Tíminn - 06.07.1975, Blaðsíða 15
Sunnudagur 6. júli 1975.
TÍMINN
15
Andrea, sonur Ruth Ellis, fer á hverju ári meö hálfsystur sinni og leggur krans á leiöi máöur sinnar.
þeim fáu vinum, sem ekki yfir-
gáfu hann i þessum þrengingum,
að Ruth hefði birzt honum hvað
eftir annað fyrsta mánuðinn eftir
að hún var tekin af lifi. Hún stóð
fyrir framan hann ljóslifandi, og
baö hann að sjá til þess að hún
yrði grafin i vigða mold.
Húnsagðistaldrei myndu geta
fundið ró i gröfinni, þar sem hún
lægi, eftir þvf sem Ellis sagði við
vini sina.
Ellis hafði góða stöðu sem tann-
læknir, fallegt heimili átti hann,
oghann hafði góðar tekjur. öllum
féll vel við hann, en kona hans
Ruth eyðilagði allt. Þegar hún
var dæmd til dauða og tekin af lifi
fóru sjúklingarnir að afpanta
tima hjá honum. Meira að segja
þeir, sem höfðu verið góðir vinir
hans fóru að sniðganga hann. Það
var eins og fólk kenndi honum
hálft um hálft um það, sem gerzt
hafði. Þaö var farið að piskra um
hann I hverju homi.
Nokkrum vikum eftir aftökuna
sagði Ellis við blaðamann nokk-
urn: — Ég hef séð meðaumkun i
augum fáeinna, en flestir virðast
spyrja sjálfa sig, þegar þeir horfa
á mig. — Hvernig getur maður
eins og hann hafa átt nokkur sam-
skipti viö konu eins og Ruth Ellis?
Dag nokkurn sagði Ellis við
starfsfélaga sinn: — 1 gærkvöldi
kom hún aftur. Hún sagði, að ég
myndi ekki fá frið fyrir henni,
fyrr en ég hefði fengið jarðneskar
leifarhennar fluttar i vigða mold.
Og ég fæ engan frið. Ég er að
missa vitið. Hún ofsækir mig dag
og nótt.
Sjúklingarnir, gamlir og ungir,
störðu á hann úr tannlæknastóln-
um. Og þegar það gerðist einn
góðan veðurdag, að tiu ára gömul
stúlka spurði hann: — Erþað satt
að þeir hafi hengt konuna þina?
gat hann ekki afborið þetta leng-
ur. Hann sendi litlu dóttur sina til
ættingjanna — og svo hvarf hann.
I marga mánuði vissi enginn,
hvað af honum hafði oröið. Lög-
reglan var beöin um að leita að
honum — og hiln fannhann. Hann
var farinn að vinna sem sendill I
öðrum borgarhluta Lundúna-
borgar. Fjölskyldunni var
einungis skýrt frá þvi, að hann
væri á lifi, og liði vel, þar sem lög-
reglan neitaði að gefa upp hvar
hann dvaldist.
Samstarfsmenn hans á nýja
staðnum vissu ekki hver hann var
I raun og veru. Þeir kölluðu hann
George, en vissu ekki um eftir-
nafnhans. Þegar svo blaðamaður
þekkti hann allt i einu aftur, grát-
bað George hann um að koma
ekki upp um sig. Hann sagði
blaðamanninum einnig, hvernig
honum hafði liðið.
— Ég losna ekki við Ruth. Þeg-
ar ég sé ljóshærða konu finnst
mér það vera hún. Loki ég augun-
um, sé ég hana fyrir framan mig
á þvi augnabliki, sem hún gekk að
gálganum. Ég heyri hana stöðugt
segja: „Hjálpaðu mér, George,
hjálpaðu mér.”
Ástin
Ellis sagðist lika hafa leitað
með logandi ljósi I skuggahverf-
um Lundúna, þar sem kona hans
hafði haldið sig, til þess að reyna
að finna þar sönnun fyrir sakleysi
hennar. Tækist honum það, gæti
hann uppfyllt ósk hennar.
— Ég elska hana, sagði hann
klökkur, — og mér stendur ná-
kvæmlega á sama um það, hvað
þeir segja um hana.
Ellishefur leitað að manninum,
sem hafði lánað Ruth skamm-
byssuna, sem hún notaði til þess
aö drepa elskhuga sinn með.
Hann trúði þvi, að fyndi hann
þennan mann, gæti hann borið
vitni um það, að Ruth hefði verið
brjáluö á þvi augnabliki, sem hún
framdi verknaðinn.
Kvöld nok.kurt réðist hópur
manna á hann, og skar hann með
rakvélablöðum, og bað hann um
að hverfa frá London.
— Gleymdu byssunni, annars
eigum við eftir að drepa þig,
sögðu mennirnir.
Þá ákvað Ellis að hverfa fyrir
fullt og allt. Hann fór úr landi i
von um að finna frið, en fljótlega
var hann þó kominn aftur heim til
Englands.
Hann fór aftur að stunda tann-
lækningar I London, en þrátt fyrir
það fann hann ekki frið. Ruth hélt
áfram að ásækja hann. Aftur
bugaðist hann. Eftir að hafa
flækzt um I nokkurn tima fór hann
að vinna á hóteli i Jersey.
Nú hafði hann gefizt upp. Einn
morguninn kom hann ekki til
morgunverðar, og þegar ein af
starfsstúlkunum ætlaði að að-
gæta, hvað hefði komið fyrir
hann, fann hún hann dáinn. Hann
haföi valið sama dauðdaga og
kona hans hafði valið eiskhuga
sinum.
En það skipti ekki máli, þótt
George Ellis væri dáinn. Ruth
Ellis hélt áfram að ásækja aðra.
Þaö liðu mörg ár, þar til siðasta
ósk hennar var uppfyllt. Dálitið
óvænt varð að gerast áður en
jarðneskar leifar hennar voru
fluttar I vigða jörð.
Svarti föstudagurinn
Brezku blöðin nefndu föstudag-
inn 13. júli Svarta föstudaginn, en
þann dag hafði Ruth Ellis verið
hengd. En hin raunverulega
óhamingja hafði gerzt miklu fyrr.
Ruth fæddist I Wales árið 1926.
Faöir hennar var hljóðfæraleik-
ari á farþegaskipi, og þegar Ruth
var 17 ára fluttist fjölskyldan i
eitt af úthverfum Lundúna. Þar
fór Ruth að vinna sem fram-
reiöslustúlka.
A veitingastaðnum, þar sem
hún vann hitti hún kanadiskan
hermann, em notaði timann til
þess að segja henni frá þvi hversu
dásamlegt lifið væri i Kanada.
Þegar striðið væri búið skyldu
þau flytjast til Kanada og gifta
sig, — lofaði hann henni.
Þegar Ruth var svo orðin ófrisk
hvarf hermaðurinn á braut, og
hún stóð eftir alein og þurfti að
sjá syni sinum Andrea farborða.
Ruth hafði orðið fyrir miklu
áfalli, en hélt áfram að vinna eftir
að Andrea fæddist árið 1943. Þeg-
ar hún var tvitug hitti hún George
Ellis. Þá var hún farin að vinna á
næturklúbb i London. Hjónaband
þeirra varð ekki hamingjusamt
af tveimur orsökum. Ellis var
forfallinn drykkjusjúklingur, og
þar við bættist að hann var næst-
um helmingi eldri en Ruth. Hann
vildi að hún héldi sig heima fyrir,
en Ruth elskaði næturlif
Lundúnaborgar.
Það hefur aldrei nokkur maður
efazt um, að Ellis hafi elskað
Ruth af öllu hjarta. Hann gerði
llka allt sem i hans valdi stóð til
þess að vinna og halda ást henn-
ar, en það hafði engin áhrif á
Ruth. Eftir fimm ára hjónaband
og nokkru áður en dóttirin, Ge-
orgina, fæddist, i október 1951,
yfirgaf hún hann.
Hún skildi barnið eftir hjá
Ellis, en sjálf fór hún að vinna í
næturklúbbum i London, og það .
geröi hún allt fram til ársins 1953,
að hún hitti ungan, myndarlegan
kappakstursbílstjóra, sem hét
David Blakely. Hann var 23 ára
gamall, og læknissonur. Ruth
varð þegar ástfangin af honum.
Þau hæfðu vel hvort öðru, og
fóru að vera saman. Ruth hafði
þegar hér var komið sögu átt svo
marga vini, að litið var á hana
sem nokkurs konar vændiskonu,
ef hún þá var það ekki I raun og
veru.
Blakely bjó hjá Ruth fimm
daga vikunnar, en um helgar fór
hann heim til móður sinnar.
Til að byrja með hafði Ruth
mikinn áhuga á David Blakely, en
hún var þó ekki yfir sig ástfangin
af honum. Hún meira að segja
yfirgaf hann vegna annars
manns, en David elti hana og
lagði hart að henni að koma aftur
til sin. Hún gerði það, vegna þess
að hún þurfti jafn mikið á honum
að halda og hann á henni. Hann
gat barið hana annan daginn, en
næsta dag sendi hann henni blóm-
vönd. A kortinu stóö: Fyrirgefðu
mér, ástin min. Ég elska þig!
Blakely trúði þvi, að tækist hon-
um að gera Ruth afbrýðisama,
tækist honum einnig að halda
henni fyrir sig. Þess vegna setti
hann trúlofunartilkynnngu i dag-
blað. Ruth sá tilkynninguna og
heimtaði að hann hætti við hina
stúlkuna, og kæmi aftur til sin.
Nú tóku þau saman á leigu ibúð.
Blakely varð mjög hrifinn af syni
hennar, Andrea, og Ruth fór
smátt og smátt að velta þvi fyrir
sér, hvenær þau gætu gift sig. En
þaö var hindrun I veginum. Hún
var enn gift George Ellis.
Skilnaðurinn
Blakely féll vel sá háttur, sem
þau Ruth höfðu á sambúð sinni,
en honum hafði aldrei komið til
hugar sá möguleiki, að þau giftu
sig, þar sem hann hefði ekki vilj-
að giftastkonu með fortið á borð
við fortiö Ruthar. Hún hafði sjálf
ekki minnstu hugmynd um, að
hann hugsaði þannig, og var viss
um að hann giftist henni jafn-
skjótt og hún fengi skilnað. Þar
skjátlaðist henni hrapallega,
enda var David oröinn alvarlega
leiður á henni þegar hún loksins
haföi fengið skilnaðinn.
Allar vonir Ruth urðu engar
þegar hann stutt og laggott sagði
henni, að hann gæti alls ekki
hugsað sér að giftast henni, og
hann væri orðinn dauðleiður á
henni. Hann fór aö fara út og
skemmta sér með öðrum konum,
en Ruth sat heima og grét. Brátt
fór hún lika aö drekka.
Hún átti ekki peninga, og hafði
ekki vinnu. Hún hafði ekki upp á
annað að hlaupa en peningana,
sem David gaf henni. Við þetta
bættist svo, að hún var barnshaf-
andi á ný. Hún sagði að Blakely
færi faðirinn, og þegar hann kom
svo i eitt skiptið til þess að sækja
eitthvað af dótinu sinu, lentu þau i
hræðilegu rifrildi. Hann kastaði
henni I gólfiö, og afleiðingin varð
sú, aö hún missti fóstrið. Nú fékk
hún engin blóm frá honum.
A annan i páskum 1955 yfirgaf
David ibúðina klukkan sjö um
kvöldið. Hann sagði Ruth að hann
ætlaði að heimsækja nokkra vini
sina. Þegar hann kom svo ekki til
baka, varð Ruth að sætta sig við
þá bitru staðreynd, að hann hafði
yfirgefið hana.
Alla nóttina og allan næsta dag
var Ruth heima, — undir áhrifum
áfengis. Hún reyndi að hringja i
vini Davids til þess aö komast að
þvi, hvar hann væri, en þegar þeir
heyrðu, að hún var i simanum,
skelltu þeir strax á. David var bú-
inn aö segja þeim, að hann væri
hættur við hana. Hún var algjör-
lega forsmáð, og enginn vildi
hlusta á harmatölur hennar.
Að lokum fann svo Ruth bilinn
hans, þar sem hann stóð. Hún
náöi sér i hamar og braut eina
rúðuna. Lögreglan tók hana
fasta, en eftir að hafa heyrt hina
hörmulegu sögu hennar var henni
sleppt aftur með áminningu eina
saman.
Nú var hún full af hatri i garð
mannsins, sem hún hafði áður
látið vef ja sig örmum og átt góðar
stundir með. Hann vildi ekkert
lengur með hana hafa, og hans
vegna hafði hún misst barnið.
Hún fékk nú lánaða byssu hjá
vini (i dag er vitað hver það var)
og sex skot. Svo fékk hún sér
leigubil og ók að bar, sem var i út-
jaöri Lundúna, en þar vissi hún,
aö David var vanur að halda sig.
Þegar hún leit inn i gegnum
gluggann, sá hún hann sitja við
eitt borðanna, og með honum
voru nokkrir vinir hans. Ruth stóð
fyrir utan i myrkrinu og beið. Hún
var i brennivinsvimu.
Klukkan niu kom Blakely út af
barnum. Ruth steig fram og eng-
inn sagði orð, heldur hleypti hún
þegar af. Hann féll til jarðar
strax eftir fyrsta skotið, en það
var henni ekki nægilegt. Hún
gekk nær honum og skaut skotun-
um, sem eftir voru I byssunni.
Þrjú skotanna hæfðu David.
Hún sneri sér hægt og rólega að
þeim sem nú kom þjótandi út
eftir að hafa heyrt skothvellina,
og sagði: — Vill ekki einhver
hringja i lögregluna?
David var fluttur á sjúkrahús i
sjúkrabil, en hann var dáinn, þeg-
ar þangað kom.
Ruth Ellis var enn með byssuna
ihöndunum.þegar hún var hand-
tekin.
Það er fullvist, að hefði Ruth
aðeins skotið fyrsta skotinu hefði
hún aldrei verið tekin af lifi. Nú
benti rikissaksóknarinn á það, að
hún hefði skotið sex skotum, og
þess vegna var hún sek um morð
af yfirlögðu ráði.
Verjandinn benti á, að hún hefði
verið svo drukkin, að hún hefði
ekki vitað, hvað hún gerði. Þess
vegna yrði að fjalla um mál henn-
ar sem manndráp.
Enginn óskaöi þess að sjá Ruth
hengda. Meira að segja rikissak-
sóknarinn viðurkenndi, að þessi
kona hefði orðið fyrir svo miklu
illu, og orðið að liða svo mikið, að
taka yrði tillit til þess, að hún
hefði misst stjórn á sér þess
vegna.
En Ruth Ellis gerði stöðugt allt,
sem I hennar valdi stóð, til þess
að hún hafnaði i gálganum.
— Hver var eiginlega tilgang-
urinn hjá yður, þegar þér hélduð
áfram að skjóta? spurði rikissak-
sóknarinn.
— Það hlýtur að vera augljóst.
Ég ætlaði mér að drepa hann,
sagði hún.
Þetta svar hafði úrslitaáhrif, en
eins og það væri ekki nægilega
skýrt bætti Ruth við: — Ég drap
manninn, sem ég elskaði. Ég vil
ekki lifa lengur. Ég vil bæta fyrir
brot mitt með þvi að fylgja hon-
um þangað, sem hann fór, hvert
sem það hefur nú verið.
Kviðdómurinn var fjarverandi
úr dómssalnum i 23 mlnútur, og
leit ekki á hana, þegar hann korh
inn aftur, en það var gott merki
um það, að dauðadómur yröi upp
kveðinn. Dómarinn leit hins veg-
ar á hana, þegar hann las upp
dóminn, með rödd, sem var i
þann veginn að bresta. Það var
aðeins konan, sem sat á saka-
mannabekknum, sem var róleg.
Hún virtist ekkert hafa við orðin
að athuga: A að hengjast, skal
verða grafin i fangelsisgarðinum,
þegar aftökunni er lokið.
Bænaskjal
Eitthvað yfir 50 þúsund manns
undirskrifuðu bænaskjal til
innanrikisráðherrans, sem árið
áður hafði sent tengdamóður i
gálgann, eftir að hún hafði myrt
tengdadóttur sina. Hann var
ósveigjanlegur, og Ruth var
hengd 13. júli.
Morguninn, sem hún fékk að
vita að timinn væri liðinn reykti
hún sigarettu og drakk tvö glös af
koniaki áður en hún hélt til gálg-
ans óhrædd. Það var ekki annað
aö sjá, en hún biði dauðans I of-
Framhald á bls. 39.
Akveöiö hefur veriö aö kvikmynda sögu Ruth Ellis. Angie Bowie hefur
verið valin til þess aö fara meö hlutverk hennar. Angie er gift
söngvaranum David Bowie.