Fréttablaðið - 01.06.2005, Page 2
2 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Forseti Alþingis andæfir ljósmyndasýningu:
Vill enga steinstöpla á Austurvelli
AUSTURVÖLLUR Í gær sendi Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, Stein-
unni Valdísi Óskarsdóttur, borg-
arstjóra í Reykjavík, bréf þar
sem hann mótmælir því að
Reykjavíkurborg noti Austur-
völl undir ljósmyndasýningu.
Halldór setti álíka mótmæli
fram í fyrra.
Eiríkur Hjálmarsson, aðstoð-
armaður borgarstjóra, sagði í
samtali við Fréttablaðið að skoð-
un þingforseta hefði verið þekkt
þegar undirbúningur sýningar-
innar hófst. „Erindi hans verður
að sjálfsögðu svarað, en ég á
ekki von á að borgaryfirvöld
breyti fyrri afstöðu.“
Ljósmyndunum verður komið
fyrri á sömu steinstöplunum og
notaðir voru í fyrra.
Kristján B. Jónasson, þróun-
arstjóri hjá Eddu, lýsti furðu
sinni á því að þetta kæmi upp
núna. „Ég hélt að borgin og þing-
ið hefðu útkljáð þetta sín á milli
og hefði viljað vita af þessari
andstöðu fyrr.“ Hann sagði enn
fremur að Edda hefði einungis
fengið góð viðbrögð frá almenn-
ingi vegna sýningarinnar í fyrra.
Sýning sumarsins heitir
„Andlit norðursins“ eftir Ragnar
Axelsson (RAX), sem gaf út
samnefnda bók fyrir síðustu jól.
Sýningin hefst þann 24. júní. ■
SJÁVARÚTVEGUR „Við reynum að
vinna í samstarfi við önnur
sjávarútvegsfyrirtæki í bænum
og á svæðunum í kring svo að
flestir fái önnur störf,“ segir
Gestur Geirsson, framkvæmda-
stjóri landvinnslu Samherja.
Ákveðið hefur verið að hætta
allri vinnslu í frystihúsi félagsins
á Stöðvarfirði í september kom-
andi og verður öllum 32 starfs-
mönnum sagt upp störfum frá og
með þeim tíma. Nokkrir mánuðir
eru síðan Samherji ákvað að sam-
eina landvinnslur fyrirtækisins á
Stöðvarfirði og á Dalvík og hefur
síðan verið unnið að því að draga
úr áhrifum uppsagnanna í sam-
vinnu við verkalýðsfélögin og
sveitarfélagið.
Gestur segir að þegar ákvörð-
unin um lokun frystihússins hafi
verið tekin hafi mið verið tekið af
opnun Fáskrúðsfjarðarganga sem
flestir telja að muni stórbæta at-
vinnumöguleika á svæðinu. Verði
tafir á opnun ganganna mun Sam-
herji greiða öllum starfsmönnum
laun fram að þeim tíma. - aöe
Landspítalinn var›
símasambandslaus
Tölvukerfi og innra símkerfi Landspítalans lágu ni›ri í fjórar klukkustundir í
gær flannig ekki var hægt a› hringja úr og í spítalann. Hjúkrunarfræ›ingar
gengu um me› talstö›var og farsíma.
HEILBRIGÐISMÁL Landspítali – Há-
skólasjúkrahús var símasambandsl-
aus frá því um ellefuleytið til klukk-
an þrjú í gær. Einnig lágu öll tölvu-
kerfi niðri en bilun kom upp í aðal-
netkerfi sjúkrahússins með þeim
afleiðingum að tölvukerfi og innra
símkerfi duttu að mestu leyti út.
Spítalinn var þó alltaf í sambandi
við Neyðarlínu og sjúkrabíla í gegn-
um svokallað Tetra-kerfi, sem er
utan við kerfið sem bilaði í gær.
„Við vorum hérna með gemsana
og talstöðvar alveg á fullu,“ segir
Ardís Henriksdóttir, aðstoðardeild-
arstjóri á bráðamóttöku. „Og svo
varð maður bara að skokka upp á
næstu hæð til að tilkynna komu
sjúklinga.“ Hún segir þó að enginn
skaði hafi hlotist af annar en sá að
allt gekk mun hægar en venjulega.
„Við gátum til dæmis ekki fengið
niðurstöður úr rannsóknum því
tölvurnar lágu niðri en verst var að
aðstandendur sjúklinganna og aðrir
náðu ekki sambandi við okkur til að
spyrjast fyrir um sitt fólk fyrr en
seint og um síðir en allir sýndu
þessu skilning. Svo erum við náttúr-
lega orðin afar óvön því að hand-
skrifa allt en nú fengum við æfingu
í því.“
Ardís segir að mikið hafi reynt á
starfsfólkið en allir reynst starfi
sínu vaxnir við þær óvenjulegu að-
stæður sem sköpuðust.
Að sögn Ingólfs Þórissonar,
framkvæmdastjóra tæknimála
spítalans, varð bilunin í svokölluð-
um skipti í netkerfinu, sem sendi
frá sér boð með þvílíkum hraða að
netkerfið fylltist af útsendingum
með fyrrgreindum afleiðingum.
„Við erum með tvöfalt símkerfi
þannig að þegar eitt dettur út á ann-
að að taka við og nú erum við að
kanna af hverju það gerðist ekki í
þessu tilfelli,“ segir Ingólfur.
„Í tilfellum sem þessum er farið
eftir öryggisreglum sem kveða
meðal annars á um að talstöðvum og
gemsum skuli dreift á alla staði svo
hægt sé að ná í lækna og aðra
starfsmenn og það gekk allt eftir í
gær,“ bætir hann við.
Starfsemi Landspítalans er í
Fossvogi, Hringbraut, Landakoti,
Dalbraut og einnig á Kleppsspítala,
þannig að afleiðinga bilunarinnar
gætti víða í gær. jse@frettabladid.is
Bandaríkjaforseti:
Gagnr‡ninni
vísa› á bug
WASHINGTON, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti vísar gagn-
rýni mannréttindasamtakanna
Amnesty International á banda-
rísk stjórnvöld á bug og segir
hana fáránlega.
Í ársskýrslu Amnesty Inter-
national, sem út kom í síðustu
viku, eru bandarísk stjórnvöld
harðlega átalin fyrir meðferð
sína á grunuðum hryðjuverka-
mönnum í fangelsum sínum víða
um heim, sérstaklega í Guant-
anamo-búðunum á Kúbu.
Á blaðamannafundi í gær
sagði Bush hins vegar að gagn-
rýnin væri runnin undan rifjum
fólks sem hataði Bandaríkin.
„Þetta eru fáránlegar ásakanir,
Bandaríkin eru ríki sem vinna að
því að auka frelsi um allan
heim.“ ■
ÍSLANDSVINUR
2.220.000 kr.
2.320.000 kr.
Sedan:
Wagon:
Ver› frá:
Öllum n‡jum Subaru Legacy bílum fylgir nú 50.000 króna
úttekt í Intersport e›a Nevada Bob. Bættu vi› tjaldi, grilli,
golfsetti e›a flugustöng og borga›u ekki krónu!
50.000 króna gjafabréf
Fer›agasgrill fylgir öllum n‡jum Subaru Legacy.
SPURNING DAGSINS
Sveinbjörn, eru Skorrdælir
ódælir?
„Nei, þeir eru góðir nágrannar og ég vil
gjarnan fá þá í púkkið.“
Sveinbjörn Eyjólfsson er oddviti Borgarfjarðar-
sveitar og umhugað um sameiningu sveitarfélag-
anna í sýslunni. Skorrdælir hafa ítrekað hafnað
sameiningu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÞYRLAN KÖLLUÐ ÚT Þyrla Land-
helgisgæslunnar var kölluð út
rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöld
til að svipast um eftir manni sem
saknað var á svæðinu í kringum
Hafnarfjall. Hópur manna hafði
leitað að manninum í nokkra
klukkutíma en hann er sjúklingur.
Ekki var vitað frekar um afdrif
hans þegar blaðið fór í prentun.
BÍLVELTA Bíll valt austan Gígju-
kvíslar á Skeiðarársandi eftir að
ökumaður bílsins hafði misst
stjórn á bílnum. Ökumaður og far-
þegi, sem voru erlendir ferða-
menn, slösuðust töluvert og voru
flutt á sjúkrahús. Bíllinn er ónýt-
ur eftir veltuna.
EKIÐ Á HREINDÝR Á níunda tím-
anum í gærkvöld var ekið á
hreindýr á veginum inn að Kára-
hnjúkavirkjun og drapst dýrið
samstundis.
BÍLVELTA Í ÞJÓÐGARÐINUM Laust
eftir hádegi í gær veltu tveir er-
lendir ferðamenn bíl sínum á Út-
nesvegi í þjóðgarðinum Snæ-
fellsjökli. Bíllinn skemmdist
nokkuð en meiðsli ferðamann-
anna voru óveruleg.
LJÓSMYNDASÝNINGIN 2004 Það eru einkum steinstöplarnir sem fara fyrir brjóstið á Hall-
dóri, sem kallar þá fyrirferðarmikla og grófa.
LÆKNIR MEÐ LABBRABB Starfsfólk Landspítalans fékk að reyna óvenjulegar vinnuaðstæður í gær meðan tölvukerfi og innra símkerfi lágu
niðri. Hér er læknir í talstöðvarsambandi en talstöðvar, farsímar og tveir jafnfljótir reyndust lífæð samskiptanna á meðan á ástandinu stóð.
LOKAÐ Í SEPTEMBER Frá og með september mun öll landvinnsla Samherja fara fram á Dalvík.
Samherji á Stöðvarfirði:
Öllum starfsmönnum sagt upp
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Jón Helgi í BYKO:
Selur bréf í
Íslandsbanka
VIÐSKIPTI Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var það Jón Helgi
Guðmundsson í BYKO sem seldi
240 milljónir hluta í Íslandsbanka til
æðstu stjórnenda bankans í gær.
Eru það um 1,8 prósent af heildar-
hlutafé bankans. Söluverðmæti
hlutanna var 3,2 milljarðar króna og
keypti Bjarni Ármannsson, for-
stjóri Íslandsbanka, hlutafé fyrir
1,3 milljarða. Einar Sveinsson
stjórnarformaður og sex fram-
kvæmdastjórar keyptu minna hver.
Fyrir átti eignarhaldsfélag Jóns
Helga rúma 396 milljón hluti í ban-
kanum eða um þrjú prósent. Er
þessi sala talin ýta undir þá skoðun
að Jón Helgi vilji styrkja frekar nú-
verandi meirihluta í bankaráði, en
átök hafa verið á milli meirihlutans
og aðila sem tengjast Straumi fjár-
festingabanka.
– bg/Sjá Markaðinn
Verðlagskönnun ASÍ:
Mjög mikill
ver›munur
VERÐKÖNNUN Mjög mikill verðmun-
ur var á milli matvöruverslana í
verðkönnun sem verðlagseftirlit
ASÍ gerði um land allt miðvikudag-
inn 25. maí síðastliðinn.
Mestur var munurinn á hæsta og
lægsta verði á kílói af gulrótum,
rúmlega 1.450 prósent. Hæsta gul-
rótaverðið var 698 krónur fyrir kíló-
ið, en lægst var verðið 45 krónur
kílóið. Meira en 100 prósenta munur
var á hæsta og lægsta verði allra
vara í könnuninni.
Kannað var verð í 63 verslunum
um land allt og var meðal annars
farið í keðjuverslanir sem eru með
útibú víða á nokkrum stöðum á
landinu. -shg