Fréttablaðið - 24.02.2005, Qupperneq 37
Í skýrslu Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar (OECD) um íslenskan þjóð-
arbúskap sem kom út í síðustu viku
kennir ýmissa grasa. Meðal annars er
sérstaklega rætt um helstu styrk- og
veikleika þjóðarbúsins. Meðal styrk-
leika telja þeir þann ramma sem pen-
ingamálastefnunni er settur, þ.e. verð-
bólgumarkmið Seðlabankans. Reynd-
ar leggja þeir til að framkvæmd stefn-
unnar væri gerð gengsærri með því að
halda reglulega vaxtaákvörðunarfundi
og tilkynna ákvörðun strax að loknum
fundi.
Þá nefnir OECD að lágar skuldir hins
opinbera séu styrkleiki. Opinberar
skuldir hafa lækkað töluvert á undan-
förnum árum í hlutfalli af lands-
framleiðslu og eru nú sambærilegar
við skuldahlutföll nágrannaríkjanna.
Þannig er borð fyrir báru þurfi stjórn-
völd síðar meir að grípa til efnahags-
aðgerða sem fela í sér halla á rekstri
hins opinbera.
Þá er sveigjanlegum vinnumarkaði
hrósað í skýrslunni þar sem fá lög og
reglugerðir draga úr sveigjanleika,
sem víða á meginlandi Evrópu hafa
haldið aftur af hagvexti undanfarin ár.
Hér á landi koma flestar leikreglur á
vinnumarkaði fram í kjarasamningi.
Þá er sveigjanleiki launa hér á landi
meiri en víða annars staðar. Þá telur
OECD að bætt samkeppni sé einn af
styrkleikum íslensks þjóðarbúskapar.
Stefna stjórnvalda hafi stutt við aukna
samkeppni, auk þess sem sett voru
samkeppnislög vegna aðildar að EES.
Í skýrslu OECD segir að gott umhverfi
fyrir frumkvöðla sé styrkur á íslensk-
um þjóðarbúskap. Það sem stuðlað
hefur að þessu umhverfi er opnun
fjármagnsmarkaða, einkavæðing og
afnám ýmiss konar viðskiptahafta.
Saman hafa þessi atriði stutt við vöxt
nýrra atvinnugreina og vöxt fram-
leiðni á undanförnum árum. Niður-
stöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar
sem Háskólinn í Reykjavík tekur þátt
í, sýna að Ísland er með hæsta
hlutfall frumkvöðlastarfsemi af þeim
Evrópuþjóðum sem taka þátt í rann-
sókninni.
En það eru einnig nokkrir veikleikar
sem OECD nefnir í skýrslu sinni sem
þjaka íslenskt þjóðarbú. Fyrst er það
nefnt ójafnvægi í þjóðarbúskapnum
sem kemur skýrt fram í miklum við-
skiptahalla og vaxandi verðbólgu. Þá
hefur OECD áhyggjur af skuldum ein-
staklinga og fyrirtækja sem öfugt við
opinberar skuldir hafa hækkað hratt á
undanförnum árum og eru nú með
þeim hæstu í heimi. Stór hluti þessara
skulda eru í erlendri mynt og af því
leiðir að gengisáhætta er mikil.
Miklar verðhækkanir hafa átt sér stað
á fasteignamarkaði og hlutabréfa-
markaði að undanförnu og því nokkur
hætta á því að verðbóla hafi myndast.
Slíkar verðbólur geta sprungið og því
hætta á að verð á fasteignum og
hlutabréfum gæti lækkað hratt. Slík
verðlækkun gæti haft mikil áhrif á
fyrirtæki og heimili. Að lokum nefnir
OECD þá staðreynd að útgjöld ríkisins
eru að jafnaði langt umfram fjárlög
sem dregur úr trúverðugleika ríkis-
fjármálastefnu.
ÞJÓÐARBÚSKAPURINN
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR
Styrkur og veikleiki íslenska þjóðarbúsins
FIMMTUDAGUR 24. febrúar 2005
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
74
90
02
/2
00
2
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins
til að kaupa hluti í félaginu samkvæmt 55. gr.
hlutafélagalaga nr. 2/1995.
3. Önnur mál sem eru löglega borin fram.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, verða
hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins viku
fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
á fundarstað.
Stjórn Og fjarskipta hf.
Aðalfundur
Og Vodafone
Aðalfundur Og Vodafone (Og fjarskipta hf.)
verður haldinn á Hótel Sögu, í Sunnusal,
fimmtudaginn 3. mars 2005, og hefst kl. 12:00.
Aðalfundur Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hf. verður
haldinn fimmtudaginn
10. mars n.k. á Hótel Nordica,
Suðurlandsbraut 2 og hefst
hann kl. 16:00.
Fögnuðu
samruna
Lögmannsstofurnar Lex og
Nestor hafa nýverið sameinast. Í
tilefni þess var haldin veisla í
Hafnarhúsinu sl. föstudag þar
sem á fimmta hundrað manns
mætti.
Nýja stofan heitir Lex-Nestor.
Starfandi lögmenn á stofunni eru
fjórtán en þar starfa einnig sex
löglærðir fulltrúar. Með samein-
ingunni varð til ein stærsta lög-
mannsstofa á Íslandi.
Skrifstofur Lex-Nestor eru á
Sundagörðum 2 þar sem Lex var
til húsa. ■
FAGNA SAMEININGU Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrum aðili að Nestor, og Helgi Jó-
hannesson, faglegur framkvæmdastjóri nýju stofunnar, takast í hendur í veislu þar sem
samrunanum var fagnað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
En það eru einnig nokkrir veikleikar sem OECD nefnir í skýrslu sinni sem þjaka íslenskt
þjóðarbú. Fyrst er það nefnt ójafnvægi í þjóðarbúskapnum sem kemur skýrt fram í
miklum viðskiptahalla og vaxandi verðbólgu.