Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 64

Fréttablaðið - 25.02.2005, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Alltaf jafnsmart Einmitt þegar maður hélt aðbreska krúnuslektið hefði lært eitthvað af lífinu með því að leyfa krónprinsinum að giftast elskunni sinni, þarf sú gamla að gera enn eina gloríuna. Hún ætlar ekki að mæta í brúðkaup tilvonandi konungs Breta. Smart. EF ÉG MAN RÉTT kenndi breska þjóðin hennar hátign um allar ófarir Díönu prinsessu. Sú gamla væri allt- of gamaldags, fastheldin og ósveigj- anleg og hefði enga hæfileika til þess að lifa í heimi sem er stöðugt að breytast. Á endanum varð hún að dröslast í sjónvarpsútsendingu, þar sem hún sat með sitt klassíska munnviksharðlífi og reyndi að segja eitthvað ekki ljótt um nýlátna móður barnabarnanna sinna. Allir önduðu léttar og héldu nú kannski að áfallið hefði nægt til að hrista hana að ein- hverju leyti inn í nútímann. EN, ÓEKKI Breska drottningin situr á svo gömlum stól að hún er yfir það hafin að ansa nútímanum. Breska þjóðin eyðir svo miklum peningum í hana að hún er yfir það hafin að gera nokkrar málamiðlanir. Dinglast bara ósnertanleg á milli allra sinna köldu kastala og lætur sér fátt um finnast hver elskar, hver lifir, hver deyr. Eins og hún má vera þakklát fyrir að ein- hver skuli vilja vakna með höfuð krónprinsins á koddanum við hliðina á sér á hverjum morgni. AUMINGJA KARL Varð að byrja á því að kvænast konu sem hann elskaði ekki þótt hún væri ung og sæt, vegna þess að hann hafði þeim skyldum að gegna að geta syni. Sem hann og gerði. Búinn að því og ætlar nú að láta drauma sína rætast, rétt áður en hann verður löggilt gamal- menni; kvænast sinni Camillu – sem við Íslendingar getum verið mjög ánægðir með vegna þess að við eigum kópíu af henni þar sem okkar eigin Þórhildur Þorleifsdóttir fer, svo við höfum staðgengil fyrir Camillu ef dagskráin hjá henni verður of hektísk og hún þarf til dæmis að mæta á tveimur stöðum í einu. Nóg er til af gulum og bleikum drögtum og höttum í þessari leiðinlegu fjölskyldu. ÞAÐ ER VIRKILEGA SMART af móður að neita að mæta í brúðkaup sonar. Eiginlega ótrúlega kúl að neita að verða vitni að hamingju. Hamingj- an er svo greinilega persónuleg móðgun við hennar háæruverðugheit. Segir allt um persónuna, ekki satt? SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR BAKÞANKAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.