Fréttablaðið - 01.06.2005, Síða 37

Fréttablaðið - 01.06.2005, Síða 37
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 9 NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöf Og Vodafone í síma 599 9500 eða sendu tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 2 85 72 05 /2 00 5 Það eru ekki endilega þeir stóru sem éta þá smáu. Breska fyrirtækið Day- car, sem hannar auka- hluti fyrir bíla, kynnti á dögunum nýjustu afurð sína: uppblásanlegt bílaklósett. Klósettið er blásið upp og í kringum það er blaðra sem blæs út þegar hún er tengd við sígarettukveikjara bíls- ins. Blaðran getur með góðu móti hýst tvo. Talsmaður fyrirtæk- isins segir klósettið hannað fyrir fjölskyldur með börn en henta ekki síður fyrir fólk með meltingarsjúkdóma: „Í fyrstu var þetta ætlað barnafjölskyldum en eftirspurnin er ekki minni frá fólki með melt- ingarsjúkdóma“. Þegar ekki er verið að nota klósettið má brjóta það saman og vegur það þá ekki nema átta kíló. Í klósettinu eru enn fremur efni sem gera það að verkum að lyktin úr því er aldrei vond: „Úr verður vel lyktandi vökvi, sem helst ferskur í allt að átta daga,“ sagði talsmað- urinn. Nú þegar hafa borist margar pantanir, meðal annars ein frá Ástralíu, en þarlendur maður hyggst gefa eiginkonu sinni eitt stykki í afmælisgjöf. Óli H. Þórðarson, formaður Umferðarráðs, segir hugmyndina bráðskemmtilega en vonast þó til þess að menn blási salernið upp úti í náttúrunni en ekki í bílnum sjálfum. Óli segir ekki æskilegt að menn geri þarfir sínar meðan á akstri stendur: „Ég hef alltaf hald- ið því fram að það sé full vinna að stjórna ökutæki og maður sem er að gera slíka hluti er ekki með hugann við aksturinn. Menn verða bara að halda í sér“. - jsk Uppblásanlegt bílaklósett Breskt fyrirtæki hefur hannað bílaklósett sérstaklega fyrir barnafjölskyldur og fólk með meltingartruflanir. ÞARF EKKI AÐ STOPPA LENGUR? Óli H. Þórðarson, for- maður Umferðarráðs, segir þó ekki æskilegt að menn geri þarfir sínar meðan á akstri stendur. Svissneska lyfjafyrirtækið Cytos segist vera nálægt því að þróa bóluefni gegn reykingum. Þriðjung allra dauðsfalla vegna krabba- meins má rekja til reykinga og því ljóst að slíkt bólu- efni gæti haft mikið að segja í baráttunni við sjúkdóminn. Þegar sígaretta er reykt berst nikótínið með blóðrásinni upp í heila og veldur skamm- vinnri sælutilfinningu. Það er þráin eftir því að endurupplifa þessa tilfinningu sem gerir fólk háð nikótíni. Hugmyndin með bóluefn- inu er að stöðva nikótín- ið áður en það kemst upp í heila og koma þannig í veg fyrir sælutil- f i n n i n g u n a . Verði komið í veg fyrir hana mun fólk ekki hafa neina löngun í aðra sígarettu, segja vísinda- mennirnir. Prófanir á lyfinu hafa gefið góða raun. 31 prósent þeirra sem tóku lyfið reykti ekki næstu tólf mánuði. Aðeins fimm prósent reykingafólks sem ekki fékk lyfið náðu þeim árangri. Reykingamenn gætu þó þurft að reiða sig á nikótíntyggjóið enn um sinn því ekki er búist við bóluefninu á markað fyrr en að fimm árum liðnum. -jsk Bóluefni gegn reykingum Svissneskt lyfjafyrirtæki segist hafa náð miklum árangri í prófunum með bóluefni gegn reykingum. REYKINGAR Svissneskir vísinda- menn segjast nálægt því að þróa bóluefni gegn reykingum. Þriðjung allra dauðs- falla af völdum krabbameins má rekja til reykinga. Lét hlera síma starfsmanna Stjórnarformaður dæmdur fyrir brot á friðhelgi einkalífsins. Neitar sakargiftum. Fyrrverandi stjórnarformaður finnska símafyrirtækisins Sonera, Kaj-Erik Relander, hefur verið fundinn sekur um að hafa látið hlera síma starfsmanna sinna. Hlaut hann sex mánaða skilorðsbundinn dóm. Samkvæmt finnskum lögum er einungis lögreglu heimilt að hlera síma að fenginni réttarheimild. Relander, sem starfaði hjá fyrirtækinu í sex mánuði árið 2001, neitaði sakargiftum og sagðist ein- ungis hafa reynt að komast að því hver hefði lekið upplýsingum úr fyrirtækinu. Sagði hann að verið væri að setja ,,slæmt fordæmi“ með dómnum og hyggst áfrýja. Upplýsingalekinn átti sér stað þegar Sonera sameinaðist sænska fyrirtækinu Telia og úr varð stærsta fjarskiptafyrirtæki á Norðurlöndum. Relander starfar nú fyrir fjár- magnsfyrirtæki í London. - jsk KAJ-ERIK RELANDER, FYRRUM STJÓRNARFORMAÐUR SONERA Dæmdur fyrir að hafa hlerað síma starfs- manna sinna. Hyggst áfrýja dómnum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.