Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 34
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN6 Ú T L Ö N D Jaques Chirac Frakklandsforseti, sem var eindreginn stuðnings- maður stjórnarskrárinnar, sagði er úrslit voru kunn að hann virti ákvörðun frönsku þjóðarinnar en viðurkenndi þó að hann hefði orðið fyrir sárum vonbrigðum: „Eftir þetta verður erfitt fyrir Frakkland að verja hagsmuni sína innan Evrópusambandsins“. Andstaða við stjórnarskrána kom bæði frá hægri og vinstri en af ólíkum ástæðum þó. Vinstri- menn telja að hefði stjórnarskrá- in verið samþykkt hefði það leitt til óheftrar markaðsstefnu. Hægrimenn vilja hins vegar að Evrópusambandið verði ein- ungis viðskiptasamband, þar sem flæði fjármagns, varnings, þjón- ustu og fólks er frjálst. Þeir segja Evrópusambandið ekki eiga að skipta sér af stjórnmálum aðild- arlandanna. Telja hægrimenn að höfnun stjórnarskrárinnar hafi verið fyrsta skrefið í þá átt. David Bowers hjá ráðgjafa- fyrirtækinu Merrill Lynch segir að viðbrögðin kunni að valda vinstrimönnum vonbrigðum: „Vissulega er það rétt að einhver töf kann að verða á markaðsum- bótum í Frakklandi en til langs tíma er líklegt að fólk hætti að hafa áhyggjur af stjórnskipuleg- um málefnum og vilji mark- aðsumbætur. Þar er árangur all- ur sýnilegri“. Ýmsir framámenn í frönskum stjórnmálum vöruðu við því fyrir kosningarnar að ef Frakkar höfn- uðu stjórnarskránni myndi pólit- ískt óvissuástand skapast: fyrir- tæki myndu hika við að fjárfesta í Evrópu og atvinnuleysi þar af leiðandi aukast og samkeppnis- hæfni minnka gagnvart Banda- ríkjunum og Asíu. Það er helst gengi evrunnar sem ber að hafa áhyggjur af í því sambandi, segir Ian Stewart, starfsbróðir David Bowers hjá Merrill Lynch: „Styrkur gjald- miðils ræðst frekar af pólitískum stöðugleika og lögmæti stjórn- valda meðal almennings en efna- hagslegri frammistöðu“. Sérfræðingar segja að efna- hagslegra afleiðinga úrslitanna í Frakklandi verði ekki vart strax. Evran hafi vissulega veikst undanfarnar vikur en það megi frekar rekja til slakrar efnahags- frammistöðu nokkurra evr- ópskra risa: Ítala, Frakka og sér- staklega Þjóðverja. Það lítur því allt út fyrir að áhrif úrslitanna í Frakklandi verði lítil á evrópska hagkerfið samanborið við þau áhrif sem slök frammistaða hinna evr- ópsku hagkerfa, aukið atvinnu- leysi og mannafli sem sífellt eldist hafa haft. Hjalmar Schacht, Seðlabanka- stjóri Þýskalands og fjármála- ráðherra Hitlers, lést annan júní árið 1970 og eru því 35 ár frá dauða hans um þessar mundir. Dr. Horace Greely Hjalmar Schacht fæddist árið 1877 og var sonur þýsks aðalsmanns og danskrar barónessu. Hann var skírður í höfuðið á bandaríska blaðamanninum Horace Greely, en móðuramma hans krafðist þess að Hjalmarsnafninu yrði bætt við til að undirstrika dansk- an uppruna drengsins. Schacht lagði stund á háskóla- nám í læknisfræði og stjórn- málafræði áður en hann varð doktor í hagfræði árið 1899. Hann tók sæti í bankaráði Þýska seðlabankans 1916, og var fljótlega falin yfirumsjón með gjaldeyrisstefnu landsins. Var Schacht öðrum fremur þakkað að tókst að hemja verðbólguna sem geisaði eftir fyrri heimsstyrj- öldina og að þýska markið náði stöð- ugleika á ný. Var hann í kjölfarið gerður að Seðla- bankastjóra. Schacht var aldrei formlega meðlimur í Nas- istaflokknum en varð engu að síður fyrir djúpstæðum áhrifum frá Hitler eftir að hafa lesið Mein Kampf. Hann hjálpaði Hitler að safna fé fyrir flokkinn og studdi hann til kanslaraembættis. Hitler þakkaði Schacht síðan stuðninginn með því að gera hann að fjármálaráðherra sín- um. Schacht réðst strax í að ráða niðurlögum atvinnuleysis í land- inu, og lét hefja miklar stórfram- kvæmdir í þeim tilgangi. Meðal annars fyrirskipaði hann lagn- ingu hinna þýsku autobahn-hrað- brauta, en þær framkvæmdir áttu stóran þátt í að koma þýsku efna- hagslífi aftur á réttan kjöl. Síðar sinnaðist Schacht við Hitler og sagði af sér þar sem hann taldi að stríðsreksturinn myndi leiða til mikillar verðbólgu. Hitler gerði Schacht þá aftur að Seðlabankastjóra og sat hann í því embætti til 1939. Schacht var þó embættislaus á launum til 1943 er Hitler sakaði hann um að hafa átt þátt í morðtilraun við sig og vék honum endanlega úr þjónustu sinni. Schacht var ákærður fyrir stríðsglæpi er heimsstyrjöldinni lauk en sýknaður við Nürnberg- réttarhöldin og varð síðar sér- legur efnahagsráðgjafi ýmissa þróunarlanda. - jsk S Ö G U H O R N I Ð Fjármálaráðherra Hitlers deyr VIÐGERÐAR OG DEKKJAVERKSTÆÐI Í glæsilegu nýuppgerðu leiguhúsnæði á besta stað. Velta 18 milljónir á ári og nægt pláss til að auka hana verulega. SÖLUSKRÁ HÚSSINS ER Á VEF WWW.HUSID.IS Salómon Jónsson • Löggiltur fasteignasali Ingvaldur Mar Ingvaldsson viðskiptafræðingur ingvaldur@husid.is GRILLVAGN Lítill grillvagn á frábærum stað Möguleiki á að leigja með forkaupsrétti. SÖLUSKRÁ HÚSSINS ER Á VEF WWW.HUSID.IS Salómon Jónsson • Löggiltur fasteignasali Ingvaldur Mar Ingvaldsson viðskiptafræðingur ingvaldur@husid.is HAMBORGARASTAÐUR Á góðum stað í góðum rekstri til margra ára, nú er tækifærið að gerast eigin herra, góð framlegð mikil sala. SÖLUSKRÁ HÚSSINS ER Á VEF WWW.HUSID.IS Salómon Jónsson • Löggiltur fasteignasali Ingvaldur Mar Ingvaldsson viðskiptafræðingur ingvaldur@husid.is ÁTT ÞÚ REKSTUR TIL AÐ SELJA? Vegna snarprar sölu á minni fyrirtækjum undanfarið óskum við eftir fyrirtækjum á skrá, velta allt að 100 milljónir. SÖLUSKRÁ HÚSSINS ER Á VEF WWW.HUSID.IS Salómon Jónsson • Löggiltur fasteignasali Ingvaldur Mar Ingvaldsson viðskiptafræðingur ingvaldur@husid.is Frakkar höfnuðu um helgina stjórnarskrá Evrópusambands- ins. Sérfræðingar segja þó ekki víst að niðurstaðan muni hafa mikil áhrif á efnahag Evrópu. Jón Skaftason kynnti sér málið. FRAKKAR HÖFNUÐU STJÓRNAR- SKRÁNNI Vinstrimenn vonast til að í kjöl- farið hægist á markaðsumbótum. Ekki er þó víst að þeim verði að ósk sinni. Efnahagsumbætur á dagskránni Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting miðill gjaldmiðils) BTC Búlgaría 392,0 Lev 41,17 -7,2% Carnegie Svíþjóð 76,0 SEK 8,80 -0,3% deCode Bandaríkin 7,3 USD 64,56 -5,6% EasyJet Bretland 2,3 Pund 117,76 -11,8% Finnair Finnland 6,9 EUR 80,73 -3,9% French Connection Bretland 2,7 Pund 117,76 -1,5% Intrum Justitia Svíþjóð 51,8 SEK 8,80 -2,3% Low & Bonar Bretland 1,1 Pund 117,76 -8,2% NWF Bretland 5,7 Pund 117,76 -3,7% Scribona Svíþjóð 14,1 SEK 8,80 -2,8% Singer & Friedlander Bretland 3,1 Pund 117,76 -5,2% Skandia Svíþjóð 41,2 SEK 8,80 -1,6% Somerfield Bretland 2,0 Pund 117,76 -5,3% Miðað við gengi bréfa og gjaldmiða 30. maí 2005 Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 0 8 , 8 4 - 1 , 1 % Fr ét ta bl að ið /G et ty Im ag es Evran veikist gagnvart dal Evran veiktist gagnvart Bandaríkjadal eftir að fréttir bárust af því að Frakkar hefðu hafnað stjórnarskrá Evrópu- sambandsins í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Fást nú rúmlega 1,25 dalir fyrir hverju evru. ,,Þetta kemur ekki á óvart. Markaðurinn var undir þetta búinn, annars hefðu áhrifin orðið enn meiri“, sagði hag- fræðingurinn Jörg Krämer hjá HVB- bankanum. Frakkar höfnuðu s t j ó r n a r s k r á n n i nokkuð örugglega, rúm 55 prósent sögðu nei. Áður höfðu níu Evrópuríki samþykkt stjórnarskrána. - jsk EVRAN Veiktist gagnvart dalnum eftir að Frakkar höfnuðu stjórnarskrá Evr- ópusambandsins. HJALMAR SCHACHT FJÁR- MÁLARÁÐHERRA OG SEÐLA- BANKASTJÓRI Hitler hafði mikla trú á Schacht og skipaði hann í hin ýmsu embætti á vegum Þriðja ríkis- ins. Seinna sinnaðist þeim og Hitler vék Schacht úr þjónustu sinni. Borgarstjórn kínversku borgar- innar Sjanghæ hefur skipað embættismönnum sínum að stunda líkamsrækt. Borgar- stjórnin segir 15 prósent starfs- manna sinna of feita og aðeins 30 prósent þeirra í góðu líkamlegu formi. ,,Embættismenn borgarinnar eiga við offitu- og hjartavanda- mál að stríða, þeir eru líka með léleg lungu og hafa nánast ekkert jafnvægisskyn,“ sagði Zhang Chengyao, forsvarsmaður Xuhai-íþróttaskólans í Sjanghæ. Embættismönnunum er gert að mæta að minnsta kosti einu sinni í viku í líkamsrækt, að öðrum kosti fá þeir ekki greidd laun. Yfirmenn heilsugæslumála í Sjanghæ segja menn í viðskipta- geira borgarinnar eiga við svip- aðan vanda að stríða: ,,Þeir vinna mikið og hafa lítinn tíma. Flestir þeirra vita ekki einu sinni hvað líkamsrækt er,“ sagði Zhang og bætti við hneykslaður: ,,Mikill minnihluta þeirra á kort í líkamsræktarstöð“. - jsk SJANGHÆ. Yfirvöld í borginni segja embættismenn og fólk úr viðskiptalífinu vera í lélegu formi. Allt of feitir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.