Fréttablaðið - 26.03.2005, Blaðsíða 12
Kristinn V. Jóhannsson lætur af
starfi framkvæmdastjóra Sam-
vinnufélags útgerðarmanna í Nes-
kaupstað (SÚN) þann 1. maí næst-
komandi eftir 24 ára starf. Segir
hann það góðan dag til að enda
starfsferilinn en Kristinn var um
áratuga skeið í fylkingarbrjósti
þeirra sem börðust fyrir bættum
kjörum verkafólks á Austurlandi.
Kristinn fæddist 1934 í húsi
sem hét Kirkjuhvoll og stóð utan
við Þórsmörk í Neskaupstað. Hann
var alinn upp af tveimur sam-
heldnum konum, móður sinni og
ömmu, en báðar voru þær mjög
vinstrisinnaðar og því fékk hann
góða sósíalíska menntun á upp-
vaxtarárunum. „Mamma var
ákveðinn sósíalisti og amma
sagðist vera bolsi. Svo fór að leið
mín lá í Alþýðubandalagið en eftir
að flokkurinn hvarf af vettvangi
stjórnmálanna hef ég ekki fundið
mér nýjan stað og mun ekki ganga
í annan stjórnmálaflokk,“ segir
Kristinn.
Sjálfstæðimenn í Neskaupstað
höfðu síðar höfuðstöðvar sínar í
húsinu þar sem Kristinn fæddist.
Segist hann hafa óskað eftir því að
þeir settu skjöld utan á húsið þar
sem fram kæmi að þar væri
fæddur forseti bæjarstjórnar Nes-
kaupstaðar og talsmaður Alþýðu-
bandalagsins en það hafi ekki
fengið góðan hljómgrunn.
Fimmtán ára hleypti Kristinn
heimdraganum og lá braut hans til
mennta. „Ég tók landspróf á Eiðum
og útskrifaðist sem stúdent frá
Laugarvatni 1955. Á báðum stöð-
um bjó ég á heimavist og þar lærði
maður að bjarga sér og taka tillit
til annarra. Frá Laugarvatni lá leið
mín í Háskóla Íslands þar sem ég
lauk BA prófi í sögu, dönsku og
uppeldisfræðum.“
Kristinn bjó í sjö ár í Reykjavík
við nám og störf. Á þeim árum
lagði hann stund á körfuknattleik
með góðum árangri og lék fyrstu
sex landsleiki Íslands í þeirri
íþrótt.
Árið 1962 fluttist Kristinn aftur
til Neskaupstaðar og kenndi við
Gagnfræðaskóla Neskaupstaðar.
Tíu árum síðar varð hann skóla-
stjóri Iðnskóla Austurlands og
1981 hóf hann störf hjá SÚN og
þeim fyrirtækjum sem tengdust
þeim rekstri s.s. Tryggingamið-
stöðinni, Olís og fleiri félögum.
Kristinn hóf afskipti af sveitar-
stjórnarmálum 1966 en þá var
hann kosinn í bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar fyrir Alþýðubanda-
lagið. Þar sat hann sleitulaust í 24
ár og sem forseti bæjarstjórnar í
16 ár. „Vinstrisinnar í Neskaupstað
náðu völdum 1946 og algengt var
að meirihlutanum væri spáð falli í
hverjum kosningum. Stundum stóð
það tæpt og t.d. munaði ekki nema
nokkrum atkvæðum 1970.“
Árið 1983 var Kristinn kjörinn í
stjórn Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað (SVN) og var stjórnar-
formaður félagsins frá 1984 til
2004 en þá tók Þorsteinn Már Bald-
vinsson, forstjóri Samherja, sæti
Kristins.
Íþróttir hafa alla tíð skipað
stóran sess í huga Kristins og hann
var um tíma formaður Þróttar í
Neskaupstað en synir hans tveir
gegndu síðar báðir því embætti.
Kristinn segist alls ekki ætla að
setjast í hinn helga stein þegar
hann lýkur störfum en ætlar að
sinna sínum hugðarefnum og
rækta líkama og sál. „Ég hef hug á
að ferðast; stunda skíði á veturna
og ganga á fjöll og sinna garðrækt
með konunni á sumrin. Fleira mun
ég taka mér fyrir hendur en þó
tæplega fara að leika golf. Þó er
aldrei að vita nema vini mínum
Stefáni Þorleifssyni takist með
tíð og tíma að draga mig á golf-
völlinn,“ segir Kristinn.
kk@frettabladid.is
12 26. mars 2005 LAUGARDAGUR
NOEL COWARD (1899 – 1973)
lést á þessum degi.
Heldur á vit nýrra ævintýra
TÍMAMÓT: LÆTUR AF STARFI FRAMKVÆMDASTJÓRA SÚN
„Ég hef minni á við fíl. Reyndar leita fílar
oft til mín eftir ráðum.“
Breska leikritaskáldið Noel Coward var þekktur fyrir skopskyn sitt
en sagði sjálfur að hnyttni væri eins og kavíar sem á að vera borinn
fram hóflega en ekki smurður út um allt eins og marmelaði.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Erika Ottósdóttir, frá Hlíð, Skriðdal, er
látin.
Ernst Ziebert Pálsson, Hæðargarði 20,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 9. mars.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Kristín Þórarinsdóttir lést mánudaginn
21. febrúar. Jarðaförin hefur farið fram.
Stefán Jónsson bóndi, Grænumýri,
Skagafirði, lést mánudaginn 21. mars.
Aðalheiður K. Bjargmundardóttir,
Hæðargarði 29, Reykjavík, lést þriðju-
daginn 22. mars.
Unnur Frímannsdóttir, fyrrum Húsmóð-
ir á Heiðarbæ II, Þingvallasveit, lést
þriðjudaginn 22. mars.
Þormóður Haukur Jónsson, Ugluhólum
12, Reykjavík, lést þriðjudaginn 22.
mars.
JARÐARFARIR
14.00 Guðríður Unnur Salómonsdóttir,
Mýrarbraut 12, Vík í Mýrdal, verð-
ur jarðsungin frá Víkurkirkju.
14.00 Kristbjörg Guðmundsdóttir, frá
Drangsnesi, Blikahólum 12,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Drangsneskapellu.
AFMÆLI
Baldur Hrafnkell Jónsson kvikmynda-
gerðarmaður er sextugur í dag.
Hafliði
Arngrímsson
dramatúrg er
54 ára í dag.
Haukur Hólm frétta-
maður er 49 ára
gamall í dag.
Kristján Kristjáns-
son (KK) tónlistar-
maður er 49 ára
gamall í dag.
Jónína Benediktsdóttir íþróttafræðing-
ur er 48 ára gömul í dag.
Víkingur Kristjánsson leikari er 32 ára í
dag.
KRISTINN V. JÓHANNSSON Freysteinn Bjarnason tekur við starfi Kristins hjá SÚN og
óttast Kristinn ekki að skila lyklunum í hans hendur.
Þennan dag árið 1997 fundust lík
37 félaga sértrúarsafnaðarins
Himnagættarinnar í úthverfi í San
Diego í Kaliforníu fylki í banda-
ríkjunum. Fólkið hafði svipt sig
lífi. Af hinum látnum voru 21
kona og 18 karlar.
Þegar líkin fundust var þeim hag-
anlega komið fyrir og öll voru
þau klædd í eins fatnað og nýja
Nike-íþróttaskó. Í ljós kom að
leiðtogar safnaðarins boðuðu að
með sjálfsmorði myndi andi
fólksins yfirgefa jarðneskan íveru-
stað sinn og fara um borð á
geimskipi sem leyndist á bak við
Hale-Bopp halastjörnuna sem
hafði þá nýlega verið uppgötvuð.
Leiðtogi safnaðarins hét Marshall
Applewhite, en kallaði sig Do, og
var prófessor í tónlistarfræðum
áður en hann gekk í söfnuðinn
árið 1972. Hann fékk fleiri til að
ganga í söfnuðinn og lofaði fólki
að geimskip myndi nema sálir
þeirra á brott og fylgja þeim til
„konungdæmis á himnum“.
Smám saman fækkaði í söfnuð-
inum eftir því sem nær dró komu
geimskipsins en á tíunda áratugn-
um óx Applewhite ásmegin og fór
að safna nýjum félögum í söfnuð-
inn. Applewhite boðaði skírlífi og
sumir í söfnuðinum fylgdu for-
dæmi hans og létu vana sig.
Eftir að Hale-Bopp halastjarnan
fannst árið 1995 varð söfnuður-
inn viss um að geimskipið sem
hann beið eftir væri á leið sinni
til jarðar. Í marsmánuði kom
halastjarnan næst jörðu og
Applewhite og félagar drukku
banvæna blöndu af eitri og vodka
og lögðust til hinstu hvíldar.
26. MARS 1997
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1913 Yfir 14 hundruð láta lífið í
flóðum í Ohio, Indiana og
Texas í Bandaríkjunum.
1938 Bændur nær 160 jarða í Ár-
nessýslu stofna fiskiræktar-
og veiðifélög fyrir Ölfusá og
Hvítá og ár sem í þær falla.
1947 Knattspyrnusamband Íslands
stofnað.
1953 Dr. Jonas E. Salk kynnir nýtt
bóluefni gegn taugaveiki.
1971 Austur-Pakistan lýsir yfir sjálf-
stæði og tekur upp nafnið
Bangladess.
1973 Flugvélin Vor ferst í Búrfjöll-
um í námunda við Hunda-
vötn norður af Langjökli og
með henni fimm menn.
1977 Hús á Bernhöftstorfu í Reykja-
vík stórskemmast í eldi.
1977 582 farast í hörmulegu flug-
slysi á Kanaríeyjum þegar
Boeing 747 þota KLM flugfé-
lagsins rekst í flugtaki á 747
þotu Pan Am.
Himnagættin fremur fjöldasjálfsmorð
!
"
#
$
%
&'
(!
)
*#+
!
#,
-,) .
/+
#) #
0 12
# )
#
3
+
+
(2
+
+
0(2
# )
+
0(2
#
00 042
# )
#
+
+
0 !52
+
+
!5 !2
# )
+
+
! !1
# ) +
6
! 1
3
7
+
+
10
3
) 2
#
)
#
/+
#)
8
$+
#
'
9
:
)
*.
"
#
)
!
;
;
< 2
+
#) 2
9
9
=
%
>
+
#
9
+
3
#)
?
(2
A
:
@
9 >
& +
B
)#
A
)
/@
-,
(2
#
#) +
3#+
3+
C
42
0
# )
&
@
#
# 2
)
@
2
Elskulegur stjúpfaðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur,
afi og langafi,
Ernst Ziebert Pálsson
Hæðargarði 20, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 9. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju.
Anna G. Ólafsdóttir Kristinn Guðmundsson
Helga G. Ólafsdóttir Halldór Pálsson
Erna Ó. Rothe Michael Rothe
Kristel Pálsdóttir Guðmundur Kristinsson
60 ára
á annan í páskum er
Grétar Pálsson
Flugumferðarstjóri,
Hrauntungu 45 Kóp.
Hann tekur á móti gestum í Flugröst Nauthólsvík milli
kl. 1600 – 1900 á afmælisdaginn, þann 28. mars.
NESKAUPSTAÐUR Framkvæmdastjóraskipti verða hjá Samvinnufélagi útgerðarmanna í
Neskaupstað í vor. Fráfarandi framkvæmdastjóri segist ekki ætla að setjast í helgan stein
heldur sinna hugðarefnum og rækta bæði líkama og sál.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
LN
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K