Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 8

Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 8
25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR Þingmenn harðorðir í garð Samtaka banka og sparisjóða: Vilja Íbúðalánasjóð út af markaði EFNAHAGSMÁL „Frelsinu fylgir ábyrgð og bankarnir verða að axla þá ábyrgð gagnvart markaðnum til langtíma,“ segir Hjálmar Árnason, alþingismaður Framsóknarflokks- ins, en hann hefur ásamt Ögmundi Jónassyni, þingmanni Vinstri grænna, farið hvað hörðustu orðum um Samtök banka og sparisjóða og aðför þeirra að Íbúðalánasjóði. Hjálmar nefnir ekki skýr dæmi en segir að innan bankanna verði menn að hugsa um fleira en að skapa eigendum sínum arð. „Íbúða- lánasjóður hefur skýr markmið en honum eru settar ákveðnar takmar- kanir sem tekur mið af meðalfjöl- skyldu í landinu meðan bankarnir hafa brugðist við frelsinu með því að dæla óheft út fjármagni vitandi að slíkt kann að hafa slæm áhrif á verðbólgu í landinu.“ Ögmundur tekur dýpra í árinni og nefnir dæmi: „Fyrsta skref sam- takanna var að kæra Íbúðalánasjóð til úrskurðarnefndar hins evrópska efnahagssvæðis. Ellefu dögum eftir að þeirri kæru var vísað frá lækk- uðu bankarnir vexti sína til jafns við Íbúðalánasjóð. Það gerðu þeir ekki fyrr en kærunni var hafnað og allt tal um að þeir hafi riðið þar á vaðið er út í hött. Nú hafa bankarn- ir aftur lagt fram kæru, að þessu sinni til EFTA dómstólsins og úr- skurðarins er nú beðið.“ - aöe Skarpar umræður um þróun fasteignaverðs á Alþingi: Lóðaverð nýtt sem tekjustofn FASTEIGNAVERÐ „Það er ánægjulegt að það verði skoðað hvernig koma á í veg fyrir að sveitarfélögin stuðli að hækkun fasteignaverðs,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður í utandagskrárum- ræðum á Alþingi í fyrradag um þróun fasteignaverðs. Komu þar fram ýmis sjónarmið en allir fögnuðu þeirri ákvörðun Árna Magnússonar félagsmálaráðherra að láta fara fram rannsókn á or- sökum þess fasteignaverðs sem er við lýði í dag. Málshefjandi var Guðlaugur Þór Þórðarson úr Sjálfsstæðisflokki en hans mat var að lóðaverð væri ein meginorsök mikilla hækkana fasteignaverðs. „Ég vil vekja athygli á því að R-listinn er núna að braska með lóð- ir í Norðlingaholti með einkaaðilum og hafa grætt rúmar 800 milljónir króna.“ Félagsmálaráðherra lét hafa eftir sér að lóðaúthlutun ætti ekki að vera sveitarfélögum tekjustofn og væri það einn sá þáttur sem rannsakaður yrði í úttekt þeirri sem hann hefur falið Rannsókna- setri í húsnæðismálum að gera á fasteignamarkaðnum. Nokkrir þingmenn bentu á tilk- omu 90 prósenta lána Framsókn- arflokksins sem ástæðu verð- hækkana en ráðherra svaraði því til að full þverpólitísk sátt hefði verið um frumvarpið og enginn hreyft andmælum þegar það var samþykkt. - aöe Byggingum við Dalveg mótmælt Íbúar í Kópavogi óttast jákvæð viðbrögð skipulagsnefndar við fyrirhuguðum byggingum Brimborgar við Dalveg. Þeir segja það umhverfisslys rísi húsin. Brimborg segir húsin hönnuð til að auka veg hverfisins. Tré hylji þau að mestu. ÍBÚABYGGÐ Bílaumboðið Brimborg hefur keypt lóð Gróðrarstöðvar- innar í Kópavogi fyrir 165 milljón- ir króna. Reisa á þrjú hús, samtals tæplega níu þúsund fermetra á 18.618 fermetra lóðinni auk bíla- kjallara undir byggingunum þrem- ur fáist skipulagi svæðisins breytt. Hartnær níutíu íbúar Kópavogs mættu á fund á þriðjudagskvöld til að ræða mögulegar breytingar á skipulagi. Heiðar Þór Guðnason íbúi í Skógarhjalla og talsmaður þeirra segir að skrifað hafi verið undir áskorun til bæjaryfirvalda um að breyta ekki núgildandi skipulagi. „Við höfum áhyggjur af já- kvæðu hugarfari skipulagsnefndar bæjarins til framkvæmdanna og við höfum áhyggjur af því að búið sé að kaupa lóðina,“ segir Heiðar. Í kaupsamningi Brimborgar stendur að kaupanda sé kunnugt um að lóðinni sé úthlutað undir garðyrkjustöð og að önnur starf- semi sé ekki heimiluð þar nema með samþykki skipulagsyfirvalda Kópavogsbæjar. Egill Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Brimborgar, segir bílaumboðið ekki hafa fengið vil- yrði skipulagsyfirvalda um breytt skipulag en unnið hafi verið með þeim. „Við erum búnir að leggja fyrir þau tillögur og þau hafa skoðað teikningarnar, gert athuga- semdir og við höfum brugðist við þeim,“ segir Egill. Byggingarleyfi á lóðinni hafi verið veitt öðrum og grunnur reistur. Það verði því byggt á lóðinni í framtíðinni . Heiðar kallar eftir samstarfi við bæjaryfirvöld og gagnrýnir þau fyrir að virða ekki Staðardagskrá 21. Þar sé kveðið á um samráð íbúa á hverjum stað. Samkvæmt henni eigi einungis léttur iðnaður og ein- yrkjastarfsemi að fá byggingar- leyfi innan íbúðarsvæða sem og starfsemi sem ekki krefjist meng- unar, umferðar eða önnur óþæg- indi. Að því sé vegið með byggingu iðnaðarstórhýsis í stað græns svæðis. gag@frettabladid.is GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 25 47 1 09 /0 4 Fyrir okkur hin Honey Nut Cheerios er fyrir okkur sem viljum morgunkorn sem gefur náttúru- legan sætleika og er jafnframt fullt af hollum trefjum og vítamínum. ÖGMUNDUR JÓNASSON Þingmaðurinn segir samkrull banka og sparisjóða gegn Íbúðalánasjóði augljóst og varar við þeirri mynd sem birtist, hverfi Íbúðalánasjóður af vettvangi. ÁHYGGJUR ÍBÚANNA • Bílasölurúntur um íbúðarhverfið• Stærð byggingar bílaumboðsins• Enn verri hljóðvist• Lækkað fasteignaverð• Útsýni, steypa, bílar LÓÐ BRIMBORGAR VIÐ DALVEG Byggingar á svæðinu verða allar lægri en Gróðrar- stöðin utan miðhluta hennar sem rís einum metra hærra. Báðum megin við verða sýningarsalir fáist skipulagi svæðisins breytt. Ystu hlutar hennar verða verkstæði og þar á milli sýningarsalir. Á enda lóðarinnar verða geymslur. Undir aðalhúsinu rúmast 200 bílar. Aðko ma f rá D alve gi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.