Fréttablaðið - 25.02.2005, Síða 23
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
Fonseca Bin 27 fæst nú í 375 ml flöskum sem henta vel
fyrir matarboðið eða fyrir einn eða tvo með góðum
ostum. Þetta ruby-portvín átti miklum vinsældum að
fagna hér áður en einhvernveginn virtust 750 ml
flöskurnar vera of stórar fyrir þá sem njóta portvíns
sjaldan. Þetta hefur breyst með tilkomu 375 ml
flasknanna. Þrátt fyrir að hafa langan lifitíma þá
er vínið alltaf best fyrstu vikurnar eftir opnun.
Fonseca er portvín með mikla fyllingu í bragði og
greina má sólber og kirsuber. Fonseca Bin 27 var
fyrst blandað fyrir rúmri öld og þá eingöngu fyrir
fjölskylduna sjálfa til neyslu. Það hefur viðhaldið
sínum einstaka stíl og háum gæðum þó að það sé
framleitt í miklu magni frá vínekrum Fonseca
Guimaraens, sem eru ofarlega í Douro
dalnum. Vínið er látið eldast í stórum eikartunnum
í fjögur ár.
Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni
og er á kynningarverði, 1.490 kr.
3FÖSTUDAGUR 25. febrúar 2005
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR FLJÓTLEGA
RÉTTI Á FÖSTUDEGI.
Súrsætt svínakjöt á steiktu káli
Hér er réttur sem er fyrir þá sem vilja prófa eitthvað sem er bæði
auðvelt og öðruvísi. Djúpsteikt hvítkál kemur á óvart. Það er mjög
bragðgott, stökkt og skemmtilegt undir tönn. Algert sælgæti.
Saltið og piprið kjötstrimlana og steikið þá í ólífuolíu á háum hita í
2-3 mínútur. Bætið þá sojasósu, hunangi, lime-safa og tabasco-sósu
við og steikið áfram í 2-3 mínútur. Endið á því að sáldra sesamfræj-
um yfir. Hitið um 1,5 cm lag af djúpsteikingarolíu í pönnu með þykk-
um botni. Skerið kálið í strimla, þerrið og setjið það svo varlega út
í olíuna (hæfilegt magn í einu). Steikið í nokkrar sekúndur eða
þangað til olían er mikið til hætt að freyða. Veiðið þá kálið upp úr
olíunni og látið þerrast á eldhúsbréfi. Passið að þerra vel og saltið
kálið því næst dálítið. Berið kjötið fram á beði af káli. Sáldrið chilli
og koríander yfir eftir smekk.
400 g svínahnakki (skorinn í strimla)
4 msk. ólífuolía
4 msk. sojasósa
2 msk. hunang (glært)
safi af 1 lime
Sletta af tabasco-sósu
sesamfræ
olía til djúpsteikingar
haus af hvítkáli (skorið í þunna strimla)
UPPSKRIFT
200 g hörpudiskur
Karríolía:
2 msk. karrí
2 msk. vatn
1 dl ólífuolía
Hrært saman og látið standa yfir nótt.
Þá er olíunni fleytt ofan af og sigtað.
Sjóðið 1dl puy-linsubaunir í léttsöltu
vatni.
Grænmeti:
1/2 gul paprika
1/2 rauð paprika
1 stilkur sellerí
1/4 sjalottlaukur
3 stilkar vorlaukur
1/4 púrrulaukur
2 hvítlauksgeirar
Öllu blandað saman á pönnu og
kraumað í nokkrar mínútur í olíu.
Sósa:
1 dl kjötsoð
2 dl rjómi
1 tsk Nomu-krydd (fæst í Lavita)
salt og pipar
Öllu blandað saman, soðið í fimm mín-
útur og þykkt dálítið með maizena-
mjöli. Hörpudiskurinn saltaður, pipraður
og svissaður á heitri rifflaðri pönnu í
tvær mínútur hvorum megin. Hörpu-
diski, karríolíu og linsubaunum blandað
saman við grænmetið. Skreytt með
graslauk.
HÖRPUDISKUR AÐ HÆTTI BERGÞÓRS
Í tilefni af íberískum dögum í Vínbúðum er hið vinsæla vín
Lagunilla Gran Reserva á kynningarverði. Vínið var fyrir
lækkunina eitt ódýrasta Gran Reserva vínið á markaðnum
og verður það því að teljast einstaklega góð kaup á kynn-
ingarverðinu.
Lagunilla Gran Reserva er rauðbrúnt með eikarangan,
rommrúsínum, kaffi og suðusúkkulaði. Vín sem samsvar-
ar sér vel í alla staði og myndi henta sérlega vel með stór-
steikunum hvort heldur sem er lambi eða nauti, villibráð
og villibráðapate.
Kynningarverð á íberískum dögum er 1.590 kr.
LAGUNILLA: Á kynningarverði
FONSECA: Bin 27 portvínið komið aftur
Smákökur, jarðarber og rjómi
HINN HEIMSÞEKKTI HÄAGEN-DAZS ÍS ER NÚ FÁANLEGUR Á ÍSLANDI.
Ísglaðir Íslendingar eru kátir þessa dagana þar sem hinn heims-
frægi Häagen-Dazs ís er nú fáanlegur hérlendis. Ísinn er
upprunninn í Bandaríkjum á þriðja áratug síðustu aldar og
var Häagen-Dazs skráð sem vörumerki í New York árið
1961.
Alþjóðleg dreifing hófst á ísnum 1982 og má segja að sigur-
för hans um heiminn hafi verið óslitin æ síðan.
Ísinn verður seldur hér á landi í hálfs lítra umbúðum og fæst
með fimm bragðtegundum: „Vanilla“, „Strawberries & Cream“,
„Baileys“, „Macadamia Nut Brittle“ og „Cookies & Cream“. Það
er Emmess ís sem flytur Häagen-Dazs ísinn til landsins.
Sparipopp
Óskarsverðlaunin verða afhent að-
faranótt mánudags og eflaust leggja
margir það á sig að vaka eftir þeim.
Venjulegt popp er alls ekki nógu
sparilegt við svo hátíðlegar aðstæður
heldur þarf einstakt popp til að
kvöldið verði eftirminnilegt.
SÚKKULAÐIPOPP
1/2 bolli sykur
1/2 bolli síróp
200 gr. smjör
2 matskeiðar kakó
1/2 teskeið salt
8 bollar poppað popp
Blandið sykri, sírópi, smjöri, kakói og
salti saman í pott og hitið við meðal-
hita þar til blandan sýður. Blandið
poppkorninu
saman við og
hrærið í tvær
mínútur. Kælið
blönduna og
hnoðið kúlur.