Tíminn - 06.07.1975, Qupperneq 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 6. júli 1975.
Læknar lýsa
furðu sinni á
greinargerð
um hunda-
hald....
Nýja svifflugan
Svifflugfélag Akureyrar
kaupir nýja flugu fyrir
um eina milljón króna
VIÐ undirritaðir læknar lýsum
yfir furðu okkar á greinargerð
um hundahald, sem samstarfs-
nefnd um heilbrigðiseftirlit á höf-
uðborgarsvæðinu hefir nýlega
látiö birta i fjölmiðlum og tekin
var upp i fréttaauka útvarpsins 2.
júni sl.
Greinargerð þessi virðist vera
samin i þeim tilgangi, að útmála
heimilishundinn sem óargadýr i
augum þeirra, sem ekkert til
hans þekkja og magna upp of-
sóknar- og múgsefjunarherferð
gegn þeim borgurum, er fundið
hafa þörf hjá sér til að halda
hunda á heimilum sinum.
i sambandi við innihald þessar-
ar greinargerðar viljum við sér-
staklega vekja athygli á eftirtöld-
um atriðum:
1. Eftirlitslaust hundahald hefir
viögengizt i Reykjavik i áratugi
án þess að nokkrir alvarlegir
sjúkdómar eða óþægindi hafi af
þvihlotizt. Þar sem nefndin getur
ekki lagt fram neinar gildar á-
stæður fyrir vandkvæðum á
hundahaldi i Reykjavik, hefir hún
i rökþrotum sinum gripið til sam-
likingar á hundahaldi i Reykjavik
og New York, sem á sér enga stoð
i veruleikanum vegna stærðar-
mismunar borganna og ólikra
lifnaðarhátta. Sem dæmi um fá-
ránleik þessa samanburðar má
t.d. benda á þá staðreynd, að
landsvæði á hvern ibúa i Reykja-
vik er 15 sinnum stærra en i New
York. Ef nefndinni hefði verið
umhugað um réttmætan saman-
burð við aðrar borgir, hefði verið
raunhæft aö taka til viðmiðunar
einhverja álika stóra borg á
Norðurlöndum.
2. I greinargerðinni er vitnað i
visindaritið Science, 13. sept.
1974, þar sem taldir eru upp yfir
40 sjúkdómar, er geti borizt frá
hundi til manns. Upptalning þess-
ara sjúkdóma hefir einungis
fræðilegt gildi og auðvelt væri að
telja upp jafnmarga sjúkdóma
eða fleiri, sem berast frá öðrum
dýrum til manna, t.d. köttum,
hestum og fuglum. Algengustu
sjúkdóma i hundum, svo sem
spóluorma og bandorma er auð-
velt að koma i veg fyrir með við-
eigandi lyfjum, eins og tiökast i
þeim löndum, þar sem heilbrigð-
isyfirvöld lita á hlutverk sitt sem
þjónustu við andlega og likam-
lega velferð fólksins, en ekki
valdboð um lifnaðarhætti þess.
Greinargerð nefndarinnar fjallar
að mestu leyti um hundahald i
Bandarikjunum og er I henni m.a.
tekið fram, að þar i landi sé einn
hundur á hverja 6 ibúa. Ef hætta
af hundahaldi er svo mikil sem
nefndarmenn vilja vera láta, ætti
meirihluti Bandarikjamanna að
vera löngu orðinn heilsulaus af
hundasjúkdómum og sundurtætt-
ur af hundsbitum.
3. I greinargerðinni er vitnað i
bréf yfirdýralæknis, þar sem
hann segir, að á siðustu 20 árum
hafi fundizt igulsullir á 3 slátur-
stöðum. Þótt sjálfsagt sé að gæta
fyllstu varúðar I þessum efnum,
er tiðni igulsulla svo sáralitil, að
engin ástæða er til að magna upp
ótta við þennan gamla vágest. Má
I þvi sambandi vitna i ummæli
Dr. Jóns Sigurðssonar, fyrrv.
borgarlæknis, i grein um út-
breiðslu og útrýmingu igulsulla á
Islandi, er birtist i Nordisk
Medicinhistorisk Árbok 1970, en
þar segir hann orðrétt: „Tilfæld-
ene er ikke flere end i lande, hvor
man næppe skænker sygdommen
en tanke” (tilfellin eru ekki fleiri
en i löndum þar sem menn gefa
sjúkdómnum varla gaum), og i
næstu setningu ,,der er god grund
til at tro at infektionfaren'i Island
praktisk talt er overstaet”. ( Gild
ástæða er til að ætla, að sýkingar-
hættan sé i reynd um garð geng-
in).
4. í lok greinargerðarinnar
eggja nefndarmenn lögreglu og
dómsvald til „samræmdra að-
gerða” til útrýmingar á hundun-
um. Þetta gerræðisfulla heróp
felur I sér árás á viðkvæmustu til-
finningar þúsunda islenzkra
borgara og tilræði við heimilislif
þeirra. Framkvæmd þessara
„samræmdu aðgerða” mundi
hafa i för með sér svo alvarlegar
andlegar þjáningar hjá fjölda
fólks — einkanlega börnum og
gamalmennum — að þær taka
langt fram þeim óverulegu óþæg-
indum, sem hundar kynnu aö
valda.
Um aldaraðir hafa borgarbúar
fundið þörf hjá sér til að halda
Framhald á bls. 39.
ASK-Akureyri. Svifflugfélag
Akureyrar hefur nú ákveðið að
kaupa nýja fiugu i stað þeirrar, er
eyðilagðist I brotiendingu slðast-
liðið sumar. Hér er um að ræða
þýzka vél af gerðinni Ka-6cr, en
hingað komin kostar hún um eina
milijón. Tvær sams konar vélar
eru i eigu Svifflugfélags tslands
og hafa þær reynzt afburða vel.
Svifflugur af þessari gerð voru
á sinum tima einhverjar þær
beztu keppnisflugur, sem völ var
á, en framleiðslu þeirra var hætt
1973 og höfðu þá verið framleidd-
ar um 1600 flugur. En sökum þess
að trefjaplast er mjög farið að
ryðja sér til rúms i gerö svif-
flugna, er hægt að fá fyrrgreinda
tegund á mun hagstæðara verði
en annars heföi verið.
Aðstöðu hafa meðlimir félags-
ins á Melgerðismelum i Eyjafirði,
en þar á félagið sveitabýlið Mel-
brekku og er þar „fullbókað” all-
ar helgar sumarsins, þegar viðr-
ar til svifflugs. Til kennslunnar
notar félagið tveggja sæta svif-
flugu af gerðinni Rhönlerche 11,
en hún er orðin þrettán ára göm-
ul, þá á félagið einnig gamla flugu
af gerðinni Grunau Baby, en hún
er einungis ætluð þeim, er lengra
eru komnir i listinni. Á Mel-
gerðismelum hefur félagið til af-
nota stórt flugskýli frá striðsár-
unum auk skála i Mývatnssveit
og verkstæðishúss á Akureyrar-
flugvelli, en það hafði lengi háð
starfseminni, að ekki var um
neinn fastan samastað að ræða á
Akureyri.
Svifflugfélag Akureyrar var
stofnað árið 1937 og hefur starfað
óslitið siðan, félagsmenn eru milli
30-40 og fer áhugi fyrir starfsem-
inni sifellt vaxandi.
Vandaðar vélar
borga
sig
bezt
m
HEumn HEYÞYRLUR
2ja og 4ra stjörnu
^//////////////////////////.
HF HAMAR
véladeild
sími 2-21-23
Tryggvagötu
Reykjavík.