Tíminn - 10.06.1975, Blaðsíða 11
10
TÍMINN
Þriðjudagur 10. júni 1975
Þriðjudagur 10. júni 1975
TÍMINN
11
„ÉG HEF ALLAN ÆVIDAG
UNNAÐ FJALLABLÆNUM
rv
segir Ásgrímur Kristinsson frá Ásbrekku, sem hér spjallar við lesendur Tímans um vísnagerð, búskap
og víðáttur íslenzkra heiða
ASGRIMUR KRISTINSSON
frá Asbrekku í Vatnsdal á sam-
merkt við aðra jafnaldra sina i
þvi að hafa unnið hörðum höndum
langa ævi. En hann er lika einn
þeirra, sem „láta ekki baslið
smækka sig”, eins og Stephan G.
komst að orði. Hann hefur löng-
um átt tvö bú, annað i hinum
sýnilega heimi, þar sem viö hrær-
umst öll, hitt i heimi draums og
ljóðs. Báðum þessum búum hefur
hann unnið af trú og hollustu, og
jafnan kappkostað að gera sitt
bezta. Hann nam land og reisti
nýbýli þar sem enginn bær var
áður, og jafnframt ræktaði hann
ljóðakur sinn af alúð og sam-
vizkusemi. Visur hans og
kviölingar hafa flogið viða og
komizt á bækur. Eða hver man
ekki kvæðið Vökusveinn i Hún-
vetningaljóðum:
Vakir yfir velli
vangafölur stúfur,
kannski dál’tið kviðinn,
klukkan bráðum eitt.....
Húnvetningur — af.
ætt Bólu-Hjálmars
Nú er Asgrimur frá Asbrekku
hingaðkominn og mun spjalla við
lesendur Timans um stund. Við
ætlum að byrja á hinum ytra
heimi og spjalla um Asbrekku.
— Hvenær byggöir þú þetta ný-
býli, Asgrimur?
— Það var árið 1936. Nýbýlið er
byggt i landi Ass, en þar hafði ég
alizt upp hjá ömmubróður min-
um, Guðmundi Ólafssyni al-
þingismanni. Það var hann, sem
lét mig hafa þennan hluta jarðar-
innar, þar sem ég byggði bæ
minn, og þar bjó ég lengi siðan.
— Er ætt þín af þessum slóð-
um?
— Já, svona i og með. Faðir
minn var að visu fæddur á Akra-
nesi, en ættir hans liggja norður.
Móðir hans var Sigriður
Hjálmarsdóttir Hjálmarssonar
(Bólu-Hjálmars). Foreldrar föð-
ur mins fluttust norður með hann
ungan, og hann ólst upp i Asi hjá
Guðmundi Ólafssyni, eins og ég
gerði siðar.
— Það er sjálfsagt heldur
óvenjulegt, að sami maðurinn
fóstri þannig tvo ættliði.
— Já, liklega er það fremur óal-
gengt, en þó er það ekki útilokað,
þegar svo stendur á um aldur
manna, og faðir minn var aðeins
nitján ára, þegar ég fæddist.
Móðir min var systurdóttir
Guðmundar Ólafssonar i Asi, af
Guðlaugsstaðaætt. Foreldrar
minir giftust ekki, og þvi ólst ég
Hjónin I Asbrekku, Asgrimur Kristinsson og Guðný Guðmundsdóttir.
upp I Asi og var þar allt þangað til
ég hóf búskap á nýbýli minu.
— Þú átt þá ekki langt að sækja
hagmælskuna. Það hefur lengi
legið skáldgáfa I kyni Bólu-
Hjálmars.
— Já, hún hefur verið rikur
þáttur í þeirri ætt. Mér er ekki
kunnugt um, að hagmælska hafi
fallið niður i neinum ættlið frá
Bólu—Hjálmari, enn sem komið
er,ogmeðalannars ber talsvert á
henni hjá börnum minum.
Fyrstu yrkingar
— Hvenærheldur þú að þú hafir
sjálfur byrjað að yrkja?
— Ég var mjög ungur, þegar ég
fór að föndra við þetta. Liklega á
ég einhvers staðar visur, sem ég
hnoðaði saman, þegar ég var sjö
ára.
— Dreymdi þig þá ekki um að
verða skáld, þegar þú yrðir stór?
— Sjálfsagt hafa slikar hugsan-
ir eitthvað látið á sér kræla, en at-
vikin höguðu þvi nú einu sinni
svo, að langskólanám varð ekki
mitt hlutskipti, enda ekki hægt
um vik fyrir unglinga á þeim ár-
um, þótt ég fæddist að visu ekki
fyrr en ellefu ár voru liðin af
þessari blessaðri öld okkar. Nú,
og kannski hefði ég ekki orðið
skáld, þótt ég hefði gengið
menntaveginn. Það verða ekki
allir skáld á þvi að ganga i skóla.
Hins vegar man ég vel, að ýmsir
góðir menn, og þeirra á meðal
Sveinn I Elivogum, sögðu að ég
lofaði góðu, þegar fyrstu visur
minar og kviðlingar fóru að kvis-
ast. En hafi ég lofað einhverju i
þeim efnum þá, þá hef ég svikið
það allt! Ég hef aldrei verið
skáld.
— Skárra er það nú litillætið!
En kanntu ekki eitthvað af þinum
fyrstu visum?
— Ég veit ekki hvort þær eru
prenthæfar, þvi að á þeim árum
urðu visur oftast til, þegar ein-
hver hreyfing kom á hugann,
annað hvort til hryggðar eða
reiði, nema hvort tveggja væri.
Ég man til dæmis eftir einni visu,
sem ég orti um vinnumann, sem
mér hafði eitthvað mislikað við.
Liklega hef ég verið orðinn tiu ára
eöa svo. Maðurinn hét Guðmund-
ur og var með hærri mönnum,
eftir þvi sem þá gerðist. En visan
er svona:
Guðmundur er geysihár,
Guðmundur er dyggðasmár,
Guðmundur er gallaljár,
Guðmundur er sveitarfár.
Þegar ég var tólf ára, tók ég
einu sinni upp á þvi um hávetur
ab yrkja vorvisur. Þær urðu til
tvær, með skömmu millibili, og
voru siðar prentaðar i Húnvetn-
ingaljóðum. Ég held sé bezt að ég
lofi þeim að flakka með, fyrst ég
er að rifja upp þessi æskubrek
min:
Gyllir sólin grund og hlið,
græna hóla og bala.
Angar fjólan yndisfrið
innst I skjóli dala.
Állt er fjallið autt i senn,
ærnar hjalla bita.
Heiðin kallar á þig enn,
álftin mjallahvita.
— Þér hefur gengiö vel að yrkja
um voriö, þótt enn væri vetur?
— Já, ég hef aldrei átt neitt
erfitt með að setja mig i huganum
i önnur spor en þau, sem ég stend
i þá stundina, enda hlýtur það að
verða með alla, sem fást við
þessa hluti, annars myndu þeir
aldrei yrkja neitt. t þetta skipti
var það að minnsta kosti ekki
erfitt fyrir mig, þvi ég hef alltaf
veriðmikill unnandi vors og við-
áttu. Og heiðalöndin heima voru
mér ævintýraheimur, enda orti
ég oft um þau visur, og sumar
þeirra urðu kunnar i heimahög-
um minum.
í göngum
— Hver voru þin afréttarlönd —
hvert fórst þú I göngur?
— Grimstunguheiði og Hauka-
gilsheiði liggja fram af Vatnsdal,
og þar var yfirleitt leitarsvæði
okkar, Vatnsdælinga og Þingbúa.
Þessi heiðalönd ná suður yfir
Stórasand, suður i Fljótsdrög, og
þar komu Borgfirðingar til móts
við okkur, og siðan smöluðum við
sameiginlega niður að Réttar-
vatni, þar sem dregið var I sund-
ur. Fljótsdrög eru dásamlega
fagurt land, og þessar ferðir urðu
mjög minnisstæðar öllum, sem
tóku þátt I þeim. Á heiðunum
bundust norðan- og sunnanmenn
vináttuböndum, sem entust ævi-
langt. Borgfirðingarnir voru
flestir úr Hálsasveit og Hvitár-
siðu, norðanmenn aftur á móti úr
Vatnsdal og Þingi.
— Hvaö voruð þið lengi I þess-
um göngum?
— Þegar ég byrjaði að fara i
göngur, var enn sami háttur á
þessu sem verið hafði lengi. Hjá
okkur, i Vatnsdalnum, voru það
sex daga göngur, en seinna, eftir
aö f járpestirnar voru komnar til
sögunnar, og slðar girðingar til
vamar útbreiðslu þeirra, breytt-
ist þetta.
— Uröu ekki stundum til vísur á
þessum feröum?
— Jú, það kom oft fyrir, en þær
voru ekki allar prenthæfar. En
visumar voru ekkl allar af sama
sauöahúsi. Sumar voru ortar um
heiðalöndin og náttúruna, og það
er vel hægt að fara með þær.
— Má ég heyra eins og eina?
— Já, þvi ekki það. Ég var
„sunnan I Sandinum”,eins og það
var kallað, I dýrlegu veðri, og var
að smala niður i Fljótsdrögin.
Þetta var seinnipart dags, sól far-
in að lækka á lofti og blikaði á
vötn og tjamir langar leiðir. Þá
varð þessi visa til:
Enn um þetta óskaland
ótal perlur skina,
hitti ég fyrir sunnan Sand
sumaVdrauma mina.
— Þú hefur auövitað snemma
hlakkað til aö fara i göngur, eins
og aörir strákar?
— Já,éger nú hræddur um það.
Við byrjuðum að hlakka til
snemma á sumrin, og tilhlökkun-
in fór vaxandi eftir þvi sem nær
dró haustinu. Hvað mig snerti,
var þessi tilhlökkun ekki ein-
skorðuð við unglingsárin, þvi hún
entist langt fram eftir ævi. Það
liggurviðaðmiglangi enn igöng-
ur, þótt sjálfsagt yrði ég ekki tek-
inn gildur, sökum aldurs og
heilsubrests. Einu sinni gerði ég
nokkrar samstæðar visur, sem
heita Heiðin heillar. Þær byrja
svona, ef ég man rétt:
Þegar halla að hausti fer,
heiðin kallar löngum.
Hugurinn allur unir sér
inn til fjalla i göngum.
Til skemmtunar
á mannamótum
— Ef viö höldum áfram að tala
Nasi og Tryggur. Nasi var afburöagæöingur, og haföi Asgrímur á hon-
um miklar mætur. Og marga feröina voru þeir búnir aö fara saman,
áöur en yfir lauk, Asgrímur, Nasi og Tryggur, enda var samstarf
þeirra allra meö miklum ágætum.
um kveöskapinn: Hvenær heldur
þú aö þú hafir byrjaö aö yrkja
samfelld kvæöi?
— Ég veit það varla, en ég á
kvæði, sem ég gerði fermingarár-
ið mitt, og liklega hefur það verið
með fyrstu tilburðum minum við
að yrkja fleiri en eina visu I einu.
Siðan rak hvert kvæðið annað, en
það vil ég taka fram.aðég er ekki
neitt sérlega hrifinn af þessum
frumsmiðum minum. Þau eru
fyrst og fremst tilraunir og ég
býst við að gildi þeirra sé aðal-
lega i þvi fólgið að sýna hvert
hugur minn stefndi á þessum ár-
um.
— Svo hefur þessi iöja farið
smám saman vaxandi hjá þér?
— Já, hún gerði það. Þegar ég
var ungur maður, var talsvert i
tizku I heimahögum minum að
halda afmælisveizlur, oft fjöl-
mennar nokkuð. Þá kom það
stundum fyrir að ég sendi af-
mælisbarninu kveðju i ljóði, og
eiginlega áður en ég vissi af, voru
sveitungar minir farnir að ætlast
til þess að fá afmæliskvæði frá
mér, eða svo fannst mér að
minnsta kosti. Svo mikið er vist,
að ég gerði talsvert mikið að
þessu um árabil. Eitthvað af
þeim kvæðum á ég enn.
— Ortir þú ekki stundum skop-
bragi?
— Jú, ekki er ég alveg saklaus
af þeirri iðju. Eftir að farið var að
halda Húnavökurnar á Blönduósi,
kom þaö meðal annars i minn hlut
að leggja þar nokkuð af mörkum
til skemmtunar. Ég orti þá nokk-
ur gamankvæði, og var efni
þeirra gjarna sótt i nágrennið, at-
hygli vakin á hinum skoplegri
hliöum málanna og minnt á sitt-
hvaö, sem farið hafði öðru visi en
ætlazt hafði verið til i upphafi.
Allt var þetta þó meinlaust frá
minni hálfu, og ég þóttist ekki
vera með neina rætni, enda veit
ég ekki til þess að neinn þykktist
við.
Sama var að segja, eftir að far-
ið var að halda þorrablót inni i
sveitinni. Ég orti nokkur kvæði,
sem notuð voru til skemmtunar
þar, og voru þau mjög i sama
anda og Húnavökukvæðin. Ekki
vissi ég heldur til þess að þau
særðu eða móðguðu þá sem fyrir
urðu, enda ekki til þess ætlazt af
mér. En „þetta er ekki skáld-
skapur, Kolbeinn.” Ég býst varla
við að þessi kvæði min hafi haft
mikið bókmenntalegt gildi, en
þau gerðu sitt gagn á þeim stað og
þeirri stundu, sem þau voru ort og
flutt.
— Viltu ekki lofa okkur að
heyra eitthvað af þessari fram-
leiðslu?
— Ég veit ekki hvort við eigum
nokkuð að vera að þvi. Þótt kvæð-
in séu ekki þannig að þau meiði
neinn, þá er vafasamt hvort þau
eiga nokkurt erindi fyrir almenn-
ings sjónir. Þau eru undantekn-
ingarlaust bundin ákveðnum
stöðum, mönnum og atburðum,
en þar er lika vlðast hvar talað
svo undir rós, að ekki skilst, nema
af þeim, sem nákunnugir eru öll-
um málavöxtum. Og að birta slikt
ásamt rúmfrekum skýringum,
finnst mér vera verr af stað farið
en heima setið.
Enef einhvern langar að heyra
eitthvað eftir mig, sem stefnir i
þessa átt, get ég farið með tvær
visur, báðar meinlausar, — og
þarfnast hvorug skýringa. önnur
heitir Um stúlku, og er svona:
Engu vil ég um það spá,
Asgrímur Kristinsson frá Asbrekku.
sléttumar i Asbrekku gerði ég
með plógi og herfi, sem tveim
hestum var beitt fyrir. Nú, þetta
var svo sem aldrei neinn stórbú-
skapur. Þegar ég hætti búskapn-
um, átti ég tiu kýr og um tvö
hundruð kindur. En mér likaði
þetta lif vel, og væri þar trúlega
enn, ef ég hefði ekki fengið
lungnablæðingu og orðið að hætta
að vinna i heyi af þeim sökum. En
sonur minn tók við jörðinni og býr
núna I Asbrekku, svo ég þarf ekki
að kvarta um að hún hafi lent i
hendur vandalausra.
— Þú hefur ekki náð að festa
rætur i höfuðborginni?
— Rætur? Nei, ég á ekki neinar
rætur hér i malbikinu, þær eru
allar norður I Asbrekku i Vatns-
dal. Annars ætla ég ekki að
kvarta yfir verunni i Reykjavik,
mér hefur liðið vel hér, að
minnsta kosti að þvi er varðar
hinn ytri aðbúnað. En andlegu
hliðinni er bezt lýst með eftirfar-
andi visukorni:
Lækkar fönn i fjallaskor.
Fagnar borgargestur,
sem er alltaf undir vor
eins og strokuhestur.
— Og nú býrð þú hér, utan viö
mesta umferöarsk valdriö og
hraðann?
— Já, við hjónin fluttumst hing-
að uppeftir i fyrra. Þetta hús var
upphaflega sumarbústaður, en er
vel ibúðarhæft að vetrinum lika.
Samt þurfti i vetur sem leið bæði
Timamynd Róbert.
að kynda ofninn og miðstöðina,
húsið er ekki heitara en svo. — Já,
hér er bæði kolaofn og skarsúð
með gömlu sniði, — allt eins og
það á að vera.
Þegar ég kom hingað, hafði ég
orðið fyrir heilsufarslegu áfalli,
sem slævði minni mitt nokkuð. En
ég uni mér vel hér, eins og eftir-
farandi visa sýnir vel, hvernig
mér liður, þar sem ég nú er setzt-
ur um kyrrt og hættur öllu bjástri,
nema þá helzt þegar dettur i mig
að gera visu:
Hingað bar mig gamlan gest.
Glöggvast farið minni.
Alltaf var, og enn er bezt
undir skarsúðinni.
— VS.
t fjárréttinni i Asbrekku á björtu vori.
ef hún sleppur óskemmd frá öllum þessum mannavað.
Hin heitir Að gefnu tilefni, en tilefniö útskýri ég ekki nánar en gert er i visunni:
•;"■ v'■ ■ ’’ ’ V,- V jS| v,? n Ipr , Bændur sem aldrei áttu til reiöardróg, aðeins truntur nothæfar fyrir g Plóg, 1 þeir eru að flytja i þéttbýliö sumir enn og þykjast nú vera bráðsnjallir hestamenn.
Undir skarsúð
— Viö höfum talaö hér um skáidskap og búskap jöfnum höndum. I.iklega væri ckki úr vegi að helga nú búskapnum fá- einar linur? — Það má vel min vegna, en um minn búskap er ekki ýkjamargt að segja. Þegar ég byrjaði að búa, hafði ég ekki nein not af túni, oe frumbvlinasárin voru auövitað
éÉri'^i ■
, . / ■ -: ,'■■ ■ . ■ , , \\ ■ ■: ■ ■ ■ ■, : ■
* > £ ** f,
*, r * ‘ > \ \ ,, /‘ .
Itrim.Ifm&í*.At
i: í',v,, ■ :
Fyrstu húsin, sem Asgrlmur byggöi I Asbrekku.