Fréttablaðið - 26.03.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 26.03.2005, Síða 2
2 26. mars 2005 LAUGARDAGUR Stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofu Íslands um 2,2 milljóna styrk frá ríkinu: Undrast að styrkur sé skilyrtur MANNRÉTTINDI Mannréttindaskrif- stofa Íslands fær skilyrt styrktarfé að upphæð 2,2 milljónir króna frá dómsmálaráðuneytinu. Er það eina féð sem stjórnvöld hafa tryggt skrifstofunni einni, en hún var áður á fjárlögum. Brynhildur Flóvenz, stjórnar- formaður Mannréttindaskrifstof- unnar, segir erfitt að meta af hverju styrkurinn er skilyrtur. „Auðvitað freistast maður til að halda að stjórnvöldum finnist ein- faldlega óþægilegt að svona starf- semi sé í gangi og vilji ekki styðja skrifstofu sem fylgist með þeim,“ segir Brynhildur. Hún bendir á að stjórnvöld hafi ekki kosið að styrkja umsagnir um lagafrum- vörp á Alþingi og skýrslu til Sam- einuðu þjóðanna um mannréttindi hér á landi. Brynhildur segir að fénu eigi að verja í ritröð sem skrifstofan gefi út, gerð fræðsluefnis og að hluta þýðingu úr Mannréttindasáttmála Evrópu: „Það á ekki að vera á hönd- um stjórnvalda hvaða verk eru unnin á skrifstofunni og hver ekki.“ Dómsmálaráðuneytið veitti skrifstofunni og Mannréttinda- stofnun Háskóla Íslands einnig 650 þúsund króna styrk til að ræða tíu ára afmæli mannréttindaákvæðis stjórnarskrárinnar. - gag Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2: Segist ekki hafa stýrt atburðarásinni FISCHER-MÁLIÐ Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, segir í yfir- lýsingu að hann hafi ekki stýrt atburðarásinni á Reykjavíkur- flugvelli við komu Bobby Fischer eins og stuðningsmenn Fischers hafa sagt. „Aðspurður upplýsti ég yfir- lögregluþjón hins vegar um að Bobby Fischer hefði óskað eftir því að fara beint inn á hótel en taka ekki þátt í formlegri mót- tökuathöfn eða veita viðtöl inni á flugvellinum strax eftir lend- ingu,“ segir í yfirlýsingu Páls. „Það liggur aftur á móti í hlutar- ins eðli að Stöð 2 reyndi eftir fremsta megni að tryggja sér sem bestan aðgang að Bobby Fischer – og helst betri en keppinautanna.“ Fyrirtækið Baugur greiddi fyrir einkaflugvél sem flutti Bobby Fischer og föruneyti hans ásamt fréttastjóra Stöðvar 2 til landsins á fimmtudagskvöld. Páll Magnússon neitaði aðspurður að hafa haft milligöngu um flugvél- ina. - gag Telja að Stöð 2 hafi rænt Fischer Stuðningsnefnd gagnrýnir framgöngu Páls Magnússonar, fréttastjóra Stöðvar 2, við komu Bobby Fischer. Nefndarmenn telja Pál hafa reynt að stýra atburðarásinni og nánast rænt Fischer um stundarsakir. FISCHER-MÁLIÐ Framganga Páls Magnússonar, fréttastjóra Stöðvar 2, við komu Bobby Fischer og unn- ustu hans Miyoko Watai til Reykja- víkurflugvallar í fyrrakvöld er harðlega gagnrýnd í yfirlýsingu frá Einari S. Einarssyni, sem er í stuðn- ingsnefnd Fischers. Í yfirlýsingunni segir að eftir að Fischer hafi verið kominn í mót- tökubílinn hafi fréttamenn Stöðvar 2 nánast rænt Fischer um stundar- sakir en komið með hann aftur á vettvang þegar allar sjónvarps- stöðvar hafi verið búnar að pakka saman og fara. „Það hlýtur að vera algjört eins- dæmi að fréttamiðill taki atburða- rásina í eigin hendur af skipuleggj- endum og stýri framvindu atburðar til að geta setið einn að hitunni,“ segir í yfirlýsingunni. Til stóð af hálfu stuðningsnefnd- ar að heilsa Fischer og veita honum blóm og ríkisfangsbréf við þetta tækifæri. Ekkert varð úr því þegar Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn kom úr einkaþotunni með þau skilaboð að Fischer talaði ekki við neinn vegna mikillar þreytu. Í yfir- lýsingu Einars segir að Geir Jón hafi gert þetta samkvæmt fyrir- mælum Páls. Spurður segir Geir Jón það hafa verið ósk Fischers sjálfs og allra sem í þotunni voru að hann talaði ekki við fjölmiðlamenn við þetta tækifæri. Á blaðamannafundi á Hótel Loftleiðum staðfesti Fischer að það hefði verið hans ákvörðun og allra hlutaðeigandi að hann talaði hvorki við fjölmiðlamenn né stuðn- ingsnefndina við komu sína þar sem hann hefði verið dauðþreyttur. Heimildarmaður Fréttablaðsins, sem er einn af stuðningsnefndar- mönnum, segir að Fischer hafi ekki verið svo þreyttur þegar nefndar- menn loks hittu hann á Hótel Loft- leiðum. Honum þykir sérkennilegt ef hlífa átti Fischer við amstri vegna þreytu að menn skuli þá hafa rúntað með hann uns fjölmiðlar væru farnir svo hann gæti farið aftur á vettvang í viðtal hjá Stöð 2. Stuðningsnefndin sé þó fyrst og fremst ánægð með að Fischer væri kominn en harmi hve lítil skil sumir fjölmiðlar gátu gert þessum við- burði. - jse Dómsmálaráðherra: Stjórnvöld í góðri trú MANNRÉTTINDI Stjórnvöld hafa eng- an ama af starfi Mannréttinda- skrifstofu Íslands, segir Björn Bjarnason dóms- og kirkjumála- ráðherra. „Með þessum styrk er ætlunin að auðvelda henni starfið. Þykir mér miður ef styrkveitingin veld- ur skrifstofunni vandræðum, en ráðuneytið var í góðri trú um að umsóknin tæki mið af þeim verk- efnum sem skrifstofan teldi mik- ilvægt að sinna,“ segir Björn. Valin hafi verið verkefni úr um- sókn skrifstofunnar og ákveðið að veita fé til að styrkja þau. - gag Skálmöldin í Írak: Túlkar bíða bana í árás BAGDAD, AP Ekkert lát er á vargöld- inni í Írak. Á fimmtudagskvöldið týndu ellefu íraskir lögreglumenn lífi í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Ramadi. Sama kvöld voru fimm konur skotnar til bana í Bagdad en þær höfðu starfað sem túlkar fyrir bandaríska her- inn. Þá dó íraskur hermaður í bíl- sprengjuárás í bæ skammt frá Bagdad og í gær fundust lík tveggja hermanna sem á vantaði höfuðið. Fundum stjórnlagaþingsins hefur verið frestað til mánudags- ins og eru Írakar orðnir lang- þreyttir á hversu hægt Kúrdum og sjíum gengur að koma saman ríkisstjórn. ■ Konunglegt brúðkaup: Mikill viðbúnaður LONDON, AP Bresk lögregluyfirvöld vinna nú myrkranna á milli við að skipuleggja örygg- isgæslu við brúð- kaup Karls Breta- prins og Camillu P a r k e r- B o w l e s sem fram fer í næsta mánuði. Óttast er að hryðjuverkamenn láti þar til skarar skríða en einnig er gert ráð fyrir fjölmennum mót- mælum. Þar verður að líkindum á ferðinni fólk sem vill að konung- dæmið verði lagt niður svo og óvildarmenn Camillu sem kenna henni um að hafa lagt líf Díönu prinsessu í rúst. Til að hafa hemil á þessum hóp- um verða mörg hundruð lögreglu- menn, leyniskyttur og lífverðir til taks á brúðkaupsdaginn. ■■ LÖGREGLUFRÉTTIR TÍU KEYRA OF HRATT Tíu öku- menn voru teknir á of miklum hraða á Vesturlandsvegi við Borgarnes á fimmtudag. Voru ökumennirnir á 110 til 125 kíló- metra hraða. KEYRA SNJÓ Í BÆINN Lögregl- an á Ísafirði fylgdist með skíða- vikunni og rokkhátíðinni Aldrei fór ég suður sem haldin er þar um páskahelgina. Fjölmargir eru í bænum og segir lögreglan allt hafa farið vel fram. Grípa hafi þurft til þess ráðs að keyra snjóinn í bæinn á vörubílum svo hægt sé að leika snjóbretta- kúnstir fyrir áhorfendur. Fréttablaðið: Útgáfa á þriðjudag Fréttablaðið kemur næst út þriðjudaginn 29. mars. Afgreiðsl- an verður opin í dag og á mánudag frá 9 til 17. Hægt verður að fylgj- ast með fréttum á Vísi. ■ Bobby Fischer: Persónulegar svívirðingar FISCHER-MÁLIÐ Á blaðamannafundi Bobby Fischer á Hótel Loftleið- um í gær kom til snarprar um- ræðu milli Fischers og blaða- manns frá bandarísku íþrótta- fréttastöðinni ESPN. Átökin voru farin að snúast upp í persónuleg- ar svívirðingar þegar blaðamað- urinn dró sig í hlé vegna geðs- hræringar. Tildrögin eru þau að blaðamað- urinn, sem er gyðingur og heitir Jeremy Schaap, er sonur Dick Schaap. Fischer sagði að Dick þessi hefði nálgast sig sem föður- legur vinur en síðan úthúðað sér í ummælum í fjölmiðlum. Fischer gekk svo langt á blaðamannafund- inum að kalla hann gyðinganöðru. Þögn sló á salinn þegar Jeremy sagði að framkoma Fischers væri ekki til þess fallin að afsanna það sem Dick Schaap hefði sagt um hann. - jse Furstinn sjúkur: Rainier við dauðans dyr MÓNAKÓ, AP Rainier III fursti í Mónakó liggur nú á sóttarsæng á sjúkrahúsi í fursta- dæmi sínu og er vart hugað líf. Í gærkvöldi var hann í öndunarvél og voru læknar fámálir um bata- horfur hans. Rainier hefur verið á sjúkrahúsi síðan í byrjun mán- aðarins en á þriðju- daginn elnaði hon- um sóttin og var hann þá fluttur á gjörgæsludeild. Börn furstans og Grace Kelly; þau Albert, Karólína og Stefanía, hafa ekki vikið frá rúmstokki föður síns síðustu daga. Kirkjur í Mónakó voru fullar af fólki í gær sem bað fyrir Rainier, en hann er afar vinsæll á meðal þegna sinna. ■ Reykjanes: Skothríð á veiðihús LÖGREGLUMÁL Þrír menn um tví- tugt úr Grindavík brutu tuttugu rúður í veiðiskála og salerni sem stendur í útihýsi við Djúpavatn sunnan Trölladyngju og Soga á Reykjanesskaga. Mennirnir skutu með hagla- byssum, einni óskráðri, á húsin og fundust þrjátíu tóm haglaskot á vettvangi. Þeir unnu miklar skemmdir á klæðningu skálans með skothríðinni og brutu einnig tvö salerni og tvær hurðir. Lög- reglan í Hafnarfirði fer með rann- sókn málins og er henni ekki lokið. - gag SPURNING DAGSINS Birgir, var föstudagurinn lang- ur hjá þér? „Nei, ég hitti félaga mína í félagi trú- lausra á Hótel Borg þar sem við fengum okkur kaffi. Fór svo á myndina Life of Brian sem Vantrú sýndi um kvöldið.“ Birgir Baldursson er ábyrgðarmaður vefrits sem fjallar um trúmál frá sjónarhóli trúleysingja á slóðinni vantru.net. BRYNHILDUR FLÓVENZ Stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofu Íslands segir að með skilyrtum styrk stjórnvalda ráði þau hvað sé tekið fyrir á skrifstofu þeirra. BOBBY FISCHER Í VIÐTALI HJÁ STÖÐ 2 Sæmundur Pálsson, Miyoko Watai unnusta Fischers, Bobby Fischer og Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2. Stuðningsnefnd segir að fréttamenn Stöðvar 2 hafi nánast rænt Fischer um stundarsakir, rúntað með hann uns allir fjölmiðlar væru farnir og þá setið að honum einir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L FRÉTTASTJÓRINN Páll segir að hann hafi ekki haft milligöngu um flugvél Baugs. Þeir Sæmundur Pálsson hafi rætt um að fá einkavél. Í ljós hafi komið að forsvarsmenn Baugs voru reiðu- búnir að veita afnot af slíkri vél. BRETAPRINS RAINIER III Hann þjáist af sjúkdómum í hjarta, nýrum og öndunarfærum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.