Tíminn - 17.05.1975, Page 10

Tíminn - 17.05.1975, Page 10
10 TIMINN Laugardagur 17. mai 1975. — Ég var í Saigon í byrj- un febrúar, og þá var ekki hægt aö merkja neinn óróa i fólki/ mér fannst ósköp líkt andrúmsloftið í Saigon þá og er í Bangkok núna. Rauöu khmerarnir eru mjög farnir aö láta að sér kveða í norðurhéruðum Taílands, og það fer fyrir Taílandi alveg eins og Kambódíu og Víetnam. Það gengur bara fljótar fyrir sig i Taílandi, og því verður lokið innan þriggja — fjögurra ára. Þaö er ungur Islendingur, Einar Bjarnason, sem þannig kemst aö oröi, er viö hittum hann aö máli fyrir nokkrum dögum heima hjá móöur hans. Einar starfar hjá þýzkri ferðaskrif- stofu, og hefur verið undanfarna 7 mánuði að störfum i Taílandi, en skrapp hingað heim i byrjun rign- ingartlmans, áöur en hann hverf- ur að störfum sinum i Afriku, en þangaö liggur leiðin næst. Svo aftur til Tailands i haust. — Voru menn ekkert farnir að hugsa þá um aö reyna aö komast i burtu frá Saigon? — Nei, siöur en svo. Þá var allt rólegt. Þaö var rétt eins og það rynni allt i einu upp fyrir fólki, aö Saigon myndi falla, og þá voru öll brögð reynd til þess að komast út. Og þá var ekki veriö aö reyna að komast á brott með neitt af eigum sinum, heldur hugsaöi hver um að bjarga sér. Margir Bandarikjamenn hafa búið I Saigon um margra ára skeið. Þeir hafa átt sinar vinkonur i Saigon en aldrei hirt um að gift- ast þeim. Það hefur ekki verið nauðsynlegt. En svo i marz-byrj- un varð mönnum ljóst, að barizt yrði i Saigon, og þá var annað uppi á tengingnum. Þá fóru þeir til bandariska sendiráösins til þess að reyna að koma þessum vinkonum sinum úr landinu til Bandarikjanna. Margir kunn- ingjar minir I Tailandi eru giftir konum frá Vietnam, og þessar konur áttu margar ættingja I Saigon. Þá var fariö að vinna að þvi, að koma ættingjum þeirra úr landi, og það var hægt um tima með þvi að borga 1300 dollara á nef. En þetta s'tóð bara i marz. Al- veg lokað fyrir þetta strax I byrj- un april. Ég þekki margt fólk, sem bjó I Kambódiu, og þegar ég fór á sunnudaginn, þá hitti ég starfs- mann þýzka sendiráðsins, sem kom frá Saigon. Hann gat ekki tekið neitt með sér, ekki einu sinni tekið út úr bankabókinni sinni. Hann varð bara að taka sig upp fyrirvaralaustmeð fjölskyld- una og fara. Nú, það er margt flóttafólk eftir i Kambódiu, og þeir flóttamenn, sem þegar eru komnir til Tai- lands, þeir fást ekki til að segja neitt, hvað er um að vera, hvað hefur gerzt, ekki fyrr en allir eru komnir. — En það hefur gengið mikið á þarna? — Þaö hefur veriö voðalegt. Skammt frá þar sem ég var i Tai landi við Siamsflóann er herstöð, Tapaó, og þangað komu flótta- mennirnir. Þetta eru svona 60 kilómetra frá landamærum Kambódiu. Við urðum mjög mik- ið varir við flóttamannastraum- inn. Þeir komu á skipum frá Saigon. Þau voru ekki öll merki- legar fleytur, en drekkhlaðin. Einnig voru þeir með Galaxy-vél- ar, þið hafið sjálfsagt heyrt um þá, sem hrapaði meö 390 flótta- menn mestmegnis börn, — þessar Galaxy-vélar voru notaðar til að fljúga með flóttamenn yfir til Tai- lands. Þarna i U Tapaó er fólk svo i flóttamannabúöum, eftir að þaö hefur fengið nauösynlegar sprautur. Fólkinu er holað þarna U Tapao-lögreglan beinir bifreiðum með flóttafólki frá Kambódfu um göturnar. Myndina tók Einar út um bilrúðu. Takið eftir konunni næst bifreiðinni til hægri og tveim konum hægra megin. Fólkið makar andlit sin hvitum lit, þegar það stendur frammi fyrir einhverju, sem þvf finnst yfirþyrmandi. „Það verður nókvæm- lega sama sagan í Taflandi og í Kam- bódíu og Víetnam..." BH ræðir við Einar Bjarnason, sem starfar f Bangkok niður, og þaö er ekki mikið, sem er gert fyrir þaö. Þarna er algert neyðarástand. Ég kom þangað fyrir viku. Það var hörmulegt að sjá ástandið þarna. — Er nokkurs ótta fariö að gæta hjá útlendingum I Tailandi? — Amerikanar eru orðnir ótta- slegnir. Þeir eru farnir að taka saman föggur sinar. Þeir eru þarna eitthvað um 35 þúsund, sem hafa ekkert með hersveitirn- ar að gera, en eru þarna i sam- bandi viö ýms fyrirtæki og annað. Aörir eru tiltölulega rólegir, eins og t.d. Hollendingar. Þeir hafa allt sitt þarna, eftir að þeir flúðu frá Indónesiu, og þeir verða þarna áfram. Hversu lengi veit enginn, það veröur erfitt að kom- ast til Tailands eftir 3—4 ár. — Bandarikjamenn eru þá með herstöðvar i Tailandi? — Bandarikjamenn eru búnir að vera i U Tapao I Tailandi siðan þeir komu til Vietnam. Þeir höfðu gert sérstaka samninga um varn- ir landsins, svipað og þeir hafa gert hér fyrir NATO, byggja upp flugvelli og annað þvi um likt til að verja Tailand. Nú er tailenska stjórnin ekkert hrifin af þvi að hafa þá lengur i landinu, þvi að það hefur sýnt sig, að þar sem þeir eru, þar er meira reynt til að komast yfir landið. — Þessi tengsl hafa Banda- rikjamenn reynt að efla eftir mætti? — Já, það er von. Kommún- isminn breiðir úr sér um allt, hvort sem það er nú betra eða Fiskiskip fluttu ærið margt flóttamanna tll Thailands. Svona fleytur komu með um 300 manns I hverri ferð verra. Kambódia er ákaflega fá- tækt land. Tailand er aftur á móti þriðja rikasta landið I Suð-austur Asiu, og kommúnistar hafa mik- inn hug á þvi lándi. — Og þess er farið að gæta verulega? — Já, viku áður en ég kom þangað i október 1973 urðu stjórn- arskipti eftir að skotið hafði verið á mannfjölda. Kansún forsætis- ráðherra hafði þá rikt i 26 ár, og það var mikil spillingarstjórn. Faðir hans var fjármálaráð- herra, og tengdafaðir hans var utanrikismálaráðherra. Þetta var sem sagt ein klika, sem kúg- aði gjörsamlega þá, sem undir þeim störfuðu. Óeirðirnar byrj- uðu þannig, að stúdentaleiðtogar hurfu, og vissi enginn hvað af þeim varð. Af þvi magnaðist ólga, sem brauzt út á útimarkaði, sem haldinn var fyrir framan kon- ungshöllina. Það var sunnudagur, og þarna hafa verið 70—90 þúsund manns eins og venjulega. Nú, það var farið aö kveikja i, og allt i einu birtast þyrlur og skriðdrekar og það er skotiö á mannfjöldann. Þetta mun hafa veriö siðasta skipun forsætisráð- herrans, áður en hann flúði úr landi. Þá tók rektor háskólans við, og það hefur veriö tiltölulega rólegt i landinu siöan. — Og þessi stjórn er vinsæl? — Já, en þetta eru háskóla- kennarar, ekki stjórnmálamenn, sem i henni sitja, heiðarlegir og góðviljaöir menn, en svo er annað mál, hvernig þeim tekst til við stjórnmálaklækina. Einn daginn þegar dómsmála- ráðherrann kom til vinnu sinnar lá ávisun á borðinu hans upp á fjögur þúsund bat — þrjár og hálfa milljón Isl. króna. Og þegar hann spurði fyrir hvað þessi ávis- un væri, þá var honum sagt, að þetta væru hans prósentur af rikishappdrættinu fyrir mánuð- inn. Fyrirrennari hans hafði haft þennan háttinn á. Forsætisráð- herrann fyrrverandi var búinn aö koma nógum peningum úr landi, I fasteignir I New York, i Shanghai og einhvers staðar i Evrópu. Hann kom aftur heim i desember. Það voru kosningar i janúar. Honum var smyglað inn I landið, en hann fór aftur tveim dögum seinna. Það átti að leiða hann fyrir rétt, það átti að drepa hann og ég veit ekki hvað. Hann leitaði hælis i sendiráðinu i Singapore og situr þar enn. En spillingin er mikil i Tailandi. Það er hægt að fá allt með mútum. Tveir kunningj- ar minir vildu ekki fara i herinn. Þeir komust undan með þvi að borga 2500 bat hvor til læknisins. — En þess er farið að gæta i Tailandi, að það muni vera næsta landið, sem kommúnistar snúa sér aö? — Já, það er búið að kalla i her- inn alla Taibúa, sem ekki hafa gengt herþjónustu, og orðnir eru tuttugu ára. Það gerðist 6. marz. — Hvað heita skæruliðarnir i Taílandi? — Rauðu Khmerarnir eru þar lika. Þeir eru i öllum þessum löndum, og þeir vinna saman. Það hefur alltaf verið sami hátt- urinn á. Það er tekið fólk frá fá- tækustu hlutum landanna, — og það er geysimikil fátækt i nyrztu héruðum Tailands, — og þetta fólk er menntað og þjálfað i Suður-Kina, núna kannski i Kam- bódlu, og þjálfunin er góð. Þegar það snýr aftur, þá er það alger- lega sannfært um, að Tailand verði að vera kommúniskt, alveg eins og Kambódia er orðin. Þvi var alltaf haldið fram áður,. að Kambódia myndi aldrei verða kommúnisk. Það segja Taibúar I dag, að Tailand verði aldrei kommúniskt. En það er bara byrjað nákvæmlega það sama þar og gerðist i Kambódiu. — Háttar svipað til I norður- héruðum Tailands og t.d. i Kam- bódiu? — Já, þessu svipar mikið sam-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.