Fréttablaðið - 25.02.2005, Page 50
26 25. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Við hrósum...
... leikmönnum Skallagríms fyrir að hleypa spennu í Intersportdeildina í körfubolta með því að vinna glæsilegan sigur á Keflvíkingum sem gátu tryggt sér
deildarmeistaratitilinn með sigri í Borgarnesi í gær. Þar sem Snæfell lagði síðan Fjölni að velli eru þeir farnir að anda ofan í hálsmál Keflvíkinga og ljóst að hart
verður barist um deildarmeistaratitilinn í síðustu umferðunum.
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Föstudagur
FEBRÚAR
KÖRFUBOLTI Hefði Keflavík sigrað í
Borgarnesi þá hefðu þeir lyft
deildarmeistaratitilinum en það
er núna ljóst að þeir lyfta honum
ekki alveg strax.
Á sama tíma og Keflavík tapaði
í Borgarnesi þá vann Snæfell
góðan sigur á spútnikliði Fjölnis í
Stykkishólmi en allur vindur
virðist farinn úr leikmönnum
Fjölnis sem hafa tapað hverjum
leiknum á fætur öðrum.
KR lagði ÍR
Það var alvöru Reykja-
víkurslagur í DHL-höllinni í gær
þar sem KR tók á móti ÍR en
heimamenn máttu mjög illa við
því að tapa leiknum.
Þeir áttu hreint út sagt
frábæran fjórða leikhluta þar sem
þeir skoruðu meðal annars
sautján stig í röð en sá kafli lagði
grunninn að góðum sigri KR-inga.
Cameron Echols átti stórleik
fyrir KR í gær, skoraði 39 stig og
tók tíu fráköst. Hann var ánægður
í leikslok.
„Við ákváðum að taka okkur
saman í andlitinu og hlutirnir fóru
loksins að ganga almennilega í
fjórða leikhluta hjá okkur,“ sagði
Echols sem vildi ekki gera of
mikið úr eigin frammistöðu í
leiknum.
„Vissulega fann ég mig vel en
ég hefði aldrei gert neitt án
góðrar hjálpar frá félögum
mínum,“ sagði Echols en hann
hrósaði einnig nýja útlendingnum
í KR-liðinu, Aaron Harper.
„Það er ekki spurning að það
hefur mikið að segja fyrir mig
að hafa annan svona sterkan
leikmann í liðinu. Hann dregur til
sín varnarmenn og fyrir vikið
losnar um mig og mér tókst að
nýta það í kvöld.“
Echols hefur trú á því að
KR-liðið geti gert usla í
úrslitakeppninni.
„Ef við leikum í
úrslitakeppninni eins og við
gerðum í fjórða leikhluta hér í
kvöld þá getum við farið ansi
langt og jafnvel í undanúrslit en
það er stefnan hjá okkur,“ sagði
Bandaríkjamaðurinn Cameron
Echols kátur og sæll í DHL-
höllinni í gær en hann var
langbesti leikmaður vallarins og
ÍR-ingar réðu ekkert við hann.
ECHOLS HEITUR KR-ingurinn Cameron Echols átti frábæran leik fyrir KR gegn ÍR í gær.
Kappinn skoraði 39 stig og tók 10 fráköst.
Snæfell fékk
óvænta hjálp
Snæfell á enn möguleika á að „stela“ deildarmeist-
aratitlinum af Keflavík eftir að nágrannar þeirra
veittu þeim aðstoð og sigruðu Keflavík.
■ ■ LEIKIR
19.15 Grindavík og KFÍ mætast í
Grindavík í Intersportdeildinni í
körfuknattleik.
■ ■ SJÓNVARP
17.45 Olíssport á Sýn.
18.00 Upphitun á Skjá einum.
19.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.30 Motorworld á Sýn.
20.00 UEFA Champions League á
Sýn.
20.30 World’s Strongest Man
2004 á Sýn.
21.30 World Supercross á Sýn.
MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS
16 síðna sérblað um hönnun
Spennandi viðtöl og greinar
sem þú vilt ekki missa af
Birta e
r komi
n í hús
!
Áhaldafimleikar:
Þorramót í
Hafnarfirði
FIMLEIKAR Þorramót Fimleika-
sambands Íslands fer fram í dag í
Íþróttamiðstöðinni Björk í Hafn-
arfirði. Mótið hefst kl. 18.30 og er
áætlað að því ljúki um kl. 20.20.
Keppt er í frjálsum æfingum
karla og kvenna, bæði í meist-
araflokkum og unglingaflokkum
auk þess sem keppt er í fjölþraut
og veitt verðlaun fyrir saman-
lagðan árangur á áhöldum. ■
Intersportdeildin í körfu
KR–ÍR 108–88
Stig KR: Cameron Echols 39, Jón Ó. Jónsson 17,
Aaron Harper 14, Brynjar Þ. Björnsson 14, Lárus
Jónsson 8, Steinar Kaldal 7, Hjalti Kristinsson 7,
Níels Dungal 2..
Stig ÍR: Grant Davis 24, Theo Dixon 22, Ólafur J.
Sigurðsson 12, Eiríkur Önundarson 12, Fannar
Helgason 9, Ómar Sævarsson 6, Gunnlaugur
Erlendsson 2, Ólafur Þórisson 1..
HAMAR/SELFOSS–HAUKAR 85–91
Stig Hamars/Selfoss: Chris Woods 21, Marvin
Valdimarsson 20, Damon Bailey 19, Svavar Páll
Pálsson 10, Ragnar Gylfason 7, Hallgrímur
Brynjólfsson 7, Friðrik Hreinsson 3.
Stig Hauka: Mike Manciel 32, Demetric Shaw 23,
Kristinn Jónasson 14, Sævar Haraldsson 10,
Mirko Virijevic 6, Ottó Þórsson 3, Sigurður
Einarsson 2, Gunnar Sandholt 1.
NJARÐVÍK–TINDASTÓLL 87–75
Stig Njarðvíkur: Friðrik Stefánsson 16, Anthony
Lackey 15, Páll Kristinsson 15, Brenton
Birmingham 10, Ólafur Ingvason 10, Matt
Sayman 8, Egill Jónasson 5, Halldór Karlsson 4,
Guðmundur Jónsson 4.
Stig Tindastóls: Brian Thompson 21, Svavar
Birgisson 17, Ísak Einarsson 14, Arnar Ingvarsson
12, Bethuel Fletcher 9, Kristinn Friðriksson 2.
SNÆFELL–FJÖLNIR 95–84
Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson 26, Michael
Ames 19, Hlynur Bæringsson 12, Pálmi
Sigurgeirsson 11, Calvin Clemmons 9, Magni
Haftseinsson 8, Helgi Guðmundsson 7.
Stig Fjölnis: Jeb Ivey 23, Nemanja Sovic 23,
William Coley 22, Magnús Pálsson 9, Brynjar
Kristófersson 2, Helgi Þorláksson 2, Hjálti
Vilhjálmsson 1.
SKALLAGRÍMUR–KEFLAVÍK 87–83
STAÐAN
KEFLAVÍK 20 16 4 1845–1590 32
SNÆFELL 20 15 5 1745–1606 30
NJARÐVÍK 20 14 6 1785–1580 28
FJÖLNIR 20 12 8 1842–1826 24
SKALLAGR. 20 11 9 1752–1696 22
ÍR 20 11 9 1813–1802 22
KR 20 10 10 1838–1772 20
HAUKAR 20 8 12 1754–1746 16
GRINDAVÍK 19 8 11 1735–1804 16
HAM./SELF. 20 7 13 1785–1874 14
TINDAST. 20 5 15 1701–1895 10
KFÍ 19 2 17 1612–2008 4
Evrópukeppni félagsliða:
DNEPR–PARTIZAN BELGRAD 0–1
0–1 Djordevic (87.).
Partizan vann samanlagt, 2–3.
SCHALKE–DONETSK 0–1
0–1 Aghahowa (22.).
Donetsk vann samanlagt, 1–2.
ALKMAAR–AACHEN 2–1
0–1 Meijer (32.), 1–1 Galen (62.), 2–1 Mathijsen
(80.).
Alkmaar vann samanlagt, 2–1.
STEAUA BÚKAREST–VALENCIA 2–0
1–0 Cristea (49.), 2–0 Cristea (70.)
Steaua vann samanlagt, 6–5, eftir vítakeppni.
SOCHAUX–OLYMPIAKOS 0–1
0–1 Stoltidis (67.).
Olympiakos vann samanlagt, 0–2.
AUSTRIA VÍN–ATH.BILBAO 0–0
NEWCASTLE–HEERENVEEN 2–1
1–0 Breuer, sjm (10.), Shearer (25.), 2–1
Bruggink, víti (60.)
Newcastle vann samanlagt, 4–2.
FEYENOORD–SPORTING LISSABON 1–2
0–1 Liedson (62.), 0–2 Rochemback (83.) 1–2
Hofs (89.).
Sporting vann samanlagt, 2–4.
AUXERRE–AJAX 3–1
1–0 Kalou (31.)m 1–1 Babel (37.), 2–1 Cheyrou
(55.), 3–1 Mathis (86.).
Auxerre vann samanlagt, 3–2.
REAL ZARAGOZA–FENERBACHE 2–1
1–0 Galletti (11.), 2–0 Savio (71.), 2–1 Sousa
(87.)
Zaragoza vann samanlagt, 3–1.
MIDDLESBROUGH–GRAZER 2–1
0–1 Bazina (9.), 1–1 Morrison (19.), 2–1
Hasselbaink (61.).
Middlesbrough vann samanlagt, 4–3.
LILLE–BASEL 2–0
1–0 Moussilou (37.), 2–0 Acimovic, víti (78.).
Lille vann samanlagt, 2–0.
Norðurlandamót félagsliða:
A-RIÐILL
DJURGAARDEN–ROSENBORG 0–1
0–1 Stensaas (70.).
VÅLERENGA–ESBJERG 1–1
0–1 Berglund (68.), 1–1 Hulsker (82.).
STAÐAN
VÅLERENGA 6 5 1 0 10–4 16
ROSENBORG 6 3 1 2 10–9 10
ESBJERG 6 2 1 3 6–5 7
DJURGARD. 6 0 1 5 5–13 1
B-RIÐILL
FC KAUPMANNAHÖFN–GAUTABORG 1–0
1–0 Bergvold (56.).
TROMSØ–BRØNDBY 2–4
0–1 Elmander (9.), 1–1 Yndestad (15.), 1–2
Kahlenberg (17.), 1–3 Kamper (18.), 1–4
Kahlenberg (25.), 2–4 Essediri (64.).
STAÐAN
FCK 6 3 3 0 7–3 12
GAUTAB. 6 3 1 2 6–3 10
BRØNDBY 6 2 1 3 8–11 7
TROMSØ 6 0 3 3 7–11 3
C-RIÐILL
HALMSTAD–BRANN 0–0
OB–MALMØ 1–2
0–1 Skoog (5.), 0–2 Rosenberg (75.), 1–2 Borre
(88.).
STAÐAN
MALMØ 6 4 0 2 9–8 12
BRANN 6 3 1 2 8–6 10
HALMSTAD 6 2 2 2 7–6 8
OB 6 1 1 4 7–11 4
LEIKIR GÆRDAGSINS