Tíminn - 17.05.1975, Qupperneq 24
24
TÍMINN
Laugardagur 17. mai 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
23
svefn. Ef við komum góðu skipulagi á þetta, getum við
lagt af stað í sólarupprás.
— Nei, — í kvöld.
— Hvað sagðir þú?
— Við leggjum strax af stað.
— Myrkrið skellur á eftir klukkustund. Heyrðir þú
ekki þegar ég sagði það? Það verður ekkert tunglskin í
nótt. Við erum margir saman. Ef við dreifum okkur,
týnum við hver öðrum í myrkrinu.
Teasle hafði átt von á þessu. Hann var í upphafi viss
um að Orval myndi vilja bíða til morguns. Það var
skynsamlegast. Aðeins einn galli var við þá skynsemi.
Hann gat ekki beðið svo lengi.
— Hvað sem tunglskininu líður, verðum við að hef ja
eftirförina strax, sagði hann við Orval. — Við erum búnir
að elta hann út fyrir lögsagnarumdæmið. Eina leiðin til
að tryggja að við náum honum er sú, að halda eftirför-
inni áfram. Ef ég bíð til morguns — verð ég að fá ríkis-
lögreglunni málið í hendur.
— Láttu þá taka við. Þetta er óþverra verk hvort sem
er.
— Nei.
— Hvaða máli skiptir það? Rikislögreglan kemur á
augabragði. Strax og landeigandinn hringir í hana út af
öllum bílunum, sem djöf last um akrana hans. Þú verður
hvort eð er að láta þá taka við.
— Ef ég verð horf inn inn í skógana áður en þeir koma.
Betra hefði veriðfyrir Teasle að tel ja Orval hughvarf án
þess að menn hans heyrðu til. Ef hann leggði ekki hart að
Orval myndi hann lækka í áliti í augum manna sinna. En
ef hann gengi of langt myndi Orval aðeins fórna höndum
og fara heim.
Næstu orð Orvals bættu lítið um: Nei, Will. Ég verð þvi
miður að valda þér vonbrigðum. Ég vil margt fyrir þig
gera. En hæðirnareru erfiðar yf irferðar, jafnvel að degi
til. Ég fer ekki með hundana í blinding jaleik, til þess eins
að þóknast ákafa þínum í þessu máli.
— Ég bið ekki um neinn blindingjaleik. Ég bið þig að-
eins að koma með mér með hundana. Um leið og þér
finnst orðið of dimmt getum við hætt og fundið okkur
áningarstað. Þá er eftirförin þó hafin. Komdu nú. Við
höf um áður átt náttstað undir berum himni. Þetta verð-
ur eins og þegar pabbi var á lífi.
Orval stundi og horfði á skóginn umhverfis sig. Það
hafði enn skyggt og nú var orðið svalara. Sérðu ekki
hvað þetta er fáránlegt? Við höf um engan útbúnað til að
elta hann. Við erum matarlausir og án riffla....
— Singleton verður eftir og sækir það sem okkur vant-
ar. Við látum hann fá einn af hundunum þínum. Þá getur
hann f undið áningarstað okkar á morgun. Ég hef nóg af
lögreglumönnum til að sinna bænum. Singleton getur
tekið með sér f jóra menn á morgun. Ég á kunningja á
f lugvellinum. Hann ætlar að lána okkur þyrlu, sem get-
ur f logið hingað með allt, sem okkur vantar. Hún getur
líka flogið á undan okkur og svipast um eftir piltinum.
Þú ert það eina, sem getur taf ið okkur. Ég bið þig um
þetta. Viltu hjálpa okkur?
Orval horfði á fætur sér og rótaði með öðru stígvélinu i
moldinni.
— Ég hef nauman tíma, Orval. Ef ég kemst þarna upp-
eftir nógu f Ijótt, verður ríkislögreglan að fela mér stjórr
ina. Þeir munu aðstoða mig, setja lögreglubíla við alla
aðalvegi f rá hæðunum og láta okkur um að elta hann yf ir
hálendið. En ég ítreka það við þig, að ef þú kemur ekki
með hundana þína, er mér eins gott að gleyma þessu
strax.
Orval leit hægt upp. Hann fór rólega með höndina í
jakkavasann eftir tóbakspung og sígarettubréfi. Hann
hugsaði málið á meðan hann vafði sígarettuna. Teasle
vissi betur en svo, að hann ýtti á eftir honum. Áður en
hann kveikti í eldspýtunni sagði hann loksins: Það væri
möguleiki, ef ég skildi þetta. Hvað hef ur þessi piltur gert
þér, Will?
— Hann skar einn lögregluþjón nærri í tvennt og lamdi
annan nærri blindan.
— Já, já, Will, sagði Orval, kveikti á eldspýtunni og
skýldi með höndunum til að kveikja í sígarettunni. En þú
svaraðir mér ekki.
Hvað hefur þessi piltur gert þér?
ANNAR KAFLI.
Landið var hálent, hrikalegt, vaxið þéttum skógi, skor-
ið gjám, giljum og fjallaskörðum. Víða voru hellar.
Þetta var rétt eins og í hæðum Norður Carolina, þar sem
hann hafði hlotið þjálfun sína. Mjög líkt hæðunum, sem
hann hafði flúið yfir f stríðinu. Land við hans hæfi og
bardagi við hans hæf i. Mönnum væri bezt að stugga ekki
við honum. Að öðrum kosti myndi hann berja harkalega
f rá sér. Hann varð að nota dagsbirtuna eins lengi og hún
gafst. Þess vegna barðist hann áf ram og hl jóp eins hratt
og hann komst. Alltaf upp í móti. Nakinn líkami hans var
blóðstorkinn af runnunum, sem stungust í hann. Djúp
sár voru á fótum hans og þeir blóði storknir eftir hvassar
Verndardýriö
er aftur komin
á sinn staö,
heppni Llongo-
manna snýr nú
aftur aö þeim
LAUGARDAGUR
17. mai
. 7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 tþróttirUmsjón: Jón As-
geirsson.
14.15 Að hlusta á tónlist XXIX
Atli Heimir Sveinsson flytur
lokaþátt sinn.
15.00 Vikan framundan
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrá útvarps og
sjónvarps.
16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir. islenzkt málÁsgeir
Bl. Magnússon cand. mag.
flytur þáttinn.
16.40 Tiu á toppnum örn
Petersen sér um dægur-
lagaþátt.
17.30 Sögulestur fyrir börn:
„Urðarköttur” Grænlenzkt
ævintýri i endursögn Alans
Bouchers.
18.00 Söngvar i iéttum dúr.
Tilkynningar..
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 í mörg horn að líta Árni
Helgason stöðvarstjóri talar
við Kristjönu Hannesdóttur
í Stykkishólmi fyrrum
skólastjóra á Staðarfelli.
20.00 Hljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 „Fyrirheitna landið”-
Kristmann Guðmundsson
rithöfundur les upphafs-
kafla „Dægranna blárra”,
annars bindis ævisögu sinn-
ar.
21.15 Frá norska útvarpinu
Sinfóniuhljómsveit útvarps-
ins leikur létta tónlist eftir
norska höfunda, öivind
Bergh stjórnar.
21.45 „Ættmold og ástjörð”
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri les ljóð eftir Nordahl
Grieg i þýðingu Magnúsar
Asgeirssonar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Dansiög
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. mai
Hvitasunnudagur
9.00 Morguntónleikar.
Veðurfregnir).
11.00 Messa í Akureyrarkirkju
Séra Birgir Snæbjörnsson
predikar. Séra Pétur Sigur-
geirsson vigslubiskup þjón-
ar fyrir altari. Organleik-
ari: Jakob Tryggvason.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tónleikar.
13.00 Leitin að nýju Islandi
Fyrri hluti dagskrár um að-
draganda og upphaf vestur-
ferða af Islandi á 19. öld.
13.40 Dagskrárstjóri i eina
kiukkustund Brian Holt
ræðismaður ræður dag-
skránni.
14.40 Óperukynning: „Man-
on” eftir Jules Massenet
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Alitaf á sunnudögum
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.15 Barnatimi: Geirlaug
Þorvaidsdóttir leikkona
stjórnar
18.00 Stundarkorn meö Rögn-
valdi Sigurjónssyni.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.20 Um austrænan
hugsunarhátt og vestrænan
Sigvaldi Hjálmarsson flytur
erindi.
19.45 Frá tónieikum Kammer-
sveitar Reykjavikur i
hátiðarsal Menntaskólans
við Hamrahlið 20. f.m.
20.25 Frá árdegi til ævikvöids
Nokkur brot um konuna i is-
lenzkum bókmenntum.
Fyrsti þáttur: „Við eigum
stúiku með augun blá”.
Gunnar Valdimarsson tekur
saman þáttinn.