Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 22

Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 22
Heimabökuð pitsa Til að ná pitsubotninum góðum í ofninum heima er sniðugt að notast við pitsustein. Steinninn er úr jarðleir og heldur vel hita þannig að botninn bakast mjög vel. Jafnvel er hægt að verða sér úti um stóra og góða gólfflís úr leir, og gæti verið ódýrara en pitsusteinninn.[ ] sími 568 6440 Allt í eldhúsið Réttir kvöldsins Fordrykkur í boði hússins M/ þriggja rétta seðlinum Canasta Cream Forréttur verð f/ einrétta verð f/ þriggja rétta máltíð Humarsúpa kr. 850 m/ rjómatoppi og hvítlauksbrauði Aðalréttir Smjörsteiktur skötuselur kr. 2.950 kr. 3.890 m/ hvítvínssósu , grænmeti og bakaðri kartöflu Lambafillet kr. 2.980 kr. 3.890 m/ sherrybættri sveppasósu, grænmeti og bakaðri kartöflu Nautalundir kr. 3.150 kr. 3.990 m/chateaubriandsósu, grænmeti og bakaðri kartöflu Eftirréttur Súkkulaðifrauð kr. 690 Borðapantanir í síma 562 1988 Veitingahúsið Madonna Rauðarárstíg 27 www.madonna.is Arka • sími 899-2363 Smoothies drykkirnir eru: 100% ÁVEXTIR 1 flaska = tveir ávextir Engin aukaefni Enginn viðbættur sykur Máltíð í flösku! Einfalt er best Ásta Björk Magnúsdóttir sækir sér oftast hráefni í næsta nágrenni. Í veiðihúsinu við Laxá í Leir- ársveit galdrar Ásta Björk Magnúsdóttir fram dýrindis rétti úr alíslensku hráefni. Á dögunum kallaði landbúnaðar- ráðherra til blaðamannafundar í veiðihúsinu við Laxá í Leirársveit, þar sem Ásta Björk Magnúsdóttir ræður ríkjum. Að beiðni ráðherra snaraði hún fram dýrindis hlað- borði þar sem allt hráefni var íslenskt, en tilefni fundarins var heimasala bænda á afurðum sínum. „Ég legg áherslu á að nota alltaf íslenskt hráefni, ef það er hægt,“ segir Ásta Björk, en í þessu tilfelli var þess krafist. „Hráefnið fæ ég svo héðan og þaðan en reyni að sækja það mest hérna í kring,“ segir Ásta. Meðal þeirra rétta sem hún bar á borð var grafin lundi með fjallagrösum, sítrónukryddleginn lambavöðvi og rúgbrauð með heimalagaðri lifrarkæfu, en rétt- irnir voru hver öðrum girnilegri. Veiðihúsið hjá Ástu er í fullri notkun á sumrin en á veturna leigir hún það út til hópa og er möguleiki á að hún fylgi með sem matreiðslumaður. „Ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt þar sem maður er alltaf að taka á móti fólki, og ég ligg yfir uppskriftum. Ég var til dæmis að grafa gæs þegar mér datt í hug að nota sömu uppskrift á lunda og það heppnaðist bara mjög vel, „ segir Ásta. Hún segist ekkert vera að leggja sig fram við að hafa hlutina flókna, enda þarf það ekki að vera betra. „Yfirleitt er það einfalda best,“ segir Ásta að lokum. kristineva@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Grafinn og birkireyktur lax. Rúgbrauð með heimalagaðri lifrarkæfu. Hrátt hangikjöt. Sítrónukryddlegin nautalund. Grafinn lambavöðvi. Grafin gæs og lundi með íslenskum fjallagrösum. Osborne er eitt stærsta vínfyrirtæki Spánar og ekki síst þekkt fyrir sérrí sín og brandí auk þess sem vörumerki þess, nautið „El Toro“ er ákaflega þekkt og kannast margir ferðamenn við „Osborne nautin“, risavaxin úr járni sem má sjá meðfram hraðbraut- um. Víngerðarkonan Maria Martinez leiðir framleiðslu fyrirtækisins og þekkja flestir Montecillo-vín hennar frá Rioja. Nú er María komin með nýtt vín sem heitir Solaz og er framleitt í hjarta Spánar, í Kastillíu. Vínið er blanda af cabernet sauvignon og hinnu spænsku tempranillo þrúgu. Það er auðdrekkanlegt með miklum ávexti og kryddtónum. Vínið fékk einstaklega góða dóma í Morgun- blaðinu fyrir eigi alls löngu og Þorri Hringsson, vínrýnir Gestgjafans, taldi þetta eitt albesta kassavínið í úttekt sem hann gerði á kassavínum sl. sumar. Kynningarverð á íberískum dögum, 3 lítra kassi á 3.390 kr. SOLAZ: Eitt besta kassavínið SKYRTERTA ÁSTU 1 Pakki af LU kexi (með kanil) 1 lítri af KEA vanilluskyri 1/2 lítri af rjóma, þeyttur 80 g smjör Mylja kexið og blanda saman við mjúkt smjör og þrýsta í botninn á forminu. Blanda saman skyrinu og rjómanum og sett ofan á botninn. Skreytt að vild. HEIMAÞURRKAÐIR TÓMATAR. Tómatarnir eru þurrkaðir í ofni á lágum hita, en grófu salti og sykri er stráð yfir áður en þeir eru settir í ofninn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.