. „Þetta var
svona að hætti hússins má segja.
Við tókum rispur en það var
óþarfi að hleypa þeim inn í leikinn
aftur, hefðum frekar átt að keyra
á þær í stað þess að slaka á. En ég
er mjög ánægður með liðið og mér
finnst það eiga mikið inni. Við för-
um óhrædd í seinni leikinn,“ sagði
Erlendur.
smari@frettabladid.is
NÍU MÖRK KRISTÍNAR Kristín Guðmundsdóttir var markahæst Stjörnustúlkna í Ásgarði
í gær og tók af skarið á úrslitastundu. Fréttablaðið/Vilhelm
Hekla tryggði jafnteflið
Stjarnan lék gegn MKS Vitaral Jelfa frá Póllandi í áskorendakeppni Evrópu í
handknattleik kvenna í gær. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi og réð-
ust úrslitin á vítalínunni, 15 sekúndum fyrir leikslok.
LEIKIR
12.15 KA og Keflavík eigast við í
deildarbikar karla í fótbolta í
Boganum.
13.00 ÍBV og Fylkir eigast við í
deildarbikarnum í knattspyrnu karla í
Reykjaneshöll.
16.30 Haukar og Víkingur mætast á
Ásvöllum í DHL-deildinni í
handknattleik karla.
17.00 FH og KR eigast við í
deildarbikar karla í Egilshöll.
19.00 Valur og Grindavík eigast við í
deildarbikar karla í Egilshöll.
19.15 Fjölnir og Njarðvík mætast í
Grafarvogi í Intersportdeildinni í
körfuknattleik.
19.15 KFÍ og KR mætast á Ísafirði í
Intersportdeildinni í körfuknattleik.
19.15 Keflavík og Hamar/Selfoss
mætast í Keflavík í Intersport-
deildinni í körfuknattleik.
19.15 Tindastóll og Skallagrímur
mætast á Sauðárkróki í Inter-
sportdeildinni í körfuknattleik.
19.15 ÍR og Snæfell mætast í
Seljaskóla í Intersportdeildinni í
körfuknattleik.
21.00 Víkingur R. og ÍA eigast við í
deildarbikarnum í knattspyrnu karla í
Egilshöll.
SJÓNVARP
08.55 Hnefaleikar á Sýn. Á meðal
þeirra sem mætast eru Bernard
Hopkins og Howard Eastman.
10.40 Spænski boltinn á Sýn. Real
Madrid – Bilbao.
12.20 Skoski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Celtic og Rangers.
14.25 Bestu bikarmörkin á Sýn.
15.05 Áskorendakeppni Evrópu í
handknattleik á Rúv. Bein útsending
frá leik Stjörnunnar og MKS Vitaral
Jelfa.
15.45 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Newcastle og
Chelsea.
19.55 Ítalski boltinn á Sýn. AC Milan
– Cagliari.
21.45 Helgarsportið á Rúv.
21.45 Hnefaleikar á Sýn. Meðal
þeirra sem mætast eru B. Hopkins
og Howard Eastman.
23.05 Stjörnuleikur NBA 2004 á
Sýn.
01.30 Stjörnuleikur NBA 2005 á
Sýn. Bein útsending frá Stjörnu-
leiknum í NBA-körfuboltanum.
Hvað skiptir þig máli í auglýsingum?
Val fólksins á visir.is
Verðlaun fyrir athyglisverðustu auglýsingar ársins verða afhent á Lúðrinum, föstudaginn 25. febrúar.
Við gefum þér kost á að segja þitt álit og velja „bestu auglýsinguna“ á visir.is
Atkvæðamesta auglýsingin hlýtur titilinn „Val fólksins“ og fær sérstök verðlaun á hátíðinni, sem
Fréttablaðið og visir.is veita.
Taktu þátt og greiddu atkvæði á visir.is
Nöfn vinningshafa verða birt á visir.is og í Fréttablaðinu 25. febrúar.ÍSL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
PR
E
27
45
5
0
3/
20
05
LEIKIR GÆRDAGSINS
DHL-deild karla
HK–VALUR 31–28
Mörk HK: Augustas Strazdas 6, Tómas Eitutis 5,
Elías Már Halldórsson 5, Ólafur Víðir Ólafsson 5,
Valdimar Þórsson 4.
Mörk Vals: Sigurður Eggertsson 6, Hjalti Þór
Pálmarsson 4, Baldvin Þorsteinsson 4, Brendan
Þorvaldsson 3, Vilhjálmur Ingi Halldórsson 3,
Ásbjörn Stefánsson 3, Kristján Þór Karlsson 2,
KA–ÍBV 28–28
Mörk KA: Halldór Stefánsson 6, Magnús
Stefánsson 5, Sævar Árnason 5, Ragnar Njálsson
4, Hörður Fannar Sigþórsson 4, Jónatan Þór
Magnússon 3, Andri Snær Stefánsson 1.
Mörk ÍBV: Samúel Árnason 7, Zoltán Belányi 6,
Andrija Adzic 6, Sigurður Bragason 3, Róbert
Bognar 3, Svavar Vignisson 2, Kári Kristjánsson 1.
ÞÓR AK.–ÍR 31–39
Mörk Þórs: Aigar Lazdins 7, Árni Sigtryggsson 5,
Bjarni G. Bjarnason 4, Elfar Alfreðsson 3, Cedric
Hakerberg 3, Sindri Viðarsson 2, Þorvaldur
Sigurðsson 2, Sigurður B. Sigurðsson 2, Goran
Gusic 1, Arnór Þór Gunnarsson 1, Sindri
Haraldsson 1.
Mörk ÍR: Bjarni Fritzson 8, Tryggvi Haraldsson 8,
Hannes Jón Jónsson 7, Ragnar Helgason 5, Ólafur
Sigurjónsson 4, Ingimundur Ingimundarson 3,
Ísleifur Sigurðsson 2, Fannar Þorbjörnsson 2.
STAÐAN
HK 9 6 0 3 290-266 12
KA 9 4 2 3 271-270 10
ÍR 9 5 0 4 281-275 10
Haukar 8 4 1 3 253-242 9
Valur 9 4 0 5 233-249 8
ÍBV 8 3 1 4 240-234 7
Víkingur 8 3 0 5 219-228 6
Þór Ak. 8 3 0 5 226-249 6
DHL-deild kvenna
FH–GRÓTTA/KR 28–26
Mörk FH: Gunnur Sveinsdóttir 8, Dröfn
Sæmundsdóttir 6.
Mörk Gróttu/KR: Arndís María Erlingsdóttir 7.
VALUR–ÍBV 18–26
Mörk Vals: Katrín Andrésdóttir 5.
Mörk ÍBV: Darinka Stefanovic 8.
STAÐAN
HAUKAR 17 14 2 1 504–396 30
ÍBV 18 15 0 3 524–449 30
STJARNAN 17 8 3 6 432–406 19
VALUR 18 9 0 9 429-439 18
FH 18 7 4 7 479-502 18
GRÓTTA/KR 17 5 0 12 385–430 10
VÍKINGUR 17 4 0 13 407–451 8
FRAM 17 3 1 13 382–467 7
Intersportdeildin í körfu
HAUKAR–GRINDAVÍK 110–85
Stig Hauka: Demtric Shaw 33 (7 stoðs.), Michael
Manciel 26 (19 frák.), Sævar Haraldsson 20 (9
stoðs.), Kristinn Jónasson 10 (6 frák.), Sigurður
Einarsson 9, Mirki Virijevic 7 (9 frák.), Gunnar
Sandholt 4, Ásgeir Ásgeirsson 1.
Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 24 (7 stoðs.),
Jeffrey Boshee 23 (6 stoðs.), Terrel Taylor 11,
Ármann Vilbergsson 8, Morten Szmiedowicz 8,
Davíð Hermannsson 6, Páll Vilbergsson 3, Eggert
Pálsson 2.
STAÐAN
KEFLAVÍK 18 15 3 1665–1436 30
SNÆFELL 18 14 4 1584–1460 28
NJARÐVÍK 18 12 6 1625–1438 24
FJÖLNIR 18 12 6 1681–1652 24
SKALLAGR. 18 10 8 1569–1498 20
ÍR 18 10 8 1648–1618 20
KR 18 9 9 1613–1566 18
GRINDAVÍK 19 8 11 1735–1804 16
HAM./SELF. 18 7 11 1633–1686 14
HAUKAR 19 7 12 1663–1661 14
TINDAST. 18 4 14 1511–1711 8
KFÍ 18 1 17 1494–1891 2
1. deildin kvenna í körfu
HAUKAR–KEFLAVÍK 69–71
Stig Hauka: Ebony Shaw 28 (8 frák.), Helena
Sverrisdóttir 12 (17 frák., 9 stoðs), Ösp
Jóhannsdóttir 7 (6 frák.), Kristrún Sigurjónsdóttir
6 (6 frák.), Pálína Gunnlaugsdóttir 5, Ragnheiður
Theodórsdóttir 5, Hanna Hálfdanardóttir 4,
Svanhvít Skjaldardóttir 2.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 17 (5
stoðs.), Alexandria Stewart 14 Bryndís
Guðmundsdóttir 13, Anna María Sveinsdóttir 13
(9 frák., 6 stoðs.). María Erlingsdóttir 8 (9 frák.),
Rannveig Randversdóttir 6.
STAÐAN
KEFLAVÍK 17 14 3 1364–1074 28
GRINDAVÍK 17 12 5 1054-1015 24
ÍS 17 10 7 1100–1028 20
HAUKAR 17 8 9 1133–1183 16
NJARÐVÍK 17 5 12 1024–1117 10
KR 17 2 15 992-1253 4
Áskorendakeppni Evrópu
STJARNAN–VITARAL JELFA 30–30
Mörk Stjörnunnar: Kristín Guðmundsdóttir 9,
Hekla Daðadóttir 6, Anna Blöndal 3, Hind
Hannesdóttir 3, Elsbieta Kowal 3, Elísabet
Gunnarsdóttir 2, Ásdís Sigurðardóttir 2, Anna
Einarsdóttir 1, Kristín Clausen 1.
Varin skot Stjörnunnar: Jelena Jovanovic 12,
Helga Vala Jónsdóttir 1.
Mörk Vitaral Jelfa: Agata Wypych 11, Katarzyna
Duran 7, Marta Oreszczvk 4, Anita Augustyniak 3,
Magdalena Meot 2, Iwona Szafviska 2, Anna
Dyba 1.
Varin skot Vitaral Jelfa: Justyna Albercink 6,
Izabela Czarna 5.
LEIKIR GÆRDAGSINS
SHAW Í STUÐI
Demetric Shaw skor-
aði 33 stig og gaf 7
stoðsendingar.
Fréttablaðið/Vilhelm
Intersportdeildin í körfubolta á Ásvöllum í gær:
Haukar eiga enn möguleika
KÖRFUBOLTI Haukar eiga enn
möguleika á sæti í úrslitakeppni
Intersportdeildarinnar í körfu-
bolta eftir 25 stiga sigur á
Grindavík á Ásvöllum í gær.
Haukar náðu með þessum
stórsigri betri innbyrðistöðu
gagnvart Grindavík og það
stefnir í hörkubaráttu milli
Hamars/Selfoss, Grindavíkur
og Hauka um síðasta sætið inn í
úrslitakeppnina. Grindavík
verður að vera ofar en þessi
bæði lið því þeir eru með lakari
innbyrðisstöðu gegn þeim
báðum. Haukar fara til
Hveragerðis á fimmtudaginn og
mæta heimamönnum í einum af
úrslitaleikjunum um lokasætið
inn í úrslitakeppnina en liðin
eru nú jöfn með 14 stig, tveimur
á eftir Grindvíkingum sem
fengu á sig 100 stig fjórða
leikinn í röð.
Frjálsar íþróttir:
Silja nálægt
sínu besta
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Silja Úlfarsdóttir
úr FH hafnaði í gær í þriðja sæti í
400 metra hlaupi og fjórða í 200
metra hlaupi á ACC Háskóla-
meistaramótinu í frjálsum íþrótt-
um innanhúss, sem haldið var í
Chapel Hill í Norður-Carólínu-
fylki í Bandaríkjunum.
Silja hjlóp 400 metrana á 54,10
sekúndum og 200 metrana á 24,32
sekúndum, sem er hennar næst
besti árangur í greininni.
Þá voru íslenskir keppendur í
eldlínunni í Gautaborg í gær, þar
sem að Sunna Gestsdóttir lenti í
þriðja sæti í langstökki á innan-
hússmóti með því að stökkva 5,49
metra. Gauti Ásbjörnsson hafnaði
í 14. sæti í 200 metra hlaupi þegar
hann hljóp á 24,06 sekúndum,
varð 10. í stangarstökki með 4,27
metra og hafnaði í 12. sæti í lang-
stökki með 6,03 metra.