Fréttablaðið - 01.06.2005, Page 8
8 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Aðeins örfáir geitungar hafa sést það sem af er sumri:
Geitungastofninn hruninn
SKORDÝR Útlit er fyrir að íslenski
geitungastofninn hafi hrunið síð-
astliðið sumar að sögn Erlings
Ólafssonar, skordýrafræðings hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands.
„Á þessum tíma í fyrra var al-
gjört kraðak af geitungum en
ástandið núna er allt annað, það
hafa aðeins örfá kvikindi sést,“
segir Erling. „Ég tel ástæðuna
vera að stofninn hafi hrunið í
ágúst í fyrra en það er samt bara
tilgáta.“
Erling segir að það hafi ekki
verið kuldakast sem hafi valdið
þessu hruni heldur þvert á móti
mikill hiti. Hitabylgjan sem gekk
yfir landið síðsumars hafi komið í
kjölfar nokkurrar vætutíðar. Við
það hafi skapast aðstæður sem
líklega hafi hrundið af stað gerla-
og sveppasýkingum í geitunga-
búum.
„Fjöldi geitunga dó, sem þýðir
að það varð lítil nýliðun. Búin
náðu ekki að framleiða drottning-
ar og því á ég von á að það verði
lítið um geitunga í sumar. Það eru
í það minnsta engar forsendur
fyrir því að það verði mikið um
geitunga eins og í fyrra.“
Erling segir að svo virðist sem
hunangsflugustofninn hafi slopp-
ið því töluvert mikið hefur sést af
hunangsflugum það sem af er
sumri. -th
Landrof í Vi›ey
Á›ur var óhætt a› rölta áhyggjulaust um strendur Vi›eyjar en vegna landey›-
ingar eru sandarnir ví›a or›nir svo gljúpir a› hætta stafar af. Kunnugir segja
ástæ›u landey›ingar í Vi›ey vera framkvæmdir í Sundahöfn.
LANDEYÐING „Ég hef fylgst gaum-
gæfilega með þessu um langa
hríð og það er engum vafa
undirorpið í mínum huga að
framkvæmdirnar við Sundahöfn
spila stórt hlutverk í þeirri land-
eyðingu sem orðið hefur á
eynni,“ segir Örlygur Hálfdán-
arson, fyrrverandi bókaút-
gefandi. Hann er þeirrar skoð-
unar að sífelldar dýpkunarfram-
kvæmdir í og við Sundahöfn
hafi haft þau áhrif að syðsti
hluti Viðeyjar hefur látið veru-
lega á sjá undanfarin ár.
Örlygur hefur farið reglulega
út í eyjuna síðustu áratugina og
segir að 20 ára gamlar spár sín-
ar séu nú að rætast. „Það er eins
og menn haldi að ef þeir grafa
djúpan grunn í botn sundsins þá
renni enginn sandur þangað frá
ströndum Viðeyjar en það er
einmitt það sem á sér stað. Við-
eyjarsundið, milli syðsta hluta
eyjunnar og Sundahafnar, er
búið að dýpka óskaplega en leyfi
til þessa var einmitt veitt þar
sem fræðingar töldu að slíkt
hefði engin áhrif á strendur Við-
eyjar. Síðan hefur ekkert eftirlit
verið með þessu af hálfu opin-
berra aðila mér vitandi.“
Örlygur segir að sem barn
hafi hann leikið sér áhyggju-
laust á söndunum syðst á eynni
en í dag sé vart nokkrum manni
þar farandi vegna þess hve
gljúpur sandurinn sé orðinn.
„Þar sökkva menn strax á kaf
enda enginn sandur lengur
undir heldur vatn.“
Rök Örlygs halda þó ekki
vatni að mati Jóns Þorvaldsson-
ar, forstöðumanns tæknideildar
Faxaflóahafna. Hann segir þetta
hafa verið rannsakað fyrir
nokkrum árum og ekkert hafi
bent til að gröftur eða dýpkun
innsiglingarinnar og hafnarinn-
ar við Sundahöfn hafi valdið
landrofi í Viðey. „Það sem á sér
stað í Viðey er venjubundinn
ágangur sjávar og ekkert annað.
Besti samanburðurinn er við
Engey en þar hefur einnig orðið
töluverð breyting undanfarin ár
þrátt fyrir að hún sé fjarri
skipahöfnum. Þau rök að um-
ferð stærri skipa raski strönd-
um Viðeyjar eiga sér enga stoð.“
albert@frettabladid.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
3
3
3
2
TILVILJUN EÐUR EI Einu staðirnir þar sem
landrof er áberandi í Viðey eru á Kríusandi
og við Þórsnes en það eru syðstu staðir
eyjunnar og beint á móti Sundahöfn.
GÖNGUSLÓÐIR HORFNAR Göngustígar sem lagðir voru meðfram Þórsnesi fyrir allnokkrum
árum eru horfnir vegna ágangs sjávar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
RÐ
U
R
GEITUNGUR Geitungarnir sem eru komnir
á stjá núna eru drottningar sem eru að
koma sér fyrir. Erling segir að þær séu ekki
í árásarhug enda ekki tilbúnar til að fórna
lífinu áður en þær byggja bú.