Fréttablaðið - 24.02.2005, Síða 25
5FIMMTUDAGUR 24. febrúar 2005
Geislandi og falleg húð
sem ljómar af hamingju
HappyDerm inniheldur Phyto
Dorphine sem unnið er úr
kakóbauninni og byggir upp
varnarkerfi húðarinnar.
HappyDerm bindur raka
í húðinni og kemur í veg
fyrir ofþornun. Húðin verður
frískleg og mjúk.
Nýtt 24 tíma rakakrem
ÞVÍ ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ.
Útsölustaðir
Lyf & heilsa Austurstræti
Lyf & heilsa Austurveri
Lyf & heilsa Firði
Lyf & heilsa Hellu
Lyf & heilsa Keflavík
Lyf & heilsa Kringlunni
Lyf & heilsa Melhaga
Lyf & heilsa Mosfellsbæ
Apótekarinn Akureyri
Hagkaup Akureyri
Hagkaup Skeifunni
Hagkaup Smáralind
Hagkaup Spöng
Lyfja Laugavegi
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
LAUGAVEGI 62 KRINGLUNNI
SÍMI: 551-5444 SÍMI: 533-4555
NÝJAR VÖRUR Í KRINGLUNNI
EIGUM ENN MIKIÐ ÚRVAL AF ÚTSÖLUVÖRUM Á LAUGAVEGI
VOR 2005
Skeifan 8 - s. 568 2200
Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Bébe vagnarnir fást hjá okkur
Frábærir og sterkir vagnar sem henta vel íslenskum aðstæðum. Falleg
áklæði í boði og hægt er að velja um þrjár mismunandi grindur undir
vagninn. Loftdekk. Eins passa Bébé ungbarnabílstólar á grindurnar.
Verð frá kr.
58.806 stgr.
Mínípilsið lifir örugglega að eilífu.
Mínípilsið stenst
tímans tönn
MÍNÍPILSIÐ HEFUR VERIÐ KOSIÐ
BESTA TÍSKUFLÍKIN Í KÖNNUN
KAUPENDA.
Könnunin var framkvæmd í versl-
uninni Harvey Nichols í London.
Voru 3.500 kaupendur spurðir um
topp tíu bestu og verstu tískuflík-
urnar og varð mínípilsið fyrir valinu.
Pilsið var fyrst hannað af hönnuðin-
um Andre Coureges og varð tákn
sjöunda áratugarins. Mínípilsið hef-
ur staðist tímans tönn en næst á
eftir því á listanum eru gallabuxur,
litli svarti kjóllinn og kúrekastígvél.
Með því versta sem fólk hafði keypt
sér voru legghlífar, boxer-buxur og
ponsjó. ■
Fyrr í vetur sögðum við af
sérstökum Fréttablaðsbeltum
sem fengust í versluninni
Mariella.
Þar var um að ræða belti úr grein-
um úr Fréttablaðinu. Fyrirtækið
sem framleiðir beltin er sviss-
neskt og heitir Primecut.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að
gera töskur og belti úr endurrunn-
um dagblöðum. Hönnun þessi hef-
ur nú þegar unnið tvær virtar
hönnunarkeppnir, þar á meðal
Young Enterprise Switzerland árið
2003 sem haldin var á Möltu. Eftir
þá keppni stofnuðu meðlimir Pri-
mecut fyrirtæki og hafa gert það
gott enda hvert belti og taska ein-
stök.
Fyrirsagnir eru valdar úr göml-
um dagblöðum og úr þeim eru
gerðir plastrenningar í verksmiðj-
unni Züriwerk í Zürich þar sem
eingöngu vinnur fatlað fólk. Renn-
ingarnir eru síðan sendir til textíl-
framleiðandans Meili Huus í
Fahrwangen í Sviss þar sem þeir
eru klipptir og úr þeim gerð belti.
Viðbrögðin við beltunum hafa ver-
ið rosaleg. Þau eru seld í tíu versl-
unum í Sviss og hér á Íslandi og
hefur fyrirtækið fengið mikla at-
hygli úti um allan heim.
Enn vill Primecut gera betur og
hyggur á að bæta beltin, gera þau
sterkari og laga sylgjuna, auk þess
að framleiða fleiri töskur. Greini-
lega fyrirtæki á uppleið þar. ■
Fréttabeltin gera allt vitlaust
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Fréttabeltin eru seld í versluninni Mariella á Skólavörðustíg 12 í Reykjavík.
Tískufyrirtæki leita sífellt leiða til þess
að fá almenning til að kaupa meira.
Kvennamarkaðurinn er löngu mettaður
svo nú einbeita þau sér í ríkari mæli að
körlum. Metrósexúalmaðurinn var
sannarlega góð uppfinning fyrir tískuna.
Á eftir hrukku- og rakakremum, sem öll
snyrtivörufyrirtækin eru nú með herra-
línur í, eru það nærfötin. Nærfatafram-
leiðendur keppast við að setja á mark-
að alls kyns nærur úr ýmsum efnum.
Fyrirmyndirnar eru hinar nýju karltýpur
eins og David Beckham eða sænski fót-
boltagarpurinn hjá Arsenal, Freddie
Ljungberg, sem er aðalnærfatafyrirsæta
Calvin Klein. Samkvæmt neyslukönnun
hér í Frakklandi kaupir nú um helming-
ur karlmanna nærfötin sín sjálfur en
fyrir tíu árum voru það í um 90% tilvika
konurnar sem keyptu nærföt á karlana.
Á undirfatakaupstefnunni á dögunum í
París voru herralínur um 12% af því
sem sýnt var, í stað 8% fyrir nokkru. Nú
dugir ekki að vera í víðum boxernær-
buxum sem minna á léreftspoka.
Nærunar eru í öllum sniðum og hver
einasta lína býður upp á g-strengi því
nú eru það strákarnir sem sýna
rasskinnarnar sem þeir eru auðvitað
búnir að eyða heilu vikunum í að
stinna í líkamsrækt. Síðast en ekki síst
eru það jockstrap (ég held það sé ekk-
ert betra íslenskt orð yfir það en pung-
bindi, farið á www.internationa-
ljock.com ef þið vitið ekki um hvað ég
er að tala). Efnin eru ekki lengur þau
sömu, bómullin er í öllum regnbogans
litum og algjör sprenging hefur orðið
með svokölluðu örþráðaefni (microfi-
bres) sem aðlagast húðinni en er teygj-
anlegt og leyfir henni að anda eins og
sést vel hjá Hom (karl) merkinu
franska, nýja línan er á www.hom.com.
Neyslukannanir sýna að þessi bylgja á
þó enn eftir að vinna land, þar sem
karlmenn eyða að meðaltali 19 evrum
á ári í nærur en konur eyða fimm sinn-
um meira. Ég hef reyndar trú á að
þessar kannanir séu dálítið skekktar en
þær segja sömuleiðis að Frakkar kaupi
tvo tannbursta á ári en ættu að kaupa
sex til að hugsa vel um tennur sínar. Ég
hef grun um að í þeim séu að finna
innflytjendur og aðra hópa í þjóðfélag-
inu sem einfaldlega hafa ekki ráð á
tískunærum eða tannburstum. Leynd
staðreynd í þessum könnunum er
kannski hin mikla stéttaskipting sem er
raunveruleiki í þessu fimmta stærsta
efnahagsveldi heims. ■
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Pungbindi og G-strengir