Tíminn - 06.07.1975, Síða 14

Tíminn - 06.07.1975, Síða 14
14 TÍMÍNN Sunnudagur 6. júli 1975. George Ellis framdi sjálfsmorb, af þvi aö hann gat ekki fengið að upp- fylla siöustu ósk eiginkonu sinnar. Fagran sunnudagsmorgun i júli 1974 gengu ungur maður og stúlka út i kirkjugarðinn i Bucking- hamshire. Enginn sá þau, þar sem þau stóðu við gröf i garðin- um, en á grafseininum stóð: Ruth Hornby, 1926-1955. Unga stúlkan var lagleg, blá- eygð og ljóshærð, en þennan morgun var hún svartklædd og hélt á kransi i hendinni. A borðan- um stóð: Til minningar um móð- ur mlna. Ekkert nafn stóð undir þessari áletrun, en þeir, sem fram hjá gröfinni fóru gátu ekki verið i nokkrum vafa um það, að kransinn var frá syninum Andrea og dótturinni Georginu. Georgina lagði kransinn á gröf móðurinnar, og siðan kraup hún niður við hlið bróður sins og baðst fyrir. Svo gengu þau hröðum skrefum Ut á götuna aftur, litu snöggt til beggja hliða, eins og þau væru hrædd um að einhver hefði séð þau. En það sást hvergi nokkur hræða, og svo skildu leiðir þeirra. Þau höfðu aflokið sinni ár- legu heimsókn til grafar móður sinnar. Sunnudag i júlí 1975,munu syst- kinin tvö koma aftur að gröf kon- unnar, sem var sU siðasta, sem hengd var i Englandi. Það var hin óhamingjusama Ruth Ellis, sem sagt er um, aðhUn hafióskað þess heitt að mega deyja, eftir að hUn hafði drepið elskhuga sinn. Já, hUn gerði sjálf allt, sem I hennar valdi stóð til þess að Urskurður dómsins yrði á þann veg, sem hann varð — að hún yrði hengd. Síðasta óskin Þegar Ruth stóð við gálgann, og böðullinn, Albert Pierrepoint, var tilbUinn til þess að framkvæma aftökuna var hUn spurð, hvort hUn ætti sér ekki einhverja sið- ustu ósk. Ruth sagði: — Ég verð að deyja, og ég er ekki hrædd. Það eina, sem ég bið um, er að ég verði ekki að liggja grafin i fangelsisgarðinum, heldur verði jaröneskar leifar minar fluttar i kirkjugarð. Verði ekki þessi sið- asta ósk min uppfyllt, bið ég þeim bölbæna, sem reyna að koma i veg fyrir þessa siðustu ósk mina. Fangelsisvörðurinn svaraði hægt: — Mér þykir fyrir þvi, að ég hef ekki vald til þess að lofa þessu. Lögin segja til um þetta. — Ég vil ekki liggja grafin hér, sagöi Ruth Ellis, — ég vil það ekki.. Hlemminum var kippt undan fótum hennar og Ruth Ellis sagði ekki fleira. Fangelsislæknirinn kvað upp þann Urskurð, að hún hefði dáið samstundis, og að Ruth Ellis hefði ekki liðið neinar þjáningar. Þrátt fyrir það gátu þeir, sem nærstaddir höfðu verið ekki gleymt siðustu orðum Ruthar: — Ég vil ekki láta grafa mig hér. Þeir vissu að sjálfsögðu, að óskir hennar samræmdust ekki lagabókstafnum, en þar segir, að glæpamenn, sem teknir eru af lifi, skulu grafnir innan fangelsis- veggjanna, þar sem þeir voru teknir af lifi. Það var ekki hægt að gera neina undantekningu hvað viö kom Ruth. Börn Ruth Ellis, Georgina og Andrea, og maður hennar George Johnstone Ellis, fengu ekki leyfi til þess að vera viðstödd greftrun- ina, og einnig var synjað um leyfi til þess að uppfylla siðustu ósk hinnar deyjandi konu. Þeim var sagt, að lögin segðu til um það, hvar skyldi grafa hana, og eftir þeim yrði að fara. Ruth Ellis var grafin á stað inn- an fangelsismúranna, þar sem einnig lágu fjórar aðrar konur. Armenia Fach og Annie Walter, sem báðar voru hengdar árið 1903 fyrir að myrða smábarn, sem þær höfðu átt að fara með á gæzlu- heimili. Sagt hefur verið, að Edith Thompson, sem hengd var árið 1923, hafi i raun og veru verið hengd vegna þess, hversu léttlynd hUn var, ekki vegna þess að hUn haföi tekið þátt i að myrða mann sinn. Þá var þarna einnig grafin frU Styllou Christofi. HUn hafði verið hengd árið 1954 fyrir að hafa drepið tengdadóttur sína. Þegar rekunum hafði verið kastað yfir kistu Ruth datt engum i hug, að þar með væri ekki saga hennar öll. HUn ætti eftir að koma við sögu eftir dauðann, rétt eins og hUn hafði gert i lifanda lifi.... Bannfæringin, sem hún hafði les- ið yfir þeim, sem ekki myndu uppfylla siðustu ósk hennar, átti eftir að verða að raunveruleika. Ásóttur Hugsunin um konuna ásótti stöðugt George Ellis. Hann sagði

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.