Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 2
2 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR Fíkniefnalögreglan í Reykjavík: Mesta magn LSD sem fundist hefur LÖGREGLUMÁL „Fjögur þúsund skammtar eru ákaflega mikið magn efna og gætu verið í sölu mánuðum saman ef því er að skipta,“ segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni- efnadeildar hjá lögreglunni í Reykjavík. Við leit lögreglu í far- angri Íslendings sem handtekinn var í Hollandi í haust fundust fjögur þúsund skammtar af fíkniefninu LSD en það er mesta magn sem hald hefur verið lagt á hérlendis. Var farangur mannsins eftir hjá hollensku lögreglunni þegar hann var framseldur til Íslands eftir að hafa verið handtekinn með talsvert magn fíkniefna og ekki sendur til landsins fyrr en nýlega. Viðkom- andi er einn fimm sakborninga sem til rannsóknar eru vegna smygls á amfetamíni, kókaíni og LSD- skömmtum með flutningaskipinu Dettifossi en rannsókn þess máls er á lokastigi. Við skoðun lögregluyfirvalda hérlendis á farangri mannsins fund- ust LSD-skammtarnir fjögur þús- und en sakborningurinn hefur ekki viðurkennt að hafa ætlað að smygla þeim hingað til lands og er málið áfram í rannsókn. Spurður um hvort hollenska lög- reglan sé ekki starfi sínu vaxin að hafa ekki fundið efnin í tösku mannsins segir Ásgeir að líklegra sé að hún hafi ekki verið skoðuð. „Efnin voru ekki einu sinni falin í töskunni og því þykir mér líklegt að þeir hafi sent hana hingað til lands án rannsóknar.“ - aöe Framkvæmdastjóri ASÍ um þróunina á vinnumarkaði: Köllum eftir markvissum viðbrögðum stjórnmálamanna VINNUMARKAÐURINN Verkalýðs- hreyfingin hefur áhyggjur af því hvaða áhrif innflutningur á ólög- legum og óskráðum leigu- starfsmönnum hafi á vinnumark- aðinn. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri ASÍ, segir að brota- löm sé á því hvernig kjörum og aðstæðum þessara starfsmanna sé háttað. „Þessi hópur er að vaxa mjög hratt og það hefur mikil áhrif á kjör og aðbúnað í byggingariðn- aði,“ segir Gylfi og telur það grafa undan leikreglunum þegar kjör þessa fólks eru undir lágmarks- kjörum. Hann bendir á að hefð sé fyrir því að útlendingar komi hingað í fiskvinnu. Þeir komi með löglegum hætti og hafi engin sér- stök áhrif á þróun vinnumarkað- arins. Gylfi lýsir eftir viðbrögðum stjórnmálamanna í landinu, ekki síst við því að erlendum ríkis- borgurum séu greidd laun undir taxta, til dæmis á vegum starfs- mannaleigna, og aðbúnaður þeirra sé ekki boðlegur á íslensk- an mælikvarða. Þetta telur hann að framkalli óásættanlegar breyt- ingar á vinnumarkaði. „Við köllum eftir markvissari viðbrögðum stjórnmálamanna,“ segir hann. - ghs Alvarleg undirboð á vinnumarkaði Alvarleg undirboð eru stunduð á íslenskum vinnumarkaði í skjóli þjónustu- samninga og erlendra starfsmannaleigna. Af 750 erlendum iðnaðarmönnum á höfuðborgarsvæðinu er aðeins tíundi hluti á launaskrá íslenskra fyrirtækja. VINNUMARKAÐURINN Útlendingum hefur fjölgað mikið á vinnumarkaði á skömmum tíma og í fjölmörgum tilfellum eru þeir notaðir til undir- boða, annaðhvort opinberlega eða í gegnum svarta atvinnustarfsemi. Fréttablaðið hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að varlega áætl- að séu 750 erlendir starfsmenn í iðnaðarmannastörfum á höfuðborg- arsvæðinu. Aðeins um tíu prósent þeirra séu á launaskrá íslenskra fyrirtækja. Hinir séu í ráðningar- sambandi við starfsmannaleigur eða starfa svart. Talið er að 250 til 300 starfsmenn séu á svörtum markaði í byggingar- iðnaði. Ekki eru til neinar fullnægjandi skrár eða heildarupplýsingar um fjölda útlendinga, hvaðan þeir koma, við hvað þeir starfa eða hversu lengi þeir dveljast hér. Ekki er heldur til neitt yfirlit um laun þeirra, réttindi eða aðbúnað. Gögn sýna þó að hluti útlending- anna nýtur ekki launakjara og rétt- inda í samræmi við lög og kjara- samninga á vinnumarkaði. Einkum eru það starfsmenn sem koma hing- að á grundvelli þjónustuviðskipta og í gegnum starfsmannaleigur til lengri eða skemmri tíma, sérstak- lega frá Eystrasaltsríkjunum. Talið er að nokkur hundruð starfsmanna tilheyri þessum hópi. Tvíbent er hvort þjónustusamn- ingarnir eru í samræmi við lög og reglur. Oftar en ekki er talið að um skúffufyrirtæki sé að ræða eða fyrirtæki sem eru óskráð í heima- landinu. Grunur leikur á að gjarnan sé um málamyndagerning að ræða af hálfu notkunarfyrirtækjanna og gerður til þess að komast hjá því að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi og skrá starfsmennina með eðlilegum hætti. Talið er að þessir starfsmenn skipti hundruðum og starfi oft á svörtum markaði. Þá leikur grunur á að fjölmargir útlendingar komi til landsins sem ferðamenn og starfi síðan á svört- um markaði. ghs@frettabladid.is GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON Forstjóri Brims: Tvisvar unnið FÉLAGSDÓMUR Guðmundur Krist- jánsson, forstjóri Brims, fagnar niðurstöðu félagsdóms í Sólbaks- málinu, þar sem Brim var sýknað af kröfum Vélstjórafélagsins. Vél- stjórafélagið íhugar enn frekari málaferli. Hann undrast ef dómur- inn hafi einhverja eftirmála. „Í haust vann útgerðin Sólbakur málið fyrir félagsdómi. Sjómanna- sambandið dró mál sitt til baka því félagsdómur sagði að ráðninga- samningurinn væri löglegur. Nú er félagsdómur búinn að sýkna Brim líka. Það er ótrúlegt að verkalýðs- hreyfingin á Íslandi haldi að hún komist upp með bull og vitleysu endalaust. Ráðningarsamningurinn er hundrað prósent löglegur,“ sagði Guðmundur seint í gærkvöld. - ss Bush og Pútín: Ólík sýn á lýðræðið SLÓVAKÍA, AP Forsetar Rússlands og Bandaríkjanna voru sammála um að koma yrði í veg fyrir að Íran og Norður-Kórea réðu yfir kjarn- o r k u v o p n u m en greindi á um lýðræðið í Rúss- landi. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og Vladimír Pútín Rúss- landsforseti ræddu ýmis málefni á fundi í Slóvakíu. Bush gagnrýndi Pútín fyrir að auka á miðstýringu og draga til sín völd. Pútín svaraði því til að Rússar hefðu valið lýð- ræði og einræði myndi aldrei aftur þrífast þar. Lýðræðið yrði þó að þróast í takt við sögu og arfleifð Rússlands. ■ SPURNING DAGSINS Snæbjörn, er Sjón meira en bara fyrir augað? „Hann er líka fyrir munn og maga.“ Snæbjörn Arngrímsson er eigandi bókaforlagsins Bjarts sem gefur út bækur skáldsins Sjón sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrradag. LSD PAPPÍR Fjögur þúsund skammtar af efninu fundust við leit fíkniefnalögreglu en ekki telst sannað hvort sakborningurinn ætlaði sér að selja efnin hér á landi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E G G ER T ÚTLENDINGAR Á VINNUMARKAÐI Talið er að minnst 750 erlendir iðnaðar- menn starfi á höfuðborgarsvæðinu en aðeins tíundi hluti þeirra sé á launaskrá. Maðurinn á myndinni tengist fréttinni ekki. Heilbrigðisráðuneytið: Munnheilsa rannsökuð HEILBRIGÐISMÁL Nú stendur yfir könnun á munnheilsu sex, tólf og fimmtán ára barna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni. Í vor verða svo börn á landsbyggðinni skoðuð. Þetta er fyrst áfangi umfangs- mikillar rannsóknar á tannheilsu Íslendinga. Markmið hennar er að fá upplýsingar um munnheilsu Íslendinga og hvaða áhættuþættir það eru sem tengjast slæmri munnheilsu. Gert er ráð fyrir að ljúka rannsókninni í grunnskólun- um á yfirstandandi skólaári. - jss GYLFI ARNBJÖRNSSON Framkvæmdastjóri ASÍ segir það hafa áhrif á kjör almennt á markaðnum ef erlendum starfsmönnum eru boðin kjör undir töxtum. ■ GJALDÞROT MÁLI VÉLA OG ÞJÓNUSTU HF. EKKI LOKIÐ Skiptastjóri þrotabús Véla og þjónustu hf. hefur það til skoðunar hvort fyrrum eigendur hafi vanmetið verðmæti eigna sem þeir keyptu úr fyrirtækinu fyrir gjaldþrot fyrirtækisins í september. Viðar Lúðvíksson skiptastjóri segir viðskiptum þeg- ar hafa verið rift þar sem eignir hafi verið seldar úr búinu til ann- arra fyrirtækja forsvarsmanna undir raunverði. Annar skipta- fundur verði haldinn fljótlega. FORSETARNIR Bush og Pútín mætt- ust á fundi í Slóvakíu. ■ EVRÓPA FÆRRI BANASLYS Færri Þjóðverj- ar létust í umferðarslysum í fyrra en nokkurn tíma áður síð- ustu hálfu öldina. Ástæðan er að sögn yfirvalda betri umferðar- stjórn og áhersla á öryggi við framleiðslu bíla. 5.844 létust í bílslysum í fyrra, tólf prósentum færri en árið áður.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.