Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 20

Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 20
Minnisstæður opinber klofningur varð í þingflokki Framsóknar- flokksins í janúar árið 1993, þegar greidd voru atkvæði um EES-samn- inginn. Þáverandi formaður flokks- ins, Steingrímur Hermannsson, greiddi atkvæði á móti ásamt nokkrum öðrum þingmönnum, svo sem þeim Páli Péturssyni, Stefáni Guðmundssyni og Ólafi Þ. Þórðar- syni heitnum. Ekki kemur á óvart að þá var núverandi þingmaður framsóknar, Kristinn H. Gunnars- son, einnig á móti. Hinn hluti þing- flokksins, sem segja má að skipi kjarnann í núverandi forustu Fram- sóknar, fór gegn formanni sínum og sat hjá, en öllum var ljóst að þessi hópur var í hjarta sínu samþykkur gerð samningsins. Þetta var fólk eins og Halldór Ásgrímsson, Jón Kristjánsson, Valgerður Sverris- dóttir, Finnur Ingólfsson og Jóhannes Geir Sigurgeirsson. Því er þetta rifjað upp nú, rúm- um 12 árum síðar, að segja má að í þessari atkvæðagreiðslu hafi krist- allast þær markalínur sem enn eru til staðar í Framsóknarflokknum gagnvart Evrópusamstarfi. Þessir þingmenn endurspegluðu hver um sig sjónarmið og viðhorf í baklandi sínu. Þó svo að margir þessara þing- manna séu nú horfnir af þingi lifa viðhorfin enn meðal stuðnings- manna flokksins þó hlutföll hafi vissulega eitthvað breyst síðan 1993. Stóru línurnar eru enn þær sömu. Það má raunar sjá í því að hjásetuhópurinn, sem síðar varð ráðandi forustuafl flokksins, hefur verið mjög jákvæður í garð Evrópu- samstarfs. Halldór Ásgrímsson hefur haldið Evrópuumræðunni vakandi, bæði í flokknum og á vett- vangi utanríkisráðuneytisins þegar hann var þar. Eðlilega hefur hann hins vegar verið heftur af samstarfi við Davíð Oddsson og Sjálfstæðis- flokkinn. Jafnframt hafa framsókn- armenn verið sér meðvitaðir um að skoðanir eru skiptar í eigin röðum, og markalínurnar úr atkvæða- greiðslunni 1993 birtast til dæmis í því að flokksmenn telja að ákveðið jafnvægi felist í því að á meðan Halldór sitji á formannsstóli sé Evrópu-efamaðurinn Guðni Ágústs- son í hlutverki varaformanns. Þessi jafnvægisdans hefur nú verið stiginn um nokkurt árabil og framsóknarmenn hafa farið í gegn- um mikla naflaskoðun varðandi framtíð og möguleika EES, en ekki tekið af skarið um hvað beri að gera. Fyrir flokkþinginu sem hefst í dag liggja hins vegar ályktunar- drög, sem taka af allan vafa um hvert flokkurinn eigi að stefna – verði þau samþykkt óbreytt. Drögin vilja Framsóknarflokkinn og Íslendinga inn í ESB. Gamalkunnugt átakaefni ólíkra fylkinga hefur þannig verið virkjað að nýju og talsvert púður mun væntanlega fara í að koma því í slík- an farveg að allir geti vel við unað. Í ljósi nýlegra breytinga á stóla- skipan og vegna stjórnarsamstarfs- ins í heild er þetta kannski ekki þægilegasti tíminn fyrir Halldór Ásgrímsson að fá samþykkta her- skáa Evrópustefnu. Auk þess munu einhverjir eflaust telja að tímara- mminn í ályktunardrögunum um aðildarumsókn sé óraunhæfur. Í sjálfu sér er áhugavert að þetta mál skuli koma inn á flokksþingið með þessum hætti, en það verður enn áhugaverðara í ljósi þess að tvö önnur af fjórum helstu átakamálum þingsins virðast falla nokkurn veg- inn á átakaásinn frá 1993, rétt eins og Evrópumálin gera. Þetta eru hugmyndir manna um einkavæð- ingu Landsvirkjunar og sameiningu orkuframleiðslufyrirtækja annars vegar og svo salan á grunnneti Sím- ans hins vegar. Í öllum aðalatriðum skiptast menn í fylkingar eftir sömu línum í þessum þremur mál- um; Evrópumálinu, Landsvirkjun- armálinu og Símamálinu. Þegar er ljóst að Guðni Ágústsson og ýmsir sem eru honum pólitískt skyldir hafa tekið mjög djúpt í árinni með einkavæðingu Landsvirkjunar. Þar eru línurnar því nokkuð skýrar. Gagnvart Símanum er það í raun- inni Halldór Ásgrímsson sem hefur gefið upp boltann með því að gefa út mjög afgerandi yfirlýsingar um að fyrri ákvarðanir um að grunnetið verði selt muni standa. Um það eru hins vegar miklar efasemdir og áhyggjur, eins og kemur berlega fram í ályktunardrögunum sem liggja fyrir þinginu. Þar kemur grunnnetið við sögu á einum 5-6 ólíkum stöðum og alltaf talað um að tryggja þurfi jafnan aðgang allra landsmanna að því og að samkeppn- in þar sé virk. Það er einmitt sú for- senda sem gengið hefur erfiðlega að sýna fram á að sé til staðar, þannig að formaðurinn mun þurfa að sýna Kristni H. Gunnarssyni og öðrum flokksmönnum sínum fram á slíkt með mjög sannfærandi hætti. Ólíkt því sem virtist fyrir nokkrum dögum kynni því að draga til pólitískra átaka milli fylkinga á flokksþinginu, einkum vegna þess að þar munu koma upp þrjú hitamál sem flokksmenn skiptast í svipaðar fylkingar um. Fjórða málið sem lík- legt er til að kynda undir átök er hinar sérkennilegu uppákomur í Kópavogi upp á síðkastið og um- ræðan almennt um jafnréttismál og þá kannski ekki síst hvort vinnu- brögð forustunnar séu í þeim far- vegi sem þau eigi að vera. Þau mál hins vegar eru nokkuð annars eðlis en til dæmis Evrópumálin og lúta sínum eigin lögmálum. En í ljósi þess að eitt vinsælasta orðatiltæki í umræðunni um stjórn- mál snýst um að draga fram hve „ein vika sé langur tími í pólitík“, þá er óneitanlega fróðlegt til þess að hugsa hve stuttur tími 12 ár eru þrátt fyrir allt í pólitík – í það minnsta þegar kemur að flokka- dráttum í Framsókn um Evrópumál og fleira. ■ K ofi Annan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur að undanförnu ritað greinar í þjóðblöð víða umheim til að árétta mikilvægi samtakanna fyrir alþjóðlegt samstarf og frið í heiminum. Ein slík birtist hér í blaðinu í gær. Vegna stöðu Fréttablaðsins á íslenskum blaðamarkaði var vel við hæfi að það yrði valið til að flytja boðskap framkvæmda- stjórans til Íslendinga. Full ástæða er til að gefa orðum Kofi Annan gaum. Að Sam- einuðu þjóðunum er sótt frá hægri og vinstri á stjórnmálavett- vangi. Einstrengisfullir ákafamenn í mörgum löndum vilja sam- tökin feig. Margir bandarískir hægrimenn telja að þau séu Þrándur í Götu nauðsynlegrar krossferðar í þágu lýðræðis og markaðshyggju sem Bandaríkin eigi að hafa forystu um í Þriðja heiminum. Valdastéttir í ýmsum löndum eru óánægðar með af- skipti samtakanna af stjórnarfari sínu. Þær vilja geta farið sínu fram án alþjóðlegs eftirlits og athugasemda. Hófsamir aðilar þurfa við þessar aðstæður að slá skjaldborg um Sameinuðu þjóðirnar í nafni þeirra hugsjóna sem þær voru stofnaðar um og ekki síður í ljósi reynslunnar á alþjóðavettvangi þar sem til- raunir einstakra ríkja og ríkjahópa til að taka sér lögregluvald óháð alþjóðalögum hafa skapað stórkostleg vandamál. En beint tilefni skrifa Kofi Annan er dapurlegt. Stjórnendum á vegum samtakanna hafa orðið á margvísleg mistök. Hneyksl- ismál hafa riðið yfir samtökin á undanförnum mánuðum. Ber hæst uppljóstrunina um fjársvikastarfsemi í tengslum við skipti á mat og olíu í Írak. Fólskuverk sem friðargæsluliðar Samein- uðu þjóðanna unnu í Kongó og víðar í Afríku hafa einnig verið í brennidepli. Það ber hins vegar að segja samtökunum til hróss í þessum málum að á þeim hefur verið tekið af festu og myndug- leika. Þeir sem hafa gerst brotlegir verða látnir svara til saka. Mistök og jafnvel afglöp eru líklega óhjákvæmileg í starfi jafn umsvifamikilla samtaka og Sameinuðu þjóðanna. En með virku og opnu eftirlitskerfi hlýtur að vera hægt að draga úr líkum á slíkum atvikum. Það er ljóst að Kofi Annan vill af mikilli einlægni leggja sitt af mörkum til að alþjóðasamfélagið og heimsbyggðin öll geti verið stolt af Sameinuðu þjóðunum. Rökin fyrir starfrækslu samtakanna eru jafngild og í upphafi. Án þeirra er heimurinn óöruggari og hættulegri. Allir ábyrgir aðilar þurfa að gera sér grein fyrir þessu og leggja sitt af mörkum til þess að vanhugsaðar atlögur að samtökunum verði þeim ekki að fjörtjóni. Ekki er nóg að stjórnvöld ríkjanna átti sig á þessu. Almenningur þarf líka að sýna hug sinn í verki. „Sam- einuðu þjóðirnar munu ekki þrífast á tuttugustu og fyrstu öld- inni nema venjulegu fólki finnist að þær séu að gera eitthvað fyrir það sjálft,“ skrifar Kofi Annan. „Okkur verður að takast að snúa við blaðinu í baráttunni við sjúkdóma og hungur, rétt eins og í baráttunni við hryðjuverk, útbreiðslu gereryðingarvopna og glæpi.“ Þetta eru orð að sönnu. Þetta eru hin stóru verkefni sem ráða munu úrslitum um framtíðargengi Sameinuðu þjóðanna. ■ 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Boðskapur Kofi Annan á erindi við Íslendinga. Sameinuðu þjóðirnar eru mikilvægar FRÁ DEGI TIL DAGS Í DAG EVRÓPUMÁLIN OG FRAMSÓKN BIRGIR GUÐMUNDSSON Tónleikar á Nasa fös. 25. og lau. 26. febrúar kl.23.00 NOJAZZ ( franskur elektró-jass ) og JAGÚAR Forsala 700.kr Miðaverð 1000 kr. af.ismennt.is / nasa.is Paris Tólf árum síðar Eins og á öðrum söfnum Hlýhugur sá sem húsverndarmenn hafa sýnt Laugaveginum í umræðunni um niðurrif gamalla húsa við götuna fær misjafnar undirtektir meðal íbúanna (sem raunar eru ekki mjög margir). Einn þeirra, Guðmundur Ólafsson, hag- fræðikennari við Háskóla Íslands, sem búsettur er á Lauga- vegi 61, segist í blaðagrein í gær óttast að friðun gömlu húsanna muni kosta eig- endur þeirra stórfé eða tekju- tap vegna kvaða sem stjórnvöld gætu lagt á þá. Hann vill að borgin eða ríkið kaupi þær eignir sem verði friðaðar. „Að öðr- um kosti verði eigendum og íbúum við Laugaveg heimilað að taka gjald af vegfarendum og húsaskoðunarfólki, eins og tíðkast á öðrum söfnum,“ skrifar hann. Kannski ekki svo galin hugmynd. Hvað ætli menn væru til- búnir að borga fyrir að fá að líta inn hjá hagfræðingnum? Tíðinda að vænta? Skeytin fljúga á milli Páls Sigurðssonar lagaprófessors og Sigrúnar Klöru Hannesdóttur landsbókavarðar. Páll er ósáttur við sparnaðaraðgerðir sem stjórnendur Landsbókasafns gripu til þegar í ljós kom verulegur halli á rekstri stofnunarinnar í fyrra. Er hann raunar ekki einn á báti í því efni því hópur fræðimanna hefur opinberlega deilt á safnstjórnina sem hefur svarað því til að gagnrýnin sé byggð á misskilningi. Í gær birti prófessor Páll enn eina ádeilugrein- ina á safnið í Morgunblaðinu og gerir þar fjármálastjórnina að umtalsefni. Minnir hann á að forstöðumenn beri ábyrgð á fjárhag stofnana. „Geta veruleg frávik ... varðað hlutaðeigandi stjórnvöld viðurlögum ef áminningar koma fyrir ekki,“ skrifar hann. Og síðan lætur hann þessi athyglisverðu orð falla: „Með fjár- málum stofnunarinnar er nú fylgst mjög náið af hálfu þar til bærra ríkisstjórn- valda – og er aldrei að vita nema ein- hverra tíðinda sé að vænta úr þeirri átt, án þess að neitt verði fullyrt í þeim efn- um.“ Hvað skyldi búa hér að baki? gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.