Fréttablaðið - 24.02.2005, Síða 44
32 24. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR
Aukavika 24. apríl 2005
Sparidagar á Hótel Örk
Fyrir alla eldri borgara
Vegna mikillar aðsóknar á Sparidaga
nú í vor er búið að bæta við aukaviku
við áður auglýsta dagskrá.
Að venju verður í boði fjölbreytt
dagskrá, m.a.:
Morgunhreyfing, bingó, félagsvist,
gönguferðir, , danskennsla,
leikjanámskeið, ferðalag og svo öll
tómstundariðja hótelsins, auk
kvöldskemmtana með söng, dansi og
gamanmálum á hverju kvöldi.
Verð einungis krónur 21.800,-
Innifalið: Gisting í fimm nætur m.v. tvíbýli, morgunverður,
þríréttaður kvöldverður ásamt skemmtidagskrá alla daga.
HÓTEL ÖRK
Sími 483 4700
Lykill að íslenskri gestrisni
Gunnar Þorláksson
skemmtanastjóri
Sparidaga
á Hótel Örk
Stendur alltaf fyrir sínu
VEITINGASTAÐURINN SÓLON
Oddný Magnadóttir, auglýsinga-
stjóri hjá Fróða hf., er mikill
kokkur og sjálf segist hún vera
ástríðukokkur. „Ég er ein af þeim
sem fara með kokkabækurnar
upp í rúm,“ segir hún í léttum dúr.
Hún segist vera alin upp af konu
sem hafi verið listakokkur, vel á
undan sinni samtíð. „Móðir mín
sótti námskeið, lærði nýjar að-
ferðir og notaði alltaf ferskt hrá-
efni, hvort sem um var að ræða
kjöt eða grænmeti.“ Hún segist
því hafa tekið þessa hefð með sér,
þegar hún flutti að heiman. „Þeg-
ar ég fór að búa, þróaði ég mig
áfram og í dag er ég ein af þeim
sem tek kokkabækurnar með mér
upp í rúm.“ Oddný segist jafnvel
öðru hvoru detta inn í BBC food
stöðina „ Ef ég væri ekki að gera
það sem ég er að gera í dag, þá
væri ég sennilega að vinna ein-
hvers konar matargerð,“ segir
hún og hlær, segist þessa dagana
vera að lesa kokkabækurnar frá
River Café, þar sem nakti kokkur-
inn Jamie Oliver lærði.
Rétturinn sem Oddný gefur
uppskrift af, hefur sína sögu og er
ákaflega eftirminnilegur fyrir
margar sakir. „Þó er eftirminni-
legast að mér tókst að fá græn-
metisætu til fimmtán ára að byrja
að borða kjöt,“ segir hún hlæj-
andi, ekki alveg viss um hvort það
hafi verið góðverk eða ekki.
NAUTALUND Í KRYDDHJÚP
2 kíló af góðri vel fitusprengdri nautalund
Koríanderfræ
Ferskt nýtt rósmarín saxað fínt
Salt
Pipar
Oregano (þurrkað) ekki mikið
Engiferrót örfínt skorin
Rauður og grænn chilli sneiddur fínt, fræ-
in hreinsuð úr
Radísur sneiddar fínt í þunnar sneiðar
Koríander-stilkar fínt skornir langsum
Sesamolía
Japönsk soja
Safi úr tveimur lime ávöxtum
Koríanderfræin sett í mortel
og mulin vel, rósmaríni, salt, pip-
ar, oregano er blandað saman við
þannig að úr verður krydd-
blanda. Þessu næst á að dreifa úr
kryddblöndunni á bretti. Nauta-
lundinni er síðan velt upp úr
þessari kryddblöndu og því þrýst
vel utan á kjötið, þannig að úr
verður kryddhjúpur. Lundin er
síðan steikt á vel heitri pönnu í
ca. fimm mínútur, þannig að kjöt-
ið verður orðið brúnað, en ekki
meira en það. Það er látið standa
í fimm til tíu mínútur, skorið í ör-
þunnar sneiðar og dreift jafnt á
stórt fat. Yfir það er svo dreift
engiferrót sem hefur verið
sneidd niður í örþunna stilka,
rauður og grænn pipar sömuleið-
is skorin niður, radísur og korí-
ander-stilkar. Síðan er japanskri
sojasósa, góðri sesamolíu og safa
úr tveimur lime ávöxtum dreift
jafnt yfir réttinn, en gæta skal
þess að þessu sé dreift jafnt yfir
allt kjötið. Kjötið er síðan borið
svona fram með góðu sikileysku
rauðvíni.
Meðlæti
Grænt salat t.d. spínat, stökk
paprika, olífur, ristaðar furuhnet-
ur, ristuð sólblómafræ í Tamarin
sósu og avokado. Best er að setja
góða jómfrúarólífuolíu, salt og pi-
par yfir salatið auk nýbakaðs
brauð sem gott er að dýfa ofan í
góða olíu og dukkha, sem er eg-
ypsk kryddblanda með hnetum. ■
ODDNÝ MAGNADÓTTIR Hún segist vera alin upp á þannig heimili, að öll matvæli urðu að vera fersk og þá hefð tók hún með sér
þegar hún fluttist að heiman.
Hvaða matar gætir þú síst verið
án?
Ég gæti ekki verið án kjúklings því
hann er svo hollur og próteinríkur.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur?
Mér finnst soðin ýsa ekki góð og svo
er ég ekkert sérlega hrifin af þorra-
mat og öðrum skemmdum mat. Ég
vil yfirleitt hafa matinn ferskan.
Fyrsta minningin um mat?
Það eru kjötbollurnar hjá Ömmu
Settu. Þær voru svo góðar að við
borðuðum þær oft á sunnudögum.
Þær voru hefð-
bundnar með
brúnni sósu, lauk
og kartöflumús.
Svo man ég vel
eftir því þegar
verið var að troða
ofan í mig ýsu
þegar ég var lítil.
Ýsan var stöppuð ofan í mig með
tómatsósu og öllu en ekkert gekk til
að fá mig til að borða hana.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Þær eru svo margar því ég elska að
borða, það er varla hægt að velja úr.
Um daginn eldaði kærastinn minn
hreindýra-fille handa mér. Það var
hrikalega gott. Með því var villibráða-
sveppasósa og ofnbakaðar sætar
kartöflur og rauðrófur. Með þessu var
æðislegt ítalskt rauðvín og í forrétt
voru sniglar. Þetta er eftirminnileg-
asta máltíð sem ég hef fengið lengi.
Leyndarmál úr eldhússkápnum?
Ég er enginn sérstakar kokkur og fæ
auðveldlega matarást á fólki. Ég
hreinlega elska fólk sem eldar góðan
mat. Svo úr mínum skápum er mikil-
vægast fyrir mig að eiga morgunkorn.
Hvað borðar þú þegar þú þarft að
láta þér líða betur?
Þá borða ég poppkorn, því það er
eitthvað sem maður á ekki að vera
að borða nema örsjaldan. Mér finnst
stundum dálítið gott að fá mér
poppkorn þegar narslþörfin kemur
yfir mig. Poppkornið fullnægir henni.
Hvað áttu alltaf í
ísskápnum?
Egils Sódavatn,
skyrdrykk , skyr, egg
og ávexti eins og gul
epli.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða
rétt myndir þú taka með þér?
Ég myndi taka eitthvað sem ég gæti
alls ekki fengið á þessari eyju. Ætli
lambakjötslæri yrði ekki fyrir valinu
því restina af fæðunni gæti ég fundið
á eyjunni.
Hvað er það skrýtnasta sem þú
hefur borðað?
Það voru froskalappir í París á veit-
ingastað í Latínuhverfinu. Froskalapp-
irnar voru djúpsteiktar og bornar
fram með grænmeti. Þær voru mjög
góðar og smökkuðust nánast eins og
kjúklingur. Ég var svolítið stressuð að
smakka þær fyrst en ég varð ekki
fyrir vonbrigðum.
Froskalappirnar stóðust væntingarnar
MATGÆÐINGURINN JÓHANNA VIGDÍS ARNARDÓTTIR
Í síðustu viku var kynnt til sög-
unnar á síðum þessa blaðs að
danski bjórinn Ceres Royal Ex-
port fengist nú í 12
dósa ferðatöskum
líkt og bróðir hans
Faxe hefur gert
um nokkurt skeið
við miklar vin-
sældir. Er
skemmst frá því
að segja að tösk-
urnar seldust upp
samdægurs í Vín-
búðum og komu marg-
ir töskulausir úr búðunum um
helgina. Í þessari viku ku hafa
verið bætt ríflega við birgðirnar í
búðunum og ættu því allir að geta
gripið í tösku í næstu ferð.
Ceres Royal Export hefur ver-
ið í mikilli sókn hér á landi og er
skemmst að minnast þess að bjór-
inn þrefaldaði sölu
sína á bjórhátíðinni
októberfest sem
haldin var í Vín-
búðunum sl. haust.
Hann er vinsælasti
bjórinn í Danmörku
í sínum flokki,
flokki gullbjóra.
Framleiddur af
Ceres Bryggerierne
í Árósum sem er systurfyrirtæki
Faxe Bryggeri á Sjálandi.
Bjórinn er 5,5% að styrkleika
og kostar 33cl dós af honum 139
kr. Ferðataska með 12 bjórum
kostar því 1.668 kr.
Hver og hvar: Sólon, Bankastræti
7a, 101 Reykjavík.
Hvernig er stemningin?
Stemningin er alltaf fín á Sólon og
hún breytist lítið frá ári til árs þó
veggirnir séu málaðir. Núna ráða
dökkir litir ríkjum. Veggirnir eru
dökkgráir, gólfið svart og borðin eru
úr dökkum við. Það er eflaust ekki
hægt að innrétta staðinn á ljótan
máta því húsið er svo fallegt í grunn-
inn. Sólon er ekta svona staður til að
fara á hádeginu þegar mann þyrstir í
eitthvað gómsætt að borða og lang-
ar að hitti vini eða fjölskyldu í nota-
legu umhverfi. Þangað kemur mjög
breiður hópur af fólki, allt frá jakka-
fataklæddum bankamönnum upp í
listaspírur. Staðurinn er líka vinsæll
meðal kvenna í fæðingarorlofi þar
sem þær geta fylgst með börnum
sínum í kerrum og vögnum fyrir
utan þar sem gluggarnir eru svo
stórir. Þetta myndi reyndar ekki líð-
ast neins staðar annars staðar í
heiminum en svona erum við
Íslendingar bara, sveitalegir heims-
borgarar. Sólon er þó örlítið klofinn
því eins og hann er fínn í hádeginu
og á virkum kvöldum breytist hann í
gelgjuskemmtistað um helgar þar
sem unglingar landsins djamma og
drekka Breezer.
Matseðillinn:
Matseðillinn er gómsætur og girni-
legur. Pinxtos-réttirnir eru gómsætir
en þeir samanstanda af spænskum
smáréttum sem eru vel útilátnir.
Einnig eru pastaréttir, kjúklingur og
hamborgarar á matseðlinum ásamt
matarmiklum salötum. Sjávarrétta-
súpan á matseðlinum er sérlega
bragðgóð en einnig er boðið upp á
grillpinna og eftirrétti.
Vinsælast:
Kjúklingasalatið er einna vinsælast á
matseðlinum. Það er með engi-
fersósu, nachos og piparrót. Pasta-
rétturinn með kjúklingi, beikoni og
spínati með hvítlauksostasósu er
alltaf jafn vinsæll.
Réttur dagsins:
Samanstendur alltaf af fiski dagsins og
súpu dagsins. Fiskrétturinn er breyti-
legur frá degi til dags en kostar alltaf
1590 kr. Súpa dagsins er á 550 kr.
CERES:
Töskurnar seldust upp!
Er ástríðukokkur:
Kokkabækurnar upp í rúm
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
SÓLON ER Í EINU FLOTTASTA
HÚSINU VIÐ BANKASTRÆTI.