Fréttablaðið - 26.03.2005, Page 13

Fréttablaðið - 26.03.2005, Page 13
LAUGARDAGUR 26. mars 2005 13 FYRSTA STARFIÐ: ARI EDWALD Þrettán ára hjólasendill „Fyrsta formlega starfið mitt var sjálfsagt sumarið 1977 þegar ég var þrettán ára og vann sem send- ill á reiðhjóli,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri samtaka at- vinnulífsins um fyrsta starfið sitt. Ari fékk þó ungur reynslu af vinnumennsku og var sendur í sveit á sumrin allt frá tíu ára aldri. „Maður fékk stundum smá aur fyrir vinnuna í sveitinni, en það var reyndar ekki gefið upp til skatts svo ég ætti kannski ekki að segja frá því,“ segir hann og hlær. Ari segir að það hafi haft mót- andi áhrif á sig að byrja að vinna ungur og hann hafi snemma skilið þannig frá að hann væri velkom- inn aftur í næsta skólafríi. „Það var líka ágætt að hafa aukapening á milli handanna. Ég veit ekki hvort foreldrar mínir séu sam- mála en ég man ekki til þess að hafa þurft að biðja þau um pen- inga fyrir einhverjum óþarfa.“ Fram að háskólaárum sínum kom Ari víða við, meðal annars í byggingarvinnu og fiskvinnslu. „Það var hollt að kynnast þessu sjálfur og dvölin í sveitinni var líka góð að því leyti að maður fékk nasasjón af lífinu utan malbiks- ins. Ég held að það sé öllum hollt að komast aðeins út fyrir borgar- mörkin og kynnast einhverju nýju.“ - bs LITUR Í LÍFIÐ Stúdentar við Rabindra Bharati háskólann í Kalkútta á Indlandi mökuðu litum framan í hver aðra í tilefni litahátíðar sem nú stendur yfir. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1874 Robert Frost, ljóðskáld. 1911 Tennessee Williams, leikritaskáld. 1931 Leonard Nimoy, leikari. 1934 Alan Arkin, leikari. 1939 James Caan, leikari. 1942 Erica Jong, rithöfundur. 1943 Bob Woodward, rannsóknarblaðamaður. 1944 Diana Ross, söngkona. 1948 Steven Tyler, söngvari Aerosmith. HUÐNAN DÁSEMD OG GRÁFLEKK- ÓTTI KIÐLINGURINN Síðasta þriðjudag fjölgaði í Húsdýragarðinum í Laugardal þegar huðnan Dásemd bar gráflekkóttum kiðlingi. Vorboði í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum Huðnan Dásemd bar gráflekkótt- um kiðlingi í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum síðasta þriðjudag, en þetta var fyrsti burður Dá- semdar, sem fæddist í garðinum vorið 2003. Í tilkynningu garðsins kemur fram að faðir kiðlingsins, sem er hafur, sé hafurinn Kappi. Meðgöngutími huðna er 5 mánuð- ir og bera þær einum til tveimur kiðlingum í hvert sinn. „Geitur á Íslandi eru nú í kringum 400 talsins og eru því í útrýmingarhættu. Geitur eru eitt landnámsdýranna og í upphafi byggðar var oft talað um þær sem kýr fátæka mannsins. Þær gáfu bændum mjólk en þurftu ekki eins kjarnmikið fóður og kýrnar. Í dag eru nokkrir bændur með geitur og eru þeir margir hverjir að athuga möguleika sína svo hægt verði að komast hjá útrým- ingu,“ segir í tilkynningu Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins. Í garðinum verður opið alla páskahátíðina frá klukkan tíu á morgnana til klukkan fimm síðdegis. ■ ARI EDWALD Hafði gott af sveita- lífinu og telur að flestir ættu að verja tíma utan malbiksins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.