Fréttablaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 78
38 1. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Lárétt: 2fold,6af, 8kjá,9rot,11ór, 12
fress,14skaka,16ve,17sal,18ota,20
nt,21nift.
Lóðrétt: 1tarf, 3ok,4ljóska,5dár, 7
forseti,10tek,13sas,15alta,16von,19
af.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VIRTUR KENNARI
SEGIST HAFA EYÐI-
LAGT LÍF SITT
MEÐ DÓPSMYGLI
Missti húsið, bílinn og
fjölskylduna á
þremur mánuðum
Á haustdögum flæktist í höfnina í
Þorlákshöfn gríðarstór fiskur
sem fyrst var talinn vera hákarl.
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós að um tunglfisk var að ræða,
öðru nafni guðlax, tveggja metra
langan furðufisk sem slæpst
hafði um langa leið til Íslands.
Fiskurinn er mjög sjaldgæfur
svo norðarlega en finnst víða
sunnar á hnettinum. Tunglfiskur-
inn er stærsti þekkti beinfiskur-
inn og verður afar þungur en
björgunarsveitarmenn fönguðu
fiskinn og komu honum á bryggj-
una. Þessi tiltekni fiskur var
tveir metrar að lengd og annað
eins ugga á milli.
Á síðustu mánuðum hafa upp-
stoppararnir Steinar Kristjánsson
og Ove Lundström stoppað fisk-
inn upp, en þetta mun vera eitt
stærsta verkefni í uppstoppun
sem unnið hefur verið hér á landi.
Báðir uppstoppararnir hafa hlotið
margvísleg verðlaun og viður-
kenningar fyrir verk sín, meðal
annars fékk Steinar önnur verð-
laun í heimsmeistarakeppni upp-
stoppara í vor. Á sjómannadaginn,
5. júní, verður opnuð sýning í Ráð-
húsi Ölfuss, Þorlákshöfn, þar sem
tunglfiskurinn skipar heiðurs-
sæti. Það er ókeypis inn og er gert
ráð fyrir að sýningin verði opin í
eitt til tvö ár. Á sýningunni verða
einnig ýmis önnur sjávardýr,
bæði þekktir fiskar og annað sem
sést sjaldnar, meðal annars trölla-
krabbi, lúsífer og sædjöfull. Af
tilefni opnunar mun Steinar Krist-
jánsson sýna ýmis dýr sem hann
hefur stoppað upp, meðal annars
verðlaunafuglinn úr heimsmeist-
arakeppninni. ■
TUNGLFISKURINN Hann lifir eingöngu á marglyttum og hrygnir meira
en nokkur annar fiskur.
Jakob Tómas Bullerjahn útskrifað-
ist nú á dögunum frá Menntaskól-
anum við Hamrahlíð með þvílíka
prýðiseinkunn að hann varð sem-
idúx sem og einingardúx sem þýðir
að hann kláraði flestar einingar eða
alls 177 talsins. Menntaskólinn er
honum kær og í skilnaðargjöf gaf
hann skólanum mynd af fallegustu
jöfnu stærðfræðinnar að eigin
sögn. „Þetta var nú bara til þess að
skilja eitthvað eftir sig. Ég er
búinn að vera þarna í fjögur ár,
kennararnir hafa deilt með mér
hluta af þekkingu sinni og ég vildi
gefa þeim eitthvað til baka,“ segir
Jakob.
Aðspurður hvers vegna þessi
tiltekna jafna teljist fallegri en
aðrar jöfnur stærðfræðinnar segir
hann: „Þessi jafna inniheldur
töluna einn, töluna núll, fallið e og
töluna pí. Þetta eru einstakar tölur
innan stærðfræðinnar og þegar
þær lenda allar saman í einni jöfnu
þykir það fagurt og einfalt. Þetta er
grafíkverk sem ég gerði í mynd-
listartíma, kennarinn hafði nú sín-
ar efasemdir um að þessi jafna
gæti endað sem falleg mynd en hún
kom bara nokkuð vel út.“
Stærðfræði er Jakobi augljós-
lega nokkuð hugleikin og tekur
hann undir það. „Jú stærðfræði er
eitt uppáhaldsfagið mitt og ég
stefni á fræðilega eðlisfræði en
auk þess eiga ljósmyndun, mynd-
list og leiklist stóran hluta af
mínum huga.“
Jakob var forseti nemenda-
félags MH í vetur og þar sem
margar skyldur felast í því starfi
hlýtur hann að hafa skipulagt tíma
sinn vel. „ Forsetastarfið er ágætis
starf fyrir alla sem þola smá álag
því nauðsynlegt er að vera til stað-
ar fyrir aðra í nemendafélaginu.
Það er einmitt lykilatriði þegar
maður hefur mikið að gera, að
skipuleggja sig vel. Það sem ég
legg samt alltaf mikla áherslu á er
að hafa smá tíma fyrir sjálfan mig,
það er alveg nauðsynlegt.“
hilda@frettabladid.is
...fær Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir, sem var endurkjörin for-
maður Skáksambands Íslands og
er á leið í brúðkaup Gary
Kaspararov.
HRÓSIÐ
Lárétt: 2 jörð, 6 frá, 8 gera gælur við, 9
dá, 11 forsetinn, 12 karldýr, 14 strokka,
16 einkennisstafir, 17 herbergi, 18 beina
að, 20 samhljóðar, 21 kona.
Lóðrétt: 1 naut, 3 byrði, 4 ljós yfirlitum, 5
spé, 7 þjóðhöfðingi, 10 nem, 13 flugfé-
lag, 15 svæði í Noregi, 16 væntingar, 19
frá.
LAUSN:
Uppstoppa›ur tunglfiskur til s‡nis
NEMANDI Í MH: GAF SKÓLANUM ÓVENJULEGA SKILNAÐARGJÖF
Fallegasta jafnan
JAKOB TÓMAS BULLERJAHN Hann útskrifaðist með prýði nú á dögunum og gaf skólanum óvenjulega skilnaðargjöf.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
Forseti Indlands, dr. A.P.J. AbdulKalam, sem hóf opinbera heimsókn
sína á Íslandi í fyrradag, byrjaði dvölina
með einkasamkvæmi á Nordica á
sunnudagskvöld. Þangað bauð hann til
sín rjómanum af íslenskum vísinda- og
fræðimönnum, en þar nutu gestrisni
Indlandsforseta Kári Stefánsson,
Hjálmar Ragnarsson, Herdís Þorgeirs-
dóttir, Kristín Ingvarsdóttir, Guðrún Pét-
ursdóttir, Árný Sveinbjörnsdóttir, Sigríð-
ur Dúna Kristmundsóttir, Jóhann Sigur-
jónsson, Gísli Sigurðsson, Ásgeir Mar-
geirsson, Halldór Guðmundsson, Örn-
ólfur Thorsson og Ólafur Harðarson.
Blaðið sem Karl Garðarsson ritstýrirbirtir leiðara sína ekki undir nafni
höfunda. Blaðið fer því sömu leið og
Morgunblaðið í þessum efnum, þótt
skrifin séu ekki eins merking-
arþrungin. Heilagur andi
Morgunblaðsins er nánast
persónugerður og því víst
að andi ritstjórans, Styrmis
Gunnarssonar, svífur jafnan
yfir vötnum þótt aðrir
skrifi leiðara Morgun-
blaðsins. Ómerkt leiðaraskrif Blaðsins
hafa orðið til þess að flestir leiðarar
þess eru eignaðir hægrisinnaða álits-
gjafanum Andrési Magnússyni sem
starfar á Blaðinu. Þetta á ekki síst við
þegar Blaðið beinir
spjótum sínum að Sam-
fylkingunni og R-listan-
um. Andrés mun þó ekki
eiga heiðurinn af öllum
herlegheitunum og sá
kvittur er kominn á kreik
að Sigurður G. Guð-
jónsson, stjórnarfor-
maður útgáfufélags Blaðsins og einn
eigenda þess, láti stundum til sín taka
á þessum vettvangi og að hann hafi til
að mynda skrifað leiðara um Samfylk-
inguna. Þá hefur einnig sést til Sigurð-
ar með myndavél og því talið líklegt að
hann leggi blaðinu einnig til myndefni.
Standist þetta er Sigurður greinilega
jafn alþýðlegur og hann var þegar
hann stjórnaði Stöð 2 og gengur í hin
ýmsu störf á Blaðinu.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Eitt stærsta heilbrigðismálið
Nei, ég hélt hann nú
ekki beinlínis hátíðlegan
því ég reyki ekki og ég
bý á reyklausu heimili,
sem ég er mjög lukku-
leg með. Hins vegar er
ég mjög hrifin af því að
við skulum vera með
reyklausan dag og ég lít
svo á að þetta sé eitt
stærsta heilbrigðismálið,
að fá fólk til að hætta
að reykja og tryggja rétt
þeirra sem reyklausir
eru. Einnig finnst mér
gríðarlega mikilvægt að
börn upplifi reyklaust
umhverfi.
Hefur engin áhrif á mig
Nei, það gerði ég nú ekki.
Ég reykti ekkert minna á
reyklausa daginn og held-
ur ekkert meira. Ég reykti
bara eins og vanalega.
Þessi reyklausi dagur
hefur engin áhrif á mig og
ég er alveg á móti því að
banna reykingar. Aðalat-
riðið er að fólk á að fá að
velja hvort það vill. Fólk á
að hafa frelsi til þess að
vera ekki í reyk en einnig
á það að eiga kost á að
vera í reyk. Alveg eins og
hvort maður kaupir kók
eða pepsi, ríkið á ekki að
velja fyrir mann.
Hef aldrei reykt
Ég hef nú aldrei reykt á æv-
inni svo ég hélt hann ekkert
hátíðlegan. En ég vona svo
sannarlega að þessi dagur
verði annað hvort áminning
eða hvatning til þeirra sem
reykja og vilja hætta því.
Þetta hefur stundum áhrif á
mig í mínu starfi því þegar
staðirnir eru litlir þá setur
maður fötin sín beint í
þvottavélina þegar heim er
komið. Ég er ekki hlynntur
reykingabanni en mér þætti
samt afskaplega huggulegt
að geta farið inn á reyklaust
veitingahús af og til. Ég vil
að það val sé fyrir hendi.
ÞRÍR SPURÐIR
Rannveig Guðmundsdóttir,
þingkona Samfylkingarinnar.
Bjarni Arason, söngvari. Páll Óskar Hjálmtýsson,
söngvari.
HÉLSTU REYKLAUSA DAGINN HÁTÍÐLEGAN?