Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 1
Gaf skólanum fallegustu
jöfnu stær›fræ›innar
MH-DÚX:
▲
FÓLK 38
ÓVENJULEG SKILNAÐARGJÖF
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
EINKAVÆÐING Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra kveðst aldrei
hafa hótað stjórnarslitum vegna
deilna um eignarhald á Vátrygg-
ingafélagi Íslands.
S-hópurinn svonefndi átti helm-
inginn í VÍS á móti Landsbankanum
en keypti hlut bankans í fyllingu
tímans. S-hópurinn og VÍS urðu síð-
ar annar af tveimur bjóðendum í
hlut ríkisins í Búnaðarbankanum.
Halldór kveðst aldrei hafa átt
fund með Davíð Oddssyni, núver-
andi utanríkisráðherra, um VÍS-
átökin. „Ég minnist þess aldrei að
við Davíð höfum talað um þetta
mál.“
Halldór segir í viðtali við
Fréttablaðið í dag að Jóhannes
Geir Sigurgeirsson hafi óskað
eftir fundi með sér fyrir hönd
Kaldbaks og S-hópsins um hugsan-
leg tilboð í hlut ríkisins í bönkun-
um. Sá fundur hafi aldrei verið
haldinn en hann hafi rætt við full-
trúa fjárfestanna í síma. „Ég sagði
þeim einfaldlega að þeir stjórnuðu
sínum eigin málum og ef að þeir
vildu verða vissari um að að báðir
aðilar kæmust að málinu væri lík-
legasta leiðin til þess að þeir stæðu
sameiginlega að því og bæðu sam-
eiginlega um samninga um málið.
Þeir komu sér ekki saman og ég
hafði ekkert um það að segja. Það
var þeirra mál.“ Sjá síðu 17
Forsætisráðherra um einkavæðingu bankanna:
Ræddi ekki átök um VÍS og hóta›i engu
Fréttablaðið
skorar og skorar!
Íslendingar 18-49 ára
26%
39%
Lestur íþróttasíðna
*Lestur á íþróttasíður blaðanna á fimmtudögum.
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
*
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM Yfirleitt
hægur vindur og milt. Hætt við stöku
síðdegisskúrum, einkum austan til. Hiti 7-16
stig, hlýjast vestanlands.
VEÐUR 4
MIÐVIKUDAGUR
1. júní 2005 - 146. tölublað – 5. árgangur
Nýtt v
iðski
ptabl
að
með Frét
tablaðinu
alla miðvikudaga
Sögurnar • Tölurnar • Fólkið
Auglýsingasími 550 5000
Borðar fisk af færibandi
Þórólfur Árnason tekur við starfi
forstjóra Icelandic Group. Hann
segist vera kominn á kunnug-
legar slóðir enda
hefur hann haft
talsverð afskipti
af sjávarfangi í
gegnum tíðina.
TÍMAMÓT 24
Fór vikugömul í
fyrstu útileguna
ÞÓRHILDUR MARTEINSDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● börn ● nám
▲
FUNDAÐ Í RÁÐHERRABÚSTAÐNUM Dr. A.P.J. Abdul Kamal og Halldór Ásgrímsson funduðu í ráðherrabústaðnum í gærmorgun. Meðal
þess sem rætt var um var fríverslun á milli Íslands og Indlands og samstarf vísindamanna ríkjanna tveggja. Opinberri heimsókn Indlands-
forseta lýkur í dag. Sjá síðu 14.
Orkuveitan byggir
600 sumarbústa›i
Orkuveita Reykjavíkur ætlar a› vera me› í félagi um byggingu allt a› sex
hundru› sumarbústa›a í landi Úlfljótsvatns ásamt Íslandsbanka. Hlutafé ver›-
ur allt a› flrjú hundru› milljónir. Framkvæmdir gætu hafist á árinu 2007.
FRÍSTUNDABYGGÐ „Orkuveitan á frá-
bær lönd við ÚIfljótsvatn, í
Hvammsvík og á Nesjavöllum og
það er vilji til að nýta þau,“ sagði
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor-
maður Orkuveitu Reykjavíkur, en
í dag mun stjórn Orkuveitunnar
taka ákvörðun um hvort Orkuveit-
an verði með í félagi um byggingu
allt að 600 sumarbústaða í landi
Úlfljótsvatns í Grímsnes- og
Grafningshreppi.
Nýtt félag í eigu Orkuveitu
Reykjavíkur og Klasa, sem er
dótturfélag Íslandsbanka, hyggst
reisa að minnsta kosti sex hund-
ruð sumarbústaði í nýrri frí-
stundabyggð ef tillaga um það
verður samþykkt á stjórnarfundi í
dag. Lagt verður til að stofnað
verði nýtt hlutafélag um rekstur-
inn, Úlfljótsvatn frístundabyggð.
Félagið verður til helminga í eigu
Orkuveitunnar og Klasa.
Hvor eigendanna mun leggja
fram allt að 150 milljónir króna í
hlutafé til hins nýja félags. Fram-
lag Orkuveitunnar verður í formi
landsvæðis en Klasi leggur fram
reiðufé.
Samkvæmt hluthafasamningi
sem gerður hefur verið leggur
Orkuveitan fram jörðina Úlfljóts-
vatn, sem er tæplega 1.500 hekt-
arar og er að verðmæti 150 millj-
ónir króna. Klasi greiðir annars
vegar 50 milljónir króna í formi
hlutafjár og með kaupum á hluta-
fé af Orkuveitunni fyrir sömu
upphæð.
Markmið félagsins er að ann-
ast mögulega byggingu og sölu
sumarhúsa og þjónusta frístunda-
byggðina. Gert er ráð fyrir að
hver lóð verði að lágmarki hálfur
hektari og er gert ráð fyrir byggð
að minnsta kosti 600 húsa, og
fleiri ef mögulegt er. Miðað er við
að undirbúningstími byggðarinn-
ar hefjist strax og vari til ársloka
2006 en gert er ráð fyrir að bygg-
ingaframkvæmdir geti hafist á
árinu 2007.
„Ég og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson fórum til Bandaríkj-
anna til að skoða frístundabyggðir
og eftir þá ferð var auglýst eftir
samstarfsaðila,“ sagði Alfreð Þor-
steinsson.
Meðal manna í varastjórn
Klasa eru athafnamennirnir Ás-
geir Bolli Kristinsson og Sigurður
Gísli Pálmason. -hb
555 7500
®
Þakviðgerðir
Nánari upplýsingar á www.pace.is
Málarameistari
sér um þakið
Síðan 1991
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
Fegurðardrottningu
skotið úr fallbyssu
Bandaríski spéfuglinn Jim Rose
er á leið til lands-
ins. Það er óhætt
að segja að hann
fari eigin leiðir í
skemmtana-
bransan-
um.
VEÐRIÐ Í DAG
UNGT FÓLK 32
W. MARK FELT Hann lak upplýsingum til
blaðamanna Washington Post, þeirra Bobs
Woodward og Carls Bernstein.
Ráðgátan upplýst:
Deep Throat
gaf sig fram
BANDARÍKIN W. Mark Felt, fyrrver-
andi aðstoðarforstjóri bandarísku
alríkislögreglunnar FBI, hefur
viðurkennt að vera hinn dularfulli
Deep Throat.
Undir þessu nafni gekk heim-
ildarmaðurinn sem lét blaða-
mönnum Washington Post þær
upplýsingar í té sem leiddu til að
Watergate-málið komst í hámæli
snemma á áttunda áratugnum, en
í kjölfarið sagði Richard Nixon
Bandaríkjaforseti af sér embætti.
Ýmsar sögur hafa verið á
kreiki um hver Deep Throat sé en
það er fyrst nú sem hann gefur
sig fram. Felt, sem er 91 árs,
kveðst ekki stoltur af því sem
hann gerði. -shg
Burðarás selur:
Avion kaup-
ir Eimskip
VIÐSKIPTI Avion Group hefur keypt
Eimskip af Burðarási fyrir tæpa
22 milljarða króna. Um er að ræða
94,1 prósents hlut í félaginu og
sagði Magnús Þorsteinsson,
stjórnarformaður Avion, í gær að
stefnt væri að því að eignast allt
félagið. Færeyskt félag á 5,9 pró-
sent og er mjög líklegt að það
gangi inn í kauptilboðið sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
„Þetta er mjög gott verð sem
við erum að fá fyrir hlut okkar í
Eimskipi,“ segir Friðrik Jóhanns-
son, forstjóri Burðaráss.
- bg / Sjá Markaðinn
Valur fór létt með Fram
Valsmenn halda
áfram að fara á
kostum í Lands-
bankadeild karla
en þeir fóru
létt með erki-
fjendurna í
Fram í gær.
ÍÞRÓTTIR 26