Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 48
24 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Gunnar Svavarsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, hafði í mörgu að snúast í
gær, enda var þá birt ársuppgjör
fyrirtækisins. SH er 63 ára í dag,
en starfsemin hefur tekið
nokkrum breytingum frá því sem
var í upphafi. Á síðustu árum
hefur fyrirtækið haslað sér völl í
ferskum og kældum sjávarafurð-
um, í stað frystra áður.
„Meginbreytingin sem orðið
hefur á fyrirtækinu er að ekki er
lengur um að ræða sölusamtök í
eigu framleiðenda með sölu-
skyldu á afurðum þeirra, heldur
erum við samsafn sjálfstæðra er-
lendra fyrirtækja sem starfa
hvert á sínum forsendum á sínum
markaði og kaupa frá Íslandi eins
og öðrum löndum,“ segir Gunnar.
Árið 1996 var félaginu breytt í
hlutafélag sem tveimur árum
síðar var skráð á hlutabréfa-
markað. Fyrri eigendur seldu
smám saman hluti sína og nýir
eigendur komu að félaginu.
„Önnur meginbreytingin er að
fyrirtækið, sem eins og nafnið
gefur til kynna höndlaði með
frystar vörur, hefur frá 2002
tekið stefnuna út á kælda mark-
aðinn,“ segir Gunnar og bætir við
að sú starfsemi hafi tekið veru-
legan kipp um mitt síðasta ár.
Hann bendir á að af framleiðslu
fyrirtækisins í Bretlandi, sem sé
stærsta einstaka markaðssvæðið,
séu ekki nema um 27 prósent
framleiðslunnar fryst. „Í þriðja
lagi höfum við tekið þá stefnu að
víkka afurðasviðið. Núna eru
rækja og skelfiskur orðin veru-
legur hluti af veltunni.“
Í uppgjöri sem birt var í gær
kemur fram að reksturinn hefur
batnað milli ára. Arðsemi af eigin
fé fyrirtækisins var 19 prósent
saman borið við 13 prósent árið
áður. Rekstrartekjur ársins 2004
voru 70,1 milljarður króna, rúm-
um ellefu milljörðum meiri en
árið áður, en hagnaðurinn jókst
þó ekki um nema 209 milljónir
milli ára, var 709 milljónir í fyrra
en 500 milljónir árið áður.
Gunnar segir stefnt á aukinn
vöxt, en segir fara eftir hverjum
markaði fyrir sig í hverju sá
vöxtur geti falist. „Á síðasta ári
var vöxturinn í kældum vörum í
Bretlandi. Sá markaður er þró-
aður og tilbúinn fyrir slíkar vör-
ur. Á öðrum mörkuðum getur það
gengið hægar þannig að aukn-
ingin verður sambland af fryst-
um og kældum eftir hendinni,
auk breiðara vöruvals.“
Þremur árum eftir stofnun
Sölumiðstöðvarinnar árið 1942
var fyrsta söluskrifstofan
stofnuð á erlendri grund, en það
var í New York í Bandaríkjunum.
Vestan hafs þróaðist svo starf-
semin stig af stigi yfir í fram-
leiðslu og sölu á fiskafurðum.
Árið 1955 hófst svo starfsemi í
Bretlandi með kaupum á keðju
fisksteikingabúða. Nokkru síðar
hófst svo verksmiðjuframleiðsla
í smásölupakkningar þar. Fyrir-
tækið hefur starfað í Þýskalandi
frá árinu 1981 og í Frakklandi frá
árinu 1989.
Í Japan hefur fyrirtækið svo
starfað síðan 1990. Í dag eru
í samstæðunni fjórtán félög í
ellefu löndum og starfsmennirnir
ríflega 2.300 talsins. Í útlöndum
er samstæðan nefnd Icelandic
Group en starfsemin er bæði á
smásölumarkaði og markaði fyrir
veitingahús, mötuneyti og stofn-
anir.
GEORGE HARRISON (1943-2001)
fæddist þennan dag.
Stefna á aukinn vöxt
TÍMAMÓT: SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA 63 ÁRA
„Það eina góða við Kryddpíurnar [Spice
Girls] er að hægt er að horfa á þær með al-
veg dregið niður í hljóðinu.“
Harrison sagðist í seinni tíð ekki upplifa sjálfan sig sem „bítilinn
George Harrison“. Eftir að Bítlarnir hættu árið 1970 hélt Harrison
áfram að búa til tónlist, bæði einn og með öðrum. Þá gerðist hann
einnig kvikmyndaframleiðandi, stofnaði Handmade Films og
fjármagnaði meðal annars Monty Python myndina Life of Brian.
Harrison, sem var fyrrum reykingamaður, barðist í rúman áratug við
lungnakrabba og lést svo 58 ára gamall.
timamot@frettabladid.is
Þennan dag árið 1848 kom Kommúnistaávarpið fyrst
út á prenti, en það var sent til London til prentunar
nokkrum vikum áður en febrúarbyltingin braust út í
Frakklandi. Áhrifa ritsins var þó þegar farið að gæta
enda hafði það fengið nokkra dreifingu í handriti.
Í nóvember 1847 var ákveðið að Karl Marx og Friedrich
Engels tækju að sér að „semja til birtingar fyrir öllum
almenningi flokksyfirlýsingu“ sem gerði grein fyrir skoð-
unum og stefnuskrá Kommúnistasambandsins, en það
var leynilegt alþjóðasamband verkamanna á þeim
tíma.
Ávarpið var til að byrja með gefið út á þýsku í 12 mis-
munandi útgáfum í Þýskalandi, Englandi og Ameríku.
Það kom svo út á frönsku rétt fyrir júníuppreisnina
1848 og árið 1850 í enskri þýðingu eftir Helen MacFar-
lane í tímaritinu Red Republican. Árið 1871 komu út
þrjár þýðingar í Ameríku. Hér á landi kom Kommúni-
staávarpið fyrst út árið 1924.
Í útgáfu Kommúnistaávarpsins sem út kom í London
árið 1883 eftir fráfall Marx skrifar
Engels formála og áréttar grund-
vallaratriði ávarpsins. „Að efnisleg
framleiðsla hvers tímabils og
stéttaskiptingin, sem upp af henni
hlýtur að spretta, séu undirstaða
stjórnarskipulagsins og andlega
lífsins.“ Hann segir Marx einan
hafa leitt þennan sannleika í ljós
og stéttabaráttuna komna á það
stig „að undirokaða stéttin (ör-
eigalýðurinn) geti ekki losað sig
undan oki yfirstéttarinnar (borgar-
astéttarinnar) án þess að losa allt
mannkynið úr læðingi kúgunar-
innar og stéttabaráttunnar“. Eftir
fráfall Marx sagði Engels útilokað
að gera frekari breytingar eða við-
bætur við Kommúnistaávarpið.
24. FEBRÚAR 1848
„Ein Gespenst geht
um in Europa –
das Gespenst des
Kommunismus,“
eru upphafsorð
fyrstu útgáfu
Kommúnista-
ávarpsins.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1545 Skotar sigra her Englendinga
við Ancrum-heiði.
1570 Píus V páfi bannfærir Elísabetu
I Englandsdrottningu.
1917 Febrúarbylting braust út í
Rússlandi þegar hermenn
beindu vopnunum að yfirboð-
urum sínum eftir að hafa verið
skipað að skjóta á hóp mót-
mælenda sem krafðist þess að
geta brauðfætt fjölskyldur sín-
ar.
1956 Nikíta Krútsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, heldur í Moskvu
afhjúpunarræðu um Stalín við
upphaf þings kommúnista-
flokksins. Ræðan er talin
marka upphaf fráhvarfs frá
Stalínisma í Sovétríkjunum.
1966 Bandaríska söngkonan Ella
Fitzgerald heldur tónleika í
Reykjavík.
1975 Ragnhildur Helgadóttir kosin
forseti Norðurlandaráðs, fyrst
kvenna.
Kommúnistaávarpið kom út á prenti
Systir okkar,
Ásdís Guðbjartsdóttir
lést 23. febrúar í Lindsay, Ontario í Kanada. Ásdís verður jarð-
sungin laugardaginn 26. febrúar kl. 11.00 í Lindsay.
Magnús Guðmundsson Kristín Guðbjartsdóttir
Kristján Guðbjartsson Bryndís Guðbjartsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi, bróðir
og tengdasonur,
Bjarni Sveinsson
lést af slysförum fimmtudaginn 17. febrúar. Hann verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn 28. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjálparsveit skáta í Garða-
bæ. Fyrir hönd ástvina:
Sigrún Hjaltalín, Lena Björk Bjarnadóttir, Eva Dögg Long Bjarnadóttir,
Bjarni Snær Bjarnason, Inga Rún Bjarnadóttir, Viktor Orri Long Vals-
son, Stefán Sveinsson & Hrafnhildur Sigurðardóttir, Gerður Ragna
Sveinsdóttir og Guðrún María Óskarsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Bjarnason
stýrimaður, Hraunbæ 40, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, föstudaginn
25. febrúar, kl. 15.
Halldór Ómar Sigurðsson, Laufey Guðrún Sigurðardóttir, Atli Sigurðs-
son, Berglind Sigurðardóttir, Hafrún Sigurðardóttir, Einar Björn Þóris-
son, barnabörn og barnabarnabörn.
Skrifstofa Sameinaða lífeyrissjóðsins
verður lokuð í dag,
föstudaginn 25. febrúar frá kl. 14.00,
vegna jarðarfarar Friðriks Andréssonar,
múrarameistara.
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
10-40% afsláttur
af legsteinum út febrúar
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
ANDLÁT
Ingvar Björnsson, frá Gafli, lést mið-
vikudaginn 9. febrúar. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Ólafía Laufey Guðmundsdóttir, Tjarn-
argötu 12, Sandgerði, lést þriðjudaginn
15. febrúar. Úförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Siggeir Geirsson, frá Sléttabóli, dvalar-
heimilinu Klausturhólum, lést föstudag-
inn 18. febrúar.
Elín Haraldsdóttir, Spóahólum 14, Rey-
kjavík, lést laugardaginn 19. febrúar.
JARÐARFARIR
13.00 Ása Lilja Arnórsdóttir, Elliheimil-
inu Grund, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík.
13.00 Gunnhildur Eiríksdóttir, Hrafn-
istu, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju.
13.00 Jóhann V. Sigurjónsson, Álftahól-
um 2, Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
3.00 Óskar Þór Gunnlaugsson,
Bræðraborgarstíg 49, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu í Reykja-
vík.
13.00 Sveinborg Jónsdóttir, frá Núpi,
Selfossi, verður jarðsungin frá Sel-
fosskirkju.
14.00 Hafdís Lára Kjartansdóttir, Mel-
ási 10, Garðabæ, verður jarðsung-
in frá Keflavíkurkirkju.
14.00 Þórey Ólöf Halldórsdóttir, Skála-
teigi 1, Akureyri, verður jarðsung-
in frá Glerárkirkju.
14.00 Valgerður Pálsdóttir, Kálfafelli,
verður jarðsett á Kálfafelli.
15.00 Friðrik Andrésson, múrarameist-
ari, Kirkjusandi 1, Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju.
15.00 Guðjón G. Guðjónsson, Laugar-
nesvegi 89, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í Reyk-
javík.
15.00 Sigurður Bjarnason, stýrimaður,
Hraunbæ 40, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reyk-
javík.
AFMÆLI
Þorsteinn Eggertsson
tónlistarmaður (Steini
spil) er 63 ára í dag.
Sigurður B. Stefánsson
bankamaður er 58 ára í
dag.
Jón Ólafsson tónlistar-
maður er 42 ára í dag.
Guðrún Vilmundardótt-
ir leikhúsfræðingur er
31 árs í dag.
Nína Dögg Filippus-
dóttir leikkona er 31 árs
í dag.
GUNNAR SVAVARSSON Forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna segir stefnt á auk-
inn vöxt fyrirtækisins þar sem nýta eigi ólíka möguleika á fjölmörgum markaðssvæðum
fyrirtækjasamstæðunnar.