Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 29
 Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 28 30 3 05 /2 00 5 Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 28 30 3 05 /2 00 5 7,6%* Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans. * Nafnávöxtun frá 01.04.2005–30.04.2005 á ársgrundvelli. Peningabréf Landsbankans 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingar- sjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verð- bréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is Dagblöð Lestur eykst Tækifæri í austri Kína er vaknað Flatskjársjónvörp Verða enn þynnri Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 1. júní 2005 – 9. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Magnús seldi | Magnús Þor- steinsson hefur selt Björgólfs- feðgum 14,5 prósenta hlut sinn í Samson á tólf milljarða króna. Hann segist ætla að einbeita sér að flugrekstri. Magnús keypti | Avion Group, sem Magnús Þorsteinsson á meirihluta í, hefur keypt 94,1 pró- sents hlut í Eimskipi á 23 millj- arða króna. Magnús hyggur á frekari landvinninga í flutninga- starfsemi. Magnús samdi | Latibær, sem er hugarfóstur Magnúsar Scheving, hefur gert samning við Disney- fjölmiðlafyrirtækið um dreifingu á sjónvarpsþáttaröðinni á Spáni, Ítalíu og í Frakklandi. Khodorkovskí sekur | Rúss- neski auðkýfingurinn Mikhaíl Khodorkovskí var í gær dæmdur í níu ára fangelsi. Stuðningsmenn Khodorkovskís segja pólitískan fnyk af málinu. Best í heimi | Lýsi opnaði nýja verksmiðju í Örfirisey og er hún sú stærsta sinnar tegundar í ver- öldinni. Davíð Oddsson utanríkis- ráðherra klippti á borðann. FL Group hagnast | Tilkynnt var að FL Group hefði hagnast um 25 milljónir á fyrsta ársfjórðungi. Gengur þetta þvert á allar spár en fyrsti fjórðungurinn er jafnan sá erfiðasti í flugrekstri. Nike hótar Man. Utd. | Nike hefur hótað að rifta treyjusamn- ingi við Manchester United fari liðinu ekki að vegna betur. Tals- maður Nike segir United fjórða besta knattspyrnulið á Englandi. SÍF í góðum málum | Hagnaður SÍF var 230 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi og meira en tvöfaldað- ist frá sama tímabili í fyrra. Er það þó undir spám bankanna, sem gerðu ráð fyrir að hagnaður SÍF yrði um 320 milljónir króna. Innherjar kaupa í Íslandsbanka Stjórnendur í Íslandsbanka keyptu 240 milljónir hluta í bankanum í gær á genginu 13,3. Verðmæti við- skiptanna er um 3,2 milljarðar króna og koma til greiðslu þann 4. júlí næstkomandi. Kaupendur eru Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka, Einar Sveinsson stjórnarformaður og sex fram- kvæmdastjórar. Bjarni Ármannsson, sem keypti sjálfur fyrir 1,3 milljarða króna, segir að stjórnendurnir séu að kaupa bréf á markaði og staðfestir að bankinn sé ekki að selja eigin bréf til þeirra. „Við lítum á kaup í bankanum sem góða langtímafjárfestingu,“ segir hann. - eþa Björgvin Guðmundsson skrifar „Himinn og haf hefur verkefnið verið kallað,“ sagði Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi Avion Group, þegar hann kynnti samning um kaup félagsins á Eimskipafélagi Íslands í Listasafni Reykjavíkur í gær. Það er Burðarás sem selur um 94 prósent hlut sinn í Eimskipi fyrir tæpa 22 milljarða en Magnús stefnir á að eignast allt félagið. Samkvæmt heimildum Markaðarins eru miklar líkur á að Færeyingar, sem eiga tæp sex prósent í Eim- skipi, gangi inn í þetta tilboð. Skipafélagið verður svo rekið ásamt flugstarfseminni undir móðurfélaginu Avion Group, sem verður skráð í Kauphöll Íslands fyrir lok janúar á næsta ári gangi allt upp. Avion Group mun greiða tæpa þrettán milljarða með peningum fyrir Eimskip en níu milljarða með hlutabréfum í sjálfu sér þegar félagið verður skráð. Gangi skráning Avion í Kauphöllina ekki eftir hafa stærstu hluthafar félagsins skuldbundið sig til að kaupa aftur hluta- bréfin sem Burðarás fær sem greiðslu. Magnús Þorsteinsson tilkynnti fyrir síðustu helgi að hann hefði ákveðið að selja hlut sinn í Landsbankanum og fjárfestingafélaginu Samson Holding til Björgólfsfeðga, sem hafa verið við- skiptafélagar hans í Samson. Landsbankinn og Sam- son ráða yfir helmingi hlutafjár í Burðarási. Magnús segir kaupin á Eimskipi ekki tengjast brotthvarfi hans frá Samson. Þau séu fjármögnuð með lánum og hlutabréfum í Avion Group. Spurður hvort verðmæti hlutar hans í Samson félögunum sé álíka mikið og þeir peningar sem greiddir eru fyrir hlutinn í Eimskip segist Magnús ekki vita það. Gengi hlutabréfa hans í Landsbankanum breytist á hverjum degi. Tilkynnt verði sérstaklega um sölu hans í Sam- son þar sem þetta komi í ljós. Eftir kaupin á Eimskipi verð- ur Avion Group stærsta félag landsins í flutningastarfsemi. Áætluð velta félagsins í ár er 110 milljarðar króna, starfsmenn verða 4.400 og starfsstöðvar átta- tíu um allan heim. Í fyrrakvöld var stjórn Burðar- áss skyndilega kölluð saman til að ganga frá samningnum um söluna á Eimskipi. Magnús Þorsteinsson flaug þá um kvöldið til Íslands til að samþykkja samninginn í stjórn Avion Group í gærmorgun. Tilkynnt var um samninginn í Kaup- höllinni þá um morguninn og hann kynntur á blaða- mannafundi korter yfir ellefu sama dag. F R É T T I R V I K U N N A R 2 12-13 8 Björgvin Guðmundsson skrifar Á föstudaginn verður ljóst hvort Penninn verður seldur. Samn- ingaviðræður hafa staðið yfir að undanförnu og reiknað er með að áreiðanleikakönnun ljúki fyrir helgi. Standist allt sem rætt hefur verið ganga kaupin eftir. Gunnar Dungal, forstjóri Pennans, sagði í gær ekki tíma- bært að tjá sig um þetta mál. Ekki væri ljóst hvort þetta gengi eftir. Áður hefðu aðilar nálgast fyrirtækið með það fyrir augum að kaupa það. Samkvæmt heim- ildum Markaðarins fer Kristinn Vil- bergsson fyrir hópi kaupenda sem hafa sýnt félaginu áhuga og er kaupverðið í kringum tveir milljarðar króna. Penninn er fjölskyldufyrir- tæki sem hefur vaxið hratt síð- ustu ár og rekur allar helstu rit- og bókaverslanir á landinu. Velt- an í fyrra var um 4,3 milljarðar króna samkvæmt heimild- um og hagnaður um 300 milljónir. Var það besta ár í sögu félagsins. Útrásarvísitala Markaðarins: Öll félögin lækkuðu Útrásarvísitala Markaðarins lækkar um rúmlega eitt prósent milli vikna og lækkar virði easyJet mest milli vikna, um tólf prósent. Öll félögin lækka milli vikna og er þetta í fyrsta sinn í sögu Útrásarvísitölunnar sem það gerist. deCode er enn það félag sem hefur hækkað mest frá upp- hafi en hækkunin nemur þrjátíu prósentum. Útrásarvísitalan stendur í 108,84 stigum. -dh SPRON: Allt stofnféð seldist SPRON hefur lokið við sölu á 28.960 nýjum stofnfjárhlutum. Verðmæti hvers hlutar er 44.106 krónur og því nemur heildarverð- mæti stofnfjáraukningarinnar um 1,3 milljörðum króna og heild- arstofnféð um 1,9 milljörðum króna. Hlutir þeirra stofnfjáreig- anda, sem nýttu sér ekki for- kaupsrétt sinn, rann til stærstu stofnfjáreigendanna. - eþa Eimskip selt Avion Group hefur keypt Eimskip af Burðarási. Stefnt er að skráningu Avion fyrir lok janúar 2006. Magnús Þorsteinsson segir kaupin ekki tengjast brotthvarfi sínu frá Samson. Fjárfestar vilja kaupa Pennann Á föstudaginn verður ljóst hvort Penninn verður seldur. 1996 – kaupir Eymundsson 2000 – kaupir GKS 2000 – kaupir Griffil 2003 – kaupir Mál og menningu P e n n i n n s t æ k k a r MAGNÚS ÞORSTEINSSON OG BALDUR GUÐNASON Baldur verður framkvæmdastjóri Eimskips. Hann segir undirbúning á sölu félags- ins hafa staðið yfir síðustu sex til átta vikurnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.