Tíminn - 06.07.1975, Page 19

Tíminn - 06.07.1975, Page 19
Sunnudagur 6. júli 1975. TÍMINN 19 N tJtgefandi Framsúknarflokkurinn. Framkvæmdastjúri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla- son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiösiusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö I lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 700.00 á mánuði. Biaöaprenth.f. íþróttalögin Það var á stofnþingi Sambands ungra Fram- sóknarmanna, sem haldið var að Laugarvatni sumarið 1938, að Hermann Jónasson, sem þá var menntamálaráðherra, skýrði fyrst frá þvi, að hann hefði ákveðið að setja sérstök lög um iþrótta- starfsemina. 1 ræðu, sem hannflutti á þinginu, fór- ust honum m.a. orð á þessa leið: ,,Enn er það nauðsynlegt, að iþróttir verði aukn- ar og bættar meðal landsmanna allra. Þær eru vinna, sem við búum okkur til, erfiði, sem kennir mönnum að láta á móti sér og reyna á sig. Þær eru þvi hinn bezti undirbúningur undir sjálfa lifsbar- áttuna. Þær eru og einnig góð skemmtun, auka heilbrigði, gleði og léttlyndi, sem við sannarlega þurfum meira af en við höfum. Ég hefi nýlega skipað niu manna nefnd til þess að athuga og undirbúa tillögur til rikisstjórnarinn- ar fyrir næsta reglulegt Alþingi um það, hvernig hagkvæmast verði að efla iþróttastarfsemina og likamsræktina meðal þjóðarinnar, fyrst og ffemst með það sjónarmið fyrir augum, að áhrif iþrótt- anna til þroska, heilsubótar og hressingar nái til sem flestra i þessu landi. Erlendis hefir risið upp styrk hreyfing, sem sumstaðar hefir verið styrkt af rikinu, þess efnis að innprenta mönnum þau sannindi, að það sé rik skylda hvers manns að haga lifi sinu öllu viðvikjandi klæðnaði, mat og drykk og öðrum lifsvenjum þannig, að heilsan varðveitist sem best og að menn hafi sem mesta hæfni til að vinna. Ég geri mér vonir um, að við getum i sambandi við þær breytingar, sem mér þykir liklegt að gerðar verði á iþróttamálunum, tekið upp samskonar starfsemi hér á landi. Enda er ég þess fullviss, að hennar er mikil þörf, þvi það brestur mjög á, að hollustuhættir hér á landi séu þannig, að við verði unað, en við það lamast starfsþrek og framtak þjóðarinnar meir en menn gera sér ljóst.” Nefnd sú, sem Hermann Jónasson minntist á i ræðunni, skilaði áliti sinu á tilsettum tima. Iþróttalögin voru svo sett á þingi 1939. Þau eru þvi orðin 36 ára gömul. Óhætt er að segja, að þau hafi markað timamót i iþróttasögu landsins. Þá var stofnaður iþróttasjóður með árlegu rikisframlagi og sett á stofn iþróttanefnd rikisins, sem m.a. út- hlutar fé úr sjóðnum til margskonar iþróttafram- kvæmda, svo sem sundlauga og iþróttahúsa. Framkvæmdir á þessu sviði hafa siðan aukizt jafnt og þétt um land allt. Með iþróttalögunum var sund gert að skyldunámsgrein fyrir öll börn, sem heilsu hafa til þess náms, og var það ákvæði lag- anna þá einsdæmi i heiminum. Þótt iþróttalögin hafi haft ómetanlega þýðingu og eflt iþróttirnar og iþróttastarfsemina á marg- vislegan hátt, er vafalitið kominn timi til að endur- skoða ýmsa þætti þeirra og færa þá til samræmis við breytta tima og breyttan aldarhátt. Núverandi menntamálaráðherra mun lika hafa fullan hug á að örva iþróttastarfsemina, bæði á þann og annan hátt, en hann var einn þeirra,sem sátu stofn- þing SUF, þar sem Hermann Jónasson boðaði setningu iþróttalaganna. Þ.Þ. Benedikt Ásgeirsson: Útnefning Kohls sem kanslaraefnis Schmidt er líklegur til að halda velli FYRIR skömmu siðan ákváöu CDU og CSU, að kanslaraefni þeirra i þingkosningunum 1976 yrði Dr. jur. Helmut Kohl, for- maður CDU. Með þessari á- kvöröun er bundinn endir á langar deilur innan CDU/CSU um það, hver sé hæfasti kansl- arinn og liklegastur til að sigra Helmut Schmidt i kosn- ingunum 1976. Deilur þessar eiga að nokkru rætur sínar að rekja til þingkosninganna haustið 1972. Rainer Barzel, þáverandi for- maður CDU, var kanslara- frambjóðandi. 1 þessum kosn- ingum tapaði CDU/CSU veru- lega og varð næst stærsti flokkurinn eftir langan feril sem stærsti og voldugasti stjórnmálaflokkur Vestur- Þýzkalands. Eins og eðlilegt er leiddi þetta tap til manna- skipta I forystu flokksins. Barzel lét fyrst af embætti for- manns CDU, en i staðinn var Helmut Kohl, fylkisstjóri i Reihnland-Pfalz, kjörinn for- maður. Varaformaður var kjörinn sagnfræðingurinn dr. Gerhard Stoltenberg, fylkis- stjóri i Schlesvig-Holstein. Nokkru siðar sagði Barzel af sér sem formaður þingflokks CDU/CSU, en þvi embætti hafði hann gegnt i tiu ár. 1 það embætti var kosinn dr. Karl Carstens, sem hafði um langt skeið verið prófessor i lögum og gegnt ýmsum mikilvægum opinberum störfum. Eftir þessa nýskipun i forystu CDU var Barzel horfinn úr sviðs- ljósi stjórnmálanna. Auk ósig- urs hans i kosningunum 1972 átti Franz Josef Strauss nokk- urn þátt i pólitisku falli hans. NOKKUR ágreiningur kom fljótlega upp um það, hver af hinum nýju og gömlu forystu- mönnum CDU/CSU yrði boð- inn fram sem kanslari i þing- kosningunum 1976 i staðinn fyrir eina ákveðna persónu, sem engar deilur stóðu um komu, eftir fyrrnefnda ný- skipan, a.m.k. 4 eða 5 af leið- togum CDU/CSU til greina. Sem formaður CDU var Helmut Kohl i tiltölulega góðri aðstöðu, sem hann notaði lika til að styrkja stöðu sina innan flokksins. Kohl hefur hinsveg- ar ýmsa galla, sem koma til með að há framboði hans nokkuð. Kohl á að visu mjög árangursrikan feril að baki, sem fylkisstjóri,en hann hefur aldrei verið ráðherra i nokk- urri sambandsstjórn, og hann hefur aldrei átt sæti á Sambandsþinginu i Bonn. Þess vegna skortir hann reynslu i þeim málum, sem stjórnin i Bonn fer með. Hann hefur einkum takmarkaða þekkingu á efnahags- og utan- rikismálum — Franz Josef Strauss gerir óspart gys að vanþekkingu Kohls i utanrik- ismálum, — en það eru þeir tveir málaflokkar, sem kanzl- ari verður nauðsynlega að kunna góð skil á. Kohl hefur hinsvegar bætt nokkuð úr þessum göllum með þvi að safna um sig miklu hæfileika- fólki. Dr. Kurt Biedenkopf, sem Kohl gerði að fram- kvæmdastjóra CDU, er aðal hugsuður flokksins. Bieden- kopf, sem er aðeins rúmlega fertugur að aldri, á að baki ó- venjuleganferil sem prófessor ilögum, yngsti háskólarektor i Vestur-Þýzkalandi og fram- kvæmdastjóri hjá stórfyrir- tæki. Menn eru almennt sam- mála um, að pólitiskir sigrar. CDU að undanförnu séu að Helmut Kohl. miklu leyti árangursriku starfi hans að þakka. Það hef- ur meira að segja verið stung- ið upp á þvi að gera hann að kanslaraframbjóðanda. 1 stórum dráttum má segja, að Kohl og Biedenkopf, ásamt félagsmálanefnd CDU með Hans Katzer i broddi fylking- ar, myndi hinn frjálslyndari arm CDU/CSU. Þeir vilja m.a. bæta félagslegsmálalög- gjöfina, koma á atvinnulýð- ræði i einhverri mynd og halda „austurpólitikinni” áfram á mikið til sama grundvelli og hingað til. Hinn ihaldssamari armur CDU/CSU hefur hins- vegar að nokkru aðrar skoð- anir á þessum málum. AÐAL MALSVARI hins i- haldssamara arms CDU/CSU er Frans Josef Straus for- maður CSU. Hann var enn- fremur skæðasti keppinautur Kohls við útnefningu kansl- araframbjóðanda CDU/CSU. Strauss á að baki langan stjórnmálaferil sem þing- maður varnarmálaráðherra og fjármálaráðherra. Það er óhætt að fullyrða, að hann hafi almennt meiri reynslu i stjórnmálum, einkum i utan- rikis- og fjármálum, en Kohl. Hins vegar hafa valdagræðgi hans og vanstilling valdið þvi, að hann hefur gert ýmis fræg pólitisk afglöp og eignazt marga óvini. Nokkru er ábóta- vant um pólitiskt siðgæði hans, en það einkennist af við- horfinu: tilgangurinn helgar meðalið. Eftir mikla sigra CSU I fylkiskosningunum i Bayern ioktóber ’74, sem voru (ranglega) þakkaðir Strauss, jukust möguleikar hans á þvi að verða kanslaraframbjóð- andi. Sigur skoðanabróður hans Dregger, formanns CDU i Hessen, I fylkiskosningunum þar styrktu ennfremur stöðu Strauss og Ihaldssamari hluta CDU/CSU. Um tima leit út fyrir, að Strauss myndi fara meö sigur af hólmi i viður- eigninni við Kohl. Gömul af- glöp hans gleymdust i skugga fortiðarinnar, og ræður hans báru um skeið vitni um still- ingu og hlutlægni. Það varð ekki löng bið á þvi, aö hið rétta andlit Strauss kæmi I ljós. t frægri ræðu, sem hann flutti fyrir þingflokk CSU I Sonthofen (ræðan er kennd við þann stað), lýsti hann uppáhaldsbaráttuaðferðum sinum. Aðal markmiðið var að koma stjórn SPD/FDP frá völdum. Þess vegna bæri að óska þess, að ástandið i Þýzkalandi versnaði sem mest. Ennfreritur átti að telja kjósendum trú um það, að kreppuástand væri á næsta leiti, og að öryggi borgaranna væri almennt hætta búin vegr.a hryðjuverka. Aðalat- riðið væri að skapa svo mikinn ótta og óhug á meðal kjós- enda, að þeir væru móttæki- legir fyrir hin öfgakenndu „meðul” CDU/CSU við þessu ástandi. Ræðu þessari, sem af skilj- anlegum ástæðum, átti ekki að birta, var dreift á meðal fjöl- miðla og stjórnmálamanna af einhverjum óþekktum aðila. Eölilega varð Strauss fyrir mikilli gagnrýni af hálfu blaöa og forystumanna SPD/FDP, og óvinsældir hans jukust til muna. Þar sem Strauss er einn af valdamestu mönnum kristilegu flokkanna hafði þessi ræða hans ennfremur neikvæð áhrif á vinsældir CDU/CSU. Telja má liklegt, að lélegur árangur CDU i fylkiskosningunum i Rhein- land-Pfalz, Schleswig-Hol- stein og Saarland eigi að nokkru rætur sinar að rekja til þessarar ræðu. Flestum nema CSU var ennfremur orðið ljóst, að Strauss væri ekki hæfur til að gegna embætti kanslara. AF ÖÐRUM HUGSANLEG- UM keppinautum Kohls voru þá aðeins eftir Gerhard Stoltenberg og Karl Cartens, sem báðir teljast til ihalds- samari arms CDU. Stolten- berg hefur að visu mun meiri reynslu og þekkingu, einkum á fjármálum, en Kohl, en hann nýtur ekki sömu vinsælda og hefur ekki eins sterka aðstöðu innan CDU. Carstens, for- maður þingflokks CDU/CSU, hefur svipaðar skoðanir og Strauss á ýmsum málum. Það hjálpar honum hins vegar lit- ið, og hann er umdeildur sem þingflokksformaður, einkum hefur sú taktik hans að vera á móti öllu, sem stjórn SPD/FDP leggur til, sætt nokkurri gagnrýni. Niðurstaðan varð þvi sú, sem fyrr segir, að Kohl og frjálslyndari armur CDU báru sigur af hólmi i þessum innan- flokksdeilum kristilegu flokk- anna. Strauss og hægri armur CDU/CSU hafa samt sem áður all sterka stöðu, og þeir koma til með að hafa nokkur áhrif á stefnu CDU/CSU. Aðalspurningin er sú, hvort Helmut Kohl hafi nokkra möguleika á þvi að sigra Helmut Schmidt i kosningun- um 1976. Að visu mun þróunin I efnahagsmálum ráða miklu um árangur SPD/FDP, en nokkuð veltur á þvi, hvernig kanslarinn og mótframbjóð- andi hans standa sig. Flestir eru sammála um, að Schmidt sé hæfari til að fara með emb- ætti kanslara en Kohl, meira að segja sumir flokksbræður Kohls hafa meira álit á Schmidt sem kanslara. Það er óhætt að fullyrða, að Schmidt hafi miklu meiri reynslu og þekkingu á nær öllum mikil- vægari málaflokkum, auk þess er hann mun betri ræðu- maður en Kohl, sem hefur frekar þunglamalegan ræðu- stil. Hinsvegar má gera ráð fyrir þvi, að kristilegu flokk- arnir standi sameinaðir að baki Kohls, og að frjálslynd stefna hans njóti nokkurra vinsælda á meðal kjósenda FDP og jafnvel SPD. Þekking og vinsældir Schmidts skipta þó trúlega meira máli. Þess vegna er liklegt, að Schmidt beri sigur af hólmi i kosning- unum 1976.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.