Fréttablaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 56
20. febrúar 2005 SUNNUDAGUR
Konudagurinn er
í dag. Karlkyns
samstarfsfé-
félagar mínir
blóta mér í
sand og öskur
þar sem ég fæ
að skrifa pistil á
þessum degi.
Segja að ég hafi
forskot á þá
þegar kemur að
því að gleðja
konuna. Ég verð því að teljast
heppinn. Fæ að tjá ást mína á
unnustu minni í stærsta fjölmiðli
landsins, blaði sem er prentað í
hundrað þúsund eintökum og sem
um 70% þjóðarinnar lesa daglega.
Vissulega kjörið tækifæri.
Ég verð þó að viðurkenna að
ég á í svolitlum vandræðum. Að
tjá ást sína á svo opinskáan hátt
getur að vissu leyti skemmt
mannorð mitt. Ég er nefnilega
ekki viss um að ég hafi nógu
breitt bak til að láta stríða mér á
væmninni. Karlaheimurinn getur
nefnilega verið ansi harður og
þar má helst ekki sýna tilfinning-
ar. Það er þó ekki það versta.
Yfirstjórn blaðsins hefur sett
siðaskrá sem blaðamönnum ber
að fylgja. Þannig má ég ekki mis-
nota aðstöðu mína til að upphefja
mig, fjölskyldu, vini eða ástvini.
Ég á því í hættu á að fá skammir
yfirmanna minna nýti ég pistilinn
í eigin þágu, til þess eins að gleðja
unnustu mína.
Eftir að hafa velt þessu fyrir
mér í þó nokkurn tíma og leitað
ráða hjá færustu ráðgjöfum, hef
ég tekið ákvörðun.
Ég ætla að vera nógu mikill
maður til að gleðja unnustu mína
sama hvað aðrir kunna að segja.
Ég ætla að bregða mér í riddara-
hlutverkið og misnota aðstöðu
mína á blaðinu þótt ég eigi það á
hættu að yfirmenn mínir setji
ofan í við mig á morgun. Kannski
verð ég jafnvel rekinn.
Ég er búinn að telja í mig
kjark. Ég ætla að láta til skarar
skríða. Ég læt af þessu verða
enda er allt leyfilegt í ástum og
stríði.
Því segi ég: „Vera! Til ham-
ingju með daginn!“ ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
KRISTJÁN HJÁLMARSSON LÆTUR TIL SKARAR SKRÍÐA.
Ást án takmarka
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
■ PONDUS
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Frode Överli
Ú.....ú......úf......úú
úúffffffffff...
Góðan dag,
elskan!
Það er svo
notalegt að Jói
skuli koma
með pjásu í
heimsókn!
Já, og þar sem
ég veit hvar þú
býrð get ég oft
komið í heimsókn.
Ótrúlegt....
Ótrúlegt....
Það verður
frábært...
Þú verður
líka að fá
símanúmerið.
Hvar er ég...
Hvað gerðist...
Oops! I did
it again!
Jæja, best að nota
gömlu „verð að fara
heim!“ brelluna.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
brynjar karl pálsson
[ SNJÓBRETTAMEISTARI ]
Vetrarlíf /
Vetrarsport
Auglýsendur snúi sér til Ámunda Ámundasonar
sölufulltrúa í símum 515-7580 / 821-7514
amundi@frettabladid.is
Blaðið mun fjalla um allt sem snertir útilíf s.s. jeppaferðir,
jöklaferðir, skíða- og snjóbrettaferðir, gönguferðir, vetrar-
og útivistafatnað og margt fleira.
[ AUKABLAÐ
FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU
MIÐVIKUDAGINN
23. FEBRÚAR ]