Tíminn - 06.07.1975, Síða 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 6. júli 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
63
fellur mér ekki sú tilhugsun, að það sé aðalatriðið. Ertu
mér sammála um þetta?"
— ,,já." Teasle meinti þetta fyllilega. Það siðasta
sem hann vildi var að andstæðingur hans yrði sundur-
skotinn einhvers staðar uppi í hæðunum, án þess hann
fengi neitt við ráðið. Teasle vildi láta handsama hann og
færa til byggða. Hann vildi fylgjast með hverju skitnu
smáatriði í meðhöndlun fanga síns.
— „Gott og vel," sagði Trautman. — Ég er ekki viss
um að aðstoð mín komi þér að neinu gagni. Ég held, að
enginn af leitarmönnum þínum komist nokkru sinni svo
nærri honum að sjá hann, hvað þá heldur að þeir hand-
sami hann. Hann er miklu harðgerðari og úrræðabetri en
þú getur ímyndað þér. Hvernig stóð á því, að hann drap
þig ekki líka? hvernig í ósköpunum vildi það til, að þú
slappst undan honum?"
Enn einu sinni þóttist Teasle heyra brydda á stolti og
vonbrigðum i rödd Trautmans.— „Það er engu líkara, en
þér þyki það vera miður?"
— „Mér þykir það miður — á vissan máta. En þú þarft
ekki að taka það sem persónulega óvild mína í þinn garð.
Strangt til tekið hefði honum ekki átt að mistakast.
Þjálfun hans og hæfileikar eiga að tryggja það. Ef þú
hefðir verið óvinur hans, og þú hefðir sloppið, þá væri
þetta vissulega mjög alvarlegt. Mér þætti fengur í að
komast að því hvers vegna þetta kom f yrir. Kannski geta
hermennirnir mínir lært eitthvað gagnlegt af því.
Hvernig hef ur þú annars skipulegt þetta f ram til þessa?
Hvernig fórstu að því að safna Þjóðvarðliðinu saman
með svo skömmum fyrirvara?"
— „Þeir höfðu ákveðið heræfingu um helgina. Allur
tækjabúnaður þeirra var tilbúinn. Það eina sem ég gerði,
var að f lýta því að þeir kæmu saman til æf inga."
— „En þetta er borgaraleg aðalbækistöð?
? Hvar eru aðalstöðvar hersins?
— „Aðeins neðar við veginn í enn öðrum vörubíl. En
yfirmennirnir láta okkur um að stjórna og skipa fyrir.
Þá langar til að kanna hvernig liðsmenn þeirra standa
sig uppáeiginspýtur. Þeir fylgjast með úr f jarlægð eins
og við heræfingarnar.."
— „Heræfngarnar," sagði Trautman. Þeir líta á þetta
sem einhvern leik. öllum þykir þeim gaman að leikjum.
Hvers vegna heldur þú að hann sé enn hér í nágrenn-
inu?"
— „Vegna þess að við höfum fylgst með hverjum ein-
asta vegi kring um hæðirnar, síðan hann hvarf upp í þær.
Það er óhugsandi, að hann hafi komist niður óséður.
Jaf nvel þótt honum hefði tekist það hefði ég f undið það á
mér.
— „Hvað þá?"
— „Ég get ekki skýrt það nánar. Eins konar viðbótar-
skilningarvit, sem ég virðist búa yfir eftir það sem á
undan er gengið okkar á milli. Það skiptir ekki máli. En
hann er enn þarna uppfrá. Á morgunn sendi ég leitar-
menn á eftir honum. Ég 'hætti ekki fyrr en það verð-
ur einn við hvert einasta tré."
— „Það er vitaskuld ógerlegt með öllu, þess vegna er
staða hans enn jaf n góð og hún var. Hann er sérf ræðing-
ur í skæruhernaði. Hann kann að lif a af landsins gæðum.
Þú þarft að senda mönnum þínum mat og vistir. Hann
þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu slíku. Hann hefur
lært þolinmæði og getur því falið sig einhvers staðar og
hummað fram af sér bardagann það sem eftir er ársins
ef honum er það nauðsyn. Það er erfitt að finna hann,
því þetta er aðeins einn einasti maður. Hann á allt undir
sjálfum sér og þarf því ekki að fylgja fyrirskipunum.
Hann þarf heldur ekki að samhæfa sig gerðum eins eða
neins. Þess vegnageturhann verið á hraðri ferð, skotið á
menn, forðað sér eitthvað annað og fundið sér nýjan
felustað. Síðan getur hann hafið sama leikinn á ný, rétt
eins og þjálfarar mínir kenndu honum."
— „Þetta er nógu glæsilegt, sagði Teasle. Nú er best að
þú kennir mér svolítið af þessu."
ÞRIÐJI KAFLI.
Rambo vaknaði í myrkri. Hann lá á köldum og f lötum
steini. Hann vaknaði vegna sársaukans í brjóstkassan-
um, Hann var svo bólguþrútinn og sár, að Rambo varð að
losa um beltið, sem hann hafði spennt um brjóstkassann.
( hvert sinn sem hann andaði að sér — skárust rif beinin í
hann, svo hann gat ekki annað en hrokkið saman af sárs-
aukanum. Ekki hafði hann hugmynd um hvar hann var
niðurkominn. Hann giskaði á að það væri hánótt, en hánn
skildi ekki hvers vegna myrkrið var svo algert. Hvergi
sá í gráma í sortanum. Hvergi glitti í stjörnu né blikaði á
ský. Hann deplaði augunum, en myrkrið vék ekki. i
fyrstu óttaðist hann, að augu sín hefðu skaddast eitt-
hvað. Hann fálmaði í skelf ingarákafa með báðum hönd-
um á steininum, sem hann lá á og þreifaði umhverf is sig
hálftrylltur af hræðslu. Hann snerti raka klettaveggi.
Hellir — hugsaði hann með sér, hálf ruglaður. Ég er í
helli. En hvernig stendur á því? Hann var enn í hálfgerðu
dái þegar hann staulaðist út.
HvaB litur var á bil hans??
A fötum hans? A skyrtu
hans? Var hann meB hatt?
Klukkan hvaB var þetta?^
\
Sunnudagur
6. júll
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up flytur ritningarorö og
bæn.
8.10 Fréttir og veöurfregnir.
8.15 Létt morguniög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaöanna.
9.15 Morguntónleikar.
Veöurfregnir). a. W
Kempff leikur á píano ton-
list eftir Bach. b. Konsert
fyrir klarinettu og hljóm-
sveit i A-dúr (K622) eftir
Mozart. Jack Brymer og
Konunglega filharmóniu-
sveitin i Lundúnum flytja.
Sir Thomas Beecham
stjórnar. c. Sinfónia nr. 4 i
A-dúr op. 90 eftir Mendel-
sohn. Sinfóniuhljómsveit
danska útvarpsins leikur,
Fritz Busch stjórnar.
11.00 Messa I Oddakirkju á
Rangárvöllunt. Prestur:
Séra Stefán Lárusson. Org-
anleikari: Anna Magnús-
dóttir. (Hljóðritun frá 8. júni
s.l.).
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Með eigin augum. Jónas
Guðmundsson rithöfundur
spjallar við hlustendur.
13.40 Harmonikulög. Lind-
quist-bræður leika.
14.00 Staldrað við á Blönduósi,
— fimmti og síðasti þáttur.
Jónas Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
15.00 Miödegistónleikar: Frá
útvarpinu í Bcrlin. Sinfóniu-
hljómsveit útvarpsins i
Berlin flytur tónlist eftir
Schumann. Stjórnandi:
Dietrich Fischer-Dieskau.
Einleikari: Jean-Bernard
Pommier. a. Konsert fyrir
pianó og hljómsveit i a-moll
op. 54. b. Sinfónia nr. 2 i C-
dúr op. 61.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Ailtaf á sunnudögum.
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.15 Barnatimi: Eirikur Stef-
ánsson stjórnar. Blessuð
sólin. Sagnir og sögur um
sólina. Flytjendur ásamt
stjórnanda: Guðbjörg
Hreinsdóttir og Sigriður
Halldórsdóttir.
18.00 Stundarkorn með Gérard
Souzay.sem syngur lög eftir
Richard Strauss. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Úr handraðanum.Sverr-
ir Kjartansson annast þátt-
inn.
20.00 íslenzk tónlist. a. Til-
brigði eftir Pál Isólfsson um
stef eftir Isólf Pálsson.
Rögnvaldur Sigurjónsson
leikur á pianó. b. Sónata
fyrir klarfnettu og pianó eft-
ir Jón Þórarinsson. Sig-
urður Ingvi Snorrason og
Guörún Kristinsdóttir leika.
20.30 Dagstund I húsi Jóns Sig-
urðssonar. Jökull Jakobs-
son tekur saman viðtalsþátt
frá Kaupmannahöfn.
21.30 Frá tónleikum Passiu-
kórsins I Akureyrarkirkju 6.
april s.l. Guri Egge, Lilja
Hallgrimsdóttir, Michael
Clarke, Jón H. Áskelsson,
Sigurður D. Fransson og
kammersveit flytja ásamt
Passiukórnum undir stjóm
Roars Kvam ,,Te deum”
eftir Charpentier.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Dansiög.
Hulda Björnsdóttir dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Mánudagur
7. júli
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. landsmálabl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55: Séra Guðjón Guðjóns-
son flytur (a.v.d.v.). Morg-
unstund barnanna kl. 8.45:
Geir Christensen les söguna