Tíminn - 17.05.1975, Side 4
4
I'lMIW
Laugardagur 17. mai 1975,
Eiga Sophia Loren og Carlo Ponti í ein
hverjum erfiðleikum?
Slúðurdálkahöfundar víða um æsifrétta sinna i sambandi við
heim sáu fram á eyðileggingu hjónamissætti Carlos Ponti og
Sophiu Loren, er þau birtust ný-
lega saman i næturklúbbi i
Paris, og virtust hin hamingju-
sömustu. Undanfarið hafði mik-
ið verið skrifað i' blöð i Frakk-
landi um það, að Sophia Loren
væri flutt með drengina sina til
Parisar, en eiginmaður léki
lausum hala i Róm og sæist þar
oft með ljóshærðri fegurðardis.
En þama sáu menn það svo ekki
var um villzt, að þau leiddust,
brostu hvort til annars og
skemmtu sér hið bezta á nætur-
klúbbnum. Carlo Ponto hefur
tekið að sér að stjórna stórmynd
um Cyrus hinn mikla, sem tal-
inn er stofnandi Persarikis.
Carlo og Sophia voru að halda
það hátiðlegt þarna i nætur-
Ídúbbnum i Paris, að gengið
hafði verið frá samningum um
stjórn hans á þessari kvikmynd,
og einnig var verið að halda upp
á það, að ráðið var að Sophia á
að leika aðalkvenhlutverkið,
sem er Roxane drottning. Það
er keisarinn i íran, sem hefur
haft forgöngu um kvikmyndun
þessa um þjóðhetju Persa.
t
★
★
Eina
kappaksturs-
konan í Evrópu
Stúlkan hér á myndinni er tæp-
lega tvitug. Hún heitir Inez
Muhle og er frá Hamborg, og
sögð eina konan i Evrópu, sem
stundar kappakstur að ein-
hverju ráði. Inez var aðeins
fjórtán ára gömul, þegar hún
fékk mikinn áhuga á bifreiðum.
Þá þegar stalst hún til þess að
taka bil föður sins og aka hon-
um, en þegar hún varð 18 ára
gömul i júni 1973, fékk hún öku-
skirteini, og tveimur mánuðum
siðar ók hún á Ford Escort i
Núrburgring, og tók þar með i
fyrsta skipti þátt i kappakstri.
Eftir að hafa tekið þátt i kapp-
akstri 10 sinnum i Evrópu
mun hún i nóvember næstkom-
andi halda til Mexikó og dvelj-
ast þar i sex vikur, og taka þar
þátt i keppni. Þar mun hún aka
fólksvögnum, en Volkswagen-
verksmiðjurnar hafa lagt mikið
kapp á að fá hana til þess að
taka þátt i kappakstri á þeirra
vegum og i bilumfrá verksmiðj-
unum.