Fréttablaðið - 01.06.2005, Qupperneq 68
1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Ég vaknaði í
morgun frekar
mygluð og
ógeðsleg og
skakklappaðist
fram í eldhús
og tók til
morgunmat og
lagaði te. Í ein-
h v e r j u m
skrítnum transi
greip ég svo mjólkur-
fernuna og hellti mjólkurslurk
beinustu leið ofan í saklausa mar-
melaðikrukkuna. Í sekúndubrot
áttaði ég mig ekki á því hvað ég
hefði gert heldur starði ég ofan í
og velti því fyrir mér hvað þetta
hvíta væri að gera ofan í mar-
melaðinu. Ég rankaði svo við mér
og skildi það að ég væri með
mjólkurfernuna í hendinni og te-
bollinn væri staðsettur annars
staðar á borðinu.
Ég á það til að vera utan við
mig. Ég set ostinn í örbylgjuna í
staðinn fyrir ísskápinn, ég skræli
kartöflur og set hýðið ofan í
smjördolluna og ég helli súrmjólk
ofan í glasið mitt í staðinn fyrir á
salatið (súrmjólk er einmitt
snilldar salatdressing sko).
Þegar ég var lítil átti ég það til
að henda skítugum þvotti ofan í
ruslið eða jafnvel klósettið í stað-
inn fyrir að henda honum í
óhreinatauið. Ég trúi ekki öðru en
að allir lendi í svona atvikum. Það
er kannski misjafnt hversu miklir
prófessorar leynast innra með
manni en við getum ekki verið kúl
alltaf. Það væri líka ekkert fynd-
ið.
Stundum er þetta eins og eitt-
hvert sambandsleysi. Hausinn
dettur út í smá tíma og allt í einu
stendur maður inni á baði og áttar
sig á því að eitt stykki sokkapar er
ofan í klósettinu. Ekki beinlínis
ákjósanlegur staður fyrir neitt
nema endurunninn mat og drykk
og aldrei skemmtilegt að fara í
veiðimannaleik við klósettbrún-
ina. „Uss! Ekki hræða sokkana,“
væri samt svolítið gaman að
segja. Ég er reyndar hætt að
henda dóti í klósettið og núna er
ég aðallega í því að hella mjólk
ofan í marmelaðikrukkur eða
hrasa um gangstéttarhellur. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
BORGHILDUR GUNNARSDÓTTIR HELDUR AÐ SMÁ PRÓFESSORSSKAMMTUR LEYNIST INNRA MEÐ ÖLLUM.
Ekki hræða sokkana!
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
-stærsti fjölmiðillinn
Mest lesna
bílablaðið
0
10
20
30
40
50
45%
29%
Karlar 20-40 ára
Tölurnar tala sínu máli. Mun fleiri lesa bílablað
Fréttablaðsins en Morgunblaðsins. Bílablað
Fréttablaðsins á laugardögum nýtur góðs af
smáauglýsingum og er vettvangur þeirra sem
eru að skoða og leita sér að nýjum bíl. Blaðið
hefur yfirburði í lestri hjá körlum á öllum aldri.
Í aldurshópi karla á aldrinum 20-40 ára lesa
58% fleiri bílablað Fréttablaðsins.
*Lestur á ,,Bílar ofl.” í laugardagsblaði Fréttablaðsins.
Lestur á ,,Bílar” í föstudagsblaði Morgunblaðsins.
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
*
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Elza! Varstu
raka á þér
lappirnar með
rakvélinni
minni?
Eh..já...
..jú..
Veistu
hvað
gerðist?
Nei,
Günther!
Sjáðu
þetta
hér?
Ég er vond
stelpa!
Já! Og nú
þarf að
refsa vondu
stelpunni!
Já, herreguð!
Refsaðu mér því
ég á það skilið!
Flýtasérflýtas-
érflýtasérflýtas-
érflýtasérflýtas-
érflýtasérflýtas-
érflýtasérflýtasér
flýtasérflýtasér-
flýtasér.
Heyrðu, ég þarf
að fara að koma
mér. Það er þátt-
ur sem byrjar í
sjónvarpinu klukk-
an 16.30.
Ertu
hrifin af
extreme-
sporti?
Hvernig tónlist fílar þú?
Algjörlega!
Ég spila aðallega
rokk og blús! Spilar þú á
gítar?
Stratocaster frá
‘74 með eikargripi
og tvöföldu
pikköppi.
Vááááá!
Í raun eigum við
margt sameiginlegt
Palli... ...fyrir utan það að
storka þyngdarlög-
málinu svona.
Olli minn
er frábær
kokkur.
Í hverju
sérhæfir
hann sig? Að missa mat.
Veiheiiiiiii! Það
er komin helgi.
Engin vinna.
Enginn
skóli.
Vei!
Ah! Zz
Ahh...
Ekkert annað að gera
en að slaka á!
Mér
leiðist.
Mér
líka.