Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 10
MOKAFLI Það bar vel í veiði hjá þessum filippeyska túnfiskveiðimanni í gær en hann gerir út frá bænum General Santos á Mindanao- eyju. Fáar þjóðir veiða meiri túnfisk en Fil- ippseyingar enda fá þeir drjúgan hluta gjaldeyristekna sinna af slíkum veiðum. 10 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR Sjálfsmorðssprengjuárás í Karachi dregur dilk á eftir sér: Mannfall eftir múgæsingu sjía KARACHI, AP Múgæsing greip um sig í Karachi, stærstu borg Pakistans, eftir að sjálfsmorðs- sprengjuárás var gerð í sjíamosku. 12 manns liggja í valnum. Í fyrrakvöld reyndu þrír vopnaðir menn að komast inn í Madinatul Ilm Imambargah- moskuna í Karachi. Eftir átök þar sem tveir lögreglumenn og einn tilræðismaður biðu bana og annar særðist komst sá þriðji inn og sprengdi hann sprengju sína. Einn moskugestanna dó og á annan tug manna særðist. Mennirnir eru taldir tilheyra hópi öfgasinnaðra súnnía sem beinir spjótum sínum að kristn- um og sjíum. Yfirvöld segja hópinn hafa tengsl við al-Kaída. Eftir að árásin spurðist út gengu mörg hundruð æstir sjíar berserksgang, fóru um borgina og kveiktu í bílum og verslun- um, þar á meðal útibúi banda- rísku kjúklingastaðakeðjunnar KFC. Fjórir brunnu inni á staðn- um og tveir til viðbótar köfnuðu eftir að hafa læst inni í kæliskáp þar sem þeir höfðu leitað skjóls. Aðeins eru þrír dagar síðan sjálfsmorðsprengjumaður ban- aði tuttugu sjíum við helgidóm nærri höfuðborginni Islama- bad..■ Leki hágeislavirkra efna i Thorp-kjarnorkuendurvinnslustöðinni: Hef›i fyllt 25 metra sundlaug SELLAFIELD Breskir ráðamenn líta lekann á hágeislavirkum efnum í Thorp-kjarnorkuendurvinnslu- stöðinni í Sellafield sem uppgötv- aðist í apríl mjög alvarlegum augum. Vera má að dagar stöðvar- innar séu taldir. Breska dagblaðið The Independ- ent on Sunday rakti í gær niðurstöð- ur leyniskýrslu um lekann og við- brögð ráðamanna við henni. Málm- þreyta í leiðslu er sögð orsök þess að 83.000 lítrar af geislavirkum vökva láku í sérstaka safnþró. Starfsmenn eru jafnframt harðlega gagnrýndir fyrir að hafa ekki uppgötvað lekann fyrr en mörgum mánuðum eftir að hann hófst. „Þetta eru mistök sem einungis Hómer Simpson virðist hafa verið fær um að gera,“ sagði David Willets, við- skiptaráðherra í skuggaráðu- neyti íhaldsmanna. Stöðin hefur verið lokuð síðan óhappsins varð vart og í einka- samtölum við blaðamenn segjast háttsettir embættismenn ekki reikna með að hún verði opnuð framar. Hreinsun svæðisins verður hins vegar afar kostnað- arsöm og einnig þarf að flytja þann kjarnorkuúrgang sem enn á eftir að vinna aftur til uppruna- landa sinna. Samkvæmt mælikvarða Al- þjóðakjarnorkumálastofnunar- innar telst atvikið þriðju gráðu slys – alvarlegt atvik – en sjöunda gráðan er sú hæsta. Síðasta slysið í Bretlandi af þessari gráðu varð í Sellafield árið 1992. Sex ár eru liðin síðan fjórðu gráðu slys varð árið 1999 en þá dóu þrír verka- menn í japönsku kjarnorkuveri eftir að hafa blandað kjarnorku- eldsneyti í fötu. - shg Parvó-veikin á skri› aftur Miklu meira hefur veri› um Parvó-veiki í hvolpum og unghundum í vor en mörg undanfarin ár. Nokkrir hafa drepist af hennar völdum. Hún l‡sir sér me› bló›uppköstum og ni›urgangi. Grunur leikur á a› n‡tt bóluefni dugi ekki sem skyldi flar sem bólusett er tvisvar í sta› flrisvar á›ur. DÝRAHALD Í vor hafa greinst óvenjumörg tilfelli af Parvó-veiki í hvolpum og unghundum, að sögn Katrínar Harðardóttur dýralækn- is á Dýraspítalanum í Víðidal. Þessi illræmda veiki heltekur hunda og getur dregið þá til dauða. Hún smitast milli hunda, en menn geta jafnframt borið hana á milli þeirra. „Það hefur verið miklu meira um parvó-veiki í vor heldur en við höfum séð í mörg ár,“ sagði Katrín. „Því miður erum við ekki viss um hvað veldur þessu. Það eru að vísu komin ný bóluefni og með þeim er einungis bólusett tvisvar, í stað þrisvar sinnum með þeim gömlu. Það er spurning hvort tvær bólusetningar dugi, en leiðbeiningar með nýju lyfjunum segja að þær eigi að duga. Ég tel að það þurfi að endurskoða þetta ef þróunin verður á sama veg og verið hefur.“ Katrín sagði að parvó-veikin legðist fyrst og fremst á hvolpa. Í vor hefði hún einnig sést í stálpuð- um hundum á bilinu sex mánaða til eins árs, sem jafnvel hefðu verið bólusettir. Nokkrir hvolpar hefðu drepist úr veikinni. Hún lýsir sér með blóðuppköstum, niðurgangi og algjöru lystarleysi. Albert Steingrímsson hjá Hundaskóla Hundaræktarfélags Íslands sagði að í apríl hefði hvolpanámskeiðum verið frestað um hálfan mánuð af öryggis- ástæðum vegna parvó-veikinnar. Kennslusvæðin hefðu verið sótt- hreinsuð og aðrar varúðarráð- stafanir gerðar. „Þessi pest kom upp snemma í vor þegar hlýindin voru sem mest,“ sagði hann. „Ræktendur brýna fyrir fólki að fara hvorki með óbólusetta hvolpa né þá sem aðeins hafa fengið eina sprautu inn á hundasvæði eða á námskeið. Þá eru hverfandi líkur á að þeir smitist. Fólk er því orðið mjög meðvitað um þetta og fer varlega. Við erum alltaf í góðu samstarfi við dýralækna. Ef þeir koma með tilkynningar til okkar um eitthvað sem þarf að varast þá gerum við strax ráðstafanir.“ jss@frettabladid.is Á GEIRSNEFI Hundaeigendum er eindregið ráðlagt að fara ekki með óbólusetta hvolpa né unghunda á útivistarsvæði, því parvó-veikin er smitandi. Hundarnir á myndinni tengjast ekki efni fréttarinnar. Biskupinn í Stokkhólmi: Braust inn til nágranna SVÍÞJÓÐ Biskupinn í Stokkhólmi hefur verið kærður fyrir innbrot og brot gegn friðhelgi heimilisins. Biskupinn, Caroline Krook, var stödd í sumarhúsi sínu utan við Stokkhólm og fannst ónæði að tón- listarflutningi nágrannanna. Hún kvartaði en þegar henni fannst ekki nóg að gert, gerði hún sér lítið fyrir, fór yfir til grannans og tók hljóm- flutningstækin úr sambandi. Heimilisfólkið kærði atburðinn og á biskupinn nú yfir höfði sér þunga sekt fyrir athæfið. ■ REIÐUR MÚGUR Allt að eitt þúsund sjíar gengu berserksgang í Karachi eftir sprengjutil- ræði í mosku þeirra. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P SELLAFIELD Fyrir utan lekann í vetur varð þar óhapp árið 1999 svo og 1957 en þá kviknaði í kjarnaofni Windscale-versins, forvera Sellafield, en talið er að 33 hafi dáið af völdum geislunar. Lekinn í Sellafield: Íslendingar óska sk‡ringa UMHVERFIÐ Umhverfisráðherra hefur óskað skriflegra upplýsinga frá breskum stjórnvöldum um lek- ann á geislavirkum vökva í endur- vinnslustöðinni í Sellafield. „Þetta er náttúrlega ekki í fyrsta skipti sem svona mál kemur upp í Sellafield og því finnst okkur þessi frammistaða ekki mjög traustvekj- andi. Við viljum líka láta Breta vita að við lítum þetta alvarlegum augum. Við munum fylgja þessu eftir því mikið er í húfi,“ segir Magnús Jóhannesson, ráðuneytis- stjóri í umhverfisráðuneytinu. Ráðherra hyggst taka málið upp á fundi norrænu umhverfisráðherr- anna sem haldinn verður í ágúst. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.