Fréttablaðið - 26.03.2005, Qupperneq 4
4 26. mars 2005 LAUGARDAGUR
Umtalsverð fjárfesting í Svíþjóð:
Burðarás með hlut í Intrum Justitia
VIÐSKIPTI Burðarás hefur eignast
4,5 prósenta eignarhlut í Intrum
Justitia, sem er skráð í sænsku
kauphöllinni. Burðarás hefur
verið að safna bréfum í Intrum frá
áramótum en verðmæti hlutarins
er meira en tveir milljarðar króna.
Intrum er alþjóðlegt innheimtu-
fyrirtæki með útibú í 21 landi, þar
á meðal á Íslandi. Forsvarsmenn
Burðaráss álíta að Intrum sé mjög
áhugavert fyrirtæki á uppleið.
Fjárfesting Burðaráss í Intrum
bætist við eignarhluti í sænsku
félögunum Carnegie, Scribona og
Skandia. Verðmæti eignar Burðar-
áss í sænsku félögunum er um 25
milljarðar króna. Einnig á félagið
stóran eignarhlut í breska bankan-
um Singer & Friedlander.
Burðarás leggur höfuðáherslu
á að fjárfesta í fjármála- og fjar-
skiptafyrirtækjum og stefnir á að
75 prósent af eignum félagsins
verði erlendis. Heildarfjárfesting-
ar félagsins erlendis eru undir 50
prósentum þannig að gera má ráð
fyrir að það geri sig líklegt til
frekari kaupa á erlendum mörkuð-
um.
Þar sem Burðarási er ekki
skylt að tilkynna um kaup í sænsk-
um félögum ef eignarhluturinn er
undir 5 prósentum er afar senni-
legt að félagið eigi í fleiri sænsk-
um félögum. - eþa
Rán og gripdeildir
í stjórnarbyltingu
Stjórnvöldum í Kirgisistan var steypt af stóli á fimmtudaginn og hafa nýir
valdhafar tekið við stjórnartaumunum. Róstur hafa verið í höfuðborginni.
BISHKEK, AP Stjórnarbylting var
gerð í Kirgisistan á fimmtudaginn
og hafa leiðtogar byltingarinnar
þegar skipað nýja ríkisstjórn.
Rússar segjast reiðubúnir að
starfa með nýjum valdhöfum. Boð-
að hefur verið til kosninga í júní.
Eftir að stuðningsmenn Askar
Akajev, forseta Kirgisistan,
fengu bróðurpart þingsæta í
kosningum í febrúar hafa stjórn-
arandstæðingar mótmælt kröft-
uglega. Ólgan náði svo hámarki í
fyrradag þegar mótmælendur
lögðu undir sig skrifstofur forset-
ans og stjórnarráðsbyggingar í
höfuðborginni. Skömmu síðar
lýsti hæstiréttur landsins því yfir
að kosningarnar væru ógildar og
þingmenn sem sátu á síðasta
þingi ættu að taka sæti sín á ný.
Þingið skipaði svo Kurmanbek
Bakijev, einn byltingarleiðtog-
anna, sem starfandi forsætisráð-
herra og forseta. Boðað hefur
verið til nýrra kosninga í júní.
Talsverðar róstur voru í Bis-
hkek aðfaranótt föstudagsins
langa. Til átaka kom á götum úti
og fjöldi verslana var rændur og
eyðilagður. Óstaðfestar fregnir
herma að þrír hafi látist og yfir
hundrað manns slasast í ólátun-
um. Viðbúnaður er talsverður í
landinu og hefur landamærunum
til Kína verið lokað. Útgöngubann
var sett í Bishkek í gærkvöldi.
Bakijev tilkynnti í gær að
hann hefði þegar skipað í helstu
embætti ríkisstjórnar sinnar. Í
ávarpi sínu til þjóðarinnar hvatti
hann fólk til að sýna stillingu og
hét því að berjast gegn spillingu
og flokkadráttum í landinu.
Vladimír Pútín, forseti Rúss-
lands, kvaðst í samtali við Inter-
fax-fréttastofuna harma að
stjórnarskiptin í Kirgisistan
hefðu ekki átt sér stað eftir lög-
formlegum leiðum en sagði þó að
rússnesk stjórnvöld myndu
starfa með hinum nýju vald-
höfum. Pútín sagði jafnframt að
Akajev fyrrverandi forseti gæti
fengið hæli í Rússlandi ef hann
vildi. Akajev flúði land þegar
ljóst varð í hvað stefndi og er
talinn dvelja í Kasakstan. Haft
var eftir honum í gær að valda-
rán hefði verið framið en hann
kvaðst enn vera réttkjörinn
forseti landsins.
Kirgisistan er þriðja fyrrum
Sovétlýðveldið á rúmu ári þar
sem stjórnarbylting er gerð.
Ólíkt Úkraínu og Georgíu er hins
vegar ekki búist við að veiga-
miklar breytingar verði á stefnu
nýrra stjórnvalda í utanríkis-
málum. ■
Bætiefni í matvæli:
Umsóknirnar
margfaldast
MATVÆLI Á annan tug umsókna um
leyfi til að setja bætiefni í matvæli
hafa borist Umhverfisstofnun eftir
að dreifingu Ölgerðarinnar á
v í tamínbættum
Kristal plús var
stöðvuð í janúar.
Allt árið í fyrra
bárust aðeins
þrjár umsóknir.
Jóhanna Torfa-
dóttir, sérfræðing-
ur hjá Umhverfis-
stofnun, segir að
svo virðist sem að-
gerðir Umhverfis-
og heilbrigðisstofu
að stöðva dreif-
ingu drykkjarins
hafi opnað augu
fyrirtækja um nauðsyn leyfisins
þegar framleiðendur vilja setja
vítamín, steinefni og önnur bætiefni
í matvæli. - gag
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Páskatilboð
Stór Humar
5.900*
Medium Humar
3.900*
Laxaflök beinlaus
1.290*
*verð miðast við kr.kg
FYRIRFERÐIN EYKST Í SVÍÞJÓÐ
Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, og Björgólfur Thor Björgólfsson stjórnarformaður
leiða félagið í erlendum fjárfestingum. Svíþjóð er í talsverðu uppáhaldi þessa dagana og
Burðarás hefur fjárfest umtalsvert í nokkrum sænskum félögum.
ÚR MJÓLKUR-
KÆLI
VERSLUNAR
Flestar umsóknir
um bætiefni í
matvæli berast
vegna drykkja.
Íslendingar í gæsluvarð-
haldi í Bremerhaven:
Ekki beðið
um aðstoð
LÖGREGLUMÁL Enn hefur engin
formleg beiðni um aðstoð borist
hingað til lands frá þýskum lög-
regluyfirvöldum um aðstoð við
rannsókn máls þeirra tveggja skip-
verja á Hauki ÍS sem handteknir
voru í Bremerhaven með mikið
magn fíkniefna í fórum sínum.
Var slík beiðni send til Íslands
fyrir tilstuðlan utanríkisráðuneytis
Þýskalands í byrjun febrúar en hjá
lögreglunni í Reykjavík höfðu menn
ekki fengið neitt slíkt í hendurnar.
Íslendingarnir hafa verið í
varðhaldi í tæpa þrjá mánuði en
við leit tollyfirvalda fundust þrjú
og hálft kíló af kókaíni og hass í
klefum mannanna. Er það mat
þýsku lögreglunnar að miðað við
magnið sem mennirnir voru teknir
með sé ekki ólíklegt að þeir eigi
sér vitorðsmenn hér á landi. - aöe
FORSETINN ÁVARPAR ÞJÓÐINA
Kurmanbek Bakijev hvatti fólk til að sýna stillingu og lofaði að sameina þjóðina og berjast
gegn spillingu. Ekki er búist við miklum breytingum á utanríkisstefnu landsins.
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
61,08 61,38
114,92 115,48
79,69 80,13
10,70 10,76
9,73 9,79
8,74 8,79
0,58 0,58
92,60 93,16
GENGI GJALDMIÐLA 23.03.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
109,53 +2,13%
Brimborgarlóðin:
Íbúar furða
sig á bænum
KÓPAVOGUR Forsvarsmenn íbúa
Hjallahverfis í Kópavogi hafa
óskað eftir því að bæjaryfirvöld
skoði skipulag Dalvegar í heild
sinni.
Íbúarnir lýsa yfir furðu sinni á
því að mál Brimborgar, sem
keypti græna lóð gróðrarstöðvar-
innar Birkihlíð við Dalveg í von
um breytt skipulag, sé skoðað af
bæjaryfirvöldum en ekki blásið af
borðinu, samkvæmt Heiðari
Guðnasyni, einum forsvars-
manna.
Íbúarnir hafa sent bæjarfull-
trúum bréf í ábyrgðarpósti og
óskað eftir skoðun þeirra á málinu
og hafa bókað fund með bæjar-
stjóranum. - gag
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
ÞRÍR GRUNAÐIR UM ÖLVUNAR-
AKSTUR Þrír ökumenn voru
stöðvaðir í Keflavík aðfaranótt
fimmtudags grunaðir um ölvun
við akstur. Einn gisti fanga-
geymslur vegna heimilisófriðar
og einn var kærður fyrir hrað-
akstur á Njarðvíkurbraut í Njarð-
vík.
GRJÓTI HENT Í BÍL Maður kastaði
grjóti í rúðu bíls af gerðinni Opel
Vectra og brotnaði rúðan. Stóð
bíllinn fyrir utan skemmtistaðinn
Paddýs á Hafnargötu í Keflavík
og var lögreglan kölluð þangað
klukkan hálf þrjú aðfaranótt
föstudags.
RÓLEGT Í REYKJAVÍK Fjórir gistu
fangageymslur lögreglunnar í
fyrrinótt. Lögreglan í Reykjavík
segir að rólegt hafi verið í höfuð-
borginni aðfaranótt föstudags
enda skemmtistöðum skylt að
loka á miðnætti.