Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 34

Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 34
FÆST Í ÖLLUM HELSTU BÓKAVERSLUNUM LANDSINS Gestabók • Myndir • Skeyti VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c • Pósthólf 5137 • 125 Reykjavík Munið lukkuleikinn Mikið af nýjum fermingarvörum ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 2 74 98 2/ 20 05 Ferming Fartölva að verðmæti 150.000 kr. Glæsileg sýning í Sigtúni Kristín Rós Gu nnarsdóttir Vogatungu 2 0 200 Kópavog ur í öllum verslunum Blómavals Hannaði fermingarfötin sjálf María Björk Sverrisdóttir söngkona fermdist á degi verkalýðsins, 1. maí, árið 1977. Hún fermdist í buxnadragt sem hún notaði mikið síðar. „Ég hef varla hugsað um ferming- una síðan á fermingardaginn,“ seg- ir söngkonan María Björk Sverris- dóttir, sem rekur Söngskóla Maríu og Siggu með Siggu Beinteins. „En ég fermdist vegna trúar minnar á Jesú Krist. Því þótt ég stundi ekki kirkjur á sunnudögum bið ég bæn- irnar á hverju kvöldi, vegna þess að mig langar til þess og hef þörf fyr- ir það,“ Fermingardagur Maríu Bjarkar var verkalýðsdagurinn 1. maí 1977. Fermt var frá Dómkirkjunni í Reyk- javík. „Þetta var eftirminnilega skemmtilegur dagur og markaði tímamót. Maður fullorðnaðist við þetta; hætti að vera barn. Ég fór að kaupa mín föt sjálf, vann með skól- anum og sýndi ábyrgð; fannst það stórt skref.“ Fermingarveislan var haldin heima, eins og þá tíðkaðist, og svefnherbergi rýmd til að koma veisluborði og gestum fyrir. „Ég hafði vissulega skoðanir á því hvað yrði á boðstólum en mamma er ráðrík líka. Við vorum með kaffi, tertur og brauðtertur, og mér færðar stereógræjur, skartgrip- ir og skríni, og líka eitthvað af pen- ingum, en ekkert í líkingu við þær upphæðir sem börnin fá í dag.“ María Björk fermdist í buxna- dragt sem hún hannaði sjálf fyrir stóra daginn. „Ég hef alltaf verið ægilegur fatagikkur og gat ekki hugsað mér að vera í eins úlpu eða með eins skólatösku og skólasyst- kinin. Varð alltaf að vera öðruvísi. Svo þegar fermingin nálgaðist teiknaði ég beinar útvíðar buxur og jakka með hettu; en amma mín Jó- hanna Guðjónsdóttir saumaði drag- tina úr svörtu fínflaueli. Þetta voru ansi töff jakkaföt sem ég notaði áfram eftir ferminguna en svo stækkaði ég upp úr öllu valdi og upp úr fötunum,“ segir María Björk, sem sjálf hefur fermt tvö af börnum sínum. „En ég á einn lítinn sem er hálfur gyðingur en líka alinn upp við kristna trú. Ég veit ekki hvort hann fermist. Hann fær að ráða því sjálfur. Ferming verður alltaf ákvörðun einstaklingsins sjálfs.“ thordis@frettabladid.is 4 egg 1 bolli sykur 4 msk. hveiti 1 tsk. lyftiduft 100 g súkkulaði, saxað 100 g marsipan, saxað Egg og sykur þeytt saman. Marsi- panið og súkkulaðið sett saman við hveitið og lyftiduftið og því blandað saman rólega við eggja- hræruna. Bakað í tveimur laus- botna tertumót- um við 175 gráðu hita og kælt. Fylling 1/2 dós ferskjur 1 peli rjómi, þeyttur Ofan á 100 g rjómasúkkulaði brætt og síðan má skreyta með rjóma að vild. Rjóma-sælgætisterta Fr ét ta bl að ið /V ilh el m Fermingardagurinn markaði tímamót, María Björk var komin í fullorðinna manna tölu. María Björk Sverrisdóttir söngkona fermdist vegna einlægrar trúar á Frelsarann og biður enn bænir á hverju kvöldi. 8 ■■■ { FERMINGAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.