Fréttablaðið - 01.06.2005, Síða 16

Fréttablaðið - 01.06.2005, Síða 16
16 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR Hei›arlegasti sendillinn í borginni Stefán Konráðsson send- ill vekur athygli hvar sem hann fer. Hann þeys- ist hverfa á milli með bréf og böggla á silfur- gráu hjólinu með aftaní- vagni. Stefán er hress og kátur þegar við hittumst við Háaleitisbraut- ina. Hann var að hlaða geyminn á hjólinu sem er ekki aðeins fót- stigið líkt og hefðbundin reiðhjól heldur gengur einnig fyrir raf- magni. „Vanalega þarf ég ekki að hlaða það nema yfir nóttina en það fer eftir eyðslu,“ segir Stef- án sem átt hefur hjólið góða í þrjú ár. Það er fimm gíra og hefur reynst honum vel, ekki síður að vetri en sumri því þá setur hann snjódekkin undir. Senn fjölgar í flota Stefáns því í júlí fær hann vespu sem hann festi sér fyrir skemmstu. „Ég býst við að skiptast á að nota hjólin þegar ég hef fengið vespuna. Þetta er bensínvespa og ég er að læra á svona hjól núna.“ Greinilegt er á Stefáni að hann hlakkar til að fá vespuna sem hann hyggst reka við hlið raf- knúna reiðhjólsins. „Það er ekki hægt að selja svona hjól svo ég á það bara áfram.“ Stefán sendill er titlaður send- ill í símaskránni og hefur verið lengi í faginu. „Ég hef verið að þessu í hundrað ár,“ segir hann brosandi og bætir við að hann sé einn heiðarlegasti sendillinn í borginni. Stefán hefur föst verkefni hjá nokkrum félögum og fyrirtækj- um og nefnir til sögunnar Styrkt- arfélag lamaðra og fatlaðra, Styrktarfélag vangefinna, Sjón- arhól, Evró og Markið. Hann annast bréfa og bögglasendingar fyrir þessa aðila og hellir stund- um upp á könnuna líka. Stefán er gjörkunnugur um- ferðinni í Reykjavík og segir hana hafa þyngst með árunum. Honum stafar samt ekki ógn af bílunum; „Nei nei, ég er vanur þessum jólasveinum í umferð- inni. Konurnar geta samt verið erfiðar þegar þær eru að varalita sig og snyrta undir stýri. Svo eru þessir símar hættulegir.“ Sjálfur talar Stefán aldrei í síma á hjól- inu enda vill hann halda fullri einbeitingu á ferð. Ekki er algengt að fólk segist sátt við launin sín. Flestir vilja meira en þeir hafa. Stefán Konráðsson sendill er ekki í þeim hópi. Hann er sáttur. „Ég hef góðan pening upp úr þessu,“ segir hann og brunar áfram veginn. bjorn@frettabladid.is Áskriftarsími: 515-5555 G rillb lað matur og vín 6.tbl.2005,verð 899 kr.m.vsk. grillblað 5 690691 1600 05 uppskriftir að geggjuðum grillmat freistandi forréttir og magnað m eðlæti Pétursborg -borgin sem kemur á óvart – kjúklingur – naut – lamb – svín grillsósur og maríneringar134 Gestgjafinn er kominn út! MEÐALÆVILENGD KARLA ER 78,8 ÁR EN KVENNA 82,6 ÁR Heimild: Hagstofan SVONA ERUM VIÐ Skemmtilegir hlutir eru að gerast í lífi Kristjönu Stefánsdóttur djasssöngkonu. Í mars tók hún upp nýja plötu í New York í samvinnu við Agnar Má Magn- ússon djasspíanista, sem kemur út í lok ágúst. Þá er hún á leið til Japans á Expo-heimssýninguna. „Bæði verð ég ein af fulltrúum Íslands í tónlist og gamla sólóplatan mín kemur út í Jap- an 8. júlí,“ segir Kristjana sem heldur því útgáfutónleika jafnframt því að syngja á Expo. „Þetta er ennþá mjög fjarlægt mér,“ játar Kristjana en japönsk kona hefur verið að flytja íslenska tónlist til Jap- ans. Platan hefur verið til sölu á netinu síðan í desember og hefur hún fengið mjög góða dóma hjá japönskum djassgagnrýnanda að sögn Kristjönu. „Ég er líka mjög ánægð með plötuna sem er á leiðinni,“ segir Kristjana en útgáfufyrirtækið Dimma gefur hana út. „Þetta er skemmtileg plata með djass- útsetningum á gömlum popplögum, til dæmis frá Duran Duran, Police og Abba,“ segir Kristjana og bætir við að mörg laganna hafi stórkostlega fallegar laglínur sem komi í ljós með nýjum útsetningum hennar og Agnars. Platan var einnig sameiginleg hug- mynd þeirra en þau hafa unnið saman í hartnær áratug. Þau léku sér eitt sinn að því á tónleik- um að spinna með lag eftir Sting. „Það tókst svona ljómandi vel og vatt upp á sig,“ segir Kristjana sem ætlar að taka bóndann með til Tókýó í júlí. Me› útgáfutónleika á Expo í Tók‡ó HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR „Ef satt reynist þætti mér mikill sjón- arsviptir að Viðey,“ segir Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður um þá staðhæfingu Örlygs Hálfdánarsonar í Fréttablaðinu í gær að dýpkunar- framkvæmdir við Sundahöfn valdi landrofi á syðsta hluta Viðeyjar. „Við skulum vona að Örlygur hafi rangt fyrir sér en hann er nú skyn- samur maður,“ segir Valgeir, sem furðar sig á málinu ef það reynist vera satt, enda eigi að halda upp á landið ef stefnan sé að koma þar upp byggð. En hefði Valgeir áhuga á að búa í Viðey? „Já, mér þykir afskaplega gott að vera nálægt sjó og það hlýtur að vera gott að vera í Viðey. Hins vegar er ekki víst að maður hefði efni á því.“ VALGEIR GUÐJÓNSSON Sjónarsviptir a› Vi›ey VIÐEY SKOLAST BURT SJÓNARHÓLL Eldri borgarar á Bíldudal: Fóru í keppn- isfer›alag Tvö keppnislið frá Læk, þjón- ustumiðstöð eldri borgara á Bíldudal, lagði land undir fót og tók þátt í boccia-móti á Þingeyri á sunnudag. Frá þessu greinir á vefnum arnfirding- ur.is og segir þar enn fremur: „Það var harðsnúið níu manna lið sem lagði af stað yfir h e i ð i snemma í morgun til að taka þátt í Halldórs Högnamót- inu í boccía. Með tilkomu íþróttahússins á Bíldudal hefur opnast möguleiki fyrir alla aldurshópa til að stunda íþróttir. Eldri borgarar hafa haft einn tíma á viku í salnum og hafa nýtt hann til þess að stunda boccía ásamt fleiri æfingum.“ Haft er eftir Vilborgu Jóns- dóttur keppanda að gaman hafi verið í ferðinni, svo gaman raunar að öruggt sé að þetta verði ekki síðasta keppnisferð Bílddælinga. Er greinilegt að ánægjan hefur borið keppnis- hörkuna ofurliði því ekki höfðu Vilborg og félagar verðlaun með sér heim að þessu sinni. - bþs Umhverfisstofa hugar að sumrinu: Margt a› varast vi› grilli› STEFÁN KONRÁÐSSON SENDILL Hann hefur átt silfurgráa rafknúna reiðhjólið sitt í þrjú ár. Í næsta mánuði fær hann nýja vespu sem hann hlakkar til að þeysast á um borg- ina með bréf og böggla. Á vorin eru grillin tekin undan seglinu og út úr geymslunni og menn taka sér grilltöng í hönd. En margt þarf að hafa í huga áður en safaríkri steik er skellt á logann enda sýna tölur frá landlækni að til- fellum matareitrunar fjölgar með hækkandi sól. Af því tilefni hefur Um- hverfisstofnun gefið út bækling sem ber heitið „Góð ráð við grillið“, en fræðslu- fundur var haldinn í gær til kynningar á honum. Þar fjölluðu þeir Ingólfur Gissurarson og Grímur Ólafsson um hvað bæri að varast í grillstemningunni. Fjallaði Ingólfur um þær bakteríur sem geta valdið matareitrunum, hvernig ætti að gæta hreinlætis og passa að menga ekki milli matvæla enda geti krossmengun úr hráu kjöti í hrásalat haft alvarlegar afleiðingar. Grímur fjallaði um þau efni sem myndast við bruna og geta verið krabbameinsvaldandi en eitt af ráðunum góðu er að borða aldrei brenndan mat. Auk þess ræddi hann um hvað bæri að varast í fram- reiðslu, til dæmis að taka ekki á fullgrilluðum mat með töngum sem hafa verið notaðar á hrátt kjöt. Grímur segir að kannski megi tengja grillslys á sumrin við það að oft færi saman bjór í annarri hendi og grilltöng í hinni. Þær aðstæður bjóði kannski upp á að ekki sé fylgst nægilega með því sem sé að gerast á grillinu. ■ Í LJÓSUM LOGUM Varað er við því að borða brenndan mat. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.