Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 47
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 19
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Ástralska byggingafyrirtækið
Multiplex, sem sér um fram-
kvæmdir við nýjan knatt-
spyrnuleikvang Englendinga í
London, hefur gefið út yfirlýs-
ingu þess efnis að Wembley-
leikvangurinn verði tilbúinn í
tæka tíð fyrir úrslitaleik ensku
bikarkeppninnar á næsta ári.
Óttast var að framkvæmd-
inni kynni að seinka en fyrir-
tækið hefur nú þegar tapað um
6 milljörðum króna á verkefn-
inu.
Fyrirtækið hefur að undan-
förnu sagt sig frá öðrum verk-
efnum og virðist ætla að leggja
allt í sölurnar til þess að
Wembley-leikvangurinn verði
tilbúinn á réttum tíma. - jsk
Virgin græðir
Flugfélagið Virgin Atlantic jók
hagnað sinn á síðasta ári þrátt
fyrir að eldsneytiskostnaður ryki
upp úr öllu valdi. Hagnaður
fyrirtækisins var 8,5 milljarðar
króna og er það tæpum tveimur
milljörðum meira en árið 2003.
Eigandi fyrirtækisins, Sir
Richard Branson, telur þjónustu
við efnameiri viðskiptavini hafa
skipt sköpum: ,,Við bjóðum nú
upp á breiðustu rúmin í háloftun-
um, auk þess sem við erum með
nuddara á okkar snærum fyrir þá
farþega sem
þess óska“.
-jsk
SIR RICH-
ARD BRAN-
SON, EIG-
ANDI VIRGIN
Telur þjónustu
við efnameiri við-
skiptavini hafa
skipt sköpum í
betri afkomu fyrir-
tækisins.
Wembley til í tæka tíð
NÝI WEMBLEY-LEIKVANGURINN Verktakinn sem annast framkvæmdina hefur tapað
gríðarlegu fé en lofar þó að leikvangurinn verði tilbúinn fyrir bikarúrslitaleikinn á næsta ári.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
et
ty
Im
ag
es
Hagnaður EMI minnkar
Hagnaður útgáfurisans
EMI minnkaði um 13
prósent á fyrsta árs-
fjórðungi sé miðað við
sama tímabil í fyrra.
Hagnaður fyrirtækisins
var 16 milljarðar fyrir
skatt en var um 20 árið
áður.
Er aðallega um að
kenna seinkun á útgáfu
platna frá tveimur af
stærstu hljómsveitum
EMI, Gorillaz og Cold-
play. Nýja Gorillaz-
platan er nýkomin í hill-
ur verslana en Coldplay-
platan kemur ekki fyrr
en 6. júní.
Chris Martin, söngv-
ari Coldplay, hefur þó
lagt sitt af mörkum í umræðuna en hann segir að sér standi á sama um
afkomu fyrirtækisins: ,,Mér er alveg sama um EMI. Ég vil bara semja
tónlist,“ sagði hann við litla hrifningu forsvarsmanna fyrirtækisins.
Það kemur þó EMI til bjargar að sala á stafrænum varningi hefur
rúmlega þrefaldast. -jsk
NÝJI GORILLAZ-DISKURINN Hagnaður útgáfurisans
EMI minnkaði um 13 prósent vegna tafa á útgáfu hjá
stærstu nöfnum fyrirtækisins.