Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 16
16 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Stjórnarkreppu
afstýrt í Palestínu
Stuttri stjórnarkreppu í
Palestínu lauk í gær
þegar palestínska þingið
lagði blessun sína yfir
ráðherralista Ahmed
Qureia forsætisráð-
herra. Hann þykir hafa
beðið hnekki af málinu
en Mahmoud Abbas
forseti styrkst.
Mikil togstreita hefur ríkt á milli
þings Palestínumanna og Ahmed
Qureia forsætisráðherra undan-
farna daga vegna skipunar nýrrar
heimastjórnar og virtist stefna í af-
sögn forsætisráðherrans út af mál-
inu. Mahmoud Abbas miðlaði hins
vegar málum og sátt náðist um
nýjan ráðherralista. Heimastjórnin
verður skipuð ópólitískum sérfræð-
ingum en ekki fyrrverandi stuðn-
ingsmönnum Jassers Arafat eins og
útlit var fyrir í fyrstu.
Þegar Mahmoud Abbas var kjör-
inn forseti Palestínumanna í janúar-
byrjun boðaði hann róttæka upp-
stokkun á ríkisstjórninni. Þegar
Jasser Arafat var við völd hafði rík-
isstjórnin veika stöðu enda var hún
jafnan skipuð tryggum samstarfs-
mönnum forsetans án tillits til hæfi-
leika þeirra.
Á mánudaginn kynnti Qureia 24
manna ráðherralista sinn og þá kom
í ljós að aðeins fjórir nýir ráðherrar
voru þar á meðal. Allir hinir höfðu
setið í gömlu ríkisstjórninni sem al-
mennt var talin gjörspillt. Í kjöl-
farið varð uppi fótur og fit í palest-
ínska þinginu og lýsti þorri þing-
manna því yfir að hann myndi ekki
styðja ríkisstjórn Qureia. Fatah-
hreyfingin, sem þeir Abbas og
Qureia tilheyra báðir, hefur drjúgan
meirihluta þingsæta og höfðu þing-
menn hreyfingarinnar sig mikið í
frammi í umræðunum. Í kjölfarið
var ákveðið að fresta atkvæða-
greiðslunni um stjórnina til morg-
uns og sá frestur var svo tvífram-
lengdur til gærdagsins.
Þegar ljóst var að ráðherralisti
Qureia nyti ekki stuðnings þingsins
virtist allt stefna í að hann segði af
sér forsætisráðherraembætti enda
hefði tap í atkvæðagreiðslunni jafn-
gilt vantrausti á hann. Því skarst
Mahmoud Abbas í leikinn og sagði
deilendum að nú væri ekki rétti
tíminn til pólitískra væringa. Hann
fundaði með þingmönnum Fatah á
þriðjudag og miðvikudag en jafn-
framt fékk hann Qureia til að skipta
um skoðun. Í gær samþykkti palest-
ínska þingið svo nýjan og breyttan
ráðherralista Queira með yfirgnæf-
andi meirihluta, 54 greiddu atkvæði
með en 12 voru á móti.
Sautján nýliðar setjast í ráð-
herrastóla í stjórn Qureia. Flestir
ráðherranna eru ópólitískir sér-
fræðingar á þeim sviðum sem þeir
eiga að starfa og eru margir þeirra
með doktorsgráður í greinum á
borð við lögfræði, verkfræði og
læknisfræði. Meðal lykilmanna í
stjórninni er Nasser Jousef innan-
ríkisráðherra, en hann þykir harður
í horn að taka og mun eflaust leggja
sitt af mörkum til að koma á lögum
og reglu á sjálfstjórnarsvæðum
Palestínumanna. Nasser al-Kidwa
verður utanríkisráðherra en hann
er fyrrverandi sendiherra Palest-
ínumanna hjá Sameinuðu þjóðunum
og frændi Arafats. Einn fárra ráðh-
erra úr gömlu ríkisstjórninni sem
halda sætum sínum er Nabil Shaath
sem verður upplýsingaráðherra og
aðstoðarforsætisráðherra.
Mörgum stjórnmálaskýrendum
hefur komið á óvart hversu hart
þingið brást við hugmyndum
Qureia, sérstaklega þar sem margir
þeirra sem hæst mótmæltu eru
sjálfir í hópi fyrrverandi stuðnings-
manna Arafats. Skýringin liggur
eflaust í því að tiltrú almennings á
Fatah-hreyfingunni hefur dvínað
talsvert og þegar gengið verður til
þingkosninga í júní mun Hamas-
hreyfingin vafalaust taka af þeim
fjölda þingsæta en hún hyggst
bjóða fram að þessu sinni. Með mót-
mælunum vilja þingmenn Fatah því
láta líta svo út í augum almennings
að þeir séu á móti spillingu og
þannig öðlast traust.
Ahmed Qureia þykir hins vegar
hafa beðið mikinn álitshnekki af
málinu og búast fáir við að hann
haldi embætti sínu eftir kosning-
arnar í júní. Mahmoud Abbas hefur
aftur á móti styrkt stöðu sína mjög.
Hann deilir og drottnar yfir þingi
og ríkisstjórn og nýtur óskoraðs
umboðs almennings til þess arna.
sveinng@frettabladid.is
Umhverfisráð Reykjavíkur hefur sam-
þykkt reglur um kattahald. Sam-
kvæmt þeim
ber að láta
ormahreinsa og
örmerkja alla
ketti og gelda
fressketti sem
ganga úti.
Heimilt er að
hremma ketti
sem ekki eru út-
búnir í samræmi við
reglugerðina. Borg-
arstjórn þarf að
staðfesta reglurn-
ar svo að þær
taki gildi.
Er aðgerðanna þörf?
Ekki er vitað með vissu hversu margir
kettir eru í höfuðborginni, en talið er
að þeir séu að minnsta kosti 10.000.
Þeir sem til þekkja segja að köttum
hafi fjölgað mikið á síðustu árum og
gegn því verði að sporna. Gelding úti-
fressa er liður í því.
Flestir kettir fá einhvern tímann
spóluorma og getur þeim liðið illa af
þeim sökum. Það sem verra er þá
gera þeir gjarnan þarfir sínar í sand-
kassa á barnaleikvöllum. Börnin geta
étið sandinn og orðið veik af völdum
ormanna. Því telja yfirvöld rétt að
gera ormahreinsun að skyldu.
Að lokum má telja örmerkingar. Að
lokinni merkingu eiga kattaeigendur
að koma númerinu ásamt nafni sínu
og kennitölu til yfirvalda. Með ör-
merkingu er strax hægt að koma kisu
til eiganda síns og þannig er komið í
veg fyrir tjón og ónæði sem af óskila-
köttum hlýst, auk þeirrar sálarangistar
sem kattaeigendur verða fyrir við
kattartapið.
Er ekki allt gott um þetta að
segja?
Fari fólk eftir reglugerðinni ætti til-
gangur hennar að nást, bæði mönn-
um og köttum til hagsbóta. Hins veg-
ar er vandséð hvernig hægt er að
tryggja að öllum þáttum hennar sé
framfylgt, eins og ormahreinsuninni.
Engar menjar eru um inntöku orma-
lyfjanna sem fer að öllu jöfnu fram á
heimili kattarins, ekki hjá dýralækni.
Margir kattaeigendur eru væntanlega
tortryggnir út af lausnargjaldinu sem
þeim ber að greiða ef kötturinn er
gómaður án viðeigandi merkingar.
Ekki er enn vitað hversu hátt gjaldið
verður en það gæti orðið 20.000-
30.000 miðað við gjaldtöku Suður-
nesjamanna sem nýverið tóku upp
slíkt fyrirkomulag.
Það sem helst hefur þó verið gagn-
rýnt er hin dulda skráningarskylda
sem óneitanlega er fólgin í útfærslu
örmerkinganna. Með því að safna
nöfnum og kennitölum allra kattaeig-
enda telja menn að þar með sé
hægðarleikur fyrir borgaryfirvöld að
rukka fólk fyrir að halda ketti. Það
gæti orðið fyrirtaks tekjulind fyrir
borgarsjóð.
Geld fress með húðflúr í eyra
FBL GREINING: KATTAREGLUGERÐIN
Sigurjón Birgir Sigurðsson, jafnan
nefndur Sjón, hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs í fyrradag fyrir
skáldsöguna Skugga-Baldur. Snæ-
björn Arngrímsson er útgáfustjóri
bókaforlagsins Bjarts sem gaf bókina
út.
Kom það þér á óvart að Sjón skyldi
hafa unnið? Heiðarlega svarið er
auðvitað já, því maður býst aldrei við
verðlaunum. Bókin er hins vegar
mjög góð og því kemur það ekki
óvart í sjálfu sér að hún skyldi vinna.
Hún á þessi verðlaun fyllilega skilin.
Býstu við að það komi kippur í söl-
una á Skugga-Baldri núna? Já, ég
reikna með því. Eftir að úrslitin voru
tilkynnt bárust strax pantanir frá
bókabúðum því það var orðið lítið til
af bókinni í þeim.
Stendur til að þýða Skugga-Baldur
á önnur tungumál? Það er þegar
búið að þýða hana á ensku, sænsku
og ítölsku. Nú er búið að semja um
að þýða hana á öll Norðurlandamál-
in, meira að segja færeysku.
SNÆBJÖRN ARNGRÍMSSON
Gæðastimpill
fyrir Bjart
SKUGGA-BALDUR
SPURT & SVARAÐ
Látið heiðursfólk:
Tekið í dýrlingatölu
Flensan sem hefur verið að hrjá
Jóhannes Pál páfa II hefur tekið
sig upp á ný. Því lét hann sig
vanta á fund kardínála í Vatíkan-
inu í gær þar sem áformað var að
ákveða hvaða látna heiðursfólk
ætti að taka í dýrlingatölu að
þessu sinni.
Dýrlingar kaþólsku kirkjunnar
eru ríflega tíu þúsund og hefur
enginn páfi sæmt jafn marga
þessari nafnbót og Jóhannes Páll
páfi II. Strangar reglur eru um
hverjir komast í dýrlinga tölu og
hafa þær verið til síðan á 10. öld.
Vísindavefur Háskóla Íslands
greinir frá því að ef hinn látni var
ekki píslarvottur verður að koma
fram sönnun á því að tvö krafta-
verk hafi átt sér stað fyrir milli-
göngu hans frá himnaríki. Ef hinn
látni var píslarvottur þarf hins
vegar aðeins að sanna eitt krafta-
verk áður en hann er gerður að
dýrlingi. - shg
KARDÍNÁLAR Á RÖKSTÓLUM
Páfi komst ekki á fundinn í Vatíkaninu í gær þar verðandi dýrlingar voru ræddir í þaula.
M
YN
D
/A
P
Ahmed Qureia fagnaði ákaft í hópi stuðningsmanna sinna í Ramallah í gær eftir að þingið
samþykkti ráðherralista hans. Hann þykir þó lítinn sóma hafa haft af málinu.
M
YN
D
/A
P