Tíminn - 06.07.1975, Síða 4
4
l f/rffi V
nVlIMN
Sunnudagur 6. júli 1975.
Fyrirmyndarfangelsi
I Bandarikjunum eins og viða
annars staðar er það bitur
reynsla yfirvalda, að helmingur
þeirra manna og kvenna, sem
dæmd eru til fangelsisvistar,
lenda fljótlega i fangelsi aftur,
skömmu eftir, að þau eru látin
laus.
Fyrir þrem árum ákváðu yf-
irvöld i Massachusetts að gera
tilraun til að breyta þessu vand-
ræðaástandi, þvi að auk þess að
vera kostnaðarsamt, er ómann-
úðlegt að halda fólki meira og
minna innan fangelsisveggja,
meðan það lifir hér á jörð, og
eitthvað hlyti að vera bogið við
þær refsingar, sem hvorki bæta
þann, sem hegnt er eða þjóðfé-
lagið. Tilraun var gerð i hálf-
tómu kvennafangelsi i Farm-
ingham. Dæmdir karlmenn
voru settir inn i fangelsið til af-
brotakvennanna og var engin
tilraun gerð til að stia kynjunum
i sundur. Varð þetta fyrsta
fangelsið i Bandarikjunum, sem
bæði karlar og konur voru i. Til-
raunin gafst svo vel, að nú eru
fjögur slik fangelsi, þar, og
fleiri verða opnuð á næstunni.
En það er ekki eingöngu sam-
neyti kynjanna innan fangelsis-
múranna sem tekin eru upp i
þessum nýju fangelsum. Þau
eru algjör nýjung að þvi leyti,
að fangarnir lifa eins og frjálsir
menn, að undanskildum þeim
takmörkunum, sem yztu múrar
fangelsanna leyfa. Þeir eru
frjálsari ferða sinna innan múr-
anna og hafa lykla að eigin klef-
um og engin gægjugöt eru á
hurðunum og fangaverðir ónáða
þá ekki. Þeim er einnig leyft að
fara i leyfi út fyrir fangelsin á
vissum timum.
Allir klæðast sinum venjulegu
fötum, fangabúningar eru ekki
til. Sömuleiðis ganga verðirnir
ekki i einkennisbúningum og
eru óvopnaðir. Þeir þekkjast
ekki frá föngunum að öðru en
þvi, að fangaverðir ganga með
labb-rabb tæki.
Mörgum Bandarikjamanni er
þetta frjálsræði i fangelsunum
þyrnir i augum og halda þvi
fram, að það sé litil refsing fyrir
afbrotamenn 'að vera dæmd
ir inn á lúxushótel. Benda þeir
DENNI
DÆMALAUSI
,,Hæ Wilson. Ætlið þið, þú og
garðurinn þinn, aftur að reyna að
fá eitthvað til að springa út i ár.”