Fréttablaðið - 25.02.2005, Qupperneq 44
Margt býr í þokunni... og meðal annars þessi föngulegi piltur sem kemur fljúgandi eftir göngustíg í Laugardalnum.
SJÓNARHORN
Í ítölskum garði að hlusta á Sting
Kirstín Erna Blöndal söngkona á ekki í erfiðleikum með að skipuleggja drauma-
helgina sína. „Draumurinn væri að fara til Ítalíu í einhvern lítinn kastala rétt hjá
húsinu hans Sting. Ég á DVD disk af tónleikum sem hann hélt í garðinum við
húsið sitt á Ítalíu með fullt af frábærum listamönnum með sér hvaðanæva að
úr heiminum. Ég hefði viljað vera þar. Á disknum er fylgst með undirbúningi
tónleikanna sem voru haldnir 12. september 2001 en eins og gefur að skilja
urðu þeir öðruvísi en ætlað var vegna þess sem gerðist daginn áður. Ég myndi
vera þarna í kastalanum mínum, umkringd fjölskyldu og vinum og góðu rauðv-
íni. Seinnipart laugardags myndum við kíkja í heimsókn yfir til Sting og hann
myndi endurflytja þessa tónleika fyrir okkur.“ En myndi söngkonan slá sér í
þennan hóp alþjóðlegra tónlistarmanna? „ Ó nei, ég myndi sko ekki vilja vera
að syngja heldur bara halla mér aftur og njóta tónlistarinnar.“
Kirstín Erna stendur fyrir bænatónleikunum Sorgin og lífið í Laugarneskirkju 3.
mars kl. 20. „Með verða presturinn í Laugarneskirkju, Bjarni Karlsson, og Bragi
Skúlason sjúkrahúsprestur og svo er ég líka með frábæra listamenn með mér,
Gunnar Gunnarsson píanóleikara, Jón Rafnsson bassaleikara og svo auðvitað
Örn Arnarson, manninn minn, sem ég væri mikið til í að hafa með mér þessa
helgi á Ítalíu.“
Kirstín Erna vildi eyða draumahelginni í litlum kastala á Ítalíu.
DRAUMAHELGIN
25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR 12
Vissir þú ...
… að stærsti borgarísjaki sem
mældur hefur verið var 31 þúsund
ferkílómetrar og fannst hann 240
kílómetra vestan við Scott-eyju í
Suðurhafi 12. nóvember árið
1956?
… að stærsta músagot átti sér
stað 12. febrúar árið 1982 en þá
gaut mús í Bretlandi 34 músum
en 33 lifðu?
… að sá yngst krýndi af ríkjandi
konungum er Mswati III í
Svasílandi en hann var krýndur 25.
apríl árið 1986 aðeins átján ára og
sex daga?
… að verðmætasta kviksjá í heimi
seldist hjá Christie’s í Bretlandi í
nóvember árið 1999 fyrir rúmar
5,6 milljónir íslenskra króna?
… að fyrsta mótorhjólið var smíð-
að af Gottlieb Daimler í október
og nóvember árið 1885?
… að stjörnufræðingar hafa að-
gang að samfelldum athugunum á
sólblettum frá árinu 1750 og til
þessa dags?
… að 106,45 farsímar voru á
hverja hundrað íbúa á Taívan árið
2002 samkvæmt tölfræði
NationMaster.com?
… að elstu málverk sem vitað er
um með vissu fundust á veggjum
Chauvet-hellis í Suður-Frakklandi
árið 1994 en talið er að málverkin
séu á bilinu 23 til 32 þúsund ára
gömul?
… að gataðasti maður heims er
Luis Antonio Agüero á Kúbu sem
hefur látið gata sig fyrir hringi á
230 stöðum á líkamanum?
… að leikkonan Drew Barrymore
varð sjöundi meðlimur sinnar fjöl-
skyldu sem hlaut þann heiður að
fá nafn sitt og stjörnu skráð á
Frægðartröð í Hollywood 4. febrú-
ar árið 2004?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Chelsea•Barcelona
8. mars í LONDON!
Þú gætir unnið:
• Ferð fyrir 2 á Chelsea-Barcelona*
• PlayStation2 tölvur
• CHAMPIONS LEAGUE 2004-2005
(Farðu á leikinn eða spilaðu hann heima í stofu)
• Fullt af DVD myndum o.m.fl.
Snilldarkort SPRON
býður vinningshafa
á völlinn!
Þú getur fengið þér snilldarkort
SPRON á www.snilld.is
ALLIR
GETA
TEKIÐ
ÞÁTT
!Snilld.is
ý
Chelsea-Barce
lona 8. mars á
Stamford
Sendu SMS sk
eytið JA CBF á
númerið 1900
og þú gætir u
nnið.
Við sendum þé
r spurningu. Þ
ú svarar með
því að senda
SMS skeytið J
A A, B eða C á
númerið 1900
. 9
9
kr
./s
ke
yt
ið
.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M