Fréttablaðið - 01.06.2005, Síða 62
Ekki svo lítið samfélag...
Útrásarvíkingarnir í íslensku viðskiptalífi hafa oft
talið það hafa gagnast Íslendingum að hér
sé návígi mikið. Þess vegna séu íslenskir
athafnamenn gjarnan óhræddir við að
gefa sig á tal við hina og þessa stórlaxa
í alþjóðlegum viðskiptum og láti hefð-
bundnar boðleiðir gjarnan lönd og
leið. Erlendis hefur mannfæðin
og nálægðin vakið nokkra at-
hygli, meðal annars í Dan-
mörku þar sem blaðamenn
hafa gert mikið úr því að fá-
mennið hér á landi sé svo
mikið að hver maður þurfi
að gegna nokkrum forstjóra-
stólum og að allir séu náskyld-
ir eða bestu vinir allra annarra. Á
ráðstefnu um fjárfestatengsl á
fimmtudaginn vildi Ármann Þor-
valdsson hjá KB banka gera heldur lítið úr þessu
og sagði að þetta væri allt saman orðum aukið og
sagði svo: „En þá vil ég kynna til sögunnar næsta
ræðumann. Það er Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnuífsins... og mágur minn.“
Útrásarformúla
Á ráðstefnunni voru flutt nokkur áhugaverð erindi.
Eitt af því sem sennilega hefur glatt þjóðarstoltið
í íslenskum peningamönnum mest var flutt af
Craig Daniel Leon. Hann fór miklum og að-
dáunarfullum orðum um útrás Íslendinga og
lýsti Norður-Evrópu sem „Stór-Íslandi“. Hann
setti auk þess fram stærðfræðilega tilgátu sem
skýra átti muninn á viðskiptalegri árásarhneigð
Íslendinga og Norðmanna. Samkvæmt kenn-
ingunni er árásarhneigð Íslendinga hin sama og
Norðmanns í öðru veldi, sem eru góðar fréttir svo
lengi sem árásarhneigð Norðmanna mælist ekki
milli núll og einn.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.041
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 337
Velta: 6.999 milljónir
+0,87%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Útboðslýsing fyrir Mosaic
Fashion var birt í Kauphöll Ís-
lands í gær en til stendur að skrá
félagið á markað.
Væntingavísitala Gallup
hækkaði í maí og er meðalstaða
vísitölunnar í ár hærri en áður
hefur þekkst. Þetta kom fram í
Morgunkorni Íslandsbanka.
Í Evrópu lækkar hins vegar til-
trú á mátt atvinnulífsins en vænt-
ingavísitala atvinnulífsins í Evrópu
lækkaði í maí og hefur ekki verið
lægri í tvö ár. Frá þessu var sagt í
Hálf fimm fréttum KB banka.
Markaðir í Evrópu lækkuðu í
gær. Í Lundúnum lækkaði FTSE
um 0,45 prósent og Dax í Þýska-
landi lækkaði um 0,44 prósent. Í
Japan hækkaði hins vegar Nikkei-
vísitalan um 0,99 prósent.
22 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Hagnaður tvöfaldast á
milli ára. Bankarnir
spáðu meiri hagnaði en
minni framlegð.
Hagnaður SÍF var 2,8 milljónir evra
á fyrsta ársfjórðungi og meira en
tvöfaldaðist frá sama tímabili í
fyrra. Er það þó nokkuð undir
meðaltalsspá bankanna, sem gerði
ráð fyrir að hagnaður SÍF yrði um
fjórar milljónir evra. Rekstrar-
hagnaður (EBITDA) var 8,4 milljón-
ir evra, sem er um þreföldun miðað
við sama ársfjórðung 2004. Fram-
legð sem hlutfall af sölutekjum var
7,4 prósent, sem er hærri tala en hjá
öllum bönkunum, en þeir höfðu
spáð 5,2-6,2 prósenta framlegð.
Allur samanburður á uppgjör-
um á milli ára er erfiður þar sem
miklar breytingar hafa orðið á
SÍF-samstæðunni. Félagið festi til
að mynda ekki kaup á franska
m a t v æ l a f r a m l e i ð a n d a n u m
Labeyrie Group fyrr en undir lok
síðasta árs. Einnig hafa orðið
miklar skipulagsbreytingar á
rekstrinum á þessu ári en félagið
er hætt hefðbundinni sölu- og
markaðsstarfsemi hér á landi.
Félagið velti um 114 milljónum
evra á tímabilinu og lækka sölu-
tekjur um fjórtán prósent á milli
tímabila. Framlegð eykst hins
vegar um tæp 27 prósent vegna
aðkomu Labeyrie Group.
Stjórnendur félagsins eru
ánægðir með uppgjörið og telja
rekstrarhagnað og hagnað eftir
skatta vera vel yfir áætlunum og
sölutekjur í samræmi við vænt-
ingar.
Efnahagur SÍF hefur breyst
töluvert frá áramótum. Eiginfjár-
hlutfallið er nú um 41 prósent.
Skammtímaskuldir samstæðunn-
ar lækka um meira en helming
frá áramótum og eru nú 98 millj-
ónir evra en langtímaskuldir eru
293 milljónir evra. Eigið fé er rétt
rúmlega 266 milljónir evra.
Helstu markaðssvæði SÍF eru
sem áður Frakkland og Spánn en
Bretland er um þessar mundir
mesta vaxtarsvæði samsteypunn-
ar.
- eþa
Peningaskápurinn…
Actavis 40,50 -0,49% ... Atorka 5,96 –
... Bakkavör 35,20 +0,57% ... Burðarás 14,70 +4,63% ... FL Group 14,45
+0,35% ... Flaga 4,93 -0,80% ... Íslandsbanki 13,35 +1,91% ... KB banki
528,00 +0,57% ... Kögun 61,00 -0,65% ... Landsbankinn 16,40 +1,23%
... Marel 56,30 -0,35% ... Og fjarskipti 4,05 -0,98% ... Samherji 12,10 –
... Straumur 11,80 – ... Össur 77,00 -
Hækkandi sól hjá SÍF
Burðarás 4,63%
Íslandsbanki 1,91%
Landsbankinn 1,23%
Og fjarskipti -0,98%
Flaga -0,80%
Kögun -0,65%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Ræst ver›ur út af öllum teigum kl. 14:00
Mæting kl. 13.00
Fyrirkomulag:
• Hámarksforgjöf
hjá körlum 24 en konum 28
Ver›laun:
• Vegleg ver›laun ver›a veitt fyrir
3 efstu sætin hjá körlum og konum
• Nándarver›laun á öllum
par 3 holum
• Teiggjafir handa öllum
Keppnisgjald er 5000 kr.
(Innifali› í keppnisgjaldi eru léttar veitingar)
Skráning er í síma:
896 1819 (Jóhann) og
862 5144 (Tryggvi) e›a
tryggvig@tv.is
Skrái› ykkur fyrir 1. júní
Stjörnublik ehf styrkir firótt
GOLFMÓT ÞRÓTTAR
föstudaginn 3. júní á Hólmsvelli í Leiru (Keflavík)
Latibær semur vi› Disney
Segir marga hafa verið
um hituna og vinnur að
sölu dreifingarréttar í
fleiri löndum.
Latibær hefur gert samning við
Disney-fjölmiðlafyrirtækið um
dreifingu á sjónvarpsþáttaröðinni á
Spáni, Ítalíu og í Frakklandi.
Ágúst Freyr Ingason, sem undir-
ritaði samninginn fyrir hönd Lata-
bæjar, segir Latabæ vera í þeirri öf-
undsverðu stöðu að geta valið þá að-
ila sem fyrirtækið vilji starfa með.
Hann segir að bitist hafi verið um
dreifingarréttinn og margir um hit-
una, þá sérstaklega í Frakklandi:
„Disney var einfaldlega besti kost-
urinn í löndunum þremur“.
Aðstandendur Latabæjar vinna
nú að því að koma þáttaröðinni á
dagskrá í sem flestum löndum, en
nú þegar sýna sjónvarpsstöðvar í
Bandaríkjunum, Kanada og Suður-
Ameríku þættina.
Fram undan er sumardagskráin
á bandarísku sjónvarpsstöðinni
Nickelodeon en þar verður Latibær
í aðalhlutverki: „Íþróttaálfurinn og
Solla stirða verða í hlutverki kynna
á Nickelodeon í sumar, auk þess
sem við höfum tekið upp tvöfaldan
þátt af Latabæ sem frumsýndur
verður á besta tíma,“ sagði Ágúst.
- jsk
FRÁ UNDIRRITUN SAMNINGSINS Lati-
bær hyggur á frekara strandhögg og verða
þættirnir fyrirferðarmiklir á dagskrá banda-
rísku stöðvarinnar Nickelodeon í sumar.
REKSTURINN BATNAR SÍF skilaði 2,8 milljónum evra á fyrsta fjórðungi ársins. Miklar breytingar hafa orðið á samstæðunni og rekstur-
inn er greinilega á uppleið eftir erfitt síðasta ár.
SPÁR OG AFKOMA SÍF
Hagnaður 2,8
Spá Íslandsbanka 4,2
Spá KB banka 2,8
Spá Landsbanka 4,9
Meðaltalsspá 4,0