Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
DJAZZAÐ FRAM Á NÓTT Franska
danshljómsveitin NoJazz heldur tónleika á
Nasa klukkan 23 í kvöld. Hin alíslenska Jagú-
ar spilar einnig.
DAGURINN Í DAG
25. febrúar 2005 – 54. tölublað – 5. árgangur
ALVARLEG UNDIRBOÐ Á VINNU-
MARKAÐI Alvarleg undirboð eru stunduð
á íslenskum vinnumarkaði í skjóli þjónustu-
samninga og erlendra starfsmannaleigna. Af
750 erlendum iðnaðarmönnum á höfuðborg-
arsvæðinu er aðeins tíundi hluti á launaskrá
íslenskra fyrirtækja. Sjá síðu 2
ÞJÓÐIR BREGÐIST VIÐ HÆTTUNNI
Þróun fuglaflensunnar, sem herjað hefur á
Asíulönd, er óbreytt, að sögn formanns fram-
kvæmdastjórnar WHO. Hann segir að þjóðir
heims þurfi að gera þær ráðstafanir sem
hægt sé. Mesta hætta á heimsfaraldri frá
1968. Sjá síðu 4
ÖRYRKJAR HEYRI UNDIR FÉLAGS-
MÁL Verið er að kanna hvort flytja skuli líf-
eyristryggingar og örorkutryggingar frá heil-
brigðisráðuneytinu til félagsmálaráðuneytis.
Félagsmálaráðherra segir að allar félagslegar
bætur væru þá á einum stað. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 34
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 26
Sjónvarp 36
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
VEÐRIÐ Í DAG
STJÓRNMÁL Kristinn H. Gunnarsson
útilokar ekki að hann bjóði sig fram
til eins af forystuembættum Fram-
sóknarflokksins á flokksþingi sem
hefst í dag. „Ég útiloka ekkert í
þeim efnum og ligg ekkert á þeim
áformum mínum að vinna að aukn-
um áhrifum mínum innan flokks-
ins,“ sagði Kristinn.
Búist er við átökum um nokkur
stór málefni á þinginu, þar á meðal
Evrópumál, og hafa drög að álykt-
unum flokksþingsins þegar valdið
titringi innan flokksins. Í þeim kom
fram að stefna ætti að því að hefja
aðildarviðræður við Evrópusam-
bandið á kjörtímabilinu.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra og Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra sögðu í samtali við
Fréttablaðið í gær að þetta atriði
hefði komið þeim á óvart. „Við telj-
um að áfram eigi að byggja á samn-
ingnum um Evrópska efnahags-
svæðið og ég tel ekki tímabært að
stíga nein þau skref sem þarna er
lýst, enda er það ekki á dagskrá
þessarar ríkisstjórnar,“ sagði Árni.
„Þetta hefur vissulega valdið
titringi. Verði þetta samþykkt á
þinginu yrði það breyting á stefnu
flokksins,“ sagði Guðni.
Auk Evrópumálanna er búist við
að tekist verði á um ýmis önnur
mál, svo sem hvort selja eigi
grunnnetið með Símanum, hugsan-
lega einkavæðingu Landsvirkjunar
og þær hækkanir sem orðið hafa á
orkuverði.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra vildi ekki tjá sig um mál-
efni flokksþingsins í gær. - sda
Í ÞJÓÐMINJASAFNINU Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra tók við Fjarskiptasafni Símans úr hendi Rannveigar Rist
stjórnarformanni fyrirtækisins. Um leið afhenti Rannveig tvo muni úr safninu, eitt fyrsta borðsímtækið sem hingað kom og síma sem
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti notaði í Höfða árið 1986.
DÝRALÍF Haförn hefur gert sig
heimakominn í Húnaþingi vestra,
á slóðum þar sem þessi konungur
fuglanna á Íslandi sést venjulega
ekki. Íbúar á bænum Dæli í Víði-
dal segja að hann hafi fyrst sést í
október og síðan hafi hann öðru
hverju komið í heimsókn.
„Ég hef búið hérna síðan 1983
og hef aldrei séð haförn áður,“
segir Sigrún Valdimarsdóttir sem
býr á Dæli. „Þetta er mjög tignar-
legur fugl. Hann er alltaf einn og
ég held að hann sé hér í leit að
æti. Hann hefur sést mikið við
Víðidalsá þar sem mér skilst að
hann veiði sér silung.“
Kristinn Haukur Skarphéðins-
son, fuglafræðingur hjá Náttúru-
fræðistofnun, segist hafa frétt af
erninum í Víðidal en einnig hafi
hann frétt af erni í Vatnsdal. Vel
geti verið að um sama örn sé að
ræða. Hann segir að stofninn,
sem nú telji um 200 fugla, sé
hægt og bítandi að jafna sig. Það
sjáist best á því að ernir sjást
víðar en bara við Faxaflóa,
Breiðafjörð og á Vestfjörðum.
Kristinn Haukur segir að sam-
kvæmt lýsingum sé örninn í
Húnaþingi dökkur og því sé hann
líklega ungur. Auk þess að hafa
heyrt af honum veiðandi sér sil-
ung eða smálax hafi einnig frést
að hann hafi kroppað í kindahræ.
- th
Fjarskiptasafn Símans:
Afhenti síma
Reagans
SAFN Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra tók í
gær við Fjarskiptasafni Símans
fyrir hönd Þjóðminjasafnsins.
Stjórn Símans tók nýverið ákvörð-
un um að gefa Þjóðminjasafninu
Fjarskiptasafn sitt, bæði húsið við
Suðurgötu sem áður hýsti gömlu
loftskeytastöðina og munina sem
þar eru sýndir.
Rannveig Rist, stjórnarformaður
Símans, afhenti Þorgerði Katrínu
tvo muni úr safninu við það tæki-
færi, eitt fyrsta borðsímtæki sem
hingað kom og símtækið sem Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti kom með
til landsins og tengt var beint við
Hvíta húsið meðan á leiðtogafundin-
um í Höfða stóð árið 1986. Leiða má
líkum að því að í gegnum síma
Reagans hafi verið teknar ákvarðan-
ir sem mörkuðu upphafið að enda-
lokum kalda stríðsins. - óká
Konungur fuglanna á sveimi í Húnaþingi vestra:
Veiðir silung og kroppar í hræ
SÍÐA 38
Bergþór Pálsson:
▲
Í miðju blaðsins
Veislur og borðsiðir
í uppáhaldi
● matur ● tilboð
Fermingar:
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
Fötin, veislan
og veitingar
FINNUR ÞIG
SJÓNVARPSDAGSKRÁIN
25. febrúar – 3. mars
nám fólk tíska matur krossgáta heilsa stjörnuspá leikhús
Flotta
finnska
stelpan
HÖNNUN
» í miðju blaðsins
» Katri RaakelFlotta finnska
stelpan
Katri Raakel:
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
● hönnun í miðju blaðsins
▲
Einar Bárðarson:
ÁFRAM HÆGVIÐRI Skýjað með
köflum víða um land. Minniháttar úrkoma
norðan til og við suðurströndina. Frost-
laust syðra, annars vægt frost. Sjá síðu 4
Útilokar ekki
formannskjör
Flokksþing framsóknarmanna hefst í dag. Ekki er útilokað að Kristinn H.
Gunnarsson bjóði sig fram á móti sitjandi formanni eða varaformanni.
Búist er við átökum á þinginu, þar á meðal um stefnuna í Evrópumálum.
● gerir kröfur til þeirra sem eftir eru
HAFÖRN Á FLUGI
Húsfreyjan á bænum Dæli hefur ekki séð
Haförn á þeim slóðum í 22 ár.
Gestadómari í
Idol-Stjörnuleit
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
BEÐIÐ FYRIR PÁFA
Kaþólikkar víða um heim báðu fyrir páfa.
Jóhannes Páll II páfi:
Gekkst undir
skurðaðgerð
VATÍKANIÐ, AP Læknar skáru gat á
barka Jóhannesar Páls II páfa í
gærkvöldi og komu fyrir pípu til að
auðvelda honum að anda. Aðgerðin
tók hálftíma og heppnaðist vel að
sögn talsmanna Vatíkansins.
Páfi var fluttur á sjúkrahús í
annað sinn á innan við mánuði
vegna öndunarerfiðleika. Það varð
til þess að vangaveltur um getu
páfa til að gegna embætti sínu
mögnuðust á nýjan leik. Sjálfur
hefur hann þó ætíð sagst myndu
gegna embætti sínu þar til drottinn
kallar hann á brott af jörðu. ■