Tíminn - 17.05.1975, Qupperneq 17
Laugardagur 17. mai 1975.
TÍMINN
17
Nemendur og foreldrar skoða sýningu á afrakstri vetrarstarfsins I Reykjadai. — Æskilegt væri að for-
eldrar tækju sem mestan þátt i þjálfun barnanna.
Tlmamynd Róbert
Enn allt í óvissu um framtíð
fatlaðra og lamaðra nem-
enda innan skólaskyldu
Reykjadalsskóla sagt upp í sjötta sinn
SJ—Reykjavik — Lfkamleg og
andleg þjálfun þarf að haldast i
hendur, og á henni má helzt aldrei
verða hlé, hvorki vetur né sumar.
Það er skoðun Svanhildar
Svavarsdóttur skólastjóra i
Reykjadal, þar sem lamaðir og
fatlaðir nemendur á skyldunáms-
stigi stunda nám, og samstarfs-
fólks hennar.
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra stofnaði skólann i Reykja-
dal, sem á föstudag var sagt upp i
sjötta sinn, Siðastliðin tvö ár
hefur rikiðrekið skólann, og rní er
allt I óvissu um framtið hans, þar
sem nú er rikjandi skoðun að fötl-
uð börn eigi að vera og hljóta sina
menntun með heilbrigöum jafn-
öldrum. — Það er lika gott og
'rétt, . aðeins ef skólarnir væru
þannig byggðir , og aðstaða væri
fyrir hendi, aö það væri hægt,
sagði Svanhildur. Fæstir skólar
eru þannig úr garði gerðir að auð-
velt sé um vik að taka þangaö
fatlaða nemendur.
Fatlaðir nemendur stunduðu
nám I Hliðaskóla i vetur og fjöl-
fatlaðir i Kjarvalshúsi á Seltjarn-
arnesi, og i ráði er að auka starf-
semina I Reykjavik á næsta vetri.
— A hverju ári hefur verið
óvissa um framtið skólans, sagði
Svanhildur, og það hefur ekki góð
áhrif á nemendurna, sem eru að
leitast við að verða meira sjálf-
bjarga og gerast virkir þátttak-
endur i þjóðfélaginu.
Sýning á vinnu nemenda var i
Reykjadal við skólaslitin, og var
ótrúlegt að sjá, hve mikið þeir
hafa gert, sumir eftir aðeins vetr-
ar skólavist. Tiu börn og ungling-
ar voru I Reykjadal I vetur.
Nemendur taka þar barnapróf og
unglingapróf, þegar nægilegri
þekkingu og þjálfun og þroska er
náð. En að þeim áföngum loknum
er tilfinnanlegur skortur á að-
stöðu til frekara náms og/eða at-
vinnu fyrir ungt fatlað fólk. —
Strax og heyrist að um fötlun er
að ræða, lokast flestar dyr.
Þó að skólinn fyrir fatlaða og
lamaða hafi starfaö I sex ár, eru
þess dæmi að börnum og ungling-
um, sem á slikan skóla þyrftu að
fara, er haldið heima, og þau fá
ekki uppörvun og þjálfun sem
skyldi. Sumpart er þetta eflaust
Spdnarför til
viðræðna um
innflutningsbannið
á saltfiski
af vanþekkingu, en ef til vill einn-
ig að nokkru vegna þess að þjálf-
un lamaöra og fatlaöra er tima-
frek. Aðstandendur hjálpa börn-
unum við daglegar venjur, I mis-
skilinni ástúð, eða vegna þess að
það er fljótlegra he.ldur en aö
kenna þeim. — Þvi miður er það
svo, að það eru börn hér sem
kviða fyrir að fara heim núna,
sagði Svanhildur. — Ég sit bara,
segja þau, og er ekkert látin gera.
Sjúkraþjálfari vann með börn-
unum I Reykjahlið tvisvar I viku I
vetur, og kennararnir önnuðust
samskonar þjálfun hina dagana
samkvæmt fyrirmælum hans, en
þetta starf var nátengt öðru námi
barnanna. Að sögn Svanhildar
ber sjúkraþjálfun aðeins fullan
árangur, ef hún er tengd starfi og
námi nemendanna. Mjög væri
nauðsynlegt að þessari þjálfun
væri haldiö áfram yfir sumarið,
þvi algengt er að nemendurnir
hafi týnt miklu niður, þegar þeir
koma I skólann að hausti eftir
sumarleyfi. Sumardvalarheimili
fyrir lömuð og fötluð börn er I
Reykjahlið. Þar starfar sjúkra-
þjálfari, en enginn kennari eða
leiðtogi, sem skipuleggur nám
eða starf barnanna I tengslum við
likamlegu þjálfunina.
rafmagns-
handverkfæri
SJ-Reykjavík.l vikunni var fyrir-
varalaust stöðvaður innflutning-
ur á saltfiski til Spánar. I fyrra
seldum við 8000 tonn af blaut-
verkuðum saltfiski til Spánar, og
samið hafði verið um sölu á 6000
tonnum á þessu ári, en þeir samn-
ingar miðast við innflutningsleyfi
frá stjörnvöldum. Skip héðan
með 1500-1600 tonn af blautverk-
uðum saltfiski, annan farminn á
þessu ári, er á leiðinni til Spánar,
en ekki er innflutningsleyfi fyrir
nema tæpum helmingi af þeim
farmi, og fer hinn hlutinn þvi i fri-
höfn. Tómas Þorvaldsson, stjórn-
arformaður i Félagi Islenzkra
fiskframleiöenda, sagði i gær, að
haft hefði verið samband við for-
sætisráðherra og viðskiptaráð-
herra Spánar vegna þessa máls,
og væntanlega færu fulltrúi fisk-
framleiðenda og ambassador Is-
lands á Spáni, Niels P. Sigurðs-
son, til viðræðna um þessi mál.
— Við vitum ekki nánar um
þessa stöðvun eða hvað hún varir
lengi, sagði Tómas Þorvaldsson,
en hún getur haft alvarleg áhrif á
útflutning okkar.
Landnám ríkisins
óskar að ráða mann frá næstu mánaða-
mótum til verkstjórnar, við grasköggla-
verksmiðju i Flatey i Austur-Skaftafells-
sýslu. Um framtiðarstarf gæti verið að
ræða. Upplýsingar á venjulegum skrif-
stofutima i sima 25-444.
fást um allt land
□ ÞOR HF
REYKJAVIK SKÓLAVOROUSTÍG 25
Orðsending til
útvarpsins
VEGNA úvarpsþáttar Páls
Heiðars Jónssonar I útvarpi á
fimmtudagskvöldið vil ég lýsa
óánægju minni yfir þvi, hvað
sjómenn, þar staddir, fengu
litinn tima til spurninga, auk
þess sem stöðvaðar voru
spurningar frá þeim, saman-
ber Markús Þorgeirsson, sjó-
mann i Hafnarfirði, sem al-
mennt er viðurkenndur fyrir
drengskap og stuðning við
málefni sjómanna I sinni tog-
aratíð. Mega þeir minnast
þess, sem börðust fyrir vöku-
lögum á togurum vitt og breitt
um landið.
Þá vil ég koma á framfæri
þeirri ósk, að Vilmundur
Gylfason stýri þætti i Kast-
ljósi, þar sem sjómenn einir
komi fram, svo sem Markús
Þorgeirsson, Hannes Hafstein
eða annar fulltrúi Slysavarna-
félagsins, og vélstjórar og
loftskeytamenn i verkfalli, og
geri grein fyrir þeirri hættu,
sem væri samfara manna-
fækkun á stóru togurunum.
Sigurður Guðmundsson,
togarasjómaður.
Rútuhílstjórar
Vill ráða rútubilstjóra. Helzt vana, strax.
Upplýsingar i sima 2-72-84 eða 1-43-81 frá
kl. 13—18.
Húsmæðraskólinn
ó Hallormsstað
auglýsir
Þriggja mánaða hússtjórnarnámskeið
hefst 17. september 1975.
Kennslugreinar: Matreiðsla (m.a. haust-
störfin), ræsting, hannyrðir. — Valgrein:
Vefnaður.
Skólastjóri.
Kennarar —
Söngkennarar
Fjóra kennara vantar við Barnaskólann á
Akranesi, þar af einn forskólakennara
(mætti vera fóstra).
Auk þess vantar söngkennara i fullt starf
við skólann.
Umsóknarfrestur er til 10. júni.
Upplýsingar gefa skólastjórinn, Njáll
Guðmundsson simi 93-1452 og formaður
fræðsluráðs, Þorvaldur Þorvaldsson simi
93-1408.
Fræðsluráð Akraness.
Húsbyggjendur —
EINANGRUNARPLAST
Gctum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavlkursvæðið með stuttum fyrir-
vara.'
Afhending á byggingarstað.
HAGKVÆM VERÐ.
GREIÐSLUSKILMALAR
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Simi 93-7370
Helgar- og kvöidsimi 93-7355