Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 43

Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 43
11 SMÁAUGLÝSINGAR Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Bláskóga- byggðar, Þingvallasveit 2004-2016. Aðalskipulagsupp- dráttur ásamt greinargerð, fylgigögnum og athugasemd- um, munu liggja frammi til kynningar á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu og á embætti Skipulagsfull- trúa uppsveita Árnessýslu Dalbraut 12, Laugarvatni frá og með 25. febrúar 2005 til og með 25. mars 2005. Tillagan er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.blaskogabyggd.is Ennfremur verður tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 í Reykjavík og í þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og skulu þær berast skrifstofu Bláskógabyggðar, Félags- heimilinu Aratungu, 801 Selfoss, eigi síðar en föstudag- inn 8. apríl 2005 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan ofangreinds frests, teljast samþykkir henni. Auglýsing um aðalskipulag Bláskógabyggðar, Þingvallasveit 2004-2016 Sveitarstjórn Bláskógabyggðar auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Bláskógabyggðar, Þingvallasveit 2004-2016. Sveinn A. Sæland, oddviti Bláskógabyggðar BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um breytingu á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt- ingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum deiliskipulagi í Reykjavík. Kleifarsel 28 – Seljaskóli. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Kleifarsel 28, lóð Seljaskóla. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggingarreitur breytist lítillega að norðanverðu, færist út um þrjá metra og að vestanverðu við íþróttahús Seljaskóla, verður komið fyrir upplýstum sparkvelli með gerfigrasi með tilheyrandi girðingum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Reitur 1.173.1. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.1 sem afmarkast af Laugavegi, Vitastíg, Grettisgötu og Frakkastíg. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að heimilt verði að byggja á baklóðum húsa við Laugaveg 52, 56 og 58, við nokkur hús á reitunum verður leyfð hækkun og stækkun húsa. Lóðirnar að Grettis- götu 33b og 35b verði sameinaðar og á ónýttri lóð við Grettisgötu 37b verði leyfð nýbygging á tveggja hæða húsi og eins er hægt að nýta lóðina undir aðflutt hús. Við nokkur hús verða leyfðar viðbyggingar og hækkun. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Skeifan – Fenin. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Skeifunni vegna lóðarinnar að Skeifunni 5. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að reka sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti á afmörkuð- um hluta lóðarinnar að Skeifunni 5. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 18. febrúar til og með 4. apríl 2005. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega eða á netfangi skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingar- sviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 4. apríl 2005. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 25. febrúar 2005 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Opið málþing HANDVERKS OG HÖNNUNAR haldið í Norræna Húsinu laugardaginn 26. febrúar 2005 kl. 13–17 Íslensk hönnun og listhandverk – sýningar erlendis Washington – París – Berlín – Kaupmannahöfn Setning Birna Kristjánsdóttir, formaður stjórnar HANDVERKS OG HÖNNUNAR og sýningarstjóri SPOR, Kaupmannahöfn. Dr. Judy L. Larson, forstöðumaður National Museum of Women in the Arts. Sýningarstjóri Nordic Cool: Hot Women Designers, Washington U.S.A. Rósa Helgadóttir, textílhönnuður. Að taka þátt ... væntingar - upplifun - niðurstaða Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, leirlistamaður. Að taka þátt ... væntingar - upplifun - niðurstaða Hlé Erna Björnsdóttir, forstöðumaður upplýsingasviðs Útflutningsráðs. Útrás íslenskrar hönnunar. Guðlaug Halldórsdóttir, textílhönnuður. Að taka þátt ... væntingar - upplifun - niðurstaða Kristveig Halldórsdóttir, myndlistarmaður. Að taka þátt ... væntingar - upplifun - niðurstaða Hildur Bjarnadóttir, myndlistarmaður og sýningarstjóri „Að sýna það sem skiptir máli". Tó - Tó, Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir, myndlistarmenn og textílhönnuðir. Að taka þátt ...væntingar - upplifun - niðurstaða. Kaffihlé Hrafnkell Birgisson, iðnhönnuður og sýningarstjóri design.is, Berlín „Ímynd og arfleifð - sýningar á íslenskri hönnun" Þorbjörg Valdimarsdóttir, textílhönnuður. Að taka þátt ... væntingar - upplifun - niðurstaða Valdís Harrysdóttir, Að taka þátt ... væntingar - upplifun - niðurstaða. Óðinn Bolli Björgvinsson, nemandi í vöruhönnun í LHÍ. Kynning á rannsóknarverkefni. Birna Kristjánsdóttir, formaður stjórnar HANDVERKS OG HÖNNUNAR. Stutt samantekt og málþinginu slitið. Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis en fólk er vinsamlegast beðið að skrá sig í síma 551 7595 eða í tölvupósti handverk@handverkoghonnun.is Dagskrá málþingsins er birt með fyrirvara um breytingar HANDVERK OG HÖNNUN • Aðalstræti 12 • 101 Reykjavík • www.handverkoghonnun.is HANDVERK OG HÖNNUN Verslunarstjóri Fjarskiptafyrirtæki óskar eftir að ráða til sín öfl- ugan verslunarstjóra í nýja verslun fyrirtækisins. Um er að ræða krefjandi starf hjá vaxandi fyrir- tæki sem starfar í mjög skemmtilegu umhverfi. Starfið felst í að halda utan um verslunina, ráðning- ar og standsetningu verslunarinnar sjálfar. Leitað er að kraftmikilli manneskju sem á auðvelt með samskipti og hefur góða þjónustulund. Viðkomandi þarf einnig að vera skipulagður í vinnu- brögðum og hafa reynslu af verslunar/sölustarfi. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. Um fullt starf er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin með því að senda ferilskrá með mynd á thorsteinn@ipf.is Hrunamannahreppur auglýsir tillögu að aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2003-2015 Hreppsnefnd Hrunamannahrepps auglýsir hér með tillögu að nýju aðalskipulagi Hrunamannahrepps 2003-2015 skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. Í tillögunni felst stefna hreppsnefndar um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar í sveitarfélaginu á skipulagstímabilinu. Skipulags- tillagan er sett fram á sveitarfélagsuppdrætti sem sýnir allt land innan marka sveitarfélagsins, þéttbýlisuppdrætti Flúða og í greinargerð. Í tillögunni er m.a. gerð grein fyrir verndarákvæðum vegna náttúrufars og útivistargildis, þróunarmöguleikum byggðar- innar í sveitinni, uppbyggingu frístundahúsa og áframhald- andi uppbyggingu þéttbýlis og þjónustukjarna á Flúðum. Tillagan mun liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofu Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, Flúðum, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til miðvikudagsins 6. apríl 2005, svo að þeir sem óska þess geti kynnt sér tillög- una og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Hrunamannahrepps, http://fludir.is/ Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00, 6. apríl 2005 og skal athugasemdum skilað til skrif- stofu Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, 845 Flúðum. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Sveitarstjóri Hrunamannahrepps, Ísólfur Gylfi Pálmason Leiðrétt Auglýsing Um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vatnsleysustrandarhrepps 1994-2014 Sveitarstjórn Vatnsleysustrandarhrepps auglýsir skv. 1.mgr. 21. gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að verulegri breytingu á aðalskipulagi Vatns- leysustrandarhrepps 1994-2014. Breytingin felur í sér íbúðarbyggð á áður óbyggðu svæði við Leirdal og nýja íbúðargötu, Lyngdal í Vog- um. Tillagan verður til sýnis frá föstudeginum 18. febr- úar til og með 18. mars 2005 Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breyt- ingartillöguna frestur til að skila inn athugasemdum er til 4. april 2005. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir innan tilgreinds frests telst samþykkur henni. Herbergi í Hafnarfirði Fyrirtæki í Hafnarfirði óskar eftir herbergi í bænum fyrir starfsmann sinn. Leigutími frá 1. mars 2005. Um reglusaman og reyklausan starfsmann er að ræða. Upplýsingar í síma 8940414. ATVINNA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.